Morgunblaðið - 11.03.2001, Page 55

Morgunblaðið - 11.03.2001, Page 55
Á FIMMTUDAG frumsýndi Talia, leikfélag Menntaskólans við Sund, leikritið Karton af Camel í leik- stjórn Agnars Jóns Egilssonar, sem jafnframt er höfundur verksins í félagi við meðlimi Taliu. Eða eins og hann segir sjálfur: „Þetta er hrærigrautur úr bíómyndum sem allar gerast á 9. áratugnum. Verkið er gamanleikur um fólk í New York sem allt er á leið í sama teitið á síð- asta kvöldi ársins, árið 1984. Verk- ið fjallar síðan um hvernig þetta ólíka fólk horfist i augu við sjálft sig og lífið á gamlársdagskvöld – merkilegasta kvöldi ársins.“ Það besta frá 9. áratugnum „Við bjuggum Karton af Camel til úr myndum eins og 200 Cigarett- es, Flashdance og fleiri myndum sem við grannskoðuðum. Síðan spunnum við á milli til að halda söguþræðinum,“ segir Agnar. „Verkið er fullt af tónlist en er þó ekki eiginlegur söngleikur. Í stað- inn brjótast sögupersónurnar út í einni og einni laglínu hér og þar og syngja lög sem fólk þekkir frá þessu tímabili. Það eru ekki mörg stór söngatriði í verkinu en við not- um tónlistina meira til að lýsa þankagangi persónanna.“ Leikarar af guðs náð Agnar segist mjög ánægður með frammistöðu krakkanna, þótt þau séu öll áhugaleikarar. „Þau eru leikarar af guðs náð, en þetta er margslungin listgrein og endalaust hægt að læra,“ segir Agnar, sem hefur haldið leiklistarnámskeið fyr- ir þátttakendur sýningarinnar og stjórnað æfingum á leiksýningunni sjálfri undanfarna tvo mánuði. „Þau taka afskaplega vel við öllu sem ég segi þeim og hafa skilað frá- bærum árangri nú þegar upp er staðið. Þau komu alltaf meira og meira á óvart með hverri æfingu. Það hefur sýnt sig, að allt það sem ég var hræddastur um að myndi ekki virka, hefur gengið mjög vel upp.“ Alls koma að leikritinu tæplega 50 manns: 4 dansarar, 20 leikarar, 6 manna hljómsveit auk tæknimanna, búninga- og leikmyndarsmiða auk förðunarfólks. Auk þess hefur Skjöldur Mio Eyfjörð gengið til liðs við MS-inga og hefur yfirumsjón með förðun og útliti. Leiksýning á skemmtistað Sýningin er að þessu sinni flutt í nokkuð óvenjulegu umhverfi, nefnilega á næturklúbbi í miðborg- inni. „Það er synd að ekki skuli vera fleiri leikrými sem skóla- leikhópar hafa aðgang að, “ segir Agnar. „Þetta er mjög merkilegur þáttur í menningarlífinu og sorg- legt að segja að í raun er Tjarnar- bíó eina leikhúsið sem stendur til boða. Hinsvegar gafst okkur kostur á að nota Spotlight og tókum því boði umsvifalaust. Það er líka besti staðurinn í bænum til að finna hinn sanna anda 9. áratugarins.“ Agnar segir leiklistina og nætur- lífið fara vel saman á Spotlight: „Þetta er næturklúbbur svo að sá tími sem hann er opinn og sýning- artímar á leikritinu stangast ekki á, en um helgar er leikritið sýnt klukkan 19:00. En þó gestirnir stað- arins séu skemmtilegir og gaman sé að skemmta sér þar,“ segir Agn- ar hlæjandi, „treystum við okkur ekki til annars en taka sviðsmynd- ina niður milli sýninga.“ Morgunblaðið/Jim Smart Þau eru svalari en Michael Jack- son og George Michael saman- lagðir: MS-ingar í hlutverkum sínum í Karton af Camel. Merkilegasta kvöld ársins Leikritið fjallar um fólk sem allt er á leið í teiti á gamlárskvöldi, árið 1984, og vitaskuld bera búningarnir vott um hátísku þess tímabils. Menntaskólinn við Sund sýnir Karton af Camel FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MARS 2001 55 fimm daga vikunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.