Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 52

Morgunblaðið - 02.02.2001, Side 52
MINNINGAR 52 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HENDRIK SNÆR BERNDSEN ✝ Hendrik SnærBerndsen fædd- ist á Landspítalan- um við Hringbraut 28. nóvember síð- astliðinn. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 28. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Hendrik Berndsen, f. 20. júlí 1966, og Bára Björnsdóttir, f. 22. ágúst 1966. Systkini hans eru Sigurður Ernst Berndsen, f. 28. ágúst 1993, og Aníta Birna Bernd- sen, f. 31. maí 1998. Foreldrar Hendriks eru Adolf Jakob Bernd- sen og Hjördís Sigurðardóttir, Skagaströnd. Foreldrar Báru eru Elsa Jónsdóttir og Björn Einars- son, Hofsósi. Útför Hendriks fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Hann verð- ur jarðsettur á Skagaströnd laug- ardaginn 3. febrúar klukkan 14. Elsku hjartans dreng- urinn okkar. Það er sárt og erfitt að setjast niður og þurfa að kveðja þig eftir svona stutta samveru, sem þó virtist svo löng. Þú varst svo yndislegur þegar þú komst í heiminn, fallegur og vel skapaður með þitt mikla dökka hár, svo ótrúlega líkur bróður þínum. Fljótlega kom í ljós að þú varst haldinn illkynja sjúkdómi sem þurfti að meðhöndla með sterkum lyfjum sem þinn litli fallegi líkami þoldi ekki. Þú barðist eins og hetja allan þennan tíma þótt þú ættir þína erfiðu daga. Þú gafst okkur alltaf von um að við gætum farið aftur saman heim. Sárt er fyrir Sigurð bróður þinn að þurfa að kveðja þig, það var hans heit- asta ósk að eignast bróður eins og þig. Hann hafði svo lengi beðið eftir því að þú kæmir í heiminn. Aníta systir þín skilur þetta ekki alveg en spyr hve- nær þú komir heim. Hún var svo góð við þig og sagði alltaf að þú værir svo sætur og vildi fá að halda á þér. Við áttum yndislegar stundir sam- an um jólin og þegar þú varst skírður hérna heima á afmælisdegi afa þíns hinn 28. desember. Við reyndum að vera hjá þér öllum stundum og er það okkur dýrmætt. En sárast er að hafa ekki getað hjálpað þér meira í veik- indum þínum. Eftir að þú varst lagður inn á gjörgæslu var svo erfitt að geta ekki faðmað þig og haldið á þér í fang- inu, þá héldum við í litlu höndina þína og strukum þér um þitt fallega höfuð. Elsku hjartans Hendrik Snær, það er svo erfitt að lifa í þessari þungu sorg og reyna að skilja tilganginn með þessu öllu saman. En við vonum að þér líði betur núna þar sem þú ert. Við vitum að langafi þinn og langamma taka á móti þér með hlýj- um opnum örmum og passa þig, þar sem þú munt hvíla hjá þeim. Minning um góðan og fallegan dreng mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Við biðjum góðan Guð að geyma þig og styrkja okkur öll. Vaktu minn Jesús, vaktu í mér vaka láttu mig eins í þér, sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. Pét.) Mamma og pabbi. Elsku litli bróðir minn. Þú sem varst fallegastur í heimin- um og þú varst svo blíður og góður og mér þykir svo vænt um þig. Ég gleymi þér aldrei. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þinn bróðir, Sigurður Ernst. Ég fel í forsjá þína, guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Joch.) Elsku litli Hendrik Snær okkar, Guð geymi þig. Amma og afi, Hofsós. Elsku Hendrik Snær, litla hetjan okkar. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna að Guð, hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Elsku Hinni, Bára, Siggi og Aníta, megi algóður Guð styrkja ykkur og vernda. Amma og afi, Skagaströnd. KIRKJUSTARF NÆSTKOMANDI sunnudag, 4. febrúar, kl. 20 mun Árbæjarkirkja vera með sína fyrstu mánaðarlegu „léttmessu“. Þetta eru öðruvísi mess- ur þar sem verður spiluð öðruvísi messutónlist. Páll Rósinkrans mun syngja lög af metsöludisknum „No turning back“, Guðni Már, skólavinur Árbæjarskóla og Ársels og æskulýðs- leiðtogi í Árbæjarkirkju, mun flytja hugvekju. Sr. Þór Hauksson sóknar- prestur þjónar fyrir altari. Ungt fólk les ritningarlestra og flytja bænir. Láttu sjá þig í léttmessu í Árbæjar- kirkju. Laugarneskirkja: Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Mömmumorgunn kl. 10– 12. Kaffispjall fyrir mæður. Góð upp- lifun fyrir börn. Unglingakvöld kl. 20 fyrir 9. og 10. bekk. Langholtskirkja. Langholtskirkja er opin til hljóðrar bænagjörðar í hádeginu. Grafarvogskirkja. Al-Anon-fundur kl. 20. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar- stund. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11. Barna- og unglingadeildir á laugar- dögum. Súpa og brauð eftir samkom- una. Allir velkomnir. Keflavíkurkirkja. Fundur með starfsfólki Sjúkrahúss Suðurnesja, Heilsugæslu Suðurnesja og Félags- málastofnunar Reykjanesbæjar í Kirkjulundi kl. 16. Ávarp Clemons. Umræður og fyrirspurnir. Lofgjörð- ar- og fyrirbænastundir í kirkjunni kl. 20–21. Frelsið, kristileg miðstöð. Föstu- dagskvöld kl. 21 styrkur unga fólks- ins. Dans, drama, rapp, prédikun og mikið fjör. Sjöundadagsaðventistar á Íslandi: Sameiginleg guðþjónusta aðventsafn- aðanna á Íslandi í Loftkastalanum, guðþjónusta kl. 11, biblíufræðsla kl. 12.30, ræðumaður Bertil Wiklander. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Safnaðarstarf Léttmessa í Árbæjar- kirkju ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 allan sólarhringinn — utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Sjáum um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla. Erfisdrykkjur 50-300 manna Glæsilegir salir Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu, Engjateigi 11, sími 588 4460. Bridshátíð Flugleiða, BSÍ og BR Þeim fjölgar alltaf erlendu gest- unum sem tilkynna komu sína á Bridshátíð. John Solodar kemur ásamt eiginkonu sinni Sue Ellen en hann vann Bermuda-skálina 1981. Makker Hjördísar Eyþórsdóttur að þessu sinni verður Bandaríkjakonan Carol Sanders, sem er margfaldur heimsmeistari kvenna bæði í tví- menningi og sveitakeppni. Skráning á Bridshátíð er í síma 587 9360 eða www.bridge.is Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 8. febrúar. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 23. janúar mættu 23 pör og var að venju spilaður Mitchell tvímenningur. Hæsta skor í N/S: Anna Jónsdóttir - Sigurrós Sigurðard. 259 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 251 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 243 Hæsta skor í A/V: Magnús Oddsson - Guðjón Kristjánss. 263 Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 255 Gróa Guðnad. - Sigríður Karvelsd. 241 Á föstudag var þátttakan einnig þokkaleg eða 22 pör. Þá varð loka- staðan þessi í N/S: Albert Þorsteinss. -Sæmundur Björnss. 247 Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 237 Jón Pálmason - Ólafur Ingimundarss. 233 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 282 Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 258 Fróði B. Pálss. - Magnús Jósefsson 237 Meðalskor báða dagna var 216. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.