Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 45
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 45
Safnaðarstarf
Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Söngstund kl. 14-15 í
neðri safnaðarsal. Kristján Sig-
tryggsson, organisti, leiðbeinir og
stýrir hópnum. Allir hjartanlega
velkomnir. Boðið upp á kaffi á eftir.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla
aldurshópa í safnaðarheimilinu kl.
14-16.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun. Léttur
málsverður að stund lokinni.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10 í umsjá Önnu Bjargar Eyj-
ólfsdóttur, húkrunarfræðings og
starfsfólks safnaðarins. Taize-
messa kl. 21. Þangað sækir maður
frið og kyrrð, staldrar við í asa lífs-
ins, tekur andartak frá til þess að
eiga stund með guði. Tónlistin fallin
til að leiða mann í íhugun og bæn.
Allir velkomnir.
Langholtskirkja. Foreldra- og
barnamorgunn kl. 10-12. Fræðsla:
Elva J.Th. Hreiðarsdóttir mynd-
menntakennari leiðbeinir með liti
og málar með börnum og fullorðn-
um. Söngstund með Jóni organista.
Langholtskirkja er opin til hljóðrar
bænagjörðar í hádeginu.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Tónlist, bæn og léttur
málsverður.
Neskirkja. Unglingastarf Nes- og
Dómkirkju kl. 20 í safnaðarheimili
Neskirkju.
Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 9-
10 ára börn kl. 17.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn
föstudag kl. 10-12. Kaffi og spjall.
Lok mömmumorgna föstudaginn
25. maí. Þá verður farið í óvissuferð.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar
kl. 10-12. Helgistund kl. 11. Kvöld-
bænir kl. 18. Fyrirhuguð er safn-
aðarferð sunnudaginn 20. maí til
Víkur í Mýrdal. Áhugasamir skrái
sig í ferðina í síma 554-1620. Frek-
ari upplýsingar veitir kirkjuvörður.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-
12 ára drengi kl. 17-18.
Grafarvogskirkja. Æskulýðsfélag í
Grafarvogskirkju fyrir 8.-9. bekk
kl. 20-22.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri
borgara í dag kl. 14.30-17 í safn-
aðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 17. Fyrirbæna-
efnum má koma til sóknarprests
eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára
stráka kl. 17 í umsjá KFUM.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyr-
ir ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op-
ið hús fyrir 8-9 ára börn í Von-
arhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9-12
ára krakka kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Nú er biblíu- og
fræðsluhópurinn hættur fram á
haust en bæna- og kyrrðarstund-
irnar verða áfram í sumar kl. 22 í
Vídalínskirkju. Hressing á eftir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
10 foreldramorgunn.
Viltu stunda nám
í lögfræði?
Kennarar og nemendur sitja fyrir
svörum um nám í lögfræði og
lögritaranámi á jarðhæð í
Lögbergi (húsi lagadeildar)
föstudaginn 18. maí
frá kl. 15:00 — 18:00.
Sjá nánar: www.hi.is
Vélskóli Íslands
Hraðferð til 2. stigs
vélstjóranáms sem gefur
750 kW réttindi
Dagskóli - hægt er að ljúka náminu á tveim
önnum (1 vetri).
Kvöldskóli - hægt er að ljúka náminu á þrem
önnum (1,5 vetri)
Inntökuskilyrði: Eins árs siglingatími stað-
festur með sjóferðabók og umsækjandi sé
22 ára eða eldri.
Sveinar í málmiðnaðar- eða rafiðnagreinum
þurfa ekki fyrrnefndan siglingatíma og fá auk
þess ýmsa áfanga metna.
Kvöldnámið er háð því að næg þátttaka fáist.
Hraðferðin byggir á því að almennar greinar,
svo sem raungreinar og tungumál, eru felld
út og styttir það nám til 750 kW réttinda úr 83
einingum í 48 einingar.
Skriflegar umsóknir berist til Vélskóla Íslands
fyrir 10. júní næstkomandi.
Frekari upplýsingar í síma 551 9755, fax
552 3760 frá kl. 8.00—16.00 alla virka daga.
Netfang: vsi@ismennt.is, veffang: http://
www.velskoli.is og http://www.maskina.is
Póstfang: Vélskóli Íslands, Sjómannaskólanum
v/Háteigsveg, 105 Reykjavík.
Skólameistari.
Frá Nýja
tónlistarskólanum
Vortónleikar— innritanir — skólaslit
Fimmtud. 17. maí
Söngtónleikar 8. stig kl. 20.00 í Gerðu-
bergi.
Föstud. 18. maí
Söngtónleikar, 8. stig kl. 20.00 í Gerðu-
bergi
Laugard. 19. maí
Sellótónleikar 7. stig kl. 12.30 í sal
Nýja tónlistarskólans
Laugard. 19. maí
Strengjasveit og kammertónl. kl.
14.00 í sal Nýja tónlistarskólans.
Mánud. 21. maí
Almennir tónl. Yngri nemendur
Þriðjud. 22. maí
Almennir tónl. Eldri nemendur
Föstud. 25. maí
Skólaslit á sal skólans kl. 18.00
Innritanir fyrir skólaárið 2001—
2002 verða:
miðvikud. 16. maí, fimmtud. 17. maí og
föstud. 18. maí nk. á skrifstofu skólans,
Grensásvegi 3, 3. hæð t.v., kl. 13.00 til
17.00. Sími 553 9210.
Skólinn skiptist í þrjár aðaldeildir:
Hljóðfæradeild, þar sem m.a. er kennt
á píanó, fiðlu, selló, þverflautu, gítar
og harmóniku,
söngdeild og tónfræðideild.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Menntafélags byggingariðnaðarins
verður haldinn á Hallveigarstíg 1 í dag,
fimmtudaginn 17. maí, kl. 17.00.
Til aðalfundar eru boðuð öll félög og fyrirtæki,
sem eru aðilar að Menntafélagi byggingariðn-
aðarins. Í lögum þess segir m.a.:
„Aðalfundur er lögmætur ef löglega hefur verið
til hans boðað, án tillits til fundarsóknar.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum
Menntafélags byggingariðnaðarins.“
Á aðalfundi verða þessir dagskrárliðir:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Gjaldkeri leggur fram til samþykktar endur-
skoðaða ársreikninga.
3. Framkvæmdastjóri leggur fram fram-
kvæmda- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
4. Lagabreytingar, enda séu þær kynntar í fund-
arboði.
5. Tilnefningar til stjórnar.
6. Kjörnir tveir skoðunarmenn reikninga
félagsins.
7. Önnur mál.
„Vistvænar byggingar“ — Guðmundur B.
Friðriksson, umhverfisverkfræðingur.
Stjórnin.
Aðalfundur
Tölvusamskipta hf.
verður haldinn á Grand Hóteli miðvikudaginn
23. maí 2001 kl. 17.00.
Stjórnin.
Hitaveita í Öndverðanesi I
Kynningarfundur vegna lagningu hitaveitu í
Öndverðanesi I verður haldinn í Golfskálanum
í Öndverðarnesi laugardaginn 19. maí nk. kl.
17:00. Þar munu fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur
gera grein fyrir málinu frá ýmsum hliðum,
tæknilegum og fjárhagslegum. Þarna gefst
kjörið tækifæri fyrir húseigendur í Öndverðar-
nesi I að fá allar upplýsingar um hitaveituna
og spyrja spurninga um verkefnið.
Kaffiveitingar.
Aðalfundur Tölvubíla hf.
verður haldinn í félagsheimili Hreyfils
fimmtudaginn 31. maí 2001 kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikingar félagsins.
3. Kosning stjórnar, skoðunarmanna og
löggilds endurskoðanda.
4. Önnur mál.
Reikningar félagsins afhentir við innganginn.
Stjórnin.
Skemmtiferðaskip —
gjafakort — Smáralind
Þróunarfélag miðborgarinnar efnir til fundar
í Kornhlöðunni við Bankastræti í dag, fimmtu-
daginn 17. maí kl. 18.15.
Fundarefni:
1. Skemmtiferðaskip - erlendir ferðamenn
í miðborginni
Gunnar Rafn Birgisson, framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar Atlantik.
2. Gjafakort fyrir miðborgina
Hallur A. Baldursson, framkvæmdastjóri
auglýsingastofunnar Yddu.
3. Áhrif Smáralindar á verslun og viðskipti
í miðborginni.
Ragnheiður Sigurðardóttir, viðskiptafræð-
ingur.
Allir velkomnir!
Þróunarfélag miðborgarinnar.
KENNSLA