Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHreinn úrslitaleikur hjá
Magdeburg og Flensburg / B3
Þriðji bikarinn
til Liverpool / B2
4 SÍÐUR
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
MAÐUR, sem ákærður er fyrir að skipuleggja
innflutning á átta kílóum af amfetamíni til lands-
ins í júlí í fyrra, neitaði fyrir dómi í gær að hafa átt
nokkurn þátt í innflutningnum. Samkvæmt ákæru
útvegaði hann fé til fíkniefnakaupanna og lét þeim
tveimur sem einnig eru ákærðir í málinu í té farar-
eyri.
Við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur kom fram að lögreglurannsókn leiddi
það í ljós að enginn mannanna hafði næg fjárráð til
að leggja út fyrir fíkniefnunum eða farareyrinum
en talið er að fíkniefnin hafi kostað 3–4 milljónir í
Amsterdam. Annar þeirra sem ákærðir eru fyrir
að hafa flutt efnin inn sagðist viss um að sá sem
ákærður er fyrir að skipuleggja innflutninginn
hafi ráðfært sig við aðra þegar sá fyrrnefndi
hringdi í hann frá Amsterdam til að útvega meiri
farareyri og til að fá ráðleggingar. Þegar hann var
spurður hvort hann hefði talið að skipulagi inn-
flutningsins mætti líkja við píramída sem hann
hefði verið í neðstu lögunum á játaði hann því.
Borguðu ekki fyrir fíkniefnin
Fyrir dómi í gær bar annar þeirra sem ákærðir
eru fyrir innflutninginn að hann hefði fengið far-
areyri fyrir sig og annan meðákærða frá þeim sem
sakaður er um að skipuleggja innflutninginn. Þá
hefði hann látið sig fá leiðbeiningar um hvernig
hann ætti að bera sig að í Amsterdam þegar þang-
að kæmi. Hann hitti síðan annan meðákærða í
Kaupmannahöfn og saman fóru þeir til Amster-
dam. Þar hefði fjölmargt farið úrskeiðis og þeir
brátt orðið uppiskroppa með fé.
Hann hefði þá hringt í þann sem ákærður er
fyrir innflutninginn og síðar fengið leiðbeiningar
um að peningar biðu þeirra bak við kassa á ljósa-
staur. Þar fundu þeir andvirði tæplega 50.000
króna. Síðar fengu þeir leiðbeiningar um að fara á
kaffihús í Amsterdam þar sem maður afhenti þeim
kassa með hátölurum en í þeim voru fíkniefnin fal-
in. Hann sagði að hvorki hann né ferðafélagi hans
hefði borgað fyrir efnin. Í kassanum var hins veg-
ar andvirði um 50.000 króna sem þeir notuðu til að
senda efnin til landsins og koma sér til baka. Hann
sagðist ekki hafa vitað hve mikið af fíkniefnum var
í hátölurunum en einhvern tíma hefði komið til tals
að þeir myndu smygla fjórum kílóum.
Fyrir dómi bar hann að símtölin til Íslands
hefðu verið í farsímanúmer þess sem ákærður er
fyrir skipulagningu en ferðafélagi hans hefði þó
aldrei vitað við hvern hann hefði talað.
Hinn maðurinn, sem fór til Amsterdam, stað-
festi frásögn ferðafélaga síns. Hann sagði að sá
hefði haft samband við sig nokkrum mánuðum áð-
ur en þeir fóru til Amsterdam og spurt hvort hann
hefði áhuga á að taka þátt í fíkniefnasmygli. Hann
hefði tekið sér umhugsunarfrest en síðan látið til
leiðast.
Sá sem ákærður er fyrir að skipuleggja inn-
flutninginn neitaði aðild að málinu. Hann sagðist
fyrst hafa komist á snoðir um smyglið þegar hann
kom á heimili annars þeirra sem ákærðir eru fyrir
innflutninginn. Þar hefði hann hjálpað honum að
bera upp kassa með hátölurum en síðan farið út
skamma stund. Þegar hann kom til baka hefði
maðurinn verið búinn að opna annan hátalarann.
Hann hefði staðið við hátalarann með eitthvert
tæki í höndunum, rétt honum það og spurt hann
hvað þetta væri. Þeir hefðu síðan hlaupið út en
hinn maðurinn hefði losað sig við tækið á leiðinni.
Þessi atburður hefði, auk þess að hann hefði séð
böggla inni í öðrum hátalaranum, orðið til þess að
hann dró þá ályktun að maðurinn væri viðriðinn
fíkniefnasmygl.
Þá kom fram að lögreglan grunaði fleiri um
aðild að málinu. Ekki var þó unnt að yfirheyra þá
strax þar sem þeir voru undir eftirliti vegna
annars fíkniefnamáls.
Þrír einstaklingar ákærðir fyrir smygl á átta kílóum af amfetamíni
Enginn þeirra hafði fjár-
ráð til fíkniefnakaupannaÓVENJUMIKIÐ hefur verið af
hnúfubak í Skjálfandaflóa að und-
anförnu. Hörður Sigurbjarnarson,
framkvæmdastjóri Norðursigl-
ingar, sagði að aldrei hefði verið
jafnmikið af hnúfubak í flóanum
frá því að Norðursigling hóf
hvalaskoðunarferðir frá Húsavík
fyrir sjö árum.
Norðursigling hóf hvalaskoð-
unarferðir hinn 1. maí sl. og þegar
hafa um 200 manns farið í slíkar
ferðir það sem af er vori og eru
útlendingar þar í miklum meiri-
hluta. Hörður sagði að umferð
ferðamanna hefði verið töluvert
meiri að undanförnu en á sama
tíma í fyrra og því ljóst að ferða-
mannatíminn væri að lengjast. Þá
væri útlitið fyrir sumarið gott og
töluvert um pantanir í hvalaskoð-
unarferðir.
Í fyrra var metár hjá Norður-
siglingu en þá fóru um 21.000
manns í hvalaskoðun með fyrir-
tækinu, sem gerir út þrjá eikar-
báta til slíkra ferða um Skjálf-
andaflóa.
Óvenjumik-
ið af hnúfu-
bak í Skjálf-
andaflóa
Morgunblaðið/Heimir Harðarson
Hnúfubakur rennir sér á hliðinni upp að báti Norðursiglingar á Skjálf-
andaflóa til að heilsa upp á ferðafólkið og gefa því færi á að mynda.
ANNARRI umræðu um frumvarp
forsætisráðherra um breytingar á
lögum um Seðlabanka Íslands lauk á
Alþingi í gær og var frumvarpið
samþykkt til þriðju umræðu með
breytingum frá efnahags- og við-
skiptanefnd.
Í breytingartillögum við frum-
varpið frá Össuri Skarphéðinssyni,
Jóhönnu Sigurðardóttur og Mar-
gréti Frímannsdóttur var m.a. lagt
til að seðlabankastjóri yrði aðeins
einn. Yfirstjórn Seðlabanka Íslands
yrði í höndum forsætisráðherra og
bankaráðs en ákvarðanir um beit-
ingu stjórntækja bankans í peninga-
málum yrðu teknar af sérstakri
peningastefnunefnd. Stjórn bankans
yrði að öðru leyti í höndum banka-
stjóra.
Breytingartillögur fulltrúa Sam-
fylkingarinnar voru felldar við at-
kvæðagreiðslu í gær.
Með frumvarpinu er lagt til að sett
verði ný heildarlög um Seðlabanka
Íslands, en núgildandi lög eru að
stofni til frá árinu 1986. Frumvarpið
miðar að því að auka sjálfstæði
Seðlabankans og laga löggjöf um
hann að breyttum aðstæðum á ís-
lenskum og alþjóðlegum fjármála-
markaði.
Samfylkingin um frum-
varp um Seðlabankann
Leggja til
að banka-
stjórinn
verði einn
ALLT að 15 manns unnu fram eft-
ir kvöldi í gær við að hefta út-
breiðslu mikils sinuelds í Gnúp-
verjahreppi. Seint í gærkvöld kom
væta úr lofti og tókst mönnum að
mestu að ná stjórn á eldinum. Eld-
urinn kviknaði í landi Minna-Hofs
þegar starfsmenn ræktunarfélags
Flóa og Skeiða voru að brenna göt
á rör sem átti að setja ofan í til-
raunaborholu vegna Minna-Núps-
virkjunar. Við logsuðuna fór neisti
í þurran og þykkan mosagróður
og breiddist eldur mjög hratt út.
Hvasst var þegar óhappið varð og
myndaðist gríðarlega mikill reyk-
ur sem var til óþæginda í Árnes-
hverfi þar sem nokkrir tugir
manns búa. Slökkvistarf reyndist
árangurslaust og var þá gripið til
þess ráðs að plægja upp jarðveg-
inn í kringum eldinn og reyna
þannig að hefta útbreiðslu hans.
Eldurinn stefndi í átt að sumarbú-
staðabyggð í landi Stóra-Hofs og
voru vonir bundnar við að eldur-
inn stöðvaðist við plógförin. Mið-
uðust aðgerðir við að verja milli 10
og 20 bústaði. Slökkvilið Gnúp-
verjahrepps var kallað á vettvang
og notaði reykköfunarbúnað við
plæginguna auk þess sem bændur
af nærliggjandi bæjum aðstoðuðu
eftir megni. Talið var að eldurinn
hefði náð a.m.k. yfir 20 hektara.
Eldurinn kom upp um klukkan
15 í gær og voru tré eða runna-
gróður ekki eldsmatur á svæðinu.
Barist við sinueld í Gnúpverjahreppi
Vörðu sumarbústaða-
byggð fyrir eldinum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Plægt var upp kringum sinueldinn til að hefta útbreiðslu hans.