Morgunblaðið - 25.04.2001, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMTÖK verslunar og þjónustu
leggja til að stjórnvöld afnemi
gjöld og viðskiptahindranir, þ.e.
verðtolla, magntolla og kvótaupp-
boð sem nú eru í gildi á grænmeti
og blómum, og stuðli þannig að
lægra vöruverði og heilbrigðari
samkeppni á öllum sviðum græn-
metis- og blómaverslunar. Þá er
einnig lagt til að í kjölfarið verði
stefnt að því að innlent grænmeti
fari sem mest á uppboðsmarkað
þar sem verð markast af framboði
og eftirspurn.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem samtökin boðuðu til í
gær þar sem kynnt var aðgerða-
áætlun í fimm liðum til þess að
stuðla að heilbrigðara starfsum-
hverfi á þessu sviði svo að þjóna
megi neytendum betur.
Tekin verði upp vísitala
heildsöluverðs
Til viðbótar er lagt til að reglu-
bundin upplýsingagjöf stjórnvalda
verði aukin, til dæmis með birtingu
vísitölu heildsöluverðs, svo og
magntölum um innlenda grænmet-
isframleiðslu og innflutt grænmeti.
Samtök verslunar og þjónustu ætla
jafnframt að stuðla að auknu gæða-
starfi og sanngjörnum viðskipta-
háttum í samskiptum birgja og
smásala með því að kynna siða-
reglur fyrir innkaupamenn versl-
ana og hvetja fyrirtækin til þess að
nota þær. Þá verði við skoðun á
verðmyndun og hagkvæmni varð-
andi sölu grænmetis og blóma
hagsmunaaðilar í framleiðslu, sölu
og dreifingu kallaðir til svo að sem
almennust samstaða náist um leiðir
til úrbóta.
Á fundinum kom fram að græn-
meti er talið hollustufæði sem
Manneldisráð leggur áherslu á að
landsmenn neyti til þess að bæta
heilbrigði þjóðarinnar. Ljóst er að
umræðan að undanförnu, þótt
gagnleg sé, hefur dregið úr tiltrú
almennings á þeim sem standa að
framleiðslu, dreifingu og sölu
grænmetis. Telja samtökin að við
svo búið megi ekki standa lengur.
Markaðurinn snýst um neytendur
og hlutverk verslunarinnar er að
þjóna neytandanum og veita hon-
um valkosti. Frjáls verslun og heil-
brigð samkeppni eru forsendur
þess að verslunin geti rækt þetta
hlutverk sitt.
Verðmyndunin
verður gegnsærri
Fram kom að með afnámi toll-
anna lækkar verðið og verðmynd-
unin verður öll mun gegnsærri.
Tollarnir eru ekki til góðs fyrir
innlenda grænmetisframleiðendur
fremur en aðra sem njóta verndar í
skjóli tolla. Atvinnugreinum sem
keppa við erlenda framleiðendur
án opinberrar aðstoðar vegnar bet-
ur til lengdar. Mikilvægt er talið til
þess að verð á grænmeti haldist
sem lægst að smásöluverslunin geti
flutt inn grænmeti milliliðalaust og
jafnframt keypt íslenskt grænmeti
eftir markaðsaðstæðum og vali
neytenda hverju sinni. Á uppboðs-
markaði ræðst verðið af framboði
og eftirspurn. Ef innlendir græn-
metisframleiðendur selja afuurðir
sínar þannig þurfa neytendur ekki
að velkjast í vafa um hvert inn-
kaupsverð verslunarinnar er.
Þá kom fram að siðareglunum er
ætlað að stuðla að því að samskipti
innkaupamanna í smásöluverslun
við birgja verði skýr og undantekn-
ingarlaust á faglegum nótum, en
siðareglurnar eru sniðnar eftir er-
lendum fyrirmyndum. SVÞ segjast
munu stuðla að því að allar versl-
anir sem eru aðildarfyrirtæki að
samtökunum taki upp siðareglurn-
ar. Á þann hátt má öllum vera ljóst
hvaða verklagi er fylgt við innkaup
og samskipti við heildsala eða
framleiðendur.
Þá segjast samtökin vilja beita
sér fyrir því að neytendur fái sem
gleggstar upplýsingar um hvernig
verðmyndun á grænmeti verður til.
Látið hafi verið að því liggja að
álagning smásölunnar sé óeðlilega
há, en einstakar verslanir eigi erf-
itt með að verja sig með því að
birta opinberlega upplýsingar um
álagningu þar sem það getur skað-
að samkeppnishagsmuni þeirra.
Þrátt fyrir það hafi einstök fyr-
irtæki birt þessar upplýsingar til
þess að sýna fram á hið sanna í
málinu. Oft sé ekki gerður grein-
armunur á heildsölu- og smásölu-
álagningu og því sé nauðsynlegt að
taka upp vísitölu heildsöluverðs svo
að verðmyndun verði sem gegn-
sæjust.
Einnig var bent á rýrnun græn-
metis í verslunum, en það væri
annar mesti útgjaldaliðurinn á eftir
launakostnaði við rekstur græn-
metis- og ávaxtamarkaða.
Fram kom einnig að framlegð og
afkoma íslenskra stórmarkaða í
samanburði við erlenda er síður en
svo íslensku verslununum í hag og
var birtur samanburður á afkomu-
tölum Baugs og allra helstu stór-
markaða í Bretlandi og Bandaríkj-
unum.
Gengið framhjá versluninni
við skipun nefndar
Þá hafa samtökin mótmælt því
að landbúnaðarráðuneytið gangi
framhjá starfsgreinasamtökum
verslunarinnar við skipun nefndar
til að fjalla um verðmyndun garð-
ávaxta. Í bréfi til landbúnaðarráð-
herra sem lagt var fram á blaða-
mannafundinum kemur fram að
þótt fulltrúi Samtaka atvinnulífsins
sitji í umræddri nefnd er hann ekki
fulltrúi verslunarinnar sem starfs-
greinar heldur heildarsamtaka at-
vinnugreina í landinu. Langflestar
matvöruverslanir landsins eru í
SVG og telja samtökin nauðsynlegt
að þau eigi fulltrúa í nefndinni til
þess að sjónarmið verslunarinnar
komi þar fram. Að öðrum kosti sé
líklegt að ekki verði fjallað um alla
þætti málsins og niðurstaðan verði
eftir því byggð á röngum forsend-
um.
Þá var vakin athygli á því að í
gildi er bæði magntollur og verð-
tollur á innflutt blóm. Verðtollur
væri 30% á innflutt afskorin blóm,
auk þess sem 95 kr. magntollur
væri lagður á hvert afskorið blóm.
Innflytjendum væri árlega boðið að
bjóða í sérstaka innflutningskvóta
á blómum og þeir sem hafa keypt
slíka kvóta þyrftu ekki að greiða
sama magntoll og þeir sem eru ut-
an kvótans. Er það krafa samtak-
anna að þessir verndartollar verði
afnumdir.
Verður að brjóta upp þetta
kerfi verðmyndunar
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, sagði aðspurður að þetta
ógegnsæja og þrönga kerfi verð-
myndunar hefði stuðlað að því að
heilbrigð samkeppni ríkti ekki á
þessu sviði og því næðist ekki
lægsta verð. Það sæist til að
mynda á þessu meinta samráði á
heildsölusviði, en það myndi ekki
vera um það að ræða með sama
hætti ef ekki væri um skjól þess-
arar verðmyndunar að ræða.
Hann benti á að Samtök versl-
unar og þjónustu eiga ekki fulltrúa
í nefnd landbúnaðarráðherra um
verðmyndun grænmetis og því
hefðu þau ákveðið að boða til þessa
blaðamannafundar til þess að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
Sigurður sagði einnig að þeir
vildu ekkert undanskilja verslunina
frekar en einhverja aðra í þessum
efnum, hún væri ekkert heilagari
en aðrir. Eflaust hefðu verið gerð
mistök í versluninni og þeir við-
urkenndu það fúslega, án þess í
sjálfu sér að vera að benda á eitt
frekar en annað í þeim efnum. Ef
hins vegar einhver lausn ætti að
finnast þá yrði að brjóta upp þetta
kerfi verðmyndunar. Verðmyndun-
in eins og hún hefur verið á þessu
sviði gerði það að verkum að kostir
markaðarins fengju ekki notið sín.
Þeir gengju þó enn lengra í til-
lögum sínum vegna ásakana gagn-
vart stærri verslunarfyrirtækjum
um magnafslætti og endurgreiðslur
sem þau styngju í eigin vasa og
kæmu ekki neytendum til góða.
Sigurður sagði að þeir legðu því
til opna uppboðsmarkaði í kjölfar
niðurfellingar á tollunum. Með því
móti ættu allir jafna möguleika og
viðskiptin færu fram fyrir opnum
tjöldum. Hann sæi ekki annað en
að markaðsfyrirkomulagið ætti að
vera öllum til hagsbóta. Framleið-
endur gætu þá ekki heldur borið
því við að þeir væru undir þrýst-
ingi frá þessum stóru aðilum.
Samtök verslunar og þjónustu vilja að innlent grænmeti fari sem mest á markað
Tollar verði afnumdir
á grænmeti og blómum
Morgunblaðið/Jim Smart
Forystumenn Samtaka verslunar og þjónustu kynntu sjónarmið sín á blaðamannafundi í gær.
FORSETI Nemendafélags Menntaskólans við
Hamrahlíð er þessa dagana að safna áheitum fyr-
ir nemendafélagið með því að hlaupa 262 hringi í
kringum skólann, en það eru tæplega 80 km. Birg-
ir Ísleifur Gunnarsson, forseti nemendafélagsins,
sagðist sérstaklega skora á gamla MH-inga að
styrkja nemendafélagið sem og fyrirtæki enda
veitti ekki af þar sem rekstur þess væri erfiður.
Birgir Ísleifur sagðist hafa byrjað að hlaupa á
mánudaginn og hefur hann þegar hlaupið 150
hringi. Í dag mun hann hlaupa 50 hringi, sem og á
morgun en á föstudaginn lýkur þrekrauninni en
þá mun hann eiga 12 hringi eftir ef allt gengur að
óskum.
Birgir Ísleifur sagði að forsaga málsins væri sú
að þegar hann hefði boðið sig fram til forseta
nemendafélagsins á síðasta skólaári hefði verið
skorað á hann að hlaupa einn hring í kringum
skólann fyrir hvert atkvæði sem hann hlyti. Hann
hefði hlotið 262 atkvæði og því þyrfti hann að
hlaupa um 80 km, en hver hringur í kringum skól-
ann er 300 metrar.
Birgir Ísleifur, sem er alnafni og barnabarn að-
albankastjóra Seðlabanka Íslands, sagðist hafa
ákveðið að nýta þennan atburð til þess að safna
fyrir nemendafélagið og sagði hann að söfnunin
hefði gengið ágætlega. Nemendur skólans hefðu
heitið á sig og það hefði m.a. afi sinn líka gert.
Hann sagði að þeir sem hafa áhuga á að að taka
þátt í söfnuninni gætu haft samband við hann í
síma 697-3142 eða lagt inn á reikning nemenda-
félagsins í Búnaðarbankanum, en reikningsnúm-
erið er 0323-26-1216.
Hleypur til styrktar MH
Morgunblaðið/Þorkell
Birgir Ísleifur Gunnarsson, forseti Nemendafélags
Menntaskólans í Hamrahlíð, hefur lokið við að
hlaupa 150 hringi í kringum skólann og á því enn
eftir að hlaupa 112.
NÝR ráðgjafarskóli fyrir nemendur
með alvarlegar geð- og hegðunar-
truflanir tekur til starfa í haust. Í
skólanum verður rými fyrir 15–20
nemendur í Reykjavík sem ekki geta
stundað nám í almennum grunn-
skóla um lengri eða skemmri tíma og
hafa verið útskrifaðir af barna- og
unglingageðdeild.
Sá hópur barna sem á við geð- og
hegðunartruflanir hefur farið vax-
andi á undanförnum árum. Reykja-
víkurborg rekur ráðgjafarskólann,
sem verður einn af grunnskólum
Reykjavíkur. Samþykkt hefur verið í
fræðsluráði að auglýsa eftir skóla-
stjóra.
Markmiðið með skólanum er að
gera nemendur færa um að takast á
við almennt skólastarf, hegðun og
samskipti og að veita almennum
grunnskólum ráðgjöf vegna vinnu
við nemendur sem stríða við geð-
truflanir, segir í frétt frá Fræðslu-
miðstöð. Ekki er enn að fullu frá-
gengið hvar í borginni skólinn
verður til húsa.
Nýr ráð-
gjafarskóli
um geð-
truflanir