Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 58
FRÉTTIR
58 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ANDLIT manns og lands
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins í Borgarnesi
Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið efndu til
samkeppni um bestu ljósmyndir fréttaritara frá árunum 1999 og 2000.
Í Vínbúðinni og verslunarmiðstöðinni við Hyrnutorg í Borgarnesi er sýning á
þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar.
Myndefnið er fjölbreytt en myndin hér að ofan er ljósmynd Theódórs Kr.
Þórðarsonar í Borgarnesi af Erlendi Árnasyni í Knarrarnesi á Mýrum.
Sýningin stendur til föstudagsins 25. maí.
Myndirnar á sýningunni eru til sölu.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Lindargata – parhús
Mikið endurnýjað parhús á fallegum útsýnisstað í hjarta miðbæjarins.
Húsið skiptist í kj., hæð og ris. Í kj. er 2ja – 3ja herb. íbúð m. sérinng.
Á 1. hæð og í risi er 3ja – 4ra herb. vel skipulögð íbúð í góðu
ásigkomulagi.Svalir í norður m. miklu útsýni. Húsið er töluvert endurn.
á ytra byrði. Falleg ræktuð lóð. Verð 15,0 millj.
Úthlíð – sérhæð
Stórglæsileg og algjörlega endurnýjuð 126 fm neðri sérhæð auk 35 fm
bílskúrs. Hæðin skiptist í forstofu, stórt hol, stórt eldhús, saml. stofur,
2 herb., auk forstofuherbergis og flísalagt baðherb. Sérsmíðaðar
innréttingar. Gegnheilt eikarparket á gólfum. Falleg ræktuð lóð.
Verð 21,0 millj.
Laugateigur – sérhæð
Glæsileg og vel skipulögð 103 fm efri sérhæð m. sérinng. Rúmgóðar
stofur, 2 – 3 svefnherb. og flísal. baðherb. Parket á gólfum.
Suðursvalir. 26 fm bílskúr. Hús í góðu ástandi að utan. Verð 16,2 millj.
Flókagata – 5 herb.
5 herb. risíbúð í þessu reisulega fjórbýlishúsi á þessum eftirsótta stað.
Stofa, eldhús, 4 svefnherb. og baðherb. Svalir. Verð 11,8 millj.
Öldugata – 3ja herb.
Mjög björt og mikið endurnýjuð 78 fm íbúð á 1. hæð. Saml. stórar
stofur, stórt herb. og ný endurn. baðherb. Sameign og hús í góðu
ástandi. Laus fljótlega. Áhv. húsbr. 5,3 millj. Verð 11,2 millj.
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, ÞÓRSGÖTU 26, FAX 552 0421, SÍMI 552 5099
3JA HERB.
SEILUGRANDI + BÍLSKÝLI
Nýkomin í sölu björt og vel skipulögð 3ja
herb. 83 fm íbúð á 2. hæð ásamt stæði í bíl-
skýli. Baðherbergið er flísalagt með tengi
fyrir þvottavél. Norður- og suðursvalir. Afar
barnvænt umhverfi og leiktæki á sameigin-
legri lóð. Þak viðgert í fyrra. Sameign lítur
vel út. Hússjóður 5.500 kr. á mánuði. Verð
12,8 millj. Áhv. 5,4 millj.
GAUTAVÍK - SÉRINNGANGUR
Nýkomin í sölu stór og afar rúmgóð og
skemmtileg 112 fm 3ja herbergja íbúð með
sérinngangi á efri hæð í 2ja hæða fjölb. Bað-
herbergi flísalagt í hólf og gólf. Allar innrétt-
ingar, hurðir og skápar úr kirsuberjaviði.
Vantar gólfefni að hluta á íbúð. Verð 12,8
millj. Áhv. 6,3 millj. húsbr. til 25 ára. Greiðslu-
byrði á mán. kr. 39.000
BUGÐULÆKUR - ALLT SÉR Vorum að fá í sölu góða og bjarta 3ja-4ra herb. 91 fm
íbúð í kjallara/jarðhæð í fallegu fjórbýli í þessu eftirsótta hverfi. 3 svefnherb. Nýl. ofnar
o.m.fl. Verð 10,6 millj.
HAGAMELUR
Vorum að fá í sölu fallega og bjarta 3ja herb.
71 fm íbúð í kjallara (ath. lítið niðurgrafin).
Tvö rúmgóð herb. og rúmgóð og björt stofa.
Íbúð mikið endurnýuð. Parket á gólfum. Hús
nýl. viðg. Nýl. gler og rafmagn. Sérinng. Fal-
legur suðurgarður m/leiktækjum. Áhv. 4,2
millj. Verð 9,8 millj.
VINDÁS - BÍLSKÝlI Nýkomin í sölu björt og stór 85 fm 3ja herb. endaíbúð sem snýr í
suður og vestur, ásamt stæði í bílskýli. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherb., bæði með
skápum, stofa og borðstofa. Parket á öllu nema barnaherb. og baði en það er flísalagt.
Vestursvalir. Áhv. 5,1 millj. Verð 10,8 millj. 9190
SAFAMÝRI - LAUS STRAX Nýkomin í sölu 3ja herb. íbúð á jarðhæð í þríbýli með
sérinng. á þessum eftirsótta stað. Íbúðin er 70 fm og er laus strax. Lyklar á Gimli.
2JA HERB.
BALDURGATA - ALGJÖRLEGA ENDURNÝJUÐ 2ja herb. íbúð á jarðhæð með
sérinngangi í tvíbýli. Þvottahús í íbúð. Merbau-parket á gólfum. Áhv. húsbr. 3,2 millj. Verð
7,6 millj. Brunabótamat íbúðarinnar er 7,8 millj. Íbúðin er laus. Lyklar á Gimli.
HRINGBRAUT - MEÐ AUKAHERBERGI
Nýkomin í sölu góð 62 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt aukaherb. í risi sem er með að-
gangi að wc. og er tilvalið í útleigu. Íbúðin er mjög rúmgóð og björt. Rúmgóðar suður-
svalir. Stöndugur hússjóður. Áhv. 4,5 millj. Verð 9,0 millj. 9299
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Góð 52 fm íbúð
í steinhúsi á þessum vinsæla stað í hjarta
borgarinnar. Gott skipulag. Parket á gólfum.
Áhvílandi 4,3 millj. Verð 7,7 millj.
MARBAKKABRAUT - SÉR-
INNGANGUR Mjög falleg og rúmgóð 2ja
herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli með sérgarði og sérbílastæði. Fallegur sólskáli með
marmara á gólfi. Frábær staðsetning. Verð 8,6 millj.
HVERAFOLD Afar falleg og vel skipulögð 2ja herbergja 56 fm íbúð á jarðhæð m. sér-
verönd. Eikarparket á gólfum. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í alla þjónustu. Áhv. 6.1 millj.
Verð 8,1 millj.
FRAKKASTÍGUR - EINSTAKLINGSÍBÚÐ Vorum að fá í einkasölu góða einstak-
lingsíbúð á jarðhæð í fallegu, járnklæddu timburhúsi. Sérinngangur. Stórt eldhús. Áhv.
1,5 millj. húsbréf. Verð 3,2 millj. Íbúðin er ósamþ.
NÖNNUGATA - RISÍBÚÐ Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herb. ósamþykkt risíbúð.
Nýtt parket á gólfum. Nýtt rafmagn og -tafla. Þak nýlegt. Falleg íbúð á eftirsóttum stað.
Áhv. 2,4 millj. Verð 5,2 millj.
VEITINGASTAÐURINN Lækjar-
brekka opnaði nýverið vef á veffang-
inu www.laekjarbrekka.is. Vefurinn
er bæði á íslensku og ensku og þar er
að finna upplýsingar og fróðleik um
veitingastaðinn og sögu hússins, en
það er eitt af þeim eldri sem enn
standa í Reykjavík.
Á vefnum er gestum boðið að líta
inn á Lækjarbrekku og skoða mynd-
ir af veitingastaðnum og veislusöl-
um. Nýr matseðill á Lækjarbrekku
tók gildi 15. maí.
Ráðgjafafyrirtækið NETIÐ
markaðs- og rekstrarráðgjöf annað-
ist umsjón og gerð heimasíðunnar.
Heimasíða
Lækjarbrekku
ÁRLEG ráðstefna Oddafélagsins,
Oddastefna, verður haldin laugar-
daginn 19. maí nk. að Laugalandi í
Holtum kl. 14–17.
Á ráðstefnunni verður fjallar um
Suðurlandsskjálftana sumarið 2000.
Erindi flytja Freysteinn Sigurðs-
son og Elsa G. Vilmundardóttir jarð-
fræðingar, Orkustofnun, Ragnar
Stefánsson, forstöðumaður jarðeðl-
issviðs Veðurstofu Íslands, Páll Ein-
arsson prófessor, Hafþór Jónsson,
aðalsviðsstjóri Almannavarna ríkis-
ins og Þórir B. Kolbeinsson læknir,
Heilsugæslustöð Hellulæknishér-
aðs. Fundarstjóri verður Friðjón
Guðröðarson sýslumaður.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Ráðstefnugjald verður í mesta lagi
kr. 1000.
Stjórn Oddafélagsins var endur-
kjörin á aðalfundi nýlega. Hana
skipa Drífa Hjartardóttir, Elsa G.
Vilmundardóttir, Freysteinn Sig-
urðsson, sr. Sigurður Jónsson og Þór
Jakobsson.
Rætt um jarð-
skjálfta á
Oddastefnu
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á stjórnarfundi Öryrkjabanda-
lags Íslands þriðjudaginn 15. maí:
"Öryrkjabandalag Íslands lýsir
vonbrigðum vegna þeirra vanefnda
ríkisstjórnarinnar sem fram koma í
fyrirhuguðum breytingum á lögum
um almannatryggingar. Bandalagið
átelur harðlega þau áform hennar að
láta boðaða hækkun bóta, sem er nú
þegar er lögbundin, lúta 67 prósent
skerðingareglu fyrir skatt. Þá mót-
mælir Öryrkjabandalagið því að enn
skuli gengið lengra í þá átt að halda
niðri grunnlífeyri og tekjutryggingu
sem dregist hafa verulega aftur úr
launaþróun frá því á miðjum síðasta
áratug. Óhjákvæmilegt er að vekja
sérstaka athygli á þeirri staðreynd
að núverandi ríkisstjórn er sú fyrsta
í sögu lýðveldisins sem innheimtir
tekjuskatt af þeim sem ekkert hafa
nema greiðslur almannatrygginga.
Verði ekkert að gert munu þeir sem
verst eru settir þurfa að greiða rúm-
lega 70 þúsund krónur í beina skatta
á ári, sem jafngildir því að ríkisvaldið
svipti þá andvirði mánaðargreiðslu á
ári hverju."
Öryrkjabanda-
lagið lýsir yfir
vonbrigðum
HJÖRDÍS Sigurðardóttir heldur fyr-
irlestur um verkefni sitt til meistara-
prófs í rafmagns- og tölvuverkfræði
föstudaginn 18. maí kl. 13:30. Verk-
efnið heitir „Þekkingarleit í heilbrigð-
isgögnum með tengslagreiningu“.
Það fjallar um notkun gagnanáms-
aðferða við sjálfvirka leit að þekkingu
í heilbrigðisgögnum.
Tengslagreiningu er beitt á gögn
úr rannsókn á sviði augnlækninga og
þróuð aðferð til að draga fram safn af
áhugaverðum reglum sem finnast í
gögnunum.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
stofu 158 í VR II við Hjarðarhaga 2–6
og eru allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Leiðbeinendur Hjördísar eru Jón
Atli Benediktsson, prófessor við Há-
skóla Íslands, sem jafnframt er að-
alleiðbeinandi, Hákon Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri upplýsingatækni-
sviðs hjá Íslenskri erfðagreiningu, og
Einar Stefánsson og Friðbert Jónas-
son, prófessorar við Háskóla Íslands.
Verkefnið var unnið í samstarfi við
upplýsingatæknisvið Íslenskrar
erfðagreiningar og augnlækna við
Landspítala – háskólasjúkrahús.
Meistaraverk-
efni í rafmagns-
og tölvuverk-
fræði
♦ ♦ ♦
Meistaraverk-
efni í véla- og
iðnaðarverk-
fræði við Há-
skóla Íslands
MUTHAFAR Emeish heldur fyrir-
lestur um verkefni sitt til meistara-
prófs í véla- og iðnaðarverkfræði
föstudaginn 18. maí nk. kl. 15:00.
Verkefnið heitir „Simulation of
Heating Systems in Jordanian
Buildings“. Það fjallar um hermun á
varmabúskap bygginga í Jórdaníu
og leiðir til þess að lækka hitunar-
kostnað með mismunandi stjórnbún-
aði hitunarkerfa húsanna. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á ensku.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
stofu 157 í VR II við Hjarðarhaga
2–6 og eru allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir. Leiðbeinendur Muth-
afars eru: Páll Valdimarsson, pró-
fessor við Háskóla Íslands, sem jafn-
framt er aðalleiðbeinandi, Guðmund-
ur R. Jónsson prófessor og Halldór
Pálsson sérfræðingur við verkfræði-
deild Háskóla Íslands.
Þetta verkefni sýnir að gerð líkana
og hermun þeirra er mjög öflugt
verkfæri í höndum hönnuða til þess
að bezta rekstur upphitunarkerfa og
hægt er að segja fyrir um hag-
kvæmni breytinga á skýran hátt.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦