Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 26

Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 26
LISTIR 26 MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ HIÐ nýja orgel Björgvins Tóm- assonar, sem vígt var 25.2. sl. og ber ópusnúmerið 22, var ofarlega í huga undirritaðs á skammarlega fá- sóttri lítilli orgelandakt í Hjalla- kirkju á sunnudag. Sú athygli átti sér þá eðlilegu skýringu, að þetta var í fyrsta sinn sem sá er hér ritar barði þennan nýjasta konung hljóð- færa á höfuðborgarsvæðinu skiln- ingarvitum. Hlýtur hún Stór- Reykjavík með áföllnum viðbótum síðastu áratuga því senn að teljast það vel orgelvædd, að helztu for- sendur hljóti að vera til staðar fyrir alþjóðlegt organistamót af stærstu gráðu. Kom mest á óvart að aðeins skyldi sjást ein pípugerð – Prinzipal 8’[?] – en hinar raddirnar allar fald- ar þar að baki. Minna kom hins vegar á óvart hvað hljóðfærið hljómaði vel, þ.e.a.s. það takmark- aða úrval 28 radda sem náðist að heyra á aðeins rúmum hálftíma, enda orgelsmiðurinn góðkunnur af eldri ópusum sínum. Þar við bættist bráðfallegur eftirhljómur Hjalla- kirkju, sem virtist akkúrat hæfilega langur og gæddur aðdáunarlega jafnri þverrandi („decay“). Eftir öllu að dæma gæti kirkjan orðið hinn ákjósanlegasti vettvangur fyr- ir jafnt orgeltónleika sem einsöng, kórsöng og kammertónlist, en það verður frekari reynsla að leiða gerr í ljós. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir Breiðholtskirkjuorganisti lék fyrst fimm stutta þætti úr Orgelmessu fyrir söfnuðinn eftir François Coup- erin (1668–1733), samda án fótspils, og fórst það vel úr hendi. Eftir ritn- ingarlestur séra Guðmundar Karls Brynjarssonar flutti hún síðan tvö verk eftir J.S. Bach. Prelúdía og fúga í C-dúr BWV 547 er ekki með- al sviptingamestu virtúósaverka Bachs í þeirri grein, þótt meist- aravel sé samið og út frá ströng- ustu lögmálum stefrænnar úr- vinnslu. Verkið var leikið af þokkalegu öryggi í varfærnu en þó stöðugu tempói. Orgelforleikurinn An Wasserflüßen Babylon BWV 653 flaut kyrrlátlega áfram á hæverskum hraða við kliðmjúkt raddaval. Eftir bæn, Faðirvor og blessun lauk síðan orgelandaktinni með 1. þætti úr Trois Paraphrases Grég- oriennes Op. 5, Mors et resurrectio, eftir blinda franska spunasnilling- inn Jean Langlais (1907–91). Þó að canto fermo-tunguröddin virtist óþarflega sterk miðað við grann- raddirnar hljómaði margt vel í þessu dulúðuga verki, einkum og sér í lagi hinn glæsilegi fortekafli í lokin, er kom mjög fallega út í eft- irtektarverðri akústík Hjallakirkju. Ríkarður Ö. Pálsson Í ylhýrri ómvist TÓNLIST H j a l l a k i r k j a Orgelverk og þættir eftir Couperin, J.S. Bach og Langlais. Sigrún Magna Þorsteinsdóttir, orgel. Prestur: Guðmundur Karl Brynjarsson. Sunnudaginn 22. apríl kl. 17. ORGELTÓNLEIKAR Á STOFNFUNDI Leikminjasafns, sem haldinn var í Iðnó sl. laugardag, færði Sveinn Einarsson safninu höfðinglega gjöf bóka, leikrita og alls kyns gagna tengd íslenskri leik- list frá liðinni öld. Sveinn afhenti ný- kjörinni stjórn Leikminjasafnsins gjafabréf þar sem kveðið er nánar á um ráðstöfun gjafarinnar en mun- irnir verða áfram í vörslu hans þar til safnið hefur fengið eigið húsnæði til varðveislu leikminja. „Þarna er um að ræða allt mitt leikritasafn, bæði íslenskra leikrita og erlendra, en ég hef safnað að mér flestöllum íslenskum leikritum sem gefin hafa verið út og látið binda þau inn. Þá eru nokkur leikrit sem aldrei hafa verið gefin út en mér áskotnast í handritum. Síðan er stórt safn bóka um leiklist, aðallega er- lendra og sennilega er ekki til ann- ars staðar hérlendis jafnstórt safn slíkra bóka. Þá eru nær tvö þúsund leikskrár að innlendum og erlendum sýningum og einnig stórt safn er- lendra leikhústímarita. Leiksöguleg gögn, aðföng að íslenskri leiklist- arsögu, í ýmsum möppum og komp- um. Af því má nefna gögn um stofn- un Íslenska dansflokksins, gögn um ýmislegt sem snertir starf mitt hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleik- húsið og sjónvarpið, gögn um stofn- un Leiklistarsambands Íslands og talsvert af gögnum um samstarf við erlent leikhúsfólk bæði á norrænum og alþjóðlegum vettvangi. Þá er þarna að finna gögn um stofnun leikskáldafélagsins og Félags leik- stjóra á Íslandi.“ Sveinn segir að einnig sé um að ræða talsvert safn ýmiss konar muna sem honum hafi verið trúað fyrir. „Í gegnum árin hefur fólk komið með alls kyns gögn og muni til mín og beðið mig að geyma þar til því væri endanlega fundinn staður við hæfi. Í fórum mínum eru einnig líkön að sviðsmyndum, bún- ingateikningar, veggspjöld og ým- islegt fleira sem full ástæða er til að varðveita.“ Að sögn Sveins hafa honum borist ýmiss konar gögn og ábendingar um muni víða um land sem nauðsynlegt er að skrásetja svo þeim sé hægt að safna saman þegar þeim verður fundinn staður. „Við stöndum á nokkrum tímamótum núna, því þó ýmislegt merkra muna hafi glatast þá er ennþá margt sem afkomendur frumherja íslenskrar leiklistar hafa í fórum sínum. Fyrsta skrefið er að skrá munina svo vitað sé hvar þeir séu niðurkomnir. Menntamálaráð- herra hefur lagt til 200 þúsund krón- ur til að hefja það verkefni sem verður unnið í samvinnu við Þjóð- minjasafn Íslands,“ segir Sveinn sem um langt árabil hefur verið tals- maður þess að leikminjasafni yrði komið á fót og bendir á að hug- myndin sé alls ekki ný af nálinni. „Ætli séu ekki ein 60 ár síðan Har- aldur Björnsson hreyfði þessu máli í Leikhúsmálum og Lárus Sig- urbjörnsson hvatti um svipað leyti til stofnunar Kúlissusjóðs en í þetta sinn eru það leikmyndahönnuðir sem eiga heiðurinn af vakningunni og þeim árangri sem nú hefur náðst með stofnun Leikminjasafnsins,“ segir Sveinn Einarsson. Morgunblaðið/Ásdís Sveinn Einarsson við veggspjöld af íslenskum leiksýningum. Stórt safn leik- rita og leikhús- bókmennta Gjöf Sveins Einarssonar Á DEGI bókarinnar veitti Rithöf- undasamband Íslands fjórum rithöf- undum viðurkenningu úr Fjölíssjóði. Þeir eru Elísabet Jökulsdóttir, Ísak Harðarson, Kjartan Ragnarsson og Sigurbjörg Þrastardóttir. Fjölíssjóð- ur er tilkominn vegna þeirra greiðslna sem Rithöfundasambandið veitir móttöku fyrir ljósritun í skól- um og víðar. Ísak Harðarson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Kjartan Ragnarsson og El- ísabet Jökulsdóttir í Gunnarshúsi þar sem afhendingin fór fram. Fjórir höf- undar fá Fjölísviður- kenningar ÁRLEGIR vortónleikar Mosfells- kórsins verða haldnir í Íslensku óp- erunni í kvöld, miðvikudagskvöld, kl 20.30. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Páll Helgason. Kórinn er bland- aður kór og flytur tónlist sem ekki er talin hefðbundin kórtónlist. Lög á efnisskrá eru m.a. How deep is your love (Bee Gees), Hver minning um þitt bros (The shadow of your smile). Einsöngvarar koma úr röðum kór- félaga, Anna Andreasen og Kristín Runólfsdóttir. Mosfellskórinn var stofnaður fyrir 13 árum af áhugafólki um létta tón- list og hefur sungið ýmsa swing- og rokkstandarda í gegnum árin. Miðar eru seldir við innganginn og kostar 1.500 kr., en ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. Mosfells- kórinn í Íslensku óperunni SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra opnar ljósmyndasýningu í Upplýsingamiðstöð Suðurlands í Hveragerði í dag, miðvikudag, kl. 16.30. Sýningin tekur fyrir mannlíf í Hveragerði um miðbik seinustu ald- ar og verður hún stíluð á ferðamenn fyrst og fremst og eru skýringar- textar við myndirnar á íslensku og ensku. Sýningin mun standa fram í miðj- an septembermánuð. Ljósmynda- sýning í Hveragerði LISTASAFN Reykjavíkur og Listaháskóli Íslands standa sameig- inlega að dagskrá í tengslum við mál- verkasýningu Odds Nerdrums á Kjarvalsstöðum annaðkvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Dagskráin hefst með leikþættin- um Listveldið eftir Odd Nerdrum sem er samtal Odds Nerdrums við samlanda sinn, Edvard Munch. Leikþátturinn er nú fluttur öðru sinni. Leikarar eru Arnar Jónsson og Sigurður Karlsson en leikstjóri er Hávar Sigurjónsson. Að loknum leikþættinum verður gert stutt hlé og gefst þá gestum kostur á að ganga um sýninguna en að því loknu hefst fyrirlestur Jans Åke Pettersons um list Odds Nerd- rums. Jan Åke er forstöðumaður Haugar-Vestfold listasafnsins í Tönsberg, Noregi, en hann gegndi starfi forstöðumanns við Listasafnið í Bergen árin 1990-93. Þá var hann forseti Listaakademíunnar í Osló 1993-96. Jan Åke er vel heima í list- sköpun Odds Nerdrums og hefur m.a. skrifað bækur um listamanninn. Aðgangseyrir er kr. 400, en ókeyp- is er fyrir nemendur Listaháskólans. Odd Nerdrum – leik- þáttur og fyrirlestur ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.