Morgunblaðið - 11.03.2001, Blaðsíða 29
FÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 29
Upplýsingar veitir:
sími 554 4365
Ábyrgir aðilar í áratugi
Þitt eigið heimili á Spáni
Costa Blanca
16 ár á Íslandi
hefur á síðastliðnum
16 árum selt og afgreitt
til fjölmargra Íslendinga,
einstaklinga, fjölskyldna
og fyrirtækja vandaðar
húseignir af öllum
stærðum og gerðum.
Skoðunarferðir
mánaðarlega. Gist á
eigin hótelum
fyrirtækisins.
Fyrirtækið hefur
hlotið hina eftirsóttu
gæðavottun ISO 9002
Yoga Studio — Halur og sprund ehf.,
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 864 1445.
Í verslun okkar er að finna:
Gæða nuddbekki frá Custom Craftworks,
Oshadhi 100% hágæða ilmkjarnaolíur o.fl.
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 13. mars — Þri. og fim. kl. 19.30.
4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem
eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breyt-
ingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði.
Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun og andleg lög-
mál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.
(Sjá einnig www.yogastudio.is)
www.yogastudio.is
ÁSDÍS María Mogensen, áttatíu og
tveggja ára að aldri, átti fyrir
skömmu sögulega og eftirminni-
lega stund með fjölskyldu sinni er
saman voru komnir fimm ættliðir í
beinan kvenlegg hennar.
Við þetta tækifæri var kynslóða-
munurinn víðsfjarri. Hinn fimm
kynslóða ættbogi hefur samtals
lagt 219 ár að baki á lífsleiðinni.
Þar brá glettnum æskuljómanum
jafnt fyrir í augum langalang-
ömmunnar og nöfnu hennar Ásdís-
ar Lindu Pétursdóttur sem er
yngsti ættarlaukurinn af kvenkyni,
aðeins fjórtán mánaða gömul.
Ásdís María hefur átt miklu
barnaláni að fagna en afkomendur
hennar eru nú 15 talsins; 2 börn, 5
barnabörn, 7 langömmubörn og 1
langalangömmubarn.
Ásdís María Mogensen er fædd
og uppalin á Akureyri árið 1918 en
hefur lengst af ævinnar verið
búsett í Reykjavík þar sem hún hef-
ur unnið við ýmis störf. Hún var
gift Axel Mogensen bryta er starf-
aði hjá Skipadeild SÍS og Slát-
urfélagi Suðurlands en hann lést
árið 1968.
Kynslóðirnar fimm er sverja sig í sömu ættina. F.v. Ásdís María Jóns-
dóttir, 41 árs amman, Ásdís María Mogensen, 82 ára langalangamman,
Guðrún Mogensen, 61 árs langamman, með Ásdísi Lindu Pétursdóttur,
14 mán., í fanginu, og móðirin Margrét Ósk Jónasdóttir, 23 ára.
Fimm ættliðir í kvenlegg
með 219 ár að baki
FRÉTTAVEFUR nemenda
Menntaskólans á Egilsstöðum var
nýlegaopnaður með viðhöfn. Ólafur
Ágústsson, nemi á 2. öðru ári í ME,
er í forsvari fyrir auglýsinga- og
markaðsmál vefjarins. Hann segir
að fréttavefurinn sé verkefni nem-
enda í Textagerð 102 í menntaskól-
anum.
„Við erum með fréttir, umfjöllun
um það sem er í deiglunni hverju
sinni, pistla, framhaldssögur og
upplýsingar um nemendaráðið, svo
eitthvað sé nefnt. Nemendur voru
þrjár vikur að vinna fréttavefinn,
sem er hannaður af Kára Hlíðari
Jósepssyni og unninn í Front Page
forriti. Ólafur segir útlit vefjarins
látlaust og aðgengilegt og þó að
hugmyndin að uppbyggingu vefj-
arins komi frá nemendum sjálfum,
sé hann ekki ósvipaður og Aust-
firski fréttavefurinn að uppbygg-
ingu.
Til stendur að koma með al-
mennar fréttir inn á vefinn, en það
er framtíðarverkefni. Hin góð-
kunna íþróttakempa og fyrrver-
andi rektor ME, Vilhjálmur Ein-
arsson, opnaði vefinn formlega.
Slóðin er www.me.is/frettir.
Nemar í ME
opna fréttavef
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Bjarni Þ. Sigurðsson, Ólafur
Ágústsson og Vilhjálmur Ein-
arsson opna nýjan fréttavef.
alltaf á sunnudögum