Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 20
SUÐURNES
20 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UNNIÐ hefur verið að endurbótum
á Hótel Keflavík í vetur. Hótelið er
nú komið í hátíðarbúning enda eru í
dag fimmtán ár frá því það var opn-
að. Hótelstjórinn heldur því fram að
stofnun hótelsins hafi markað upp-
haf ferðaþjónustu á svæðinu og því
megi jafnframt minnast afmælis
hennar í dag.
Mikill munur er á Hótel Keflavík í
dag og fyrir fimmtán árum. Það var
opnað í húsnæði Ofnamiðju Suður-
nesja sem er í eigu sömu fjölskyldu
og var í upphafi einfalt hótel eða
gistiheimili. „Pabbi sagði við mig
kvöldið áður en við opnuðum að ég
ætti að verða hótelstjóri. Ég hafði
unnið með honum að uppbygging-
unni og vissi að ég myndi reka fyr-
irtækið en hafði ekki hugleitt hót-
elstjóratitilinn. En það varð svo að
vera, ég kunni ensku,“ segir Stein-
þór Jónsson hótelstjóri Hótels
Keflavíkur frá upphafi.
Hann var 19 ára þegar hann tók
við rekstri Ofnasmiðjunnar með föð-
ur sínum, Jóni William Magnússyni,
og tveimur árum seinna komu þeir
rekstri Hótels Keflavíkur af stað. Þá
voru herbergin 32 og allt frekar ein-
falt í sniðum.
Málverkin eftir
hótelstjórann
Síðan hefur stöðugt verið unnið að
uppbyggingu hótelsins með stækkun
hótelbyggingarinnar og kaupum á
hverri hæðinni á fætur annarri í
næstu húsum. Þá hefur umbúnaður
verið endurbættur smám saman og
þjónusta aukin. Þannig voru öll elstu
32 herbergin endurnýjuð í vetur.
Hótel Keflavík er nú eitt af bestu
hótelum landsins, fjögurra stjarna
hótel sem ekki vantar mikið upp á þá
fimmtu. Það er með 75 herbergi og
sjö til viðbótar í gistiheimili og er því
stærsta hótel Suðurnesjamanna.
Í hótelinu eru tíu íbúðir, þar af
fimm með setustofu og nuddbaðker-
um. Steinþór er stoltur af aðstöðunni
sem hann býður upp á, vekur athygli
á því að í öllum herbergjum eru
geislaspilarar, peningaskápur,
buxnapressa, grill, hárþurrka og
fleira, auk sjónvarps og kæliskáps
sem önnur fjögurra stjarna hótel
bjóða upp á.
Líkamsræktarstöð er rekin í kjall-
ara hótelsins og veitingastaðir eru í
hótelinu, meðal annars Café Iðnó
undir glerþakinu umdeilda frá sam-
nefndu leikhúsi í Reykjavík.
Steinþór og Jón William hafa allan
tímann unnið mikið sjálfir að upp-
byggingunni og talar Steinþór um
uppbygginguna sem þriðja fyrirtæk-
ið sem þeir hafi þurft að reka. Og
hann hefur sett sinn persónulega stíl
á hótelið með hönnun og vali á inn-
réttingum og skrautmunum. Meira
að segja eru mörg málverkanna sem
eru áberandi á herbergjum og göng-
um eftir hann sjálfan.
Verðum að
vera á tánum
„Við opnuðum á varfærnislegan
hátt en höfum allan tímann haft það
sem einkunnarorð að gera hótelið
betra í dag en það var í gær. Það hef-
ur skilað okkur þessum árangri. Nú
höfum við náð því langþráða tak-
marki að vera komnir með hótelið í
það horf sem við viljum. Við verðum
þó alltaf að vera á tánum, þessi við-
skipti krefjast þess, annars missir
maður af lestinni,“ segir Steinþór.
Ekki höfðu margir trú á hótelhug-
mynd þeirra feðga í upphafi. Raunar
var fyrst ætlunin að koma upp
sjúkrahóteli í tengslum við D-álmu
sjúkrahússins í Keflavík sem þá stóð
til að koma upp. Framkvæmdir við
sjúkrahúsið drógust hins vegar á
langinn og hún var ekki tekin í notk-
un fyrr en nýlega. Þurfti því að finna
annan viðskiptavinahóp. Fyrir fimm-
tán árum var mikil uppbygging á
varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli
og fékk hótelið veruleg viðskipti
vegna þeirra. Þegar þau minnkuðu
þurfti að auka áherslu á ferðamenn.
Síðar tókst Steinþóri að fá stjórn-
endur flugfélagsins Canada 3000 til
að hafa áhafnaskipti hér á landi í
flugi milli Kanada og Evrópu og fékk
hótelið mikil viðskipti út á það í fimm
ár, einnig hjá SAS um tíma. Þegar
þessi viðskipti féllu niður með því að
flugfélagið tók stærri vélar í notkun
þurfti enn að leggja áherslu á aukn-
ingu annarra viðskipta. Hótelið hef-
ur að sögn hótelstjórarns þurft að
sýna mikinn sveigjanleika til að kom-
ast í gegn um þessar breytingar.
Starfsfólkið þarf að geta þjónað fín-
ustu ráðstefnum á sama tíma og
vinnuflokkum.
Hótel Keflavík þjónar bæði inn-
lendum og erlendum ferðamönnum.
Þekkt er þjónusta þess við Íslend-
inga sem eru að fara til útlanda. Hót-
elið býður þeim gistingu nóttina fyr-
ir flug, að geyma fyrir þá bílana og
aka þeim að flugstöðinni. Boðið er
upp á þrif á bílunum og jafnvel við-
gerðir. Margir erlendir ferðahópar
gista fyrstu eða síðustu nóttina á Ís-
landi í Hótel Keflavík. Nýtur hótelið
því nálægðarinnar við alþjóðlega
flugvöllinn.
Mikil áhersla hefur verið lögð á að
laða að ráðstefnur, fundi og árshá-
tíðir og hefur það tekist, að sögn
Steinþórs. Um þessa þjónustu sér nú
sérstakur ráðstefnustjóri. Þar er um
að ræða jafnt erlenda sem innlenda
hópa. Steinþór telur að möguleikar
séu til aukinnar markaðssóknar á
öllum sviðum starfseminnar.
Að sögn Steinþórs hefur herbergj-
anýting Hótels Keflavíkur ávallt ver-
ið góð og yfir meðaltali hótela í
Reykjavík. Nýtingin hefur verið yfir
50% yfir vetrartímann og yfir 80% á
sumrin, að jafnaði.
Hugað að
landvinningum
Þótt draumur fjölskyldunnar um
gott hótel hafi ræst og búið sé að
koma hótelinu í það horf sem hún
hefur lengi stefnt að vill Steinþór
eiga möguleika á stækkun í Keflavík.
Hann er einnig farinn að huga að
möguleikum í Reykjavík. Hefur
meðal annars lagt í mikla vinnu í
undirbúning hótels í gömlum húsum
við Aðalstræti í samvinnu við Þyrp-
ingu hf. Hefur verið miðað við að
hann tæki húsnæðið á leigu og ræki
hótelið en viðræðum er ekki lokið.
Telur Steinþór það góðan kost að
tengjast hótelrekstri í Reykjavík.
Þannig yrði hægt að auka nýtinguna
og það kæmi báðum til góða.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Steinþór Jónsson hótelstjóri í afgreiðslu Hótels Keflavíkur. Hann hefur rekið hótelið frá upphafi.
Betra hótel í dag
en það var í gær
Keflavík
Ljúka endurbótum á Hótel Keflavík á 15 ára afmælisdegi
ÞAÐ er ekki oft sem hægt er að ná
fimm ættliðum saman á mynd en
það tókst í Grindavík á dögunum.
Elín Þóra Sigurbjörnsdóttir langa-
langamma á orðið fimm langalang-
ömmubörn. Afkomendur hennar
eru orðnir 94 og flestir þeirra búa í
Grindavík. Elín er fædd og uppalin
á Sveinsstöðum í Grímsey og er
orðin 92 ára gömul.
Á myndinni eru ættliðirnir fimm,
frá vinstri: Inga Bjarney Óladóttir
langamma, Elín Þóra Sigurbjörns-
dóttir langalangamma, Gunnhildur
Björgvinsdóttir amman, Inga Björg
Símonardóttir, mamman og heldur
hún á syni sínum, Símon Loga
Thasaphong sem er 3 mánaða.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Fimm
ættliðir
Grindavík
BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur
lagt til við bæjarstjórn að Oddur
Thorarensen, 43 ára byggingar-
tæknifræðingur sem búsettur er í
Noregi, verði ráðinn byggingar-
fulltrúi.
Starf byggingarfulltrúa í Grinda-
vík var auglýst laust til umsóknar
eftir að Viðar Már Aðalsteinsson var
ráðinn til Reykjanesbæjar. Eftir-
taldir átta menn sóttu um starfið,
auk Odds: Geir Pétursson bygging-
arverkfræðingur í Svíþjóð, Gísli Er-
lendsson rekstrartæknifræðingur í
Reykjavík, Hafsteinn Hafsteinsson
verkfræðingur í Kópavogi, Halldór
Hannesson byggingarverkfræðing-
ur í Hafnarfirði, Maríus Sævar Pét-
ursson byggingartæknifræðingur og
rekstrarverkfræðingur í Keflavík,
Óli Hilmar Jónsson, arkitekt og
skipulagsfræðingur í Reykjavík, Sig-
urður Ólafsson, byggingarfræðingur
í Danmörku, og Sigurður Arnar Sig-
urðsson, byggingariðnfræðingur í
Garðabæ.
Byggingarfulltrúi Grindavíkur
Tillaga um Odd
Thorarensen
Grindavík
HREPPSNEFND Gerðahrepps
hefur ákveðið að sameina skóla-
nefndir sveitarfélagsins í eina
nefnd, skólanefnd Gerðahrepps.
Þrjár nefndir hafa fjallað um
þau mál sem nýja nefndin á að sjá
um, skólanefnd hefur séð um mál-
efni Gerðaskóla, önnur um leik-
skólann og sú þriðja um tónlistar-
skólann.
Á síðasta fundi hreppsnefndar
Gerðahrepps var felld tillaga eins
fulltrúa minnihlutans um að skóla-
nefnd verði falið að sjá um störf
nefndarmanna tónlistarskólans til
loka kjörtímabilsins. Hins vegar
var samþykkt með fjórum atkvæð-
um gegn þremur tillaga meirihlut-
ans um að breyta samþykktum um
stjórn sveitarfélagsins og fundar-
sköpum þannig að kosin verði ein
nefnd sem annist umrædd störf.
Skólanefndirnar
sameinaðar í eina
Garður
LÖGREGLAN á Suðurnesjum
beinir sjónum sínum sérstak-
lega að nagladekkjum, eftir-
vögnum og notkun reiðhjóla-
hjálma í vikulöngu eftirlitsátaki
sem er hafið.
Lögreglan í Keflavík er þátt-
takandi í samstarfsverkefnum
sem lögregluliðin á Suðvestur-
landi standa reglulega að. Að
þessu sinni er sérstaklega
fylgst með hvort bílar séu enn á
nagladekkjum og að búnaður
eftirvagna sé í lagi. Þá er fylgst
með hvort reiðhjólafólk sé með
hjálma.
Fylgst
með eftir-
vögnum
HREPPSNEFND Vatnsleysu-
strandarhrepps samþykkti á síð-
asta fundi sínum að ráða umhverf-
isstjóra og nýjan tómstundafull-
trúa.
Starf umhverfisstjóra er nýtt hjá
Vatnsleysustrandarhreppi. Á hann
að taka þátt í því umhverfisátaki
sem unnið er að í Vogum, meðal
annars vegna þeirrar uppbyggingar
sem unnið er að í framhaldi af
markaðsátaki. Ellefu umsóknir bár-
ust um starfið og var Ólafur Ari
Jónsson í Vogum ráðinn.
Tíu sóttu um starf tómstundafull-
trúa. Samþykkt var að ráða Lenu
Rós Matthíasdóttur guðfræðing úr
Reykjavík.
Ráðið í starf umhverf-
isstjóra í Vogunum
Vatnsleysustrandarhreppur