Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 59

Morgunblaðið - 25.04.2001, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2001 59 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú ert sannur vina þinna og gengur oft ótrúlega langt í þeirra þágu en lætur að öðru leyti um of stjórnast af at- burðarásinni. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú mátt vera ánægður með sjálfan þig fyrir vel unnin verk en gættu þess bara að láta ekki ánægjuna stíga þér til höfuðs því þá er verr farið en heima setið. Naut (20. apríl - 20. maí)  Veltu öllum hliðum fjármál- anna vandlega fyrir þér og komi til samnings skaltu gaum- gæfa hann því slíkir pappírar eru oft flóknari en virðist við fyrstu sýn. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú er eins og allir séu komnir á þitt band og þá ríður á miklu að þú notfærir þér meðbyrinn til hins ítrasta en gætir þess um leið að misbjóða ekki trausti nokkurs manns. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Stundum er heppilegast að halda að sér höndum og láta hlutina ganga sína leið. Dragðu þig í hlé ef það er eina lausnin til að bjarga geðheilsunni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú er komið að því að þú kastir þér út í sviðsljósið. Sem betur fer á það vel við þig svo þú virð- ist eiga skemmtilegan tíma fyr- ir höndum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú getur þú ekki slugsað þetta lengur heldur verður þú að taka á þeim málum sem þú hef- ur vanrækt hvort sem þau eru á heimaslóðum eða annars staðar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur hæfileika til að upplifa alltaf eitthvað nýtt hvar svo sem leið þín liggur. Þennan eig- inleika þarft þú að rækta svo hann komi þér að sem mestu gagni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur í svo mörg horn að líta að þér finnst annríkið ganga of nærri persónulegu frelsi þínu. Reyndu að finna þér stað og tíma fyrir sjálfan þig. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Nú skaltu hvorki lána né fá lán- að. Þú ert í þann veginn að læra þína lexíu um þá persónulegu ábyrgð sem þú berð gagnvart sjálfum þér og öðrum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ef þú ert að velta því fyrir þér hvers vegna hæfileikar þínir fari í súginn skaltu taka upp hælana og flytja þig um set. Vertu óhræddur við breyting- ar. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Loksins hefur þér tekist að fá einhvern á þitt band í því máli sem þú berð hvað mest fyrir brjósti. Taktu höndum saman við þennan aðila. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það gengur ýmislegt á í lífi þínu og svo virðist sem þú hafir enga stjórn á atburðarásinni. Þér er nauðsyn að ná tökum á henni hvað sem það kostar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT LJÓÐ ÁN LAGS Ég reyndi að syngja, en rödd mín var stirð og hás, eins og ryðgað járn væri sorfið með ónýtri þjöl. Og ég reyndi á ný, og ég grét og ég bað eins og barn. Og brjóst mitt var fullt af söng, en hann heyrðist ekki. Og brjóst mitt titraði af brimgný æðandi tóna, og blóð mitt ólgaði og svall undir hljómfalli lagsins. Það var söngur hins þjáða, hins sjúka, hins vitfirrta lífs í sótthita dagsins, en þið heyrðuð það ekki. Steinn Steinarr. STAÐAN kom upp á Skák- þingi Íslands, áskorenda- flokki, er lauk fyrir stuttu. Akureyringurinn knái, Halldór Halldórsson (1.890), hafði svart gegn Sigurjóni Haraldssyni (1.845). 24...Rxc6! 25. Dd2 Hvítur myndi tapa liði eftir 25. Hxc7 Rxb4. Þrátt fyrir að vera þrem peðum undir hefur hvítur hættuleg gagnfæri og þarf svartur að tefla af ýtrustu ná- kvæmni til að komast lífs af. 25...De5! 26. Bb7 Db5+? Betra var 26...Ra5 og eftir t.d. 27. Bxa8 Rb3 28. Db4 Rxc1 gæti svartur sloppið út úr prísundinni og staðið með pálmann í höndun- um. Eftir textaleik- inn er skiptamuns- tap óumflýjanlegt. 27. Kf2 Re5?! 28. Hd5 Db3 29. Bxa8 Hxa8 30. Bh6? Fróðlegt hefði ver- ið að vita hvernig svartur hefði brugðist við 30. g3. Þrátt fyrir að hafa glutrað þessu tæki- færi stóð hvítur síst lakar en í framhaldinu tókst svörtum að flækja taflið og bera að lokum sigur úr býtum. Fyrir tæpri viku birti skákhornið skák úr sama móti á milli Sigurjóns og Ingvars Jóhannessonar. Töluverðar brotalamir voru á þeirri birtingu þar sem litum keppenda var víxlað og fléttan sem Ingvari hugkvæmdist, stóðst ekki þegar öllu var á botninn hvolft. Eru keppendur beðnir velvirðingar á mis- tökunum. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. VIÐ SÁUM spil frá síðustu umferð „Nations Cup“ í gær, en það er keppni fjög- urra stórþjóða – Hollend- inga, Bandaríkjamanna, Ítala og Pólverja, sem fram fór í febrúarlok. Bandaríkja- menn unnu keppnina og munaði þar mest um far- sæld þeirra í slemmunum. Moss vann sex grönd með þvingun og hagstæðu útspili í spili gærdagsins, en hér er næsta spil leiksins, þar sem Moss er enn í lykilhlutverki, nú sem sagnhafi í sex hjört- um: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ ÁG1096 ♥ D6 ♦ ÁDG6 ♣ K10 Vestur Austur ♠ D7 ♠ 842 ♥ 2 ♥ G87 ♦ 1083 ♦ K7542 ♣ ÁDG7543 ♣ 86 Suður ♠ K53 ♥ ÁK109543 ♦ 9 ♣ 92 Vestur Norður Austur Suður Jansma Gitelman Verhees Moss – – Pass 1 hjarta 2 lauf 2 spaðar Pass 3 spaðar Pass 4 lauf Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Vestur tók fyrst laufásinn og spilaði aftur laufi. Eftir þessa byrjun er slemman gæfuleg og Moss fór fyrst í tígulinn – tók á ásinn og spil- aði drottningunni. Austur dúkkaði fumlaust og Moss trompaði auðvitað. Hann fór inn í borð á hjartadrottn- ingu og stakk aftur tígul. En ekki kom kóngurinn, svo slemman kom til með að byggjast á því að finna spaðadrottninguna. Moss spilaði öllum tromp- unum og afköst vesturs bentu eindregið til að hann hefði byrjað með sjölit í laufi. Skipting vesturs var orðin nokkuð ljós: 2-1-3-7 og samkvæmt því virtist eðli- legra að spila austur upp á spaðadrottningu. En Moss fór hina leiðina – tók fyrst kónginn og fékk svo drottn- inguna í næsta slag. Ástæð- an var innákoma vesturs á tveimur laufum, en ekki þremur. Á móti pössuðum makker hefði verið rökrétt- ara að hindra í þrjú lauf með dauð spil fyrir utan laufið. Moss ályktaði því að vestur ætti háspil til hliðar. Á hinu borðinu vakti suð- ur á fjórum hjörtum og fékk að spila þann samning, svo Bandaríkjamenn unnu góða sveiflu á spilinu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Ámorgun fimmtudag- inn 26. apríl verður sjötugur Bragi Eggertsson, hús- gagnasmiður, Funalind 1, Kópavogi. Bragi er ættaður frá Laxárdal, Þistilfirði. Eiginkona hans er Helga Jóhannsdóttir. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. 70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 25. apríl, verður sjötug Jóhanna Sigurást Guðjónsdóttir, Austurgötu 24, Keflavík. Hún tekur á móti gestum laugardaginn 28. apríl í Borgartúni 17 í Reykjavík frá kl. 15. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Rannveig Guðmundsdóttir og Birna Friðgeirsdóttir. Hlutavelta KINE, sem er 17 ára norsk stúlka, sem hefur mikinn áhuga á Íslandi, óskar eftir pennavini á aldrinum 16–25 ára. Kine F. Aasbak, Bukkedalsåsen 20 5113 Tertnes, Norge. PAUL óskar eftir að skrif- ast á við íslenskar konur. Áhugamál hans eru útivist, hjólreiðar og dýramynda- tökur. Paul Meland, 1530 Lincoln Place, Calumet City IL. 60409 – 6229, U.S.A. WILFRIED óskar eftir pennavinum sem hafa áhuga á frímerkjasöfnun og -skipt- um. Wilfried Lindenhahn, Goldberg 10, 07616 Bürgel, Germany. Pennavinir Kiwanisklúbburinn Hekla hefur allt frá árinu 1965 haft það á verkefnaskrá sinni að styrkja Hrafnistu- heimilið að Laugarási í Reykjavík og gert það af miklum myndar- skap, segir í fréttatil- kynningu. Nýlega færði Kiw- anisklúbburinn Hrafn- istu blöðruómsjá að gjöf, en hún kostaði rúmar 800 þúsund krónur. Blöðruómsjá er fyrirferðarlítið tæki sem mælir magn þvags í þvagblöðru á sársaukalausan hátt með aðstoð hljóð- bylgna. Tilkoma blöðruóm- sjár á Hrafnistu í Reykjavík mun bæta og auðvelda starfsfólki að meta og greina þvag- leka og auka á velferð íbúa með því að fækka þeim tilvikum þar sem nauðsynlegt er að setja upp þvag- legg, segir í fréttinni. Aðalsteinn Guðmundsson, lækningaforstjóri á Hrafnistu í Reykjavík (t.h.), þakkar Guðmundi Oddgeiri Indriðasyni, forseta Kiwanisklúbbs- ins Heklu, fyrir höfðinglegt framlag. Gefur Hrafnistu í Reykjavík blöðruómsjá Kiwanisklúbburinn Hekla FRÉTTIR Heiti Potturinn Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar. Birt með fyrirvara um prentvillur. 4. flokkur, 24. apríl 2001 Einfaldur kr. 1.731.000.- Tromp kr. 8.655.000.- 58032B kr. 8.655.000,- 58032E kr. 1.731.000,- 58032F kr. 1.731.000,- 58032G kr. 1.731.000,- 58032H kr. 1.731.000,- Gullsmiðir Ertu haldin síþreytu, svefntruflunum eða sjúkdómum sem læknavísindin ráða illa við? Losaðu þið við rafbylgjur og ryk í íbúðinni. Árangurinn gæti komið þér á óvart. Upplýsingar gefur Hreiðar Jónsson í síma 581 1008 eða 862 6464.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.