Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 15
GERT verður ráð fyrir sjö
lóðum fyrir skóla í nýrri
byggð undir hlíðum Úlfars-
fells í Höllum og Hamrahlíð-
arlöndum. Bókun þessa efnis
var samþykkt í fræðsluráði
síðastliðinn mánudag. Þá
mælir ráðið með því að stefnt
verði að byggingu nýs skóla
fyrir yngstu nemendurna í
grennd við Rimaskóla þar
sem einsýnt sé að skólinn
rúmi ekki frekari aukningu
nemenda á næstu árum.
Gerður G. Óskarsdóttir,
fræðslustjóri í Reykjavík,
segir að borgarskipulag hafi
óskað eftir tillögum um stærð
og fjölda skólahverfa í fram-
tíðarbyggð undir Úlfarsfelli
þar sem efna eigi til sam-
keppni um skipulag á svæð-
inu. Búið sé að velja þær
teiknistofur sem munu taka
þátt í samkeppninni og nú
þurfi þær að fá forsögn þar
sem fram kemur hvað eigi að
verða á svæðinu en um er að
ræða um það bil 350 hektara
landsvæði þar sem gætu orð-
ið á að giska 6 –7000 íbúðir.
Sé gert ráð fyrir þremur íbú-
um í hverri íbúð verður um að
ræða 18–21 þúsund manna
byggð á svæðinu. Til saman-
burðar má geta þess að 1.
desember síðastliðinn voru
íbúar á Akureyri og nærsveit-
um 17.584 talsins.
Samkvæmt bókun fræðslu-
ráðs verður gert ráð fyrir um
sjö lóðum fyrir skóla sem
gætu verið með ýmsum hætti.
Í fyrsta lagi gætu þeir allir
verið heildstæðir sem þýddi
að þeir væru með 1. til 10.
bekk og tvær til þrjár bekkj-
ardeildir í hverjum árgangi.
Nemendur yrðu þá 450–600 í
hverjum skóla. Í öðru lagi
gætu verið um að ræða
barnaskóla með 1.–6. bekk og
unglingaskóla með 7.–10.
bekk. Yrðu barnaskólarnir þá
fjórir talsins með um 400–550
nemendur hver og unglinga-
skólarnir tveir með um 500–
700 nemendur. Loks væri
hægt að blanda þessum
tveimur leiðum saman. Gerð-
ur undirstrikar að hér hafi
fræðsluráð einungis verið
með fyrstu umræðu um mál-
ið.
Nýr skóli í Rimahverfi
Á fundi ráðsins var enn-
fremur samþykkt bókun þar
sem fram kemur að einsýnt
sé að frekari uppbygging
íbúðarhúsnæðis í Rimahverfi
kalli á nýjar lausnir varðandi
skólaskipan í hverfinu. Rima-
skóli sé annar stærsti skóli
borgarinnar og rúmi ekki
frekari aukningu nemenda
næstu árin. Ráðið mælir með
því að stefnt verði að bygg-
ingu skóla fyrir yngstu nem-
endur í grennd við Rimaskóla
og að skoðaðir verði mismun-
andi kostir þess að tengja
skólann við börn á leikskóla-
aldri.
Gerður segir þetta mál
mun lengra á veg komið en
hið fyrra þó að einnig hafi
verið um að ræða fyrstu um-
ræðu ráðsins um málið. „Ég
hugsa að niðurstaða fáist
fljótlega í þessu máli,“ segir
hún. „Ég á von á því að það
verði stofnaður skóli þarna
líklega rétt við Rimaskóla þar
sem unnt væri að taka frá lóð.
Þar gætu verið 100–150 börn
sem ekki er hægt að bæta við
Rimaskóla því hann er þegar
orðinn svo stór.“
Viðvarandi
kennaraskortur?
Næsta haust opna þrír nýir
skólar í Reykjavík, Víkurskóli
í Grafarvogi, nýr skóli í Graf-
arholti auk sérskóli fyrir geð-
fatlaða einstaklinga. Gerður
segir að ljóst sé að byggð sé
mikið að þéttast í borginni og
er útlit fyrir mikla uppbygg-
ingu í skólakerfinu. Nefnir
hún í því sambandi þéttingu
byggðar meðfram Skúlagöt-
unni sem gæti kallað á ný úr-
ræði því um sé að ræða skóla-
hverfi Austurbæjarskóla og
hann geti ekki tekið við fleiri
nemendum. „Og þetta er að
gerast víðar, til dæmis vestur
í bæ og einnig er í vændum
ný byggð í Norðlingaholtinu á
milli Rauðavatns og Elliða-
vatns.“
Gerður segir að í kjölfar
þessarar uppbyggingar megi
búast við áframhaldandi
kennaraskorti. Nú sé átak í
gangi sem miði einkum að því
að ná til þeirra kennara sem
eru í öðrum störfum en
kennslu.
En hvað með menntun
nýrra kennara? „Sem betur
fer er Kennaraháskólinn nú
búinn að fá aukið fé og mun
taka inn fleiri nemendur nú í
haust en áður. Undanfarin 30
ár hafa verið teknir inn um
120 kennaranemar í almennt
dagnám en nemendafjöldinn í
grunnskólunum hefur aukist
óhemju mikið á þessum tíma
auk þess sem skóladagurinn
hefur verið að lengjast. Nú
verða, að ég held, teknir inn
um 160 kennaranemar í haust
en þeir útskrifast ekki fyrr en
eftir þrjú ár,“ segir Gerður.
Mikil uppbygging framundan í grunnskólanum í borginni
Sjö nýir skólar í byggð-
inni undir Úlfarsfelli
Reykjavík
LÍNUSKAUTA- og hjóla-
brettakrakkar í Mosfellsbæ
hafa farið fram á það við
bæjaryfirvöld að fá betri að-
stöðu í bænum og hafa um
180 krakkar undirritað
áskorun þess efnis. Þrír fjór-
tán ára línuskautastrákar
sem stóðu fyrir undir-
skriftasöfnuninni hafa fund-
ið teikningar á Internetinu
sem þeir segja fullnægja ósk-
um þeirra um aðstöðuna.
Það voru þeir Smári
Freysson, Stefán Þór Hall-
grímsson og Þorsteinn Lúð-
víksson sem voru upphafs-
menn að því að undir-
skriftunum var safnað og
segir Þorsteinn að ramp-
urinn, sem hjólabretta- og
línuskautakrakkar hafa til
afnota í íþróttahúsi bæjarins
sé alls ekki nógu góður því
hann sé allt of lítill. „Við er-
um að sækjast eftir stærri og
betri palli og betri staðsetn-
ingu á sléttu, malbikuðu
plani,“ segir hann ákveðinn.
Nokkur aðdragandi var að
því að strákarnir ákváðu að
fá aðra krakka í bænum með
sér í að fara fram á nýjan
pall. „Við erum búnir að
hugsa um að gera þetta í all-
an vetur en við höfum ekki
framkvæmt það fyrr en
núna. Ég held að fyrri pall-
urinn hafi fengist svona og
þessvegna datt okkur í hug
að gera þetta,“ segir Þor-
steinn og bætir því við að það
hafi ekki verið mikið mál að
safna undirskriftunum. Það
hafi verið gert á einni
kennslustund í skólanum og
voru krakkarnir fúsir til að
skrifa undir.
Áskorunin var svo lögð
fram á bæjarráðsfundi á
fimmtudag og vísaði bæj-
arráð erindinu til skoðunar
íþrótta- og tómstunda-
nefndar bæjarins. Með undir-
skriftalistunum fylgdu teikn-
ingar sem strákarnir fundu á
netinu og segir Þorsteinn
það hafa tekið svolítinn tíma
að finna þær en að öðru leyti
hafi það verið vandkvæða-
laust. „Maður fer bara inn á
„skater“-síður á netinu og
þar finnur maður þetta,“
segir hann og bætir því við
aðstaðan muni nýtast fjöl-
mörgum krökkum sem séu á
hjólabrettum, línuskautum
og hlaupahjólum í bænum.
Morgunblaðið/Þorkell
Stefáni Þór, Smára og Þorsteini fannst ekkert tiltökumál
að safna 180 undirskriftum hjá krökkum í skólanum.
180 krakkar
vilja betri
hjólabrettapall
Mosfellsbær
RÁÐIÐ verður í stöður skólastjóra í
Laugarnes- og Selásskóla frá og með
fyrsta ágúst næstkomandi. Umsækj-
endur um skólastjórastöðu í Laug-
arnesskóla eru Jóhanna Þuríður
Þorsteinsdóttir, forstöðumaður
heimilissviðs á Sólheimum í Gríms-
nesi, Vilborg Runólfsdóttir, aðstoð-
arskólastjóri Laugarnesskóla, Helgi
Grímsson, fræðslustjóri hjá Banda-
lagi íslenskra skáta og Hreiðar Sig-
tryggsson, aðstoðarskólastjóri
Foldaskóla. Helgi og Hreiðar sóttu
jafnframt um skólastjórastöðu við
Selásskóla.
Fimm umsóknir í Selásskóla
Aðrir umsækjendur um stöðu
skólastjóra í Selásskóla eru Árni
Þorsteinsson, kennari í Vík í Mýrdal,
Björgvin Þórisson, kennari í Hóla-
brekkuskóla og Örn Halldórsson,
kennari í Grandaskóla.
Að sögn Ingunnar Gísladóttur,
starfsmannastjóra hjá Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur, hafa umsóknirnar
verið sendar í kynningu til Fræðslu-
ráðs. Fræðslustjóri mun síðan meta
umsækjendur og Fræðsluráð mæla
með einum umsækjanda um hvorn
skóla til borgarráðs sem tekur loka-
ákvörðun.
Umsóknir
um stöður
skólastjóra
Reykjavík
BÆJARRÁÐI Kópavogs hefur
borist í hendur bréf frá íbúum á
Hlíðarvegi 27, 29 og 29A þar sem
bornar eru upp kvartanir vegna
hávaða og óþrifnaðar við sölu-
turninn Hvammsval sem er á
neðri hæð hússins að Hlíðarvegi
29. Málinu hefur verið vísað til
heilbrigðisnefndar, lögreglu og
forvarnarfulltrúa til umfjöllunar.
Hávaði frá hljóm-
flutningstækjum
Í bréfinu er kvartað undan því
að unglingar safnist við söluturn-
inn með tilheyrandi hávaða auk
þess sem áfengi sé haft um hönd.
Bent er á að mikill óþrifnaður sé
í kringum söluturninn og að íbú-
arnir líti svo á að eigandi hans
beri ábyrgð á þrifum en að þeim
hafi ekki verið sinnt. Þá er sér-
staklega kvartað undan hávaða
frá hljómflutningstækjum sem
eigandi Hvammsvals hefur komið
sér upp.
Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Kópavogsbæjar, segir að það sé í
höndum rekstraraðila að gæta
hreinlætis og eigi það jafnt við
innanhúss sem utan. Hins vegar
sé ekki hægt að gera rekstr-
araðila ábyrgan fyrir unglingun-
um sem slíkum ef hreinlætiskröf-
um tengdum rekstrinum er
fullnægt.
Guðmundur segir einnig að há-
vaði sé alla jafnan skilgreindur
sem hljóð sem eigi ekki við í við-
komandi umhverfi. Ómur á milli
íbúða endrum og eins er til að
mynda ekki óeðlilegur. Að öðru
leyti vildi Guðmundur ekki tjá
sig um þetta einstaka mál og
sagði Heilbrigðiseftirlit myndu
fjalla um það þegar það bærist
þeim í hendur.
Í höndum
rekstraraðila að
gæta hreinlætis
Kópavogur
Kvartað undan ólátum og
óþrifnaði við söluturn