Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 72
72 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
The Way Of The Gun
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
B.i.16 ára. Vit nr. 228
Traffic
Sýnd kl. 10.30.
B.i.16 ára. Vit nr. 201
Thirteen Days
Sýnd kl. 5.30 og 8.
B.i.16 ára. Vit nr. 228
Memento
Sýnd kl. 8.10 og 10.20.
B.i.14 ára. Vit nr. 220
The Road To El Dorado
Sýnd kl. 3.50.
Íslenskt tal. Vit nr. 183
Litla Vampíran
Sýnd kl. 3.50.
Ísl. tal. Vit nr. 203
Nýi Stíllinn Keisarans
Sýnd kl. 4.
Vit nr. 213
Miss Congeniality
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
Vit nr. 207
Joel Silver framleiðandi Matrix er hér á ferðinni með
dúndur spennumynd með topp húmor. Stefnir í að verða
stærsta Steven Seagal myndin frá upphafi í USA.
Frábær tónlist í
flutningi DMX!
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal Vit nr. 231
Hún þurfti bara
mánuð til að
breyta lífi hans
að eilífu"
Keanu Reeves (Matrix) og Charlize Theron
(Cider House Rules, Men of Honor)
í rómantískri gamanmynd um mann sem hélt hann hefði allt.
Forsalan er hafin á Mummy Returns
Sýnd kl. 3.40, 5.55, 8 og 10.20. . Vit nr. 233 Sýnd kl. 5.55, 8 og 10.10. b.i. 16 ára. Vit nr. 223
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
eftir Þorfinn Guðnason.
HK DV
Yfir 5 vikur á
topp 20
Strik.is
Ó.H.T Rás 2
SV Mbl
Lalli Johnslli
Yfir 6000 áhorfendur
Sýnd kl. 6 og 8.30. Sýnd kl. 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Hann var maðurinn sem hóf partýið.
En öll partý taka enda.
byggð á sannsögulegum heimildum
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Forsalan er hafin á Mummy Returns
JULIA ROBERTS BRAD PITT
THEMEXICAN
HÖFUNDUR
hinna geysi-
vinsælu vísinda-
skáldsögu- og
grínbókaraðar
Hitchhiker’s
Guide To The
Galaxy, Douglas
Noel Adams, er
látinn. Hann lést
föstudaginn 11. maí, 49 ára að aldri,
mjög skyndilega eftir hjartaáfall.
Þetta kemur fram á heimasíðu
höfundarins, www.douglasadams.-
com, en þar geta aðdáendur hans
komið samúðarkveðjum sínum á
framfæri til fjölskyldu hans.
Á forsíðu heimasvæðisins er að
finna tvær tilvitnanir úr verkum
hans. Annars vegar; „Ljósin í augu
hans slokknuðu í allra síðasta sinn“
og hins vegar; „Veriði sæl og takk
fyrir allan fiskinn.“
Svo virðist sem höfundurinn hafi
gerst puttaferðalangur á ferðalagi á
milli stjarnanna, fyrr en nokkurn
grunaði.
Douglas Adams látinn
Puttaferða-
langur lagður
af stað til
stjarnanna
Douglas
Adams
TROMMULEIKARI Metallicu og
Napster fjandmaðurinn Lars Ul-
rich skrifaði nýlega hljómsveitar-
meðlimum Sigur Rósar bréf þar
sem hann þakkar þeim kærlega fyr-
ir tónlist þeirra. Hann segir hana
hafa veitt hljómsveit sinni innblást-
ur við gerð væntanlegrar breiðskífu
sem nú er í vinnslu. Þetta gerði
hann eftir að hafa verið viðstaddur
tónleika þeirra í San Francisco á
dögunum.
Í bréfinu stóð m.a. „Þakka ykkur,
þakka ykkur, þakka ykkur! Við er-
um í hljóðverinu núna að reyna að
búta saman einhverskonar plötu.
Nú get ég farið aftur til starfa, full-
ur af innblæstri.“
Metallica hafa verið við upptökur
á leynilegum stað í San Francisco
síðan 23. apríl. Um upptökustjórn
sér Bob Rock. Á heimasíðu Metall-
icu lýsir Ulrich upptökuferlinu sem
ævintýralegri og tilraunakenndari
reynslu en þeir hafi áður kynnst.
Ulrich var ekki eina stórstjarnan
sem mætti á tónleika Sigur Rósar í
San Francisco því þar sást einnig til
X-Files leikkonunnar Gillian And-
erson en hún tilkynnti hljómsveit-
inni eftir tónleikana að hún hygðist
sjá þá aftur þegar þeir hita upp fyr-
ir Radiohead í London í júlí.
Beck var á meðal tónleikagesta
Sigur Rósar í L.A. en á New York
tónleika þeirra í Irving Plaza
mættu Moby og ekki ómerkari
maður en David Bowie.
Einnig vakti það athygli á dög-
unum að sveitin afþakkaði boð Dav-
id Letterman að koma fram í spjall-
þætti hans. Ástæðan var víst sú að
hljómsveitin sá sér ekki fært að
stytta lag sitt, en ætlast er til að
lögin séu ekki lengri en fjórar mín-
útur í slíkum þáttum.
Ágætis Byrjun kom út í Banda-
ríkjunum í gær en meðlimir Sigur
Rósar eru nú komnir aftur heim til
þess að vinna að næsta plötu.
Sigur Rós vek-
ur innblástur
Mun söngvari Metallicu syngja í falsettu á næstu plötu?
Trommari Metallicu sendir Sigur Rós þakkarbréf
ÞAÐ kom ekki
mörgum í opna
skjöldu þegar
söngvari hljóm-
sveitarinnar
R.E.M. lýsti því
yfir í fyrsta
skiptið opin-
berlega á dög-
unum að hann
væri samkyn-
hneigður. Þetta
opinberaði söngvarinn í nýlegu við-
tali sem birtist í nýjasta hefti Time
magazine. Þar segist hann hafa átt
í föstu ástarsambandi í þrjú ár.
„Það var alltaf sett upp eins og
ég væri gunga að viðurkenna þetta
ekki, frekar en persóna sem fyndist
þetta vera eitthvað persónulegt,“
segir Stipe í viðtalinu.
Maki söngvarans er ekki þekkt
andlit og lýsir hann honum sem
„undraverðum manni“.
R.E.M. var einmitt í þessu að gefa
út breiðskífuna Reveal sem er
þeirra tólfta hljóðversplata. Söngv-
arinn hefur einnig greint frá því að
hann hafi nýlega sungið inn á vænt-
anlega plötu rapparans Kool G sem
ber nafnið Giacana Story.
Stipe opinberar
alþekkt
leyndarmál
Michael Stipe,
hýr að vanda.