Morgunblaðið - 06.07.2001, Side 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2001 49
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
Hamraborg 3, sími 554 1754
Opið mán.-fös. kl. 13-18, lau. kl. 10-14.
Grisport
Vind- og vatnsþéttir
Góðir í útilegu og gönguferðir
Stærðir 37-47
Verð kr. 5.990
Kven- og karlmannssandalar kr. 1.990
Baðtöflur kr. 790
Gabor skór kr. 5.990
SUMARMARKAÐUR
Skómarkaður (í húsi Blómahallar)
Nýjar vörur á markað
NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu
grein eftir Eirík Bergmann Einars-
son, sú hin sama og ég hafði áður
svarað á síðum blaðsins, en upphaf-
lega birtist hún, með dálítið harðara
orðalagi þó, á kreml.is. Þar sem ég sé
ekki ástæðu til að knýja Morgunblað-
ið til að birta aftur svar mitt við sömu
grein, læt ég mér nægja að fá hana
birta á vefsíðum Morgunblaðsins.
Virðingarfyllst,
SNORRI G. BERGSSON,
sagnfræðingur.
Svar til Eiríks Bergmanns
Frá Snorra G. Bergssyni:
Meira á netinu
MÉR verður oft hugsað til þess þeg-
ar ég les eða heyri rætt um markviss-
ar vímuvarnir í stefnu hins opinbera
eða meðal virtra
félagasamtaka
sem setja sér
markmið og
framkvæmdar-
áætlun hvort að
menn séu kannski
alltaf að „elta
skottið á sér“
komi sér aldrei að
raunveruleikan-
um sem liggur þó
svo nærri.
Er verið að vinna þessar vímuvarn-
ir meira og minna fyrir gýg þegar
hinir fullorðnu gleyma því jafnharðan
í veislum eða á veitingastöðum að þeir
eru fyrirmyndir æskunnar.
Þegar hugarfarið er með slíku káki
heldur bölið áfram.
Manni virðist „áfengismenningin“
liggja í nú á tímum að sjoppur og vín-
veitingahús noti sér hvert tækifæri til
að koma ofan í gesti áfengi. Ekki er
þverfótað fyrir afgreiðslufólki á þess-
um stöðum sem fyrst af öllu er boðið
að segja „hvað má bjóða yður að
drekka?“ Og kemur ekki á það undr-
unarsvipur ef beðið er um tært ís-
lenskt vatn, sem er þó heilsusamleg-
ast allra drykkja. Það þarf talsverðan
kjark til að hafna því að „fá sér í glas“
eins og það er orðað.
Er einhver von til þess að æskan
láti sér segjast á meðan foreldrarnir
geta ekki látið það eftir sér á veit-
ingastöðum eða mannamótum að
drekka áfengi oft á þann hátt að
„skemmtun“ þeirra minnir á skepnu-
skap. Er þá ekki alltaf passað upp á
hvort að æskan horfi upp á ósómann.
Það hefur aldrei verið selt eins
mikið af áfengi í landinu eins og síð-
astliðið ár. Fjölgun vínveitingastaða
og óheftur opnunartími hefur átt
mestan þátt í þessari áfengissölu og
hvernig komið er í áfengismálum í
landinu.
Oft hef ég minnst á áfengisveislur
hins opinbera. Ekki bæta þær
ástandið í því markmiði þjóðarinnar
að draga úr áfengisbölinu. Hvað
skyldu margir mætir menn hafa tap-
að áttum í áfengisveislum á vegum
ríkis eða sveitarfélaga.
Bindindismenn hafa alltaf bent á
leiðina til fegurra mannlífs og sýnt
það með fordæmi. Allar hömlur á
meðferð áfengis eru til bóta. Þeir sem
fyrir vímuvörnum standa verða að
vera gegnheilir í afstöðu sinni og sýna
slíkt fordæmi sem við bindindismenn
bendum á.
Þingeyingur nokkur orti við afnám
bannlaganna forðum.
Best er að varast vínsins tál, verstu heims-
ins byrði.
Illt er að hella eitri í sál, ef hún er nokkurs
virði.
Ekkert kák, raunveruleikinn er
skýr.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Vímuvarnir og
stefna hins opinbera
Frá Árna Helgasyni:
Árni Helgason
Sumarbrids
SUMARBRIDS er spilað mánu-
dags-, þriðjudags- fimmtudags- og
föstudagskvöld í hverri viku. Spila-
mennska byrjar kl. 19:00 og er spil-
aður Mitchell-tvímenningur nema á
fimmtudögum en þá er boðið upp á
Monrad Barómeter. Á mánudögum
eru spiluð minnst 3 spil á milli para í
hverri umferð. Á þriðjudögum gefst
spilurum kostur á að leggja í Verð-
launapott sem síðan rennur til efsta
eða efstu para sem lögðu í hann. Á
föstudagskvöldum geta spilarar tek-
ið þátt í Miðnætur sveitakeppni eftir
að tvímenningnum lýkur. Umsjónar-
maður Sumarbrids er Sveinn Rúnar
Eiríksson. Spilað er í Skeifunni 11, 3.
hæð (fyrir ofan Þvottahúsið Fönn).
Allir spilarar eru velkomnir og
hjálpar keppnisstóri til við myndun
para ef menn mæta stakir.
Heimasíða Sumarbrids er
www.islandia.is/svenni
Úlfar Eysteinsson og Sumarbrids
byrjuðu með sumarleik mánudaginn
2. júlí. Hann stendur frá 2. júlí til
föstudagsins 13. júlí. Sá spilari sem
skorar flest bronsstig á þessu tíma-
bili hlýtur glæsilegt gjafabréf á veit-
ingastaðinn Þrír Frakkar í boði Úlf-
ars Eysteinssonar.
Þeir 2 spilarar sem skora flest
bronsstig 3 daga í röð í Sumarbrids
fá fría gistingu og uppihald á Ark-
armótinu sem fer fram 12–.14. októ-
ber 2001 auk þess sem þeir spila frítt
í tvímenningi Arkarmótsins. Þessi
keppni byrjar 1. júlí og stendur til
loka Sumarbrids. Allir tvímenningar
og miðnætursveitakeppnir Sumar-
brids s eftir 1. júlí telja í þessum leik.
Því pari sem hlýtur hæsta pró-
sentuskor í Sumarbrids verður boð-
ið að spila í tvímenningnum á Ark-
armótinu sem fer fram 12. – 14.
október.
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð fimm-
tud. 21. júní 2001. 19 pör. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Björn E. Pétursson - Hilmar Ólafsson 237
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánsson 235
Ólafur Ingvarsson - Eysteinn Einarsson 232
Árangur A-V:
Hilmar Valdimarss. - Magnús Jósefsson 251
Alfreð Kristjánsson - Birgir Sigurðsson 249
Sigtr. Ellertss. - Aðalbjörn Benidiktss. 239
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
25. júní. 19 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Magnús Halldórsson - Magnús Oddsson 243
Eysteinn Einarsson - Sigurður Pálsson 228
Þórhildur Magnúsd. - Helga Helgad. 228
Árangur A-V:
Kristinn Gíslason - Hjálmar Gíslason 278
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 245
Alda Hansen - Margrét Margeirsdóttir 235
Meistarafélag
Bólstrara
www.bolstrun.is
M
EI
ST
AR
AF
ÉLAG BÓLSTRA
R
A
STOFNAÐ 1928
Ósambærilegar tölur
bornar saman
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá Hug-
rúnu Jóhannesdóttur forstöðumanni
Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðis-
ins.
„Vegna fréttar um vaxandi at-
vinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu
skal eftirfarandi tekið fram: Vegna
mistaka voru bornar saman ósam-
bærilegar tölur og sá hluti fréttar-
innar sem fjallaði um 20% aukningu
á atvinnuleysi á einu ári var á mis-
skilningi byggður. Hið rétta er að
þrátt fyrir vaxandi fjölda fólks á at-
vinnuleysisskrá síðustu vikur eru
færri skráðir atvinnulausir á svæð-
inu en á sama tíma í fyrra. Í júlí 2000
voru alls 1.430 manns á atvinnuleys-
isskrá á höfuðborgarsvæðinu en
1.406 manns 1. júlí sl. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.“
Gallerí Reykjavík
Sýningu Olgu Pálsdóttur í Galleríi
Reykjavík lauk 30. júní, en ekki núna
á laugardag eins og fram kom í
blaðinu í gær.
LEIÐRÉTT
FRÉTTIR
Gullsmiðir