Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Opinn bæjarstjórnarfundur um ST-21
Á Degi um-
hverfisins
DAGUR umhverfis-ins er í dag. Af þvítilefni verður op-
inn hátíðafundur hjá bæj-
arstjórn Hveragerðisbæj-
ar í Garðyrkjuskóla
ríkisins á Reykjum í Ölf-
usi, en Hveragerðisbær
hlaut í þessum mánuði
hvatningarverðlaun fyrir
ST-21 - Staðardagskrá 21,
frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og umhverf-
isráðuneyti. Á fundinum í
dag mun umhverfisráð-
herra Siv Friðleifsdóttir
ávarpa gesti. Að sögn Kol-
brúnar Þóru Oddsdóttur,
umhverfisstjóra Hvera-
gerðis, er öllum heimill að-
gangur að þessum fundi.
„Á þessum opna fundi
verður Staðardagskráin
21 hjá okkur tekin til síðari um-
ræðu, en Hveragerðisbær fékk
hvatningarverðlaun ST-21, sem
fyrr sagði, fyrir skömmu. Á fund-
inum verður veggspjaldasýning
þar sem gerð er grein fyrir mark-
miðum og framkvæmdaáætlun
Staðardagskrár 21 hjá bæjar-
félaginu hér. Þetta er samvinnu-
verkefni umhverfisstjóra og
grunnskóla Hveragerðisbæjar, en
nemendur í sjöunda bekk hafa
tekið ljósmyndir til að lýsa betur
framkvæmdaáætlun þeirri sem
unnið er eftir.“
– Fyrir hvað fékk Hveragerð-
isbær hvatningarverðlaun Stað-
ardagskrár 21?
„Verðlaunin voru veitt fyrir
samstarfssamning milli Hvera-
gerðisbæjar og Dvalarheimilis
Ásbyrgis, Heilsustofnunar NLFÍ,
sveitarfélagsins Ölfus, Garð-
yrkjuskóla ríkisins á Reykjum og
rekstrarfélags Ölfusborga. Mark-
mið samvinnunar er m.a. að efla
tengsl á milli aðila, vinna saman
að ýmsum málefnum er tengjast
umhverfismálum, miðla þekkingu
og móta umhverfisstefnu í anda
Staðardagskrár 21. Við erum
bara lítið sveitarfélag hér, en með
þessum samningi náðum við
breiðu samstarfi og markvissara
starfi en ella hefði verið.“
– Er dagur umhverfisins hald-
inn hátíðlegur víða um heim?
„Þetta er dagur sem Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu að
halda hátíðlegan en Íslendingar
breyttu dagsetningu hjá sér til að
auðvelda grunnskólanemum að
taka þátt í starfi hans. Hér á landi
er miðað við fæðingardag fyrsta
íslenska náttúrufræðingsins
Sveins Pálssonar – þess manns er
orðaði fyrstur þá hugsun er nú
kallast sjálfbær þróun. Þess má
geta að Sameinuðu þjóðirnar
samþykktu þennan dag til þess að
gefa stjórnvöldum á hverjum
stað, félagasamtökum og fjölmiðl-
um tækifæri til að efla opinbera
umhverfisumræðu. Dagur um-
hverfisins er hugsaður sem hvatn-
ing til skólafólks og almennings til
að kynna sér betur samskipti
manns og náttúru.“
– Er almenningur
vel vitandi um þessi
efni?
„Margir vita ekki
nóg um Staðardagskrá
21 og hvað sjálfbær
þróun er. Sjálfbær þróun er þró-
un sem gerir okkur kleift að mæta
þörfum okkar án þess að stefna í
voða möguleikum komandi kyn-
slóða á að mæta þörfum sínum.
Með öðrum orðum: að lifa í sátt og
samlyndi við móður náttúru og
gæta þess að ganga ekki á þær
auðlindir og þann höfuðstól sem
komandi kynslóðir taka við. Áætl-
unin snýst ekki einvörðungu um
umhverfismál heldur er henni
einnig ætlað að taka tillit til efna-
hagslegra og félagslegra þátta.“
– Hvernig á að taka tillit til
þessara þátta?
„Ég ætla að svara þessu með
því að vitna í vinsælt slagorð: „Við
fengum jörðina ekki í arf frá for-
feðrum okkar – við höfum hana að
láni frá börnunum okkar.“
– Hvað þarf fólk einkum að vita
um Staðardagskrá 21?
„Hún lýtur að sjálfbærri þróun
samfélagsins. Eitt af grundvallar-
atriðinum er: hugsaðu hnattrænt
og framkvæmdu heima fyrir.
Þetta er áætlun þar sem sveitar-
félagið gerir grein fyrir hvaða leið
það ætlar að fara í sjálfbærri þró-
un á 21. öldinni. Ef vel á að takast
til þurfa félagasamtök, fyrirtæki,
stofnanir og almenningur að taka
þátt. Það má segja að í Staðardag-
skrá 21 sé gerð grein fyrir stöðu-
mati í fjölmörgum málaflokkum.
Sett eru fram markmið. Unnið er
að starfs- og tímaáætlunum,
framkvæmdir eru tímasettar og
starfið að lokum endurmetið. Það
sem við hjá Hveragerðisbæ erum
að gera núna er að samþykkja
okkar fyrstu framkvæmdaáætlun
fyrir Staðardagskrá 21 og vekja
athygli almennings á henni á degi
umhverfisins.“
– Hvað er á dagskrá hjá ykkur í
Staðardagskrá 21?
„Fjölmargar framkvæmdir er
tengjast eftirfarandi málaflokk-
um: holræsi- og frá-
veitukerfi, úrgangur
frá heimilum og fyrir-
tækjum, náttúrumeng-
un, gæði neysluvatns,
hávaði og loftmengun,
menningarminjar og
náttúruvernd, umhverfisfræðsla,
orkusparnaðaraðgerðir, mein-
dýraeyðing, skipulagsmál, um-
ferð og flutningar, auðlindanotk-
un, atvinnulífið og heilsa.
Á opna fundinum verða kynnt-
ar framkvæmdir sem lúta að
þessum ofangreindu málaflokk-
um. Öllum er velkomið að koma
þangað og kynna sér Staðardag-
skrá Hveragerðisbæjar.“
Kolbrún Þóra Oddsdóttir
Kolbrún Þóra Oddsdóttir
fæddist 8. júní 1956 í Reykjavík.
Hún lauk prófi sem ylrækt-
arfræðingur frá Garðyrkjskóla
ríksins að Reykjum í Ölfusi 1976
og stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð 1978. Einn-
ig tók hún próf sem landslags-
arkitekt cand. hort., frá
Landbúnaðarháskólanum í
Kaupmannahöfn árið 1986. Hún
hefur starfað m.a. sem landslags-
arktitekt á byggingardeild
Reykjavíkurborgar en er nú um-
hverfisstjóri Hveragerðisbæjar.
Kolbrún Þóra á tvær dætur.
Hugsaðu
hnattrænt og
framkvæmdu
heima fyrir
HJÓLREIÐAMÖNNUM fjölgar nú ört á götum og gang-
stígum höfuðborgarsvæðisins, enda sumarið komið og
allur snjór löngu farinn.
Á Suðurströndinni úti á Seltjarnarnesi voru tveir hjól-
reiðamenn á ferð og var annar þeirra að hefja feril sinn
sem hjólreiðamaður. Hann virtist nokkuð öruggur með
sig, en var þó frekar súr á svipinn. Kannski var hann
bara ekkert ánægður með að þurfa að nota hjálpardekk.
Morgunblaðið/Ómar
Brunað eftir Suðurströndinni
LYFJAVERSLANIR, stærstu mat-
vörumarkaðir og stærsta snyrtivöru-
verslanakeðja Danmerkur hafa hætt
sölu á allri sólarvörn sem inniheldur
eina eða fleiri UV-síur, sem taldar eru
vera skaðlegir heilsunni. Umhverfis-
málaráðuneytið danska hvatti versl-
anir til að hætta sölunni og brugðust
þær við skjótt. Er nú mjög takmarkað
úrval sólarvarnar til sölu í Danmörku
þar sem UV-síurnar er að finna í
mörgum tegundum sólarvarnar.
Íhugar ráðuneytið að banna alla sól-
arvörn sem inniheldur UV-síur.
Á mánudag var birt ný svissnesk
rannsókn sem bendir til þess að þrjár
tegundir UV-sía geti valdið krabba-
meini í brjóstum og eistum, dregið úr
sæðisframleiðslu og valdið hormónat-
ruflunum hjá fóstrum og litlum börn-
um. Um er að ræða efnin 4-methyl-
bezylidene camphor, octyl methox-
cinnamate og benzophenone-3 en þau
er að finna í fjölda sólarvarna, einnig
tegundum sem ætlaðar eru börnum. Í
svissnesku rannsókninni voru alls sex
tegundir UV-sía athugaðar og kom í
ljós að þrjár þeirra ollu m.a. því að leg
tilraunarottna tvöfölduðust að stærð.
Þar sem UV-síur eru í flestum teg-
undum sólvarnar er of langt mál að
telja þær upp. Hefur neytendum ver-
ið ráðlagt að lesa utan á umbúðir sjálf-
ir auk þess sem meirihluti þeirra sem
selja sólarvörn í Danmörku hafa þeg-
ar fjarlægt sólkremin úr hillum sín-
um. Sú sólarvörn sem ráðlagt er að
nota inniheldur zinkoxíð og titaníum-
oxíð í stað UV-sía.
Danska umhverfismálaráðuneytið
íhugar nú möguleikann á því að banna
sölu sólarvarnar sem inniheldur UV-
síurnar umræddu en klausa í reglu-
gerðum Evrópusambandsins heimil-
ar slíkt, reynist snyrtivörur vera
skaðlegar heilsunni.
UV-síur í sólarvörn sagðar skaðlegar heilsu
Sólarvarnarkrem tekin
úr dönskum hillum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAMBAND dýraverndunar-
félaga Íslands hefur sent fyrir-
spurn til lögreglustjórans á Ak-
ureyri vegna áverka sem urðu á
hundi í einangrunarstöðinni fyrir
gæludýr í Hrísey. Greint var frá
áverkanum í Morgunblaðinu í
gær en hundurinn missti hluta af
eyrum þegar drep kom í þau.
Svo virðist sem að teygja sem
sett var um höfuð dýrsins hafi
verið sett á með röngum hætti
og líklega hert of mikið að eyr-
unum.
Fyrirspurn til lög-
reglu vegna hunds