Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 9
Sumartilboð
20%
afsláttur af öllum
buxum og pilsum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
á horni Laugavegs og Klapparstígs,
sími 552 2515
Ný speglasending
Mikið úrval
Sígild verslu
n
Kringlunni — sími 568 1822
Buxnadagar
20-40% afsláttur
af barna- og kvenbuxum 17.-23. maí.
Opið til kl. 21 í kvöld.
v i ð Ó ð i n s t o r g
1 0 1 R e y k j a v í k
s í m i 5 5 2 5 1 7 7
• • • mkm
JOBIS
JAEGER
BRAX
GISPA
BLUE EAGLE
Laugavegi 4, sími 551 4473
Brúðarkorsilett
með tilheyrandi
kr. 11.900
P
ó
st
se
nd
umKringlunni
sími 581 2300
Ljósakrónur Bókahillur
Stólar Íkonar
Úrval góðra gripa
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
LAUGAVEGI 56, SÍMI 552 2201
WWW.ENGLABORNIN.COM
ALLS sóttu 14.574 börn leikskóla í
desember árið 2000 eða 187 færri
en í desember árið 1999, sam-
kvæmt upplýsingum frá Hagstof-
unni. Mismunurinn milli ára er
1,3% og skýrist fækkunin meðal
annars af því að fámennari ár-
gangar barna eru að hefja leik-
skólagöngu en fremur stór ár-
gangur lauk leikskólanámi haustið
2000.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar störfuðu 253 leikskólar á
landinu í desember á síðasta ári og
reka sveitarfélögin um 91% þeirra.
Rúmur þriðjungur leikskólanna,
eða 87 þeirra, var opinn allt árið
en sambærileg tala fyrir árið 1999
var 58 leikskólar. Rúmlega 63%
allra leikskóla í landinu voru opin í
48 vikur eða lengur árið 2000.
Alls sóttu um 68% barna á aldr-
inum 1 til 5 ára leikskóla í desem-
ber 2000, en í aldurshópnum 3 til 5
ára var þetta hlutfall 91%. Hlutfall
barna sem dvelja allan daginn í
leikskólum hefur hækkað ár frá
ári. Árið 1994 dvöldu 24% barna á
aldrinum 3 til 5 ára lengur en 7
stundir á dag í leikskólum en árið
2000 var þetta hlutfall 55%. Árið
1994 dvaldi helmingur 3 til 5 ára
leikskólabarna í 4 stundir í leik-
skólum á degi hverjum en tæpur
fimmtungur árið 2000.
Í gögnum Hagstofunnar kemur
fram að börnum sem njóta sér-
staks stuðnings sérfræðinga vegna
erfiðleika sem þau eiga við að etja
hefur fjölgað um 1% frá árinu
1999. Alls njóta 5,2% leikskóla-
barna stuðnings af þessu tagi og
eru drengir 7 af hverjum 10. Alls
hafa 4,6% leikskólabarna annað
móðurmál en íslensku en voru
4,1% árið áður.
Ófaglærðir í 63% stöðugilda
Hagstofan tekur einnig saman
gögn um starfsmenn í leikskólum
og samkvæmt þeim er brottfall
starfsmanna árið 2000 svipað og
árið 1999. Alls störfuðu 3.847
starfsmenn í 2.985 stöðugildum við
leikskóla í desember 2000.
Stöðugildi þeirra sem störfuðu
við uppeldi og menntun barna
skiptast þannig að 31,6% voru
mönnuð leikskólakennurum, 4,8%
öðru uppeldismenntuðu starfsfólki
en 63,6% voru mönnuð ófaglærðu
starfsfólki. Leikskólakennurum
hefur fækkað nokkuð undanfarin
ár, sem hlutfall af starfsmönnum
við uppeldi og menntun barna, en
árið 1994 voru 36,3% stöðugilda
við uppeldi og menntun barna
mönnuð leikskólakennurum.
Brottfall starfsmanna leikskóla
frá desember 1999 til sama tíma
árið 2000 var 29,4%, sem er svipað
og árið áður, en þá var það 30,1%.
Alls létu 125 leikskólakennarar af
störfum eða 12,5% þeirra, 41 með
aðra uppeldismenntun eða 31,1%
þeirra og 761 ófaglærður eða um
36% þeirra. Brottfallið er minnst
meðal leikskólastjóra og aðstoðar-
leikskólastjóra en um 8% þeirra
létu af störfum á árinu. Athuga
ber að inni í þessum tölum eru
ekki þeir starfsmenn sem hófu
störf árið 2000 og hættu störfum
fyrstu 11 mánuði ársins.
Leikskólabörnum
fækkar milli ára
Morgunblaðið/Jim Smart
„Hreiðrað“
um sig
NÁBÝLIÐ við manninn gefur kost
á nýstárlegum hreiðurstæðum. Hér
hefur fugl „hreiðrað“ um sig í ljósa-
staur, sem má muna sinn fífil fegri,
og skimar hreykinn um veröld víða
enda hreiðurstæðið hentugt. Að
minnsta kosti með tilliti til katta
sem klífa varla staura þessarar teg-
undar.