Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 44

Morgunblaðið - 22.03.2001, Page 44
UMRÆÐAN 44 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á tökin í Makedóníu hafa enn einu sinni vakið spurninguna sem hefur hrjáð hið svokallaða alþjóða- samfélag frá því að hernaðar- afskipti í nafni mannúðar hófust, nefnilega þá hvort þau séu rétt- lætanleg. Réttum tveimur árum eftir að sprengjuherferð NATO á Júgóslavíu hófst hafa átök á svæð- inu blossað upp að nýju og þótt stríðandi fylkingar séu ekki hinar sömu eiga þær ýmislegt sameig- inlegt með þeim sem tókust á í Kosovo síðla vetrar og vorið 1999. Hvað hefur breyst? Lítið. Vaclav Havel, forseti Tékk- lands, sagði sprengjuárásir Atl- antshafsbandalagsins á Kosovo hafa verið fyrsta dæmið um að mannréttindi væru sett ofar ríkja- rétti. Afskipti Vesturlanda af átökunum á Balkanskaga falla líklega sömuleiðis undir þessa skilgreiningu þótt ljóst sé að Kos- ovo hafi átt að vera sönnun þess að aðgerðarleysið í Bosníu yrði ekki látið endurtaka sig. Á þeim árum sem liðin eru frá því að átök- unum í Kosovo lauk fer þó ekki hjá því að menn spyrji sig hvort rétt hafi verið að hafa afskipti af þeim. Óbreyttir borgarar láta enn lífið vegna þjóðernis síns og skoð- ana og nú hafa átök, sem minna um margt á upphaf Kosovo- stríðsins, hafist að nýju. Stríð í Kosovo kom þeim sem fylgst hafa með gangi mála á Balkanskaga ekki á óvart en spurningin er aft- ur á móti hvort það sem á eftir kom hafi gert það. Líklega gerði alþjóðasamfélagið, sem greip til aðgerða gegn Serbum vegna voðaverka þeirra í Kosovo, sér ekki fyllilega grein fyrir að það gæti ekki nema að litlu leyti haft stjórn á afleiðingunum. Sú alda hefndaraðgerða og ofbeldisverka sem reið yfir Kosovo í kjölfar upp- gjafar Serba sumarið 1999 olli gríðarlegum vonbrigðum um allan heim. Starf alþjóðasamtaka sner- ist á örskömmum tíma upp í að verja þjóð sem þau höfðu hingað til talið óvininn, fyrir árásum þeirra sem sömu samtök höfðu reynt að koma til aðstoðar skömmu áður. Efasemdaradd- irnar voru auðvitað á sínum stað og talsmenn alþjóðasamtaka máttu æ oftar svara spurningunni um hvort sprengjuherferð NATO á Júgóslavíu hefði verið þess virði. Var rétt að koma fólki til aðstoðar sem síðan notaði fyrsta tækifærið til að koma jafnilla fram við þá sem áttu litla sem enga sök á því sem átt hafði sér stað? Var rétt að leggja allt þetta fé og allan þenn- an mannafla til að grípa inn í þró- un sem margir segja að verði ekki stöðvuð? Og síðast en ekki síst; Var saga Balkanskaga ekki bara röð ofbeldisverka og mannrétt- indabrota og einfeldni að halda að hægt væri að breyta aldagömlum siðvenjum og hugarfari? Nú bæt- ist sú spurning við hvort átökin í Makedóníu hafi átt að koma al- gerlega á óvart í ljósi sögunnar og aðstæðna. Síðasta sumar voru í tvígang gerðar árásir á lög- reglustöðvar á svæðum sem eru að meirihluta byggð Albönum. Samtök sem kváðust berjast fyrir frelsi og jafnrétti Albana lýstu ábyrgð á þeim. Enginn vissi hverjir stóðu að baki þeim, þær endurtóku sig ekki, gleymdust jafnharðan. Menn ypptu öxlum og hugsuðu ekki frekar út í hvað kynni að krauma undir niðri. Enn er erfitt að segja til um hver munurinn er á þeim átökum sem nú hafa blossað upp í Maked- óníu og upphafi Kosovo-stríðsins. Albanar í Makedóníu hafa búið við skarðan hlut, þeir hafa verið kúg- aður minnihluti í slavnesku ríki rétt eins og Kosovo-Albanar, ann- ars flokks borgarar. En slav- neskir Makedóníumenn hafa ekki staðið fyrir skipulögðum hern- aðaraðgerðum gegn þeim, þeir hafa ekki ráðist á heimili óbreyttra borgara, hrakið þá á brott og myrt. Albanar hafa í krafti fjölda síns fengið aukna aðild að æðstu valda- stofnunum landsins vegna þess að Makedóníumenn gerðu sér grein fyrir hve lítið þarf til þess að upp úr sjóði. Albanar fengu að stofna háskóla í Tetovo, borginni þar sem átökin brutust út nú, og þrátt fyrir að takmarkaðrar hrifningar þjóðanna hvor á annarri hafi gætt hefur sambúð þeirra verið frið- samleg. Nú bendir margt til þess að hún heyri sögunni til. „Ætli við förum ekki að hata hvert annað,“ sagði einn íbúi Tetovo í vikunni. Við- brögð íbúa Makedóníu eru sorg- leg áminning um hve reiðubúin mannskepnan er til að byrja að hata nágranna sinn, eingöngu vegna þess að hann er af öðru þjóðerni. Og um leið að fallast á að stríðsátök séu eina leiðin. Sú ákvörðun albanskra skæruliða að grípa til vopna og viðbrögð make- dónska hersins eru til marks um hve lítið hefur breyst. Eina ríki gömlu Júgóslavíu, sem virtist ætla að komast hjá stríðsátökum, hefur nú dregist inn í röð atburða sem sýndust smávægilegir í fyrstu en gætu hæglega snúist upp í enn eitt stríðið á Balkanskaga. Og hvað á NATO að gera? Til að afla sprengjuárásunum á Júgó- slavíu fylgis beitti bandalagið gríðarlegri áróðursherferð sem aftur varð til þess að ýta undir óraunsæjar hugmyndir manna um það sem við tæki í Kosovo að stríði loknu. Hin máttuga stríðs- vél sem varpaði sprengjum daga og nætur á Júgóslavíu og hafði sigur gat ekki stöðvað ofbeldið á jörðu niðri eftir stríð þrátt fyrir að hún sendi þangað rúmlega 40 þús- und hermenn. Getur hún stöðvað átökin í Makedóníu? Er það þess virði, spyrja menn sig sjálfsagt nú í vestrænum stjórnarsetrum, í höfuðstöðvunum, í herbúðunum á Balkanskaga. Enginn efast um að þeir sem tapa í mögulegum stríðs- átökum í Makedóníu verða eins og annars staðar óbreyttir borgarar. Það er siðferðilega rangt að segja að hernaðaríhlutun í mann- úðarskyni borgi sig ekki, sé ekki réttlætanleg. Mannslíf verða ekki metin til fjár. En það er kannski jafnrangt að gera sér rang- hugmyndir um afleiðingarnar. Það er sá lærdómur sem títtnefnt alþjóðasamfélag getur dregið af afskiptum sínum á Balkanskaga. Hvort hann kemur til góða í Makedóníu er önnur saga. Sagan end- urtekur sig Er saga Balkanskaga ekki bara röð of- beldisverka og mannréttindabrota og einfeldni að halda að hægt sé að breyta aldagömlum siðvenjum og hugarfari? VIÐHORF Eftir Urði Gunnarsdóttur urdur@mbl.is LEIÐTOGAR Sjálf- stæðisflokksins hafa í tengslum við Vatns- mýrarkosningarnar veitt okkur athyglis- verða sýn á skilning þeirra á lýðræðinu. Á sama tíma og hinn vest- ræni heimur lítur á aukna þátttöku al- mennings í mótun og afgreiðslu mála sem brýnt verkefni stjórn- málanna virðast leið- togar Sjálfstæðis- flokksins stefna í þveröfuga átt. Allar götur síðan Reykjavík- urlistinn ákvað að setja framtíð Vatnsmýrarinnar í dóm kjós- enda í Reykjavík hafa leiðtogar Sjálf- stæðisflokksins forðast umræðu um efnisatriði málsins. Þess í stað hafa þeir hamast við að tortryggja at- kvæðagreiðsluna, draga úr mikil- vægi hennar og í raun hvetja borg- arbúa til afstöðuleysis um framtíð Vatnsmýrarinnar. Þau voru skilaboð oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Davíðs Oddssonar og Ingu Jónu Þórðardóttur, áskorun til fólks um að afsala sér lýðræðislegu áhrifavaldi sínu í einu stærsta skipulagsmáli Reykjavíkur fyrr og síðar. Mikilvæg spor mörkuð Þrátt fyrir þetta greiddu ríflega 30 þús- und Reykvíkingar at- kvæði um nýtingu Vatnsmýrarinnar. Aldrei fyrr hafa jafn margir tekið þátt í ákvörðun í svo mikil- vægu íslensku skipu- lagsmáli, aldrei áður hefur slík ákvörðun verið tekin með at- kvæðum svo fjölmenns hóps og aldr- ei fyrr hefur farið fram eins víðtæk og efnismikil umræða um nokkurt mál af svipuðu tagi. Öllum mátti vera ljóst að atkvæðagreiðslunni var ætl- að að ná lendingu í einhverju um- deildasta skipulagsmáli síðari tíma og að sú lending yrði í höndum þeirra sem mættu á kjörstað. Atkvæði þess- ara Reykvíkinga verða ekki ómerkt eftir á og eftir þeim ber að fara. At- kvæðagreiðslan markar því djúp spor í stjórnmálasögu landsins og með henni er brautin rudd fyrir lýð- ræði framtíðarinnar. Menn kjósa ekki eftir á Það er athyglisvert að nú þegar niðurstaða liggur fyrir hjá þeim ríf- lega 30 þúsund Reykvíkingum sem létu sig málið varða krefjast leiðtog- ar Sjálfstæðisflokksins þess að at- kvæðagreiðslan verði hundsuð. Slík er nú lýðræðisástin á þeim bæ. Þeir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins sem heima sátu hafa nú ástæðu til þess að naga sig í handarbökin en þeir verða að sætta sig við þá staðreynd að þeir kjósa ekki eftir á. Það að þeir skuli síðan telja það sérstakan sigur að „aðeins“ ríflega 30 þúsund Reykvík- ingar hafi mætt á kjörstað segir síð- an ýmislegt um lýðræðisskilning for- ystu Sjálfstæðisflokksins og hlutverk hennar í íslenskum stjórnmálum. Reykvíkingar hafa talað Hrannar Björn Arnarsson Atkvæðagreiðsla Aldrei fyrr, segir Hrannar Björn Arn- arsson, hafa jafn margir tekið þátt í ákvörðun í svo mikilvægu íslensku skipulagsmáli. Höfundur er borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans. Í SAMANTEKT Hollustuverndar ríkis- ins á upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga kemur fram að 69% matvæla- fyrirtækja hafa ekkert eða ófullnægjandi innra eftirlit. Nú kann einhver að spyrja: Hvað er innra eftirlit, hvað er unnið með því að hafa innra eftirlit í matvælaiðnaði og hvers vegna hafa ein- ungis 31% fyrirtækja fullnægjandi innra eft- irlit? Í þessari grein mun ég kynna stutt- lega hvað matvælafyrirtæki þurfa að gera til að koma á innra eftirliti sem uppfyllir settar reglur; þann ávinn- ing sem innra eftirlit færir matvæla- fyrirtækjum og velta upp hugsanleg- um ástæðum fyrir því hve hægt miðar að koma á innra eftirliti. Hvað er innra eftirlit? Hinn 20. september 1994 gaf um- hverfisráðuneytið út reglugerð nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og holl- ustuhætti við framleiðslu og dreif- ingu matvæla. Reglugerðin byggðist á tilskipunum Evrópusambandsins um þessi málefni. Þau nýmæli var að finna í reglugerðinni að frá og með 14. desember 1995 skyldu öll mat- vælafyrirtæki starfrækja innra eft- irlit til að tryggja gæði, öryggi og hollustu matvæla. Hið innra eftirlit skyldi taka mið af umfangi starf- semi. Við framkvæmd þessara mála var fljótlega ákveðið að gera þá lág- markskröfu til allra matvælafyrir- tækja að þau komi upp innra eftirliti, sem kallað er fimm fyrstu skrefin, og felast í (1) þjálfun starfsfólks, (2) hreinlætisáætlun, (3) stjórnun á hitastigi, (4) eftirliti með vörumót- töku og (5) viðbrögðum við frávikum. Fyrirtæki sem teljast vera með um- fangsmikla starfsemi, meðhöndla viðkvæm matvæli eða framleiða mat- væli fyrir viðkvæma hópa neytenda, s.s. sjúklinga, eiga að koma á svo- kölluðu GÁMES eftirlitskerfi, en skammstöfunin stendur fyrir: „Greining áhættuþátta og mikil- vægra eftirlitsstaða.“ Það er í hönd- um heilbrigðisnefndar á hverjum stað að ákveða hvort innra eftirlit fyrirtækis skuli taka mið af fimm fyrstu skrefunum eða GÁMES. Hvers vegna ættu eigendur fyrirtækja að koma á innra eftirliti með tilheyrandi kostn- aði og fyrirhöfn? Hertar reglur og auknar kröfur til mat- vælafyrirtækja í seinni tíð má líta á sem við- leitni yfirvalda til að vernda neytendur gegn matarsjúkdómum. Matarsjúkdómar hafa einmitt færst í vöxt á undanförnum áratugum. Oft og tíð- um hafa þessir sjúkdómar þjáningar í för með sér fyrir sjúklinga og dauðsföll af þeirra völdum eru vel þekkt. Þannig áætlar CDC („Center for Disease Control and Preven- tion“) í Bandaríkjunum að þar verði árlega um 76 milljónir veikindatil- fella, 325.000 innlagnir á sjúkrahús og 5.000 dauðsföll af völdum matar- sýkinga. Sambærilegar tölur eru ekki til fyrir Ísland. Fjölmiðlar hafa sýnt þessum mál- um vaxandi áhuga og fjallað ítarlega um slys af þessu tagi. Fyrirtæki sem blandast hafa inn í slíka umfjöllun geta orðið fyrir miklu tjóni. Jafnvel eru dæmi um að slíkar uppákomur hafi kippt grundvelli undan rekstri fyrirtækja. Virkt innra eftirlit dregur veru- lega úr líkum á matarsjúkdómum og afleiðingar þeirra tilfella sem upp geta komið verða ekki jafn alvarleg- ar. Afar mikilvægt er fyrir framleið- endur matvæla að geta sýnt fram á að þeir hafi gert allt sem hægt var til að verjast matarsýkingum þegar upp koma slys, s.s. sýkingar eða eitr- anir af völdum matvæla. Í skýrslu ráðgjafarhóps Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar um leiðir til að innleiða GÁMES í lítil og/ eða vanþróuð fyrirtæki er bent á eft- irfarandi ávinning þess að beita GÁMES í matvælaiðnaði. Helsti ávinningur neytenda er minni hætta á matarsýkingum, aukin vitund um hollustuhætti, aukin tiltrú á mat- vælaiðnaðinum og bætt lífsgæði. Ávinningur matvælaiðnaðarins er sagður vera bætt tiltrú almennings og stjórnvalda á matvælaiðnaðinum, lægri lögfræði- og tryggingarkostn- aður, bættur markaðsaðgangur, minni framleiðslukostnaður vegna færri innkallana og betri nýtingar, aukin stöðlun framleiðslu, aukin áhugi starfsfólks og stjórnenda á matvælaöryggi og minni áhætta í rekstri. Ávinningur stjórnvalda af GÁMES er talinn vera bætt heilsu- far almennings, lægri útgjöld til heil- brigðismála, aukin skilvirkni í mat- vælaeftirliti, auðveldari viðskipti með matvæli og aukin tiltrú sam- félagsins á öryggi matvæla. Meðal þess sem skýrsluhöfundar álíta að hamli því að GÁMES sé tekið upp í matvælaiðnaði er: Áhugaleysi fyrirtækja, skortur á lagakröfum, áhugaleysi yfirvalda, skortur á fjár- magni, skortur á menntuðu starfs- fólki, skortur á tæknilegri þekkingu, slæmur aðbúnaður í fyrirtækjum, skortur á áhuga meðal almennings og léleg samskipti á milli stjórnvalda og iðnaðarins. Það að innra eftirliti hefur ekki verið komið á í nema 31% matvæla- fyrirtækja verður að skrifa á reikn- ing fyrirtækja og yfirvalda. Vaxandi áhugi almennings á þessum mála- flokki ætti að verða fyrirtækjum og yfirvöldum hvatning til að fylgja settum reglum og leggja í samstillt átak til að koma á innra eftirliti í öll- um matvælafyrirtækjum. Hægt er að lesa áðurnefnda skýrslu um leiðir til að innleiða GÁMES í lítil og/eða vanþróuð fyr- irtæki á heimasíðu Heilbrigðiseftir- lits Suðurnesja: www.hes.is. Innra eftirlit í mat- vælaiðnaði Ásmundur E. Þorkelsson Heilbrigði Leiða má líkur að því, segir Ásmundur E. Þorkelsson, að víðtækri útbreiðslu innra eftirlits fylgi ávinningur fyrir allt samfélagið. Höfundur starfar hjá Heilbrigðis- eftirliti Suðurnesja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.