Morgunblaðið - 11.03.2001, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HVER kannast ekki við þetta gabb,
gabb, og gabb, hmmm. Við lendum í
því oft að logið er og strítt, en eftir
tilkomu svo kallað Internets, hefur
þessum lygum, og stríðnum fjölgað.
Áður fyrr var okk-
ur eiginlega ein-
göngu strítt og við
plötuð af nánustu
vinum og var það
kannski ekki oft, en
það fer náttúrlega
eftir hvernig vini
maður átti og hvern-
ig maður tók stríðni.
En svo höfum við
haft einn dag ári þar
sem „leyfilegt“ er að
plata í þeim tilgangi
til að láta einhvern
hlaupa apríl, „fyrsta-
apríl-gabb“, – þessi
dagur er náttúrlega 1. apríl árlega
eins og nafnið gefur til kynna. Á
þessum degi eru allir að plata alla og
reyna fá alla til að hlaupa apríl og
hefur þetta gengið svo langt að fjöl-
miðlar taka þátt í þessu og hanna
þeir þá oft misvandaðar greinar, í
þeim tilgangi að fá fólk til að hlaupa
fyrsta apríl. Þetta heppnast missvel.
En þetta er bara ein tegund af gabbi.
Sú lygi sem ég þoli minnst er sú er
gerist á Internetinu. Lygin sem ger-
ist oftast eru póstar sem eru með
gyllitilboð, viðvaranir (vara fólk við
einhverju), söfnun fyrir veik börn
o.s.frv. En þessar lygar eru gerðar í
þeim eina tilgangi að fólk sendi póst-
inn áfram. Þetta er eiginlega í öllum
tilvikum bull og lygi og eini tilgangur
með þessum pósti er að póstur fari á
sem flesta og sem oftast á sama ein-
stakling og það sem gerist að maður
fær þennan póst mörgum sinnum
aftur og aftur og ekki nóg með að
maður fái þetta kannski frá 4-6 að-
ilum sama daginn heldur þurfa 4-6
aðrir að segja manni að þetta sé
gabb. Já maður fær að vita í hvert
skipti að þetta sé gabb en þetta
stoppar ekki. Nei, heldur stuttu
seinna gerist þetta aftur og þá virð-
ist sem allir hafi gleymt eða haldið að
þetta sé nú pósturinn sem gæti verið
að segja satt.
Málið er einfalt, þessi póstur sem
er verið að senda með gyllitilboðum
eða vírusviðvaranir er í flest öllum
tilvikum gabb og eina sem þessi
póstur gerir að fjölga sér sem þýðir
að PÓSTURINN ER VÍRUSINN,
já pósturinn er vírus. Og ef þú sendir
póstinn áfram ertu að henda út vírus.
Það sem þú ættir að gera, ef þú ert
eitthvað órögg(ur) um hvort þessi
póstur sé að segja satt eður ei, er að
fara á síður eins og www.syman-
tech.com og gá hvort þetta sé gabb
eða ekki, nú ef þú sérð það ekki undir
„Hoax“ Sendu þá Symantech eða
Friðriki Skúlasyni póstinn og athug-
aðu hvort þú færð ekki svar, en ekki
senda á fleiri hundruð manns aftur
og alls ekki undirritaðan. En ef þú
færð svar frá Symantech eða Frið-
riki um að þetta sé vírus þá máttu
senda mér og láta mig vita, en ef þú
veist að þetta er ekki vírus, ekki hafa
fyrir því að láta mig vita, því mjög
líklega veit ég það fyrir.
PS: Hægt er að gerast áskrifandi
að ýmsum hópum sem senda þér
upplýsingar um alla vírusa.
Kveðja.
VALGEIR ÓLAFSSON,
án vírusa,
tæknistjóri.
Gabb á gabb ofan
Frá Valgeiri Ólafssyni:
Í VIKUNNI birtist hér í lesenda-
dálki Morgunblaðsins bréf frá Sig-
rúnu Völu Þorgrímsdóttur, sem bar
yfirskriftina „Málfræðimisþyrming í
starfsmannabréfi“ og fjallar um
kynningarbréf á viðskiptakorti fyrir
starfsmenn Kaupáss, sem þeir hafa
fengið sent með launaseðli. Sigrún,
sem er ungur námsmaður, og í hluta-
starfi hjá Nóatúni, var ekki alls kost-
ar ánægð með bréfið og segir að í því
sé „okkar annars fallega máli mis-
þyrmt“. Athugasemdir þær sem hún
nefnir eiga allar fullan rétt á sér og er
miður að ekki var betur vandað til
málfars bréfsins, en raun ber vitni.
Okkar styrkur er eflaust meiri í
rekstri smásöluverslunar en bréfa-
skriftum, en það er engin afsökun
fyrir því að senda frá okkur málfars-
lega óvandað dreifibréf til starfs-
fólks, sem spilar sjálft mikilvægt
hlutverk í velgengni fyrirtækisins.
Við ætlum að gera bragarbót í þess-
um efnum og vanda málfar okkar í
framtíðinni. Við tökum undir að mjög
mikilvægt sé að temja sér gott ís-
lenskt málfar.
Lesendabréfið ber með sér að
bréfritari er efnileg ung kona, sem á
eflaust eftir að ná langt á mennta- og
framabrautinni. Við þökkum Sigrúnu
Völu innilega fyrir að benda okkur á
það sem betur má fara á þessu sviði.
Það gerir verslanir okkar enn betri
þegar starfsfólk okkar leggur fram
málefnalegar athugasemdir og fersk-
ar hugmyndir um hvernig við getum
gert enn betur á öllum sviðum versl-
unarinnar. Við óskum Sigrúnu Völu
alls hins besta á námsbrautinni og er-
um stolt af því að hafa hana sem góð-
an liðsmann í verslunum Nóatúns.
ÞORSTEINN PÁLSSON,
framkvæmdastjóri Kaupáss hf.
Vinur er sá sem
til vamms segir
Frá Þorsteini Pálssyni:
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.