Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 29
TONY Blair, forsætisráðherra og
leiðtogi Verkamannaflokksins,
kynnti í í gær stefnuskrá flokks síns
til næstu tíu ára. Einnig hér brá
hann út af venjunni, kynnti ekki
stefnuskrána í höfuðstöðvum flokks-
ins í London, heldur í Birmingham.
Bæði Íhaldsflokkurinn og Frjáls-
lyndi demókrataflokkurinn hafa
þegar kynnt sína stefnuskrá.
Íhaldsmenn lofa skattalækkunum
upp á 8 milljarða punda, en orðróm-
ur er um að ætlunin sé að lækka
skatta um allt að 20 milljarða punda,
sem væntanlega þýddi verulegan
niðurskurð í opinbera geiranum.
Frjálslyndir boða hærri skatta og
betri þjónustu og hvort sem það er
vegna raunsærrar afstöðu í skatta-
málum eða einhvers annars þá hefur
flokkurinn bætt við sig 3 prósentu-
stigum frá 1. apríl, var með 16 pró-
sent í skoðanakönnun í Guardian í
gær, meðan báðir stóru flokkarnir
hafa misst þrjú prósentustig, eru nú
með 46 og 31 prósent.
Einblínt á skatta
Bresku flokkarnir virðast allir
greina óánægju almennings með op-
inbera þjónustu og leggja því meg-
ináherslu á að sannfæra fólk um að
þeir hyggist gera betur. Á hinn bóg-
inn óttast bæði Verkamannaflokkur-
inn og Íhaldsflokkurinn að fólk sé
þreytt á sköttum, meðan frjálslyndir
eru sannfærðir um að fólk kunni að
meta ærlegar og raunsæjar áætlanir
og boða því að betri þjónusta kosti
meira.
Verkamannaflokkurinn boðar að
opinber útgjöld verði aukin um 3,8
prósent á næstu árum, en reiknar
aðeins með vexti upp á 2,5 prósent.
Bilið lofar flokkurinn að brúa hvorki
með sköttum né lántökum, heldur
með því að nota tekjuafgang undan-
farinna ára. Fyrstu viðbrögð stjórn-
málaskýrenda voru þó að þetta væri
heldur ósannfærandi áætlun, svo
niðurskurður væri líklegri en við-
bætur. Stefna Blair virðist vera að
nota gamalreyndar aðferðir Thatch-
er-áranna til að ná takmarki sínu um
réttlátara þjóðfélag. Meðan upp-
sveifla er getur það gengið upp, en ef
samdráttur verður er erfitt að sjá
hvernig endar eiga að ná saman.
Íhaldsflokkurinn vill einnig mæta
almennum óskum um betra heil-
brigðis- og skólakerfi, betri sam-
göngur og baráttu gegn glæpum, en
ætlar samt að draga úr sköttun. Þeir
fullyrða að það sé hægt með meira
aðhaldi, en virðist ganga illa að sann-
færa kjósendur um að þetta sé annað
en miskunnarlaus niðurskurður og
einkavæðing Thatcher-áranna.
Það olli miklu fjaðrafoki þegar
Financial Times birti forsíðufrétt í
vikunni um að flokkurinn stefndi á
20 milljarða skattalækkun í lok kjör-
tímabilsins, ekki bara átta milljarða
eins og William Hague, leiðtogi
flokksins, hefur lofað. Þetta var haft
eftir ónefndum frammámanni í
flokknum, en það komst strax upp
hver hafði frætt blaðið á þessu og
viðkomandi fór huldu höfði í tvo sól-
arhringa á meðan allir helstu fjöl-
miðlar landsins leituðu að honum
dauðaleit. Hann kom svo loks fram í
viðtali við BBCsjónvarpið og hafnaði
alfarið þessum ætlunum.
Með ofuráherslu fjölmiðlanna á
flokksleiðtogana í kosningabarátt-
unni kemur glöggt í ljós að William
Hague á við mikla erfiðleika að
glíma. Hann kemur reyndar mjög
vel fyrir sig orði, en þykir ekki sér-
lega trúverðugur í málflutningi sín-
um. Ef marka má skoðanakönnun í
Guardian í gær er skattastefnan líka
vindhögg: Fólk hefur ekkert á móti
hærri sköttum, ef opinber þjónusta
batnar.
Meint
sýndarmennska
Verkamannaflokkurinn hefur ver-
ið þjáður af stöðugri umfjöllun um
sýndamennskuna í kosningabaráttu
þeirra. Það er rík hefð fyrir því að
stjórnmálamenn fari um og hitti
kjósendur, banki uppi á heima hjá
fólki og gangi um á götum úti. Blair
er ákaft gagnrýndur fyrir að hitta
ekkert fólk nema við þrælskipulagð-
ar aðstæður. Það virtist vera til að
mæta þeirri gagnrýni að hann fór í
göngutúr í fyrradag, sem samkvæmt
tímamælingu Guardian stóð í 41⁄2
mínútu. Á þeim tíma náði hann að
kaupa sér djúpsteiktan fisk með
frönskum, en komst hins vegar ekki
til að ræða við marga.
Í vikunni var Blair í yfirheyrslu í
morgunútvarpi BBC. Í stað þess að
fá að lýsa stefnu sinni með fjálgleg-
um orðum saumaði fréttamaðurinn
svo að Blair vegna spillingarmála að
gremjan bullaði í ráðherranum.
Keith Vaz Evrópuráðherra hefur
verið veikur undanfarnar vikur en er
nú aftur kominn á ról og þar sem
hann lá undir spillingarásökunum
fær hann heldur ekki mikinn frið til
að tala um stefnumálin.
Stefnu-
skrár með
ólíku sniði
London. Morgunblaðið.
Reuters
Tony Blair tilkynnir stefnuskrá Verkamannaflokksins í gær.
Evrópuþingið
samþykkti end-
anlega á þriðju-
dag strangar
reglur Evrópu-
sambandsins sem
miða að því að
stemma stigu við
reykingum og
kveða meðal annars á um að prent-
aðar verði stórar viðvaranir á sígar-
ettupakka.
Fjallað hefur verið um málið frá
því í janúar á síðasta ári og sam-
komulag náðist um reglurnar milli
fulltrúa Evrópuþingsins og ráð-
herraráðs ESB á fundi í Brussel í
febrúar síðastliðnum. Reglurnar
voru síðan samþykktar á Evrópu-
þinginu í fyrradag með miklum
meirihluta atkvæða eins og búist
hafði verið við.
Samkvæmt reglunum eiga viðvar-
anir um skaðsemi reykinga („reyk-
ingar valda dauða“ eða „reykingar
valda þér og fólki í kringum þig al-
varlegum skaða“) að ná yfir 30% af
framhlið sígarettupakkanna. Enn
stærri viðvaranir eiga að vera á bak-
hlið þeirra.
Aðildarríki Evrópusambandsins
þurfa nú að fella reglugerðina inn í
eigin lög og geta bætt við ákvæði um
að setja þurfi litmyndir, sem sýni
skaðsemi reykinga, á sígarettupakk-
ana.
Á meðal annarra ákvæða reglu-
gerðarinnar er
bann við því að
notuð séu orð
eins og „mildar“,
„léttar“ eða „lítil
tjara“ í sígarettu-
auglýsingum.
Reglugerðin
kveður einnig á
um að frá árinu 2007 megi sígarett-
ur, sem fluttar eru út frá löndum
ESB, ekki innihalda meira en 1 mg
af nikótíni, auk þess sem tjaran má
ekki fara yfir 10 mg.
Frá árinu 2003 þurfa tóbaksfyr-
irtækin að láta aðildarríkjum ESB í
té lista yfir öll efnin í vörum þeirra.
Evrópusambandið á síðan að setja
saman lista yfir leyfileg efni í tóbaks-
vörum ekki síðar en árið 2005.
Tóbaksfyrirtækin
mótmæla reglugerðinni
Tóbaksfyrirtæki hafa mótmælt
reglugerðinni. John Carlisle, tals-
maður samtaka breskra tóbaksfyrir-
tækja, sagði að reglugerðin myndi
hafa „hrikaleg áhrif“ á útflutning
þeirra til Asíu, Ástralíu og Afríku,
þar sem reykingamenn vilji sterkari
sígarettur. Hann spáði því að reglu-
gerðin myndi kosta 8.000 Evrópubúa
atvinnuna.
Carlisle gagnrýndi einnig ákvæðið
um stærri viðvaranir á sígarettu-
pökkunum, sagði þær „smekklausar
og gagnslausar“.
Hertar reglur
ESB um tóbak
samþykktar
Strassborg. AFP.
Blómastofan Eiðistorgi