Morgunblaðið - 11.03.2001, Blaðsíða 37
Afi og amma Kristínar, þau Kol-
beinn Þorsteinsson, skipstjóri, og
Kristín Vigfúsdóttir keyptu húsið að
Hverfisgötu 53 snemma á seinustu
öld og komu þar upp börnum sínum
sex. Þar var og til heimilis móðir
Kristínar, Sigríður Vigfúsdóttir
langamma okkar sem sjálf átti sex
börn er voru í nánu sambandi við
móður sína. Húsið var í eigu fjöl-
skyldunnar allt fram til 1991 og í ár-
anna rás áttu margir afkomenda
Kristínar og Kolbeins heimili sitt að
Hverfisgötu 53, sem alla tíð stóð um
þjóðbraut þvera.
Ömmur okkar Kristínar voru
systur og mæður okkar vinkonur
sem og allar systur þeirra, svo fyrr
og síðar var mikill samgangur á milli
stórfjölskyldnanna. Okkar fjöl-
skylda bjó fyrst í grenndinni á Lind-
argötunni en engu breytti þótt flutt
væri vestur á Ránargötu. Heim-
sóknir voru tíðar og veisluhöld af
margvíslegu tilefni
Kristín fæddist á Laugum í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, þar sem foreldr-
ar hennar, Leifur Ásgeirsson og
Hrefna Kolbeinsdóttir, voru skóla-
stjórahjón, en hún var átta ára þeg-
ar fjölskyldan fluttist til Reykjavík-
ur. Alla ævi bjó Kristín að árunum
sínum á Laugum en dvölin þar gaf
fjölskyldunni mikla lífsfyllingu og
þau eignuðust þar marga tryggðar-
vini. Við systurnar eigum góðar
minningar um heimsókn með for-
eldrum okkar til þeirra að Laugum.
Frá Laugum flutti fjölskyldan á
Hverfisgötu 53. Á heimili þeirra
Leifs og Hrefnu ríkti einstaklega
hlýleg og notaleg gestrisni og mikil
greiðasemi. Kristín bjó sín skólaár í
foreldrahúsum og þar hófu einnig
hún og maður hennar, Indriði Ein-
arsson, sinn búskap. Kristín var alla
tíð nátengd foreldrum sínum og
stóðu þau sem klettar við hlið henn-
ar þegar Indriði fórst af slysförum
eftir nokkurra ára hjónaband frá
tveimur ungum börnum, sem var
ólýsanlegt áfall. Þau Leifur og
Hrefna reyndust ómetanleg stoð og
stytta við uppeldi barnanna, þeirra
Einars og Hrefnu, sem voru stolt
þeirra og eftirlæti. Börnin mann-
vænlegu voru stóra gleðin í lífi
Kristínar og þau áttu eftir að reyn-
ast henni svo einstaklega vel.
Sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni og Kristín var afar góð heim að
sækja, ættrækin og trygglynd eins
hún átti kyn til. Hún var skemmti-
leg, hress og lifandi í hugsun og það
var gaman að ræða við hana um
bækur, gang þjóðmála og ástand
heimsmála því hún fylgdist mjög vel
með og las mikið alla tíð. Hún íhug-
aði málin, myndaði sér skoðanir og
tók afstöðu, lét sér ekkert mannlegt
óviðkomandi og naut þess að ræða
málefnin í góðu tómi. Kristín, sem
hafði verið kennari og síðar blaða-
maður um langt árabil, hafði mikla
og margþætta lífsreynslu.
Fyrir rúmum áratug var blásið
nýju lífi í ættartengsl afkomenda
Sigríðar Vigfúsdóttur frá Grund í
Skorradal og Vigfúsar Höskuldsson-
ar frá Fjalli á Skeiðum þegar haldið
var ættarmót og skráð niðjatal
þeirra. Áhuginn var mikill og mættu
hátt á þriðja hundrað manns á Hótel
Sögu. Kristín var einn af drifkröft-
unum að þessu framtaki og þau
Hrefna og Leifur tóku einnig virkan
þátt í undirbúningnum. Það var eft-
irminnileg lífsreynsla að fá tækifæri
til að spegla sig í svo mörgum ætt-
ingjum af fjórum kynslóðum sam-
ankomnum á einum stað. Eftir ætt-
armótið var stofnaður svokallaður
Frænkuklúbbur, sem stóð opinn öll-
um frændum og venslafólki, með
það markmið að hittast reglulega,
sem við höfum gert allar götur síð-
an, Nú er þetta orðinn Gönguklúbb-
ur sem hittist einu sinni í mánuði
megnið af árinu, gengur, skoðar
stundum myndlistarsýningar og síð-
an er notið hressingar og spjallað
saman. Kristín lét sig ekki vanta á
þessar samkomur þótt hún gæti tak-
markað tekið þátt í göngunum. Hún
kom með til að njóta samvistanna og
hennar er nú sárt saknað í okkar
hópi.
Í september sl. lét þessi hópur –
alls á fimmta tug manna – gamlan
draum rætast þegar við fórum í eins
konar pílagrímsferð í Borgarfjörð-
inn á fornar ættarslóðir. Margir
merkisstaðir voru skoðaðir en há-
punktur ferðarinnar var heimsóknin
til frænda okkar, Davíðs bónda á
Grund í Skorradal, sem tók okkur
opnum örmum af mikilli gestrisni og
fræddi okkur um sögu staðarins og
skýrði staðhætti. Flest okkar höfðu
oft heyrt talað um mannlífið þarna á
árum áður og sumir tóku með sér í
ferðina smáar og máðar erfða-
myndir og sýndu glaðlegt fólk í hey-
skap og útreiðartúrum á öndverðri
síðustu öld. Skógurinn í Skorradaln-
um skartaði sínu fegursta og um-
faðmaði okkur í haustsólinni. Kristín
naut sín vel í þessari ferð, og nú þeg-
ar hún hefur svo óvænt kvatt þenn-
an heim, erum við svo fegnar að
ferðin var farin. Of oft vill dragast
það sem við mennirnir ætlum okkur
að gera, þar til allt er orðið um sein-
an.
Framtíðin virtist brosa við Krist-
ínu og hún hafði svo margt að gleðj-
ast yfir einmitt núna á þessu skeiði
lífsins. Hún hafði lokið því átaks-
verkefni að selja húsið sitt í Foss-
voginum og komið sér vel fyrir í
hentugu framtíðarhúsnæði í Ljós-
heimunum, þar sem hún undi sér
vel. Ekki spillti það fyrir að sonur-
inn Einar á íbúð í sama húsi. Og þótt
nokkuð hafi skort á líkamlegt þrek
Kristínar á undanförnum árum var
andlegt þrek hennar óbugað og lífs-
viðhorfið jákvætt. Með reisn og af
skynsemi sætti hún sig við heilsu-
brestinn og kvartaði ekki. Hún var
lífskúnstner og naut þess munaðar
sem í því felst að eiga tómstund til
að hugsa og góðan tíma til að sinna
hugðarefnum sínum, fjölskyldu og
vinum.
Mikil hamingja féll Kristínu í
skaut fyrir rúmlega tveimur árum
þegar langþráða barnabarnið, dótt-
ursonurinn Andrés, fæddist, sem
varð augasteinninn hennar og sann-
ur sólargeisli í lífi fjölskyldunnar.
Kristín veitti ungu fjölskyldunni all-
an þann stuðning sem hún mátti. Og
mikil var eftirvæntingin þegar von
var á öðru barni, en nú í lok janúar
fæddist svo dótturdóttirin Iðunn,
einnig sannur gleðigjafi en nú héld-
ust þær í hendur gleðin og sorgin
því í byrjun ársins hafði Kristín
fengið sinn skapadóm og háði harða
baráttu við dauðann. Það er þyngra
en tárum taki að hún skuli svo
skyndilega hafa verið hrifin burt frá
ástvinum sínum einmitt núna þegar
hún hafði svo mikið að lifa fyrir.
Hin samheldna fjölskylda Krist-
ínar syrgir hana sárt. Barnalán
hennar var mikið og bæði Einar og
Hrefna og tengdasonurinn José
sinntu henni alla tíð af einstökum
kærleika og alúð sem gleggst kom í
ljós í lokabaráttunni í lífi hennar.
Litlu barnabörnin Andrés og Iðunn
hafa líka misst mikið að fá ekki að
njóta kærleika ömmu sinnar lengur
en raun varð á. Megi Guð styrkja
þau öll í sorginni. Einkabróðurnum
Ásgeiri og öðrum nákomnum send-
um við einnig samúðarkveðjur.
Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur
undir himninum hefir sinn tíma.
Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir
sinn tíma.
(Prédikarinn 3:1–2.)
Blessuð sé minning Kristínar
Leifsdóttur.
Rannveig og Vigdís Jónsdætur.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 37
Blómastofa
Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Blómaskreytingar við öll tilefni
Opið til kl. 19 öll kvöld
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
!" #
$!% & " '
# '
( )'*
#
! $ '
( # '
'$ +,
!"!
# $ " "
%
%
& " # '()
! (
%*
! !
!
"
#$
!""
#
$%&
'"" ()) * * +,' ,-"
+,+ "!
! "#
$%& '
(
) "*
+
(
,
&& -)
(
(* (
".' 0
+
#*
&,#(
, , ( , , ,1
!"
# $
% &
' ( & '
) & '
*
+ & '
, *
( ( '* ( ( ( -
! " # $%
& '"
( " ) *#
* '
*#
+
," *#
( ! -
" + *# .