Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 21

Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 21 Ert þú með smá appelsínuhúð eða kannski bara mikla? það skiptir ekki máli. Silhouette er alltaf lausnin! Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland www.karinherzog.com ...ferskir vindar í umhirðu húðar Nú er vor í lofti um megin við Reykjanesbrautina. Okkur finnst skjóta skökku við að á sama tíma og augljóst er að Garða- bær hefur nægt byggingarland skuli vera uppi hugmyndir um að byggja út í náttúrulegan vog.“ Vilja ekki smábátahöfn En hvað um smábátahöfnina sem er þáttur í títtnefndum tillögum að bryggjuhverfi í Arnarnesvogi? „Það er engin smábátahöfn þarna í dag og því viljum við ekki breyta. Við viljum ekki hafa eins og sumir kalla það „líf og fjör“ í voginum á kvöldin og um helgar, með fjölda báta og tilheyrandi hávaða. Hér var fyrir nokkrum árum sjóþotuleiga eitt sumar. Þeirri starfsemi fylgdi svo mikill hávaði að varla var vært fyrir íbúana við voginn, sem er mjög hljóðbær. Svo mikil mótmæli urðu vegna þessa að á endanum var ákveðið að endurnýja ekki starfs- leyfi leigunnar. Bátaumferðin er því eitt af því sem við höfum sett fyrir okkur. Einnig hefur farið fyrir brjóstið á mörgum að rætt hefur verið um að byggja þarna margra hæða fjölbýlishús en af því er aug- ljós sjónmengun. Umferð og há- vaðamengun af bílum og bátum myndi auk þess fæla fuglinn í burtu.“ „En er almenningur mikið á ferli í fjörunni við Arnarnesvog til að njóta þar náttúrufegurðar og hvern- ig er aðgengið þangað? „Með því að breyta hinu niður- nídda iðnaðarhverfi í botni vogsins í íbúðarhverfi er ljóst að aðgengi bæjarbúa að voginum batnar til mikilla muna en nú þegar er hægt að ganga stóran hluta hinnar nátt- úrulegu fjöru í voginum.“ Telja menn að bygging bryggju- hverfis í Arnarnesvogi hækki eða lækki fasteignaverð á svæðinu? „Okkar fyrstu hugsanir þegar teikningar komu fram að byggð á skaganum út í voginn voru að með því væri sótt að okkur af hafi,“ segir Tómas. „Engan hafði nokkurn tíma órað fyrir því að byggt yrði út í Arn- arnesvoginn. Öðru máli gegnir um auðar landspildur þar sem menn vita að aðeins er tímaspursmál hve- nær byggð kemur. Menn hafa þó að ég held fremur hugsað um skerð- ingu á þeim lífsgæðum að vera í tengslum við náttúruna en skerð- ingu á fasteignaverði í þessu sam- bandi. Hins vegar liggur í augum uppi að það sem gefur þessum hús- um við voginn sérstakt gildi er nátt- úran og ef gengið er á hana rýrir það verð húsanna. Eftir því sem á hefur liðið hafa menn í ríkari mæli farið að hugsa þetta mál út frá „prinsippsjónar- miðum“ um verndun náttúrunnar. Þetta er angi af stærra máli það er að halda í það sem eftir er af nátt- úruperlum á höfuðborgarsvæðinu. Ætti að friðlýsa Arnarnesvog, Gálgahraun og Lambhúsatjörn? Ljóst er að áður fyrr gerðu menn hluti í umhverfismálum sem þeir eru ekki stoltir af í dag. Ég tel fulla ástæðu til að nema hér staðar og hugsa í samhengi hvort ekki sé rétt að þyrma þeim náttúrperlum sem eftir eru á höfuðborgarsvæðinu. Hér í Garðabæ hlýtur sú spurning að vakna hvort ekki eigi að taka ákvörðun um að Arnarnesvogurinn, Gálgahraunið og Lambhúsatjörnin séu perlur sem ástæða sé til að frið- lýsa og að ekki verði byggt á þeim svæðum.“ Framkvæmdaaðilar segja að til- lögur þær sem nú eru lagðar fram séu endurbættar og þar með að tillit hafi verið tekið til athugasemda bæjaryfirvalda og íbúa í næsta ná- grenni. Hvað segir Tómas H. Heið- ar um þetta atriði? „Það er misskilningur að tekið hafi verið tillit til okkar sjónarmiða. Okkar sjónarmið eru þau að til bóta sé að láta hóflega íbúðarbyggð koma í stað iðnaðarhverfisins sem nú er í botni vogsins. En við erum alveg á móti því að farið verði með landfyllingu út í voginn. Það er auð- velt að láta svona hluti líta vel út á teikningum og tölvumyndum, land- fyllingin sýnist þá nett – en í raun er um að ræða 7,3 hektara sem jafn- gildir tíu Laugardalsvöllum. Segja má að í hópi íbúanna hafi komið fram mismunandi sjónarmið hvað snertir landfyllingu þá sem þegar er fyrir hendi á fyrrverandi athafnasvæði Stálvíkur. Margir vilja fjarlægja hana og færa strönd- ina til upprunalegs horfs. Ég hef sjálfur séð gamalt myndband þar sem í botni vogsins var algjörlega náttúruleg strönd og var unun á það að horfa. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir að þessar óskir séu raun- hæfar. Sátt um hóflega byggð og enga frekari landfyllingu Ég tel að það ætti að geta orðið sátt um það meðal íbúanna að byggt verði með hóflegum hætti í botni vogsins og hafnargarðurinn sem fyrir er á svæðinu snyrtur til en ekki verði farið með landfyllingu út fyrir hafnargarðinn. Þetta er mjög mikilvægt atriði. Þetta mál hefur verið mikið í um- ræðu í fjölmiðlum og fundur um skipulags- og byggingarmál sem haldinn var fyrir nokkru á vegum Sjálfstæðisfélags Garðabæjar sner- ist að mestu um þetta mál. Þetta var mikill átakafundur en eftir þennan fund hafa menn hins vegar átt sam- töl við ýmsa bæjarfulltrúa og við finnum að það er vaxandi skilningur á okkar sjónarmiðum. Við sem erum á móti frekari landfyllingu í Arn- arnesvogi erum því bjartsýn á að það geti orðið sátt um málið með þeim hætti sem áður segir. Morgunblaðið/Halldór KolbeinsTómas H. Heiðar með skagann út í Arnarnesvog í baksýn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.