Morgunblaðið - 27.11.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.11.2001, Qupperneq 1
272. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 27. NÓVEMBER 2001 GEORGE W. Bush Banda- ríkjaforseti fordæmdi í gær verk bandaríska fyrirtækisins Advanced Cell Technology Inc. en fyrirtækið tilkynnti á sunnu- dag að því hefði tekist að búa til einræktaðan fósturvísi sem lifði í nokkra daga. Sagði forsetinn að rannsóknirnar væru að sínu mati „siðferðislega rangar“. Bush hefur áður lýst and- stöðu sinni við rannsóknir sem hugsanlega gætu orðið til þess að einhverjum tækist að ein- rækta barn. „Notkun fóstur- vísa til einræktunar er röng,“ sagði hann í gær. „Við eigum ekki, sem samfélag, að rækta líf til þess að eyða því síðan, en það er einmitt það sem hér hef- ur verið gert.“ Hyggjast hjálpa sjúkum Advanced Cell Technology Inc. lagði hins vegar áherslu á það að ekki væru uppi áform um að búa til einræktuð börn. Aftur á móti yrði einræktun notuð til að búa til nýjar frumur og vefi fyrir fólk sem þjáist af sykursýki, Parkinsonsveiki og öðrum sjúkdómum. Einræktun sögð „sið- ferðislega röng“ Washington. AP.  Segja einræktun/26 ANDERS Fogh Rasmussen, formað- ur Venstre-flokksins í Danmörku, gekk í gær á fund Margrétar Þórhild- ar Danadrottn- ingar og tilkynnti henni að hann hefði myndað nýja minnihlutastjórn með Íhaldsflokkn- um. Fogh Rasm- ussen mun kynna ríkisstjórn sína formlega í dag en hann sagði á fréttamannafundi í gær að í stjórnarsáttmála væri lögð áhersla á frelsi einstaklingsins. „Sátt- málinn er blanda frjálslyndra og íhaldssamra stefnumála og ég er afar ánægður með niðurstöðuna,“ sagði hann. Flokkarnir tveir, sem ráða 73 þing- sætum af 179 í danska þinginu, hafa fengið óformlegt vilyrði Þjóðarflokks- ins og Kristilega þjóðarflokksins um stuðning við ríkisstjórnina en þeir ráða samtals 26 þingsætum. Sagðist Pia Kjærsgaard formaður Þjóðar- flokksins, sem vann mikinn sigur í þingkosningunum, sátt við megin- stefnumál Rasmussens og ítrekaði þá skoðun sína að þörf væri á að draga úr flóði innflytjenda til Danmerkur. Espersen verður dómsmálaráðherra Rasmussen og Bendt Bendtsen formaður Íhaldsflokksins lögðu í gær síðustu hönd á ráðherralistann. Skv. fréttum danskra fjölmiðla á að stofna þrjú ný ráðuneyti: efnahagsráðuneyti og viðskipta- og iðnaðarráðuneyti verða sameinuð, nýtt vísindaráðu- neyti verður stofnað og einnig verður stofnað sérstakt ráðuneyti til að sjá um innflytjendamál. Að sögn Jyl- landsposten í gærkvöld er ráðgert að íhaldskonan Lene Espersen verði dómsmálaráðherra og sagði blaðið það koma nokkuð á óvart. Rasmussen verður forsætisráðherra og Bendtsen verður atvinnu- og efnahagsmálaráð- herra. Utanríkisráðherra verður íhaldsmaðurinn Per Stig Møller og Thor Pedersen frá Venstre verður fjármálaráðherra. Ný ríkisstjórn í Danmörku Kaupmannahöfn. AFP. ÞÁTTASKIL urðu í stríðinu í Afgan- istan í gær en þá lentu um fimm hundruð bandarískir landgönguliðar á flugvelli sem er steinsnar frá borg- inni Kandahar í Suður-Afganistan. Varð engin töf á því að sveitirnar létu til sín taka því að í gærkvöld skaut bandarísk F-14 bardagaþota flug- skeytum að herfylkingu talibana í ná- grenni Kandahar. Varaði George W. Bush Bandaríkjaforseti landa sína við því í gær að vænta mætti mann- falls í röðum hermanna nú þegar lokakaflinn í stríðinu í Afganistan væri hafinn. Aðgerðir Bandaríkjamanna eru þær mestu sem þeir hafa fram að þessu staðið fyrir á jörðu niðri í Afg- anistan. Vöktu þær jafnframt upp vangaveltur um það hvort Kandahar, sem verið hefur höfuðvígi talibana, væri um það bil að falla. Fullyrt var að bin Laden og Moh- ammed Omar, andlegur leiðtogi talib- ana, væru enn í Kandahar. Einn leið- toga Norðurbandalagsins, Abdullah Abdullah, sagði þó að ekki væri útséð um það hvort takast myndi að hafa hendur í hári þeirra en að næstu dag- ar myndu ráða úrslitum þar um. Uppreisn talibana í Mazar barin niður af hörku Bush Bandaríkjaforseti staðfesti í gærkvöld að verkefni bandarísku landgönguliðanna væri ekki síst að hafa uppi á þeim bin Laden og Omar en fullvíst þykir að sá fyrrnefndi hafi lagt á ráðin um hryðjuverkin í Banda- ríkjunum 11. september sl. „Við ætl- um að svæla þá út úr felustöðum þeirra. Þeir eru á flótta og við ætlum að sjá réttlætinu fullnægt,“ sagði Bush. Hópur talibana varðist enn her- mönnum Norðurbandalagsins í Qala-e-Jangi fangelsinu nærri borg- inni Mazar-e-Sharif í norðurhluta Afganistan í gær en talibanarnir gerðu á sunnudag uppreisn gegn fangavörðum sínum. Er talið að a.m.k. fjögur hundruð talibanar hafi fallið þegar Norðurbandalagið reyndi að berja uppreisn þeirra niður en tal- ibanarnir höfðu komist yfir vopn varða sinna. Jafnframt var fullyrt að bandarískur leyniþjónustumaður hefði fallið en Norðurbandalagið naut liðsinnis sprengjuflugvéla Banda- ríkjamanna í bardögunum, sem reyndust afar blóðugir. Flestir talibananna í Mazar voru Pakistanar, arabar eða Tsjetsjenar og er talið að margir þeirra hafi verið liðsmenn al-Qaeda hryðjuverkasam- taka Sádí-Arabans Osama bin Laden. Hópur þeirra var handsamaður á laugardag þegar Norðurbandalagið náði borginni Kunduz loks á sitt vald en hún hafði verið síðasta vígi talib- ana í N-Afganistan. Olim Razm, talsmaður Abduls Rashids Dostum, eins af hershöfð- ingjum Norðurbandalagsins, sagði að 5.750 talibanar, bæði afganskir og er- lendir, hefðu lagt niður vopn og gefið sig fram við hermenn Norðurbanda- lagsins í Kunduz í gær. Óvíst er hvað verður um þessa menn en talsmenn Sameinuðu þjóðanna sögðu útilokað að samtökin gætu tekið að sér að tryggja öryggi þeirra, enda væru ein- ungis örfáir starfsmenn SÞ til staðar í Afganistan. Hefst í dag í Þýskalandi ráðstefna sem SÞ hefur skipulagt en vonast er til að þar náist samkomulag milli leið- toga allra þjóðarbrota í Afganistan um myndun samsteypustjórnar. Varar Saddam Hussein við Bush Bandaríkjaforseti varaði Saddam Hussein, forseta Íraks, við því í gær að hann yrði að leyfa vopna- eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóð- anna að sannreyna að Írakar væru ekki að smíða sér sýkla- eða kjarn- orkuvopn. Voru orð Bush túlkuð þannig að líkur væru á að Banda- ríkjamenn létu næst til skarar skríða í Írak í baráttu sinni gegn hryðju- verkum. Aðspurður um það hvaða af- leiðingar það myndi hafa fyrir Huss- ein ef hann neitaði að veita vopnaeftirlitsmönnunum aðgang að vopnabúrum Íraka, sagði Bush: „Hann mun komast að því.“ Reuters Tveir erlendir talibanar, sem nú sitja í fangelsi í Kabúl, lesa í kóraninum. Norðurbandalagið og Bandaríkja- menn börðu í gær niður uppreisn sem talibanar í fangelsi í borginni Mazar-e-Sharif gerðu á sunnudag. Bandaríkjamenn búnir að ná svæði í nágrenni Kandahar á sitt vald Þáttaskil orðin í stríðinu í Afganistan Bandarískir landgönguliðar gera sig klára fyrir leiðangurinn í gær.  Hundruð/24–25 Qala-e-Jangi, Kabúl, Washington. AFP. Rasmussen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.