Morgunblaðið - 11.03.2001, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
FISKAR
Afmælisbarn dagsins:
Þrátt fyrir glaðværð og fas-
miklu framkomu ertu óör-
uggur inn við beinið og þarft
að sinna sjálfum þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gerðu þér grein fyrir því af
hverju þér vinnst ekki jafn vel
og venjulega. Þegar raunveru-
leg orsök er fundin verður létt
verk að kippa hlutunum í lag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hollt er að staldra við og
íhuga af hverju maður gerir
þennan hlutinn eða hinn og af
hverju endilega svona. Ein-
hverjar breytingar gætu orðið
til góðs.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sýndu mönnum og málefnum
áhuga og virðingu. Það er
hægt að sýna kurteisi, þótt
þér falli viðkomandi ekki í geð
né hugnist skoðanir hans.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu þér tíma til að tryggja
öryggi þitt og þinna. Heimilið
er þitt vígi og þú mátt ekkert
spara til að það sé griðastaður
þinn og vandamanna þinna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú skalt aldrei reikna með
stuðningi annarra sem gefn-
um hlut. Ef einhver mótmælir,
gefðu þér tíma til að útskýra
þitt mál fyrir honum og vinna
hann á þitt band með rökum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gleymdu þér ekki í velgengni,
þótt gaman sé að baða sig í
sviðsljósinu. Utan þess er ein-
hver, eða einhverjir, sem þú
þarft að gefa tíma svo allt fari
eins og bezt verður á kosið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki er von að þér sé skemmt,
þegar þú ætlast til að fá allt
upp í hendurnar. Brettu upp
ermar og vertu eigin gleði-
banki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú finnur, þegar þú hefur gef-
ið öðrum mikið af sjálfum þér,
að þú þarft að draga þig í hlé
og hlaða batteríin. Þú ert á
slíkum tímamótum og ættir að
sinna sjálfum þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ættir að treysta trúnaðar-
vini fyrir leyndarmálum, sem
hvíla þungt á þér, og vita hvort
hann er ekki til í að hjálpa þér
við að ráða fram úr þeim.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft að ná samkomulagi
við samstarfsmann þinn áður
en allt fer úr böndum og þið
getið ykkur hvergi hrært
nema til meiri átaka.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt mæta í dag erfiðri
þraut, sem reynir á alla þína
hæfni. En ef þú gætir þess að
rasa ekki um ráð fram, ættir
þú að komast vel frá þessu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Mundu að það eru margar
hliðar á hverju máli. Þetta
skaltu hafa hugfast þegar
menn fara að reyna að draga
þig inn í sínar deilur um hitt
og þetta. Taktu ekki afstöðu
að óathuguðu máli.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
NÚ ER lesandinn í suður í
sveitakeppni. Eftir pass
norðurs í upphafi vekur
austur á spaða og þú ákveð-
ur að passa og bíða vongóð-
ur eftir verndardobli frá
makker. En það fer á annan
veg:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 10
♥ KD73
♦ 74
♣ KG6432
Suður
♠ KD532
♥ 4
♦ ÁK63
♣Á108
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass 1 spaði Pass
Pass 2 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Útspilið er spaðagosinn og
þú færð að eiga fyrsta slag-
inn á drottninguna heima.
Hvernig er best að tryggja
samninginn?
Í sjálfu sér virðist fátt
geta komið í veg fyrir að ní-
undi slagurinn komi, jafnvel
þótt laufið liggi mjög illa. En
það er dulin hætta í spilinu.
Segjum sem svo að austur
eigi Dxx í laufi. Hin „eðli-
lega“ spilamennska er að
leggja niður laufás og spila
svo tíunni. Ef vestur hendir
rauðu spili í slaginn fær
austur að eiga á drottn-
inguna og enn er samgangur
við blindan og níundi slag-
urinn ætti að koma á spaða
eða hjarta.
En bíðum við – hvað ger-
ist ef austur spilar þriðja
laufinu um hæl? Þá er búið
að klippa samganginn við
blindan og hjartaslagurinn
gæti farið fyrir lítið. Ef leg-
an er að öðru leyti óhagstæð
er hugsanlegt að vörnin geti
spilað tígli endalaust og
komið í veg fyrir að sagnhafi
fái annan hálitaslag.
Til að verjast þessu er
skemmtileg hugmynd að
spila lauftíu strax í öðrum
slag og láta hana svífa yfir til
austurs.
Norður
♠ 10
♥ KD73
♦ 74
♣ KG6432
Vestur Austur
♠ G9 ♠ Á8764
♥ 10985 ♥ ÁG62
♦ D1095 ♦ G82
♣975 ♣D
Suður
♠ KD532
♥ 4
♦ ÁK63
♣Á108
Spilið er frá landsliðsæf-
ingu á miðvikudaginn. Jón
Baldursson var í suður og
„gaf“ austri á drottninguna
blanka með þessari óvenju-
legu öryggisspilamennsku.
Einn IMPi út, en vel spilað.
Á öðru borði var Anton
Haraldsson í austur í vörn
gegn þremur gröndum eftir
sömu sagnir. Hann fékk út
spaðagosa, drap á ás og
skipti yfir í smátt hjarta.
Það hefði verið rétta vörnin
ef suður ætti tvo hunda í
hjarta og Áx í laufi, því
þannig er innkoma blinds á
hjarta tekin af sagnhafa áð-
ur en laufið er fríað.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 11.
mars, er sjötug Svana
Tryggvadóttir, Tjaldanesi
1, Garðabæ. Hún tekur á
móti gestum í Stjörnuheim-
ilinu v/Ásgarð, Garðabæ, frá
kl. 17–19.
85 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 12. mars
verður áttatíu og fimm ára
Steingrímur Pétursson,
Bræðraborgarstíg 49.
Hann tekur á móti ættingj-
um og vinum á heimili sínu í
dag, sunnudaginn 11. mars.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 2. desember sl. á
Kauai af pastor Glenn Fraz-
ier, Eva Mandal og Atli
Guðmundsson, Heimili
þeirra er á Hringbraut 3,
Hafnarfirði.
60 ÁRA afmæli. Ámánudaginn 12.
mars nk. verður sextugur
Erling Þór Hermannsson,
Fögrukinn 7, Hafnarfirði.
Fjölskyldan býður vinum og
vandamönnum að samgleðj-
ast með sér á afmælisdaginn
milli kl. 18 og 21 í Hásölum,
safnaðarheimili Hafnarjarð-
arkirkju.
LJÓÐABROT
STÓÐ EG VIÐ ÖXARÁ
Stóð eg við Öxará
hvar ymur foss í gjá;
góðhesti úngum á
Arason reið þar hjá,
hjálmfagurt herðum frá
höfuð eg uppreist sá;
hér gerði hann stuttan stans,
stefndi til Norðurlands.
Úr lundi heyrði eg, hvar
hulduljóð súngið var;
fanst mér eg þekti þar
þann sem sló kordurnar:
alheill og orðinn nýr
álfurinn hörpu knýr,
ástvinur aungvum jafn
alfari úr Kaupinhafn.
Stóð eg við Öxará
árroða á fjöllin brá,
kátt tók að klíngja og fast
klukkan sem áður brast,
alskærum ómi sló
útyfir vatn og skóg.
Mín klukka, klukkan þín,
kallar oss heim til sín.
Halldór Kiljan Laxness
Fer lyftan ekki upp á veitingastaðinn á þakinu?
Reyfið er
40% gerviefni.
COSPER
Meðvirkni
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjá-
skipti og tilfinningar verður haldið föstu-
dagskvöldið 16. mars og laugardaginn
17. mars í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar
og skráning í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Hef hafið störf á
hárstúdíói Space.
Býð alla gamla sem
nýja viðskiptavini
velkomna.
MARGRÉT ÞORGEIRS
SÍTT HÁR Í TÍSKU
Bjóðum upp á hárlengingu
frá hinu heimsþekkta fyrirtæki DOME
HÁRGREIÐSLUSTOFA, GRENSÁSVEGI 50, SÍMI 588 5566
annan hvern miðvikudag