Morgunblaðið - 11.03.2001, Page 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 45
Díana og Sigurjón taka á móti gestum í dag á milli kl. 15-17.
OPIÐ HÚS Í DAG
Baugstjörn 28, Selfossi
Erum með til sýnis í dag glæsilegt fullbúið rúmlega 177 fm ein-
býlishús með bílskúr á Selfossi. Eignin skiptist m.a. í 4 herbergi,
stofu með glæsilegum arni, flísalagða forstofu, snyrtingu, bað-
herbergi, eldhús, þvottahús o.fl. Parket (merbau) og flísar á gólf-
um og vandaðar innréttingar. Gróin lóð með vönduðum 65 fm
sólpalli og heitum potti. Sjón er sögu ríkari. Ásett verð 16,3.
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFAN
Austurvegi 6 Selfossi - Sími 482 2299 - Fax 482 2229
AUSTURGATA 11, Hf. - 2 ÍBÚÐIR
Opið hús í dag frá kl. 14 - 16
Til sölu tvær íbúðir í þessu virðu-
lega húsi sem teiknað er af Guð-
jóni Samúelssyni. Um er að ræða
efri og neðri hæð hússins og er
hvor íbúð um 110 fm. Frábær
staðsetning og lóðin tilbúin frá
náttúrunnar hendi. Nánari uppl.
veitir Sigurður í síma 897 4589.
FÉLAG FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Fax 530 1501 • www.husakaup.is
530 1500
EINIMELUR
Til sölu er þetta glæsilega ein-
býli sem er 273 fm og staðsett á
einum eftirsóttasta stað bæjar-
ins. Húsið er í einstaklega góðu
ástandi og hefur verið mjög vel
viðhaldið. Nýtt þak, múrverk,
gler og gluggar. Mjög skemmti-
legt skipulag og fjölbreyttir nýt-
ingarmöguleikar. Fallegur og
skjólsæll suðurgarður með góðum sólpalli. Upplýsingar gefur
Brynjar á skrifstofu Eignasölunnar Húsakaupa.
VERKTAKAR - ATHAFNAMENN!
BYGGINGARLAND!
Í einkasölu mikið endurnýjuð stóreign í Mosfellsbænum. Húsið
sjálft er um 320 fm + geymslurými, sem er um 75 fm, og bílskúr
sem er um 70 fm. Hesthúsið og fjárhúsið eru um 100 fm auk
hlöðulofts. Eigninni fylgir 3,75 ha byggingarland sem góðir
möguleikar eru að byggja á íbúðarhús. Þetta er sérstakt tæki-
færi fyrir fjársterka aðila! Nánari upplýsingar veitir Ísak hjá
Fasteignaþingi.
EIGNIR SEM VERT ER AÐ SKOÐA!
Kringlan
Í einkasölu fallegt 172 fm parhús á tveimur hæðum auk 25 fm bílskúrs.
2-4 svefnherb. og rúmgóð stofa og borðstofa. Parket og flísar á gólfum.
Garður. Falleg eign á eftirsóttum stað. Verð 24,9 millj.
Njarðargrund - Garðabæ
Í sölu 151 fm einbýlishús á einni hæð auk frístandandi 58 fm bílskúrs.
Mjög rúmgóð stofa og 4 góð herb. Eldhúsið er með fallegri viðarinnrétt-
ingu og góðum borðkrók. Þetta er fallegt einbýlishús sem vert er að
skoða.
Kaplaskjólsvegur
Í einkasölu góð 3ja herb. íbúð + ris (þar gætu verið 2 herb. - tilvalið sem
vinnuherb. eða fyrir unglinginn), á 4. hæð til vinstri í fjölbýlishúsi. Parket
og dúkur á gólfum. Nýlega endurnýj. baðherb. Tengi fyir þvottavél á
hæð. Suðursvalir. GOTT BRUNABÓTAMAT!
Lindahverfi - Kópavogi
Í sölu glæsileg 151 fm „penthouse“-íbúð á tveimur hæðum í þessu
nýlega fjölbýli. Vandaðar innréttingar. 4 svefnherb. og rúmgóð stofa.
Tvennar svalir. Þvottahús í íbúð. Eign fyrir vandláta! Nánari uppl. á
skrifstofu.
Efstasund
Í einkasölu góð 75 fm íbúð í tvíbýli með sérinngangi á rólegum stað.
Parket og dúkur á gólfum. Rúmgott og bjart eldhús með innréttingu á
tveimur veggjum. Verð 9,7 millj. Áhv. 5,8 millj byggsj.+húsbr.
Vesturbær
Vorum að fá í sölu góða 3-4ra herb. endaíbúð á 2. hæð til hægri í fjöl-
býlishúsi. Tvö svefnherb.og stofa (hægt væri að stúka af þriðja herb. -
hurð til staðar). Dúkur á gólfum. Góð eign á eftirsóttum stað! Áhv. 4,2
millj.
Logafold - Grafarvogi
Vorum að fá í sölu fallega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (gengið upp
nokkrar tröppur) í litlu fjölbýli á útsýnisstað. Íbúðinni fylgir stæði í bíl-
skýli. Þvottahús í íbúð. Verð 13,4 millj. Áhv. 5 millj.
Barðastaðir - LAUST!
Í einkasölu falleg 111 fm íbúð á 2. hæð í þessu nýlega lyftuhúsi.
Fallegar innréttingar. Stórkostlegt útsýni! Áhv. 7,4 millj. húsbr.
Afhending við kaupsamning!
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
Lágafell - Mosfellsbæ
ÞRIGGJA missera hagnýtt nám í
Stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjón-
ustu hefst á hausti komanda hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ. Þetta
er í fjórða sinn að boðið er upp á
þetta nám hér á landi, en það er
skipulagt í samstarfi við Norræna
heilbrigðisháskólann í Gautaborg.
Námið er ætlað háskólamenntuðu
fólki sem starfar í heilbrigðisþjón-
ustu og vill afla sér þekkingar um
rekstur, stjórnun og stefnumótun.
Þegar hafa 83 heilbrigðisstarfs-
menn lokið þessu námi. Þar af eru
flestir hjúkrunarfræðingar og
læknar, en meðal brautskráðra eru
einnig meinatæknar, röntgentækn-
ar, lyfjafræðingar, tannlæknar, sál-
fræðingar, félagsráðgjafar, iðju-
þjálfar og sjúkraþjálfarar.
Nám í Stjórnun og rekstri í heil-
brigðisþjónustu jafngildir 15 há-
skólaeiningum og eru kennarar ís-
lenskir og erlendir sérfræðingar
m.a. í heilsuhagfræði, skipulags- og
stjórnunarfræðum, starfsmanna-
stjórnun, gæðastjórnun, fjármála-
fræðum, upplýsingatækni, forvörn-
um og siðfræði. Meðal kennara að
þessu sinni er Philip Jacobs, prófess-
or í heilsuhagfræði við Háskólann í
Alberta í Kanada, og Guðjón Magn-
ússon, rektor Norræna heilbrigð-
isháskólans.
Fimm manna stjórn skipuleggur
námið og er hún skipuð Sigurði Guð-
mundssyni landlækni, Guðjóni
Magnússyni, rektor Norræna heil-
brigðisháskólans í Gautaborg, Guð-
rúnu B. Yngvadóttur hjá Endur-
menntunarstofnun HÍ, Kristjáni
Jóhannssyni, lektor við viðskipta- og
hagfræðideild HÍ, og Brynju Guð-
mundsdóttur, meinatækni hjá heil-
brigðisdeild Tækniskóla Íslands.
Fyrirhugað er að bjóða upp á fjar-
kennslu í þessu námi á Akureyri ef
þátttaka verður næg.
Umsóknarfrestur rennur út 30.
apríl nk. Frekari upplýsingar eru á
vefsetri Endurmenntunarstofnunar
HÍ www.endurmenntun.is. Nýr
bæklingur um námið hefur einnig
verið gefinn út.
Stjórnun og
rekstur í
heilbrigð-
isþjónustu
HÆTT hefur verið útgáfu á kross-
gátu- og þrautablaðinu Hrafna-
sparki. Blaðið hefur verið gefið út í
7 ár og segir í tilkynningu að nú sé
mál að hætta. Þó sé í bígerð eitt
lokablað sem út komi í apríl og
verði það eingöngu sent til áskrif-
enda. Aðstandendur blaðsins senda
viðskiptavinum sínum kveðjur með
þakklæti fyrir samveruna, segir
þar ennfremur.
Útgáfu á
Hrafna-
sparki
hætt
♦ ♦ ♦
annan hvern miðvikudag