Morgunblaðið - 06.07.2001, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 25
ÍSLENSK fata- og skartgripa-
hönnun stendur með blóma um
þessar mundir og hvarvetna
spretta upp sérverslanir með ólík-
um klæðnaði og djásnum. Göngu-
túr upp Laugaveginn leiðir í ljós
að minnsta kosti fimm nýjar versl-
anir með skínandi fallegum fatnaði
og skartgripum.
Það er sannkallað gleðiefni að
hönnun skuli vera farin að sækja í
sig veðrið sem raun ber vitni, og
reyndar furðulegt að jafnmiklir
fatakerar og Íslendingar skuli ekki
fyrir löngu hafa hellt sér út í þessa
tegund listiðnar. Þá minnkar með
auknum hönnunaráhuga óraun-
hæfur þrýstingur á hreina mynd-
list. Til skamms tíma þurftu hönn-
uðir að koma sér á framfæri sem
hverjir aðrir ópraktískir myndlist-
armenn án þess að fá sómasamlegt
tækifæri til að skerpa á sérkenn-
um sínum. Afleiðingin var oftar en
ekki misskilinn hrærigrautur
myndlistar og hönnunar sem fékk
bágt í báðum herbúðum.
Á sýningunni Djásn og dýrðleg
sjöl, í hinum frábæru húsakynnum
Handverks og hönnunar, eru
hvorki meira né minna en 54 mun-
ir, af öllum tegundum og gerðum.
Það sem gleður augað er sá svíf-
andi léttleiki og útsjónarsemi sem
hvarvetna blasir við. Efniviði er
teflt saman með nýstárlegum
hætti þannig að þunn sjöl og þykk-
ir treflar renna saman í eitt.
Eins eru skartgripir gerðir úr
efniviði sem til skamms tíma hefði
þótt óhugsandi sem djásn. En það
er ekki einungis nýr efniviður á
borð við plast sem setur svip á
sýninguna í Aðalstræti 12. Hefð-
bundið hráefni á borð við kýrhorn
verður með réttri verkun að skín-
andi armbandi og hálfdýrmætir
steinar frá norðurhjara veraldar
nýtast í fágaðar brjóstnælur.
Svo sem á fyrri sýningum í
Handverki og hönnun ríkir mikil
og sterk bjartsýni, sem lýsir sér í
áræði og útsjónarsemi sýnenda. Á
burt er allt hið þunglamalega og
staðnaða dót sem til skamms tíma
fyllti túristamarkaði, án þess að
nokkur Íslendingur fengist til að
bera varninginn á sjálfs sín kroppi.
Ferðamönnum var litið kringum
sig án þess að sjá nokkurn
heimamann íklæðast þeim þjóð-
legu flíkum sem að þeim var haldið
sem hefðbundnum íslenskum
klæðnaði.
Með þeirri miklu endurreisn
sem óneitanlega er hafin í ís-
lenskri fata- og skartgripahönnun
er markhópurinn greinilega við
sjálf, en jafnframt gestir sem
kunna að meta frumlega handíð.
Svo virðist sem í fyrsta sinn sé að
koma á markað íslensk hönnun
sem Íslendingar sjálfir kunna að
meta, en það er hvorki meira né
minna en frumforsenda þess að við
getum verið stolt af okkar eigin
smekkvísi og verkkunnáttu.
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Hluti af sýningunni Djásn og dýrðleg sjöl í Handverk og hönnun.
Skartgripir
og skakkar
HÖNNUN
H a n d v e r k o g h ö n n u n ,
A ð a l s t r æ t i 1 2
Til 8. júlí. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 12–17.
BLÖNDUÐ TÆKNI
YFIR 30 HÖNNUÐIR
Halldór Björn Runólfsson
RAGNHILDUR Magnúsdóttir opn-
ar myndlistasýningu í Galleríi ash,
Varmahlíð, á morgun, laugardag, kl.
14. Ragnhildur sýnir myndir af Öskju
og Gullfossi, málaðar með akríllitum á
bómullarstriga og grafíkpappír.
Ragnhildur útskrifaðist úr málun-
ardeild Myndlistaskólans á Akureyri
vorið 1999. Hún var gestanemi í graf-
íkdeild MHÍ 1997 og skiptinemi í
Lahti, Finnlandi, 1998. Þetta er þriðja
sýning Ragnhildar. Sýningin er opin
alla daga nema þriðjudaga frá 11–18.
Askja og
Gullfoss
í Galleríi ash
Á TÓNLEIKUM Jómfrúarinnar við
Lækjargötu á morgun kl. 16 kemur
fram tríó Árna Heiðars Karlssonar.
Aðgangur er ókeypis.
Tríó Árna Heið-
ars á Jómfrúnni
♦ ♦ ♦
v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680
iðunn
tískuverslun
Útsala
útsala
Útsalan
er hafin
Þar sem garðáhöldin fást
Geri
ð
verð
sam
anb
urð