Morgunblaðið - 02.02.2001, Page 67

Morgunblaðið - 02.02.2001, Page 67
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 67 Þorradansleikur Hljómsveitin Furstarnir ásamt Geir Ólafs og Önnu Vilhjálms föstudags- og laugardagskvöld Aðgangseyrir 1.000 Veitingahúsið Naustið ALMENNUR DANSLEIKUR með Geirmundi Valtýssyni í Ásgarði, Glæsibæ, í kvöld, föstudagskvöldið 2. febrúar Húsið opnað kl. 22.00. Allir velkomnir! Hljómsveitin Hunang leikur frá miðnætti Vesturgötu 2, sími 551 8900 Ath! Tónleikar með Bubba Morthens nk. sunnudagskvöld kl. 9 SUNDANCE-kvikmyndahátíðin er nú á enda. Englar alheimsins og 101 Reykjavík voru á hátíðinni sem er í takt við velgengni íslenskra kvik- mynda á sl. ári. Þessir fram- bærilegu fulltrúar Íslands vöktu at- hygli líkt og hvarvetna sem þeir koma. Eins og fyrr hefur verið sagt frá veitti kvikmyndatímaritið Var- iety Baltasar Kormáki sérstaka til- nefningu sem leikstjóra sem vert væri að fylgjast með í framtíðinni. Góð viðbrögð en erfiður róður Fullt hús var á sýningu Engla al- heimsins í Egypska kvikmyndahús- inu, sem er elsta og virtasta bíóið í Park City þar sem Sundance-hátíðin er haldin. Bandarískir áhorfendur klöppuðu og flautuðu þegar atriðið á Grillinu á Hótel Sögu náði há- marki. Eftir sýninguna spurðu áhorfendur Friðrik Þór spjörunum úr og þótti ljóst að myndin hafði snert marga. „Þetta var góður salur og það eru svona stundir sem gera það þess virði að framleiða kvikmyndir,“ sagði Friðrik Þór að sýningu lokinni og bætti við að þetta hefði verið ein besta sýning myndarinnar á er- lendri grundu. Sama kvöld fór svo fram sýning á 101 Reykjavík í Salt Lake City, höf- uðborg Utah, og þar komust færri inn en vildu. „Það stóðu tæplega fjögur hundr- uð manns í röð fyrir utan kvik- myndahúsið þrátt fyrir að uppselt hefði verið á myndina þeg- ar við komum þangað klukkutíma fyrir sýningu,“ sagði Ingvar Þórðarson, framleiðandi 101Reykjavík. Neil Friedman, sem fer með sölu íslensku kvikmyndanna á Banda- ríkjamarkaði, sagði fáar kvikmynd- ir hafa selst á hátíðinni að þessu sinni, en markaðssetning hans byggðist að stórum hluta á því að fá umfjöllun um myndirnar í fjöl- miðlum í Norður-Ameríku og engin kvikmyndahátíð væri betur til þess fallin en Sundance-hátíðin. Hann bætti því við að þó svo að dreifing- araðilar sjái stórkostleg viðbrögð áhorfenda á sýningunum á Sund- ance þá væru þeir samt hræddir við að kaupa kvikmyndir á öðrum tungumálum en ensku. Bæði hann og Friðrik eru sammála um að róð- urinn verði erfiður fyrir Engla al- heimsins á Bandaríkjamarkaði nema hún fái útnefningu til Ósk- arsverðlauna. Konur í heimildum Sundance- kvikmyndahátíðin gerir heim- ildamyndum jafn- hátt undir höfði og leiknum kvikmynd- um, en konur voru sérlega margar meðal verðlaunahafa í þeim flokknum. Þrátt fyrir að konur hafi einmitt tekið eftir því að færri konur voru með myndir á hátíðinni en vanalega. Aðalverðlaun dómnefndar fyrir heimildamynd hlaut Kate Davis fyr- ir mynd sína Southern Comfort. Áhorfendaverðlaunin eftirsóttu hlutu Tom Shepard fyrir Scout’s Honor, sem einnig fékk Málfrels- isverðlaunin, og Stacy Peralta fyrir fyrir Dogtown and the Z-Boys. Stacy hlaut einnig sérstök leik- stjóraverðlaun fyrir sömu mynd. Og sérstök heimildamyndadómnefnd- arverðlaun hlaut Edet Belzberg fyr- ir mynd sína Children Undergro- und. Karlmenn í drama Aðalverðlaun dómnefndar leik- inna kvikmynda hlaut Henry Bean fyrir myndina The Believer. Áhorf- endaverðlaunin hlaut John Camer- on Mitchell fyrir myndina Hedwig and the Angry Inch. Hann hlaut einnig leikstjórnarverðlaunin fyrir sömu mynd. Sérsök handritsverðlaun hlaut Christopher Nolan fyrir Memento, en hann var í hópi með Baltasar Kormáki sem áhugaverður leik- stjóri. Dómnefndin veitti leik- urunum Sissy Spacek og Tom Wilk- inson sérstök verðlaun fyrir leik sinn í myndinni In the Bedroom eft- ir Todd Field. Hinn þekkti kínverski leikstjóri Yang Zimou hlaut áhorfendaverð- laun í flokknum Heimskvikmyndir fyrir mynd sína The Road Home. Fjölmargar stuttmyndir eru sýndar á hátíðinni og þótti mynd Paul Harrill Gina, An Actress, Age 29 sú besta en auk þess hlutu sjö aðrir stuttmyndahöfundar viðurkenn- ingu. Þess virði að fram- leiða kvikmyndir Geoff Gillmore, framkvæmda- stjóri Sundance, og Friðrik Þór bregða á leik. Morgunblaðið/Jón E Gústafsson Ingvar Þórðarson og Páll Grímsson kvikmyndagerðarmaður fyrir utan Egypska kvikmyndahúsið. Sissy Spacek og Tom Wilk- inson fengu sérstök verð- laun dómnefndar fyrir leik sinn í In the Bedroom. Uppselt á íslenskar myndir á Sundance-kvikmyndahátíðinni Morgunblaðið/Jón E. Gústafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.