Morgunblaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 49
LÍSU - samtökin og Landmælingar Íslands halda
fræðslufund um landshnitakerfið á Hótel Sögu, Ársal,
fimmtudaginn 29. nóvember, kl. 14:00-16:10.
• Grunnstöðvanetið viðhald og uppbygging:
Þórarinn Sigurðsson, Landmælingar Íslands
• Co-ordinate system, Geodetic Datum and
Transformations: Markus Rennen, Landmælingar Íslands
• Grunnstöðvanetið sem hnitakerfi hjá sveitarfélögum.
Mælingar út í mörkinni, að koma gögnum inn í
gagnagrunn: Páll Bjarnason, Verkfræðistofa Suðurlands
• Tenging sveitarfélaga við grunnstöðvanetið, kostir
og gallar: Jón Björnsson, Verkfræðistofan Hnit hf
• Umræður
Tilkynning um þátttöku: lisa@aknet.is, sími 530 9110
Verð: 3.000 kr.
Nánari upplýsingar: www.rvk.is/lisa
Landshnitakerfið
tenging staðbundinna
kerfa við ÍSN93
Suðurlansbraut 50 (bláu húsin)
Sími 5334300 - GSM 895 8248
FYRIRTÆKI
TIL SÖLU
• Lítil en vel þekkt tískuverslun við
Laugaveginn.
• Rótgróið og arðbært einingahúsa-
fyrirtæki. Mikil sérstaða á
markaði.
• Veitingastaðir í miðbænum.
• Stór útivistarverslun í góðum
rekstri. Ársvelta 140 m. kr.
• Vinnufataverslun með eigin
innflutning. Ársvelta 24 m. kr.
• Stór og glæsileg hárgreiðslustofa í
miðbænum. 8 stólar og mikið að
gera.
• Mjög góður söluturn í Hafnarfirði
með bílalúgur, grill og mynd-
bönd. 6,5 m. kr. á mán. og
vaxandi.
• Sólbaðsstofa í miðbænum. 6
bekkir + gufubað og önnur
aðstaða. Lágt verð.
• Höfum til sölu nokkrar heildversl-
anir í ýmsum greinum fyrir rétta
kaupendur. Ársvelta 100-350 m.
kr. Einnig stór verslunarfyrirtæki,
sum eru einnig með heildverslun.
• Austurlenskur take-away
matsölustaður á Akureyri.
Ársvelta 18 m. kr.
• Bílaverkstæði í Hafnarfirði. Gott
húsnæði og vel tækjum búið.
Mikið að gera.
• Traust verktakafyrirtæki í jarð-
vinnu. 80 m. kr. ársvelta. Mjög
góð verkefnastaða næstu tvö ár.
• Lítill skyndibitastaður í
atvinnuhverfi. Ársvelta 20 m. kr.
Þægilegt fyrir einn kokk.
• Rótgróin heildverslun með
sælgæti. 80 m. kr. ársvelta. Mjög
góð framlegð.
• Sjálfsalafyrirtæki. Mikill tækja-
búnaður, lítil vinna.
• Gott fyrirtæki í jarðvegsvinnu,
hellulögn, steypusögun,
kjarnaborun og múrbroti. Traust
hlutafélag í eigin húsnæði.
• Veitinga- og skemmtistaður á
Höfn í Hornafirði. Eigið húsnæði.
• Stór og vinsæll pub í miðbænum.
Mikil velta.
• Góð myndbandaleiga/sjoppa í
Breiðholti með 4 m. kr. veltu á
mánuði. Auðveld kaup.
• Söluturn á Akureyri. Lottó, mynd
bönd og grill. Ársvelta 20-24 m.
kr. Auðveld kaup.
• Verslun, bensínsala og
veitingarekstur í Búðardal. Eigið
húsnæði. Mjög góður rekstur.
Ársvelta 160 m. kr.
• Falleg lítil blómabúð í Breiðholti.
Mjög einfaldur og öruggur rekstur.
Auðveld kaup.
• Þekkt unglingafataverslun í
Kringlunni. 24 m. kr. ársvelta.
Auðveld kaup.
• Kjötvinnslufyrirtæki sem er í
miklum vexti. Ársvelta nú um 100
m. kr. Meðeign eða sameining
kemur vel til greina.
• Sérverslun á Djúpavogi. Eigið
húsnæði á besta stað. 20 m. kr.
ársvelta.
• Lítið verktakafyrirtæki sem starfar
nær eingöngu á sumrin. Fastir
viðskiptavinir, stofnanir og stór-
fyrirtæki. Hagn. 7-8 m. kr. á ári.
• Gömul og þekkt heildverslun með
byggingavörur og búsáhöld. 30
m. kr. ársvelta Góð framlegð.
• Ís og myndbandaleiga/sjoppa í
Grundarfirði. Miklir möguleikar.
• Þekkt bílabónstöð með 15 m. kr.
ársveltu. Stórir viðskiptavinir í
föstum viðskiptum. Gott húsnæði,
ný tæki.
• Gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 15
herbergi. 20 m. kr. ársvelta.
• Kjörbúð í Reykjavík. 40 m. kr.
ársvelta. Rótgróin verslun í gömlu
hverfi.
• Falleg gjafavöruverslun við
Laugaveginn, heildsala og
netverslun. Mikil tækifæri.
• Rótgróið veitingahús við Bláa
Lónið. Góður og vaxandi rekstur í
eigin húsnæði.
• Stór og mjög vinsæll pub í úhverfi.
Einn sá heitasti í borginni.
• Skyndibitastaðurinn THIS í
Lækjargötu (áður Skalli). Nýlegar
innréttingar og góð tæki.
• Rótgróin innflutningsverslun með
tæki og vörur fyrir byggingaiðn-
aðinn. Ársvelta 165 m. kr. Góður
hagnaður.
Er lögheimili þitt rétt skráð í þjóðskrá?
Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem
maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína,
dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína
og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal
jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.
Hvað er ekki föst búseta?
Dvöl frá heimili um stundarsakir, t.d. vegna orlofs, vinnuferða
eða veikinda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi
ekki breyting á lögheimili. Sama gildir t.d. um dvöl í
gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistarskólum og fangelsum.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi
til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til.
Ennfremur má tilkynna flutning beint til Hagstofu Íslands -
Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykjavík.
Tilkynningar skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðum.
Hagstofa Íslands - Þjóðskrá,
Skuggasundi 3, 150 Reykjavík,
sími 560 9800, bréfasími 562 3312.
ÞINGMENN Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs
verða á ferðinni um Hafnar-
fjörð miðvikudaginn 28. nóvem-
ber. Þeir munu heimsækja fyr-
irtæki og bæjaryfirvöld og
halda svo opinn fund um kvöld-
ið kl. 20.30 á Kænunni, Óseyr-
arbraut 2.
Á dagskrá fundarins eru at-
vinnumál með sérstakri
áherslu á skipasmíðar og sjáv-
arútvegsmál.
Þingmenn VG
á ferð um
Hafnarfjörð
DANSÍÞRÓTTASAMBAND Ís-
lands stendur á næstunni fyrir
þremur stórum danskeppnum.
Laugardaginn 1. desember kl. 15
verður haldið á Íslandi Norð-
urlandameistaramótið í sam-
kvæmisdönsum þar sem Norð-
urlöndin keppa innbyrðis. Síðar
um daginn hefst opin, alþjóðleg
keppni áhugamanna í sígildum
samkvæmisdönsum og er von á
fjölda þekktra erlendra danspara
sem taka þátt í keppninni. Sunnu-
daginn 2. desember kl. 15 verður
haldin Ísland Open, opin dans-
keppni. Síðar um daginn hefst
opna alþjóðlega keppni áhuga-
manna í suður-amerískum döns-
um.
Í fyrra sigruðu Íslendingar í
tveimur aldursflokkum á Norð-
urlandameistaramótinu. Það voru
Ísak Halldórsson og Helga Dögg
Helgadóttir í flokki ungmenna og
Jónatan Arnar Örlygsson og
Hólmfríður Björnsdóttir í flokki
unglinga 12–13 ára. Þetta er í
fyrsta sinn sem Íslendingar halda
svona keppni, segir í frétta-
tilkynningu.
Norður-
landameist-
aramót í
samkvæm-
isdansi
Þau sigruðu í sínum aldurs-
flokkum í Finnlandi í fyrra og
urðu Norðurlandameistarar;
Hólmfríður, Jónatan, Helga
Dögg og Ísak.