Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 56
MINNINGAR
56 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigríður Theó-baldína Júlía
Guðjónsdóttir hár-
greiðslukona fædd-
ist í Reykjavík 1. júlí
1911. Hún lést að-
faranótt 9. maí síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru Mál-
hildur Þórðardóttir
frá Ormskoti í
Fljótshlíð, f. 29.
janúar 1881, d. 25.
mars 1937, og Guð-
jón Jónsson frá
Gestshúsum á Sel-
tjarnarnesi, f. 5. apr-
íl 1868, d. 6. janúar 1946, sem
bjuggu allan sinn búskap í Reykja-
vík. Systkini Sigríðar voru níu,
Sigríður giftist árið 1941 Krist-
jáni Ásgeirssyni, f. 26. maí 1919,
d. 10. september 1976, syni Reb-
ekku Hjaltadóttur, f. 10. janúar
1880, d. 9. apríl 1929, og Ásgeirs
Ásgeirssonar, f. 16. ágúst 1878, d.
18. janúar 1958, frá Ísafirði. Þau
hófu búskap á Bragagötu 29 en
fluttu árið 1946 að Hjallavegi 60
þar sem Sigríður bjó æ síðan. Þau
skildu árið 1961. Dætur þeirra
eru: Hildur Rebekka, f. 1942, gift
Má Hallgrímssyni 1966, skilin
1981, dóttir þeirra er Sigríður, f.
1969, gift Gunnari Auðólfssyni og
eiga þau einn son, Auðólf Má, f.
2000; og Karla, f. 1944, ógift og
barnlaus.
Sigríður lauk sveinsprófi í hár-
greiðslu 1934 og starfaði við hana
næstu tvo áratugi, en starfaði síð-
ar um tíu ára skeið við verslunar-
störf.
Útför Sigríðar fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
þar af tvö hálfsystkin.
Þau voru Lilja, f. 11.
desember 1882, d. 8.
ágúst 1973, Anna, f.
23. september 1905, d.
2. október 1975, Jón
Ingiberg, f. 9. septem-
ber 1907, d. 29. maí
1972, Sigurður Jón, f.
1910, d. 2. júlí 1911,
Sigurbjörn, f. 14. júlí
1914, d. 25. júní 1964,
Svavar, f. 22. maí
1917, d. 24. nóvember
1973, Angantýr, f. 22.
maí 1917, d. 6. ágúst
1961, Gunnfríður
Dagmar, f. 6. desember, d. 14.
apríl 1999, og Sigríður Halldóra,
f. 18. júlí 1921, d. 7. apríl 1987.
Elsku amma mín, Sigríður Theó-
baldína Júlía, er dáin, síðust úr
stórum systkinahópi. Hún skilur eftir
sig mikið tómarúm því að hún var
miðpunkturinn í litlu fjölskyldunni
okkar, stoð og stytta. Án hennar er-
um við allt í einu ráðvilltar og einar.
Ósérhlífni hennar, dugnaður, ást og
trygglyndi hefur mótað okkur og
kennt okkur þau lífsgildi sem best eru
í lífinu. Þessi lágvaxna og hægláta, en
blíða og sterka, kona vann hug og
hjörtu allra sem henni kynntust.
Amma fæddist í Reykjavík í upp-
hafi síðustu aldar, á tímum kreppu og
atvinnuleysis. Hún var fjórða af níu
systkinum, sem komust á legg. Bar-
áttuvilji, glaðværð og hjálpsemi ein-
kenndi fjölskyldu hennar og uppvaxt-
arár. Langafi sá fyrir fjölskyldunni
með verkamannavinnu, hann var fisk-
sali, og langamma heyjaði á engjun-
um á sumrin. Þau bjuggu þröngt og
oft var flutt búferlum en í minningu
ömmu skorti aldrei neitt, og líf og fjör
einkenndi æsku hennar. 25 ára gömul
varð hún fyrir þeirri miklu sorg að
missa mömmu sína og unnusta, Karl
Jensson, með dags millibili. Þessi lífs-
reynsla markaði djúp spor í sálu
hennar og fylgdi henni alla tíð. Ung
lærði amma hárgreiðslu og starfaði
við hana í tólf ár á hárgreiðslustofunni
Hollywood á Laugavegi.
Um þrítugt giftist hún afa, Krist-
jáni Ásgeirssyni bryta, og voru þau
gift í 20 ár. Þau eignuðust tvær dæt-
ur, Hildi Rebekku, móður mína, og
Körlu. Amma og afi stofnuðu heimili á
Bragagötunni en fluttust fljótlega í
nýtt hús sitt í nýju hverfi, í Klepps-
holtinu. Þar settust að um svipað leyti
fjögur systkina hennar með fjölskyld-
ur sínar og var mikill samgangur
þeirra á milli enda samheldnin mikil.
Heimili ömmu varð miðpunktur stór-
fjölskyldunnar, sem þá var, og gesta-
gangur daglegt brauð. Amma og afi
skildu 1961 en héldu ávallt góðu
sambandi.
Með árunum hefur fjölskyldan
minnkað og á ég fáar minningar um
þennan stóra systkinahóp ömmu. Ég
var eina barnabarn ömmu og vorum
við alltaf mjög nánar. Hún passaði
mig sem litla stelpu og fram eftir öll-
um aldri var hún mér ekki bara amma
heldur líka vinkona. Hún var síung í
anda og alveg fram á síðasta árið var
hún langskýrasti fjölskyldumeðlim-
urinn, mundi allt sem aðrir gleymdu.
Það var ekkert sem amma vildi ekki
gera fyrir mig og stelpurnar sínar.
Allt sem hún átti vildi hún gefa okkur
og alltaf var hún tilbúin að hlusta og
hjálpa.
Á þessari stundu leita minningarn-
ar á mig. Amma að lesa Buslu, aftur
og aftur, til að svæfa dótturdótturina,
sem ekki vildi sofna. Appelsínurif og
síríuslengjubitar til skiptis á skál til
að koma ávöxtum í stelpuna sína.
Amma að spila vist og Olsen Olsen við
mig og æskuvinkonu mína við eldhús-
borðið. Fyrstu skólatöskuna keypti
hún handa mér því nágrannabörnin
voru byrjuð í skóla ári á undan mér.
Boltaleikir, amma var meistari í
„Dönskum“ og gat að auki haldið
mörgum boltum á lofti í einu, mér til
mikillar aðdáunar. Svo var svo gott að
gráta á öxlinni hennar og finna mjúku
kinnina og mildu hendurnar.
Amma sagði eftir að hafa hitt
Gunnar, manninn minn, að nú hefði
ég valið vel. Henni fannst ég vera í
góðum höndum. Hún heimsótti okkur
í Svíþjóð sólskinssumarið 1999 ásamt
dætrum sínum og eigum við margar
góðar minningar frá þeim tíma.
Langamma varð hún fyrir tæpu ári,
þegar við eignuðumst son, Auðólf Má,
og þótti henni ósköp notalegt og gott
að fá hann í heimsókn þrátt fyrir veik-
indin sem þá voru farin að hrjá hana.
Elsku amma mín, ég kveð þig nú
með sárum söknuði en gleðst þó því
að ég veit að nú líður þér vel í faðmi
ástvina þinna.
Sigríður Másdóttir.
SIGRÍÐUR
GUÐJÓNSDÓTTIR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
9!
"
-
"
!
%
%
C.,7 4:: 5<A' +
&
0
%
1#
+
.
/%# ! )# # +. D& $%
9% ## ! )# !E"< /% 5 $%
&'(&#$&,<& ! )# "#3 $&/* & $%
# ! )# ##8% &' # $%
&'%# ! )# &'*#+. D& $%
#&'*# ! $%
)! # #+
:
!
"
"
"
!
%
%
.-.F:./4 4::
' < G+
&
0
%
+. ; $$
%
9#3
&-!
!
<.
-"
* "
.
$0 0!(&#$ )#
/%# <#.# )#
0!(&#$& )#
% 5# $%
1 )#+
$ %
/C,- "/C,-
)'& !;
"
$
"
+ .
5
"
-
+ .-
-
=
355
9) ##/* & )# !'&7# $%
!&! /* & )# /%# $%
.D /* & )# ##&/%3 ## $%
$% /* & $% #
3< ( )#
3 /* & $% :!!#!( )#
5$ /* & $% &' &!&/%3 ## )#
!*#/* & $% &## 1' )#
)!5>#$ #+
!
" "
!
0 94 9
.,
.
5< &'<%
2
+
&
0
"
%
#
)
. ; $$
1
$
.
&' !" ( #
)! %5 $ +
7 :
5< 5'
: # &#$@$
.&
" -
9
.
-
2
335
'%
"
"-
$
+- "
!*# 5<# $%
## !&' )#
5<# !&' )# &'*# $%
% (5'& !&' $% *# &' )#
. !&' )#
!'&% !&' $% !#* /%#.#)# )#
/%3 ## !&' )#
# #)! # # #+
/
0
.
/4-.H,14,.1 4:: / # " ! I
4 %) !
)" $
+
> %
-
7
8
9)! 4 5 )#
&'*#4 5 $%
4 54 5 $%
1'4 5 )#+
,%
%
"/0?F: 4:: % #
-!
!
- 2
8
"
:
=
6455
#$ ( ##+
%
%
.
-.
4:: "% ' 3 'G=
)
;%" -
7
?
"
!*#+4 $% B) #)
#34 $% ) ##.#!( )#
"#$ 4 $% 9) # )#
% *# # $% &.#J% )#
9) ## # )#
# ) 4 63 4 !#
- #$ #>)! # !&+