Morgunblaðið - 11.03.2001, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 23
Heimsferðir opna þér leiðina til
Ítalíu á verði sem hefur aldrei
sést fyrr á Íslandi. Vikuleg flug
alla föstudaga til Mílanó, þess-
arar háborgar lista og tísku í
heiminum. Hér kynnist þú listaverkum Leonardo da Vinci,
Scala óperunni með frægustu listamönnum heimsins, hin-
um fræga miðbæ þar sem Duomo dómkirkjan gnæfir yfir,
hinni þekktu verslunargötu Galeria Vittorio Emanuele II,
ráðhúsinu, glæsilegustu verslunum heimsins, listasöfnum
og nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu.
Mílanó
í sumar
frá kr. 22.052*
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 24.895
Flugsæti fyrir fullorðinn.
Skattar kr. 2.495 innifaldir.
Verð kr. 22.052
Verð fyrir mann, m.v. hjón með 2
börn, 2-11 ára. Skattar kr. 2.495 f.
fullorðinn og kr. 1.810 f. barn innif.
Flug alla föstudaga
Brottför frá Keflavík
kl. 17.10
Flug heim á miðviku-
dagsmorgnum
UNDANFARNA tvo daga hafa ver-
ið tekin upp atriði vegna kvikmynd-
arinnar K-19: The Widowmaker á
ísnum á Winnipegvatni við Íslend-
ingabæinn Gimli í Manitoba í Kan-
ada. Ingvar Sigurðsson fer með
stórt hlutverk í myndinni en Jó-
hannes Snorrason, annar Íslend-
ingur, bættist í hópinn á Gimli.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
hann þegar hann kom kaldur til
baka af ísnum.
„Mér er rosalega kalt en get samt
ekki kvartað því ég fékk loðfóðruð
leðurstígvél en flestir hinir eru í
ófóðruðum stígvélum, sagði Jó-
hannes Snorrason við Morgun-
blaðið eftir að hafa verið á ísnum í
11 tíma samfellt, frá því klukkan 6
til 17 eða meðan birtu naut. 60
strákar frá Winnipeg og Gimli voru
valdir úr 400 til 500 manna úrtaki
til að taka þátt í hópatriði á ísnum
og er Jóhannes í hlutverki sjóliða.
„Við göngum um í hópum, stöndum
á hliðarlínunni og hvetjum okkar
menn úr hópi helstu leikara í kaf-
bátnum sem skipta liði og leika fót-
bolta á ísnum. Ég var í hópi þeirra
sem fögnuðu mest því mitt lið sigr-
aði, en hlutverkið er ekki veigamik-
ið. Ég segi ekki orð.“
Jóhannes Snorrason er rúmlega
tvítugur húsasmiður frá Augastöð-
um í Hálsasveit í Borgarfirði en
flutti til Gimli í maí 1999 og hefur
starfað hér við húsasmíðar. En
hvernig stóð á því að Borgfirðing-
urinn á hlut að máli í umræddri
mynd? „Ég var hvattur til að fara í
prufur úti í félagsmiðstöð á sunnu-
dag og var valinn. Í kjölfarið fékk
ég tveggja daga frí í vinnunni til að
geta sinnt þessu hlutverki en þetta
er frumraun mín á þessu sviði. Ég
hef aldrei komið nálægt leiklist.
Afi Jóhannesar og alnafni, Jó-
hannes Snorrason flugstjóri, bjó á
Gimli á árum áður vegna flugnáms.
„Ég vildi koma hingað til að heim-
sækja ættingja, vinna og freista
gæfunnar því ég var atvinnulaus
eftir að fyrirtækið sem ég starfaði
hjá heima varð gjaldþrota. Ég kom
reyndar hingað í heimsókn fyrir 10
árum og hitti þá ömmu en hún dó í
fyrra. Nú hef ég notað tímann til að
kynnast ættingjum betur og er
reyndar kominn með kærustu. Hún
heitir Donika Lára Olafson og er að
ljúka háskólanámi en er að hugsa
um að sækja um styrk til að fara í ís-
lensku fyrir erlenda stúdenta við
Háskóla Íslands þannig að það get-
ur vel verið að ég fari fljótlega aftur
til Íslands. En það kemur allt í ljós.
Harrison Ford leikur aðal-
hlutverkið í myndinni. Ekki var
gert ráð fyrir að hann kæmi til
Gimli en svo birtist hann skyndilega
í fyrrakvöld. Undanfarna daga hef-
ur vart verið rætt um annað í bæn-
um en hvort hann kæmi eða ekki og
þegar hann kom vissu heimamenn
ekki í hvorn fótinn þeir ættu að
stíga og Morgunblaðsmenn voru
minntir á að myndatökur í matsal
Lakeview Resort-hótelsins væru
bannaðar. Allir vildu sjá goðið en
Jóhannes hugsaði um annað. „Ég
vonaði að ég hitti Ingvar Sigurðs-
son hérna en hann er ekki í þessu
atriði,“ sagði hann.
Sagt er að þessar tveggja daga
tökur færi bæjarfélaginu um
100.000 kanadískra dollara, um 5,7
milljónir króna, og Jóhannes segir
að fyrsta reynsla sín af kvikmynda-
leik hafi opnað nýja sýn. „Þótt það
sé frekar kalt að vera svona lengi
úti á ísnum er þetta spennandi. Ég
geri reyndar bara það sem mér er
sagt að gera. Pabbi segir að það sé
við hæfi að Hálsasveit eigi fulltrúa í
myndinni rétt eins og Reykjavík en
hlutverk okkar eru í samræmi við
stærð samfélagsins sem við komum
úr.
Fulltrúi
Hálsasveit-
ar í mynd
með Harri-
son Ford
Winnipeg. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhannes Snorrason, leikari í K19, nýkominn af ísnum.
Á UMSÓKNAREYÐUBLAÐI
fyrir gulldebetkort Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis er
ákvæði þar sem viðkomandi um-
sækjandi lýsir yfir almennu
heilbrigði sínu og veitir Alþjóða-
líftryggingarfélaginu heimild til
að leita eftir upplýsingum frá
læknum og sjúkrastofnunum um
heilsufar sitt.
Öryrkjabandalag Íslands tel-
ur að textinn geti brotið í bága
við margvísleg ákvæði stjórn-
arskrár, mannréttindasáttmála
og upplýsingalaga en hann er
svohljóðandi:
„Ég undirrituð/-aður lýsi því
yfir að ég hef ekki nú eða áður
haft alvarlegan sjúkdóm eða
sjúkdómseinkenni og er ekki að
bíða niðurstöðu rannsókna eða
örorkumats. Sem dæmi um al-
varlega sjúkdóma má nefna
hjarta- og æðasjúkdóma og
krabbamein. Ég hef ekki verið
metin/n öryrki og tel mig nú
heilsuhrausta/n. Komi til tjóns
heimila ég Alþjóðalíftryggingar-
félaginu að fá upplýsingar frá
læknum, stofnunum og sjúkra-
húsum um heilsufar mitt og um
læknismeðferð sem ég hef feng-
ið.“
Að sögn Kristins Tryggva
Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra markaðssviðs hjá
SPRON, er ástæðan fyrir þess-
um texta sú að gulldebetkortinu
fylgir líftrygging. Þannig er um
sambyggða líftryggingar- og
bankaviðskiptaumsókn að ræða
og þessi þáttur varðar aðeins
líftrygginguna. „Þetta eru staðl-
aðar upplýsingar sem alltaf er
aflað í tengslum við útgáfu líf-
tryggingarskírteina,“ segir
hann.
Aðspurður segir hann hægt
að fá gulldebetkortið án líf-
tryggingarinnar og segir hann
þó nokkur dæmi um það. „Hún
fylgir í pakkanum en það er
hægt að fá kortið og alla þá
þjónustu sem er innifalin í
pakkanum án þess að trygging-
in sé tekin og er árgjald korts-
ins þá lægra.“
Óvenjulega
opið samþykki
Sigrún Jóhannesdóttir, for-
stjóri Persónuverndar, segir
ákvæðið hljóma eins og hefð-
bundinn líftryggingarskilmáli en
þó sé sjaldgæft að gefa svo opið
samþykki sem þarna er um að
ræða. „Ég hefði haldið að sam-
þykki tryggingartaka yrði að
vera skilgreindara,“ segir hún.
„Það er mikilvægt að það sé
skýrt hvað einstaklingurinn er
að samþykkja og það þarf að
vera ótvírætt að hann samþykki
það. Svona opin samþykki upp-
fylla tæpast þessi skilyrði.“
Ekki náðist í forstjóra Al-
þjóðalíftryggingarfélagsins í
gær vegna málsins.
Kortinu fylgir
líftrygging
Öryrkjabandalagið gagnrýnir um-
sókn fyrir debetkort SPRON
FRAMKVÆMDASTJÓRI Gáma-
þjónustu Akraness telur Akranes-
kaupstað hafa brotið gegn samningi
við fyrirtækið með því að fela öðru
fyrirtæki að flytja úrgangstimbur
frá gámastöð Akraneskaupstaðar
við Berjadalsá í flokkunar- og mót-
tökustöð Sorpu í Gufunesi.
Þá hafi Akraneskaupstaður samið
við þriðja fyrirtækið um að sjá gáma-
stöðinni fyrir gámum undir það rusl
sem fellur til við flokkun á timbrinu.
Hann hefur sett fram lögbanns-
kröfu hjá sýslumanninum á Akra-
nesi. Ekki sé þó víst að kröfunni
verði haldið til streitu.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akra-
neskaupstaðar, segir að bæjaryfir-
völd telji einsýnt að samningurinn
taki ekki til flutnings á timbri og
brotajárni. „Við höfum ítrekað reynt
að ná skynsamlegu samkomulagi við
viðkomandi aðila og höldum í þá von
að það takist,“ segir Gísli. Honum
þyki leitt að deilurnar séu komnar í
þann farveg sem raun ber vitni. Gísli
segir að hinir umdeildu flutningar
hafi verið stöðvaðir í bili.
Þá hafi verið ágreiningur um viss
atriði samningsins varðandi sorp-
hirðu og rekstur á gámastöðvum.
Gísli segist vonast til að þennan
ágreining megi leysa með viðræðum.
Samið við tvö önnur fyrirtæki
Valdimar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Gámaþjónustu Akra-
ness, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að fyrirtækið hefði, í kjölfar
útboðs, gert samning við Akranes-
kaupstað árið 1997 sem felur í sér að
fyrirtækið sjái um flutning á öllu
flokkuðu sorpi frá gámastöðinni í
móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í
Gufunesi. Þá eigi fyrirtækið að sjá
um að útvega gáma á gámastöð
Akraness. Þessi samningur gildi til
ársins 2005.
Í lok febrúar á þessu ári hafi Akra-
neskaupstaður falið Sorpu að flytja
timbur frá gámastöðinni á Akranesi
en áður hafi timbur ekki verið flutt í
móttöku- og flokkunarstöð Sorpu.
Þá hafi bærinn samið við enn annað
fyrirtæki um að sjá gámastöðinni
fyrir gámum undir rusl sem fellur til
við flokkun á timbrinu. Valdimar
segist hafa óskað eftir skýringum frá
bæjaryfirvöldum en engar fengið.
Hann segir að með þessu sé Akra-
neskaupstaður klárlega að brjóta
gegn samningnum frá 1997. „Þetta
er aðeins hluti af stærra máli sem
byrjaði strax á fyrstu mánuðum árs-
ins 1998,“ segir Valdimar. Akranes-
kaupstaður hafi ítrekað brotið gegn
samningnum, m.a. með því að neita
að borga fyrir hluta af þeirri þjón-
ustu sem tilgreind er í honum.
Deilur um gámaþjón-
ustu á Akranesi
KATLA Travel hefur endurnýjað
samning um vikulegt leiguflug frá
þremur borgum í Þýskalandi næsta
sumar. Samanlagt er um að ræða
um 500 sæti á viku og verða sæti í
vélarnar héðan seld sem hluti af
ferðafrelsi Samvinnuferða-Landsýn-
ar.
Flogið verður vikulega á fimmtu-
dögum frá Þýskalandi frá 7. júní í
sumar fram til 30. ágúst. Borgirnar
sem um ræðir eru München, Frank-
furt og Berlín. Flogið verður með
þýska flugfélagninu Aero Lloyd í
nýjum flugvélum frá Airbus. Annars
vegar er um að ræða A320 sem tek-
ur 167 farþega í sæti og hins vegar
A321 sem tekur 210 farþega í sæti.
30% aukning
frá Þýskalandi
Pétur Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Katla Travel í München, sagði
að 1.600 Íslendingar hefðu flogið
með leiguflugi á vegum þeirra í
fyrra og hann reiknaði með að það
yrði meira í sumar. Allavega stefndi
í það því þeir væru búnir að selja
fleiri sæti nú heldur en á sama tíma í
fyrra. Aukningin væri enn meiri frá
Þýskalandi eða eitthvað um 30%
milli ára miðað við sama tíma í
fyrra. Þar væri að langmestu leyti
um að ræða annars vegar ferða-
langa á eigin vegum, sem kæmu
hingað og ferðuðust um á bílaleigu-
bílum, og hins vegar hótelhringferð-
ir í kringum landið sem ferðaskrif-
stofan byði upp á.
Katla Travel endurnýjar samning um leiguflug í sumar
500 sæti frá þremur
borgum í Þýskalandi