Morgunblaðið - 19.10.2001, Page 4

Morgunblaðið - 19.10.2001, Page 4
VEL hefur gengið að manna leik- skóla í Reykjavík í haust og að sögn Bergs Felixsonar, framkvæmda- stjóra Leikskóla Reykjavíkur, skipta nýgerðir kjarasamningar þar mestu um. Síðastliðið vor vantaði 250 manns til að fullmanna skólana en eins og staðan er í dag er óráðið í ríflega 20 stöður, aðallega í leik- skóla í Grafarvogi. Samfara betri mönnun, jafnt í faglærð sem ófag- lærð störf, hefur nýting á leikskól- unum aukist. Áhersla hefur verið lögð á að deildarstjórar séu menntaðir leikskólakennarar, enda hækkuðu laun þeirra til muna í síð- ustu samningum. Mjög vel hefur tekist að ráða í stöður deildarstjóra. „Ástandið hefur ekki verið betra á þessum árstíma í langan tíma. Að vísu hefur eitthvað hægt á umsókn- um í síðustu starfsauglýsingum eft- ir mikinn straum til okkar fyrst í september. Margir leikskólar eru samt fullmannaðir og nýtingin á rýmunum því mjög góð. Mun færri börn en áður, sem eru fædd árið 1999, eru án leikskólarýmis en börn á sama aldri síðustu haust, eða um 400 börn nú miðað við um 800 í fyrra af árgangi 1998. Við erum meira að segja farin að taka inn börn í sumum hverfum sem eru fædd árið 2000. Það er líka ýmislegt í farvatninu hvað nýja leikskóla varðar,“ segir Bergur og nefnir til sögunnar stóran einkarekinn leik- skóla í Grafarvogi, sem borgin mun styrkja, og nýjan fjögurra deilda leikskóla við Háteigsveg á vegum borgarinnar sem opnaður verður snemma á næsta ári, í samstarfi við námsmannahreyfingarnar. Þá eru tvær deildir í byggingu við leikskóla í Seljahverfi. Mun fleiri í heilsdagsvistun „Þrátt fyrir góða mönnun hefur okkur ekki tekist að slá svo mikið af biðlistunum. Heill árgangur kemur nú inn á listann í stað þeirra um 1.600 rýma sem losnuðu í haust. Lögð hefur verið áhersla á að for- eldrar fái að vera með börnin á leik- skólunum í þann tíma sem þeir óska eftir. Núna er staðan þannig að 78% barna er í heilsdagsvistun en fyrir fáum árum var sama hlutfall í kringum 30%. Þetta þýðir að við er- um í raun með færri börn en áður í sömu stærð af skólum. Dvalar- stundir barna hafa að sama skapi aukist verulega,“ segir Bergur. Hann segir mikla aðsókn einnig vera til dagmæðra og á einkarekna leikskóla. Um 1.500 börn eru í vist- un hjá dagmæðrum og 430 á einka- reknum skólum. Vel gengur að manna leikskóla í Reykjavík eftir síðustu kjarasamninga Óráðið í ríflega 20 stöður en 250 manns vantaði í vor Morgunblaðið/Steinunn Haustsól í Garðsauka ÞAÐ er haustsól í Garðsauka. Jón bóndi skreppur í búðina á drátt- arvélinni áður en hann fer í mjaltirnar. Dalalæðan gæðir landið dulúð á fallegu haust- kvöldi. Kýrnar bíða mjaltanna en fjósið er í bragganum sem kúrir undir sólinni. FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sængurgjafir B A R N A V Ö R U V E R S L U N www.oo.is Úrvalið er hjá okkur 0-3ja ára Milljóna- tjón þegar þurrkari brann yfir LYFJAFYRIRTÆKIÐ Delta við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði varð fyrir milljóna króna tjóni í gær þegar þurrkari við loftræstikerfi brann yfir og töluverður reykur og hiti myndaðist. Reykurinn barst út í loftið þar sem lyfjaframleiðsla fer fram og um hluta verksmiðjunnar í gegnum loftræstikerfið. Slökkvilið- ið á höfuðborgarsvæðinu var kallað á staðinn um hálftvöleytið, réð fljótt niðurlögum þess litla elds sem kviknaði og reykræsti húsið. Engan starfsmann Delta sakaði og virkaði eldvarnarkerfi verksmiðj- unnar sem skyldi. Róbert Wessmann, fram- kvæmdastjóri Delta, sagði við Morgunblaðið að blöndun á hráefni fyrir lyfjatöflur hefði farið fram þegar þurrkari við einn blandarann ofhitnaði og upp kom smávægileg- ur eldur. Loftræstibúnaður fyrir þennan þurrkara skemmdist tölu- vert og kemst ekki í gang að nýju fyrr en eftir einhverja daga eða vikur. Lyfjaframleiðsla Delta komst að öðru leyti fljótt af stað eftir óhappið í gær. Róbert sagði tjónið fást bætt hjá tryggingafélagi fyrirtækisins en það var einkum á loftræstibúnaðin- um, hráefninu sem var verið að blanda og lyfjatöflum sem þarf að farga. Delta í Hafnarfirði ÁHÖFNIN á Smáey VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gær- morgun með stórhættulegan afla, eða upp undir 40 skot úr gamalli loft- varnarbyssu. Að sögn lögreglunnar í Eyjum er talið að skotin séu frá tím- um seinni heimsstyrjaldarinnar en þau komu í veiðarfæri Smáeyjar á Jökuldjúpi. Skotin, sem eru um 20 sentimetrar á lengd, virtust vera með virkt TNT-sprengiefni í hleðsl- unum og var sprengjusérfræðingur frá Landhelgisgæslunni kvaddur í skyndi til Eyja til að eyða þessum hættulegu skotfærum. Voru þau sprengd á opnu svæði um miðjan dag og heyrðist hvellurinn langar leiðir í veðurblíðunni. Hættulegur afli Smáeyjar VE á Jökuldjúpi Skot með sprengiefni voru í veiðarfærunum FARÞEGUM í millilandaflugi Flugleiða fækkaði um rúmlega 21.500 eða 16,5% í septembermán- uði í ár frá sama mánuði í fyrra og átti allur samdrátturinn sér stað eftir 11. september þegar árásin á New York var gerð. Þá fækkaði farþegum í innanlandsflugi Flug- félags Íslands um 17,6% í sept- embermánuði og fækkunin á árinu fram til septemberloka nemur 13,0%. Mun verri sætanýting Í frétt frá Flugleiðum kemur fram að nú í september voru far- þegar 110 þúsund talsins en voru rúmlega 131 þúsund í sama mánuði í fyrra. Farþegum, sem áttu erindi til og frá Íslandi, fækkaði um 9% en þeim sem flugu yfir N-Atlantshafið um Ísland fækkaði um 23,1%. Sætanýting var verri í september í ár en í fyrra og nam hún 68,1% í ár en 77,1% í fyrra. Þegar fyrstu níu mánuðir ársins eru skoðaðir kemur fram að farþeg- um fækkaði um 0,4% í millilanda- fluginu á því tímabili. 0,05% fækkun farþega var á leiðinni til og frá Ís- landi en 0,3% fækkun farþega um Norður-Atlantshafið. Sætanýting á tímabilinu hefur aukist um 0,6 pró- sentustig úr 73,2% fyrstu níu mán- uðina í fyrra í 73,8% fyrstu níu mánuðina í ár. Samdráttur varð hjá Flugleiðum 16,5% fækkun far- þega í september STJÓRN Flugfélagsins Jórvíkur hefur ákveðið að fresta því um óákveðinn tíma að hefja áætlunarflug til Húsavíkur. Stefnt hafði verið að því að hefja flug þangað í kringum 20. október, en að sögn Einars Arnar Einarssonar, rekstrarstjóra Jórvík- ur, hafði flugfélagið aldrei opinber- lega rætt um að hefja flug til Húsa- víkur né auglýst það. Félagið átti hins vegar í viðræðum við Hótel Húsavík um málið. Þá sagði hann að Jórvík hefði aldrei lýst því yfir að flug myndi hefjast þennan ákveðna dag. „Við erum ekki hættir við að fljúga til Húsavíkur, en við höfum frestað því. Við höfðum stefnt að því að byrja að fljúga í kringum 20. október, en stjórnin mat stöðuna þannig að það væri ekki tímabært að svo stöddu. Það er heilmikil skuldbinding að hefja áætlunarflug á stað sem ekki hefur verið flogið á lengi og við teljum okkur því þurfa að vera betur und- irbúnir.“ Beint flug til Húsavíkur frá Reykjavík hefur legið niðri síðan í september á síðasta ári Ekki hættir við Húsa- víkurflug

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.