Morgunblaðið - 27.11.2001, Side 6

Morgunblaðið - 27.11.2001, Side 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ var lesið eitt- hvað af 77,0% landsmanna í síðustu viku október og er mest lesna dag- blað landsins. Þetta kemur fram í fjölmiðlakönnun sem Gallup gerði fyrir samstarf Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og helstu fjöl- miðla landsins 25. til 31. október 2001, en niðurstöður voru birtar í gær. Fjöldi svara var 1.019 og hefur aldrei verið meiri í fjölmiðlakönnun. Ástæða þess er margþætt. Fram- kvæmd könnunarinnar var með að- eins öðru sniði en áður, en röðinni var snúið við frá fyrri framkvæmd- um, þar sem símamæling á sjón- varpsáhorfi fór fram fyrir dagbók- armælinguna. Úrtakið var tvískipt. Um tveir þriðju hlutar þess voru úr símakönnun á sjónvarpsáhorfi frá því í september og þriðjungur var viðbótarúrtak til að fylla úrtakstöl- una, 1.500 manns. Til viðbótar voru 114 manns sem tóku þátt í símakönn- uninni en neituðu þátttöku í dagbók- armælingunni. Úrtakið var því 1.614 manns. Góða svörun má einnig rekja til þess að dagbók var einfaldari en í fyrri mælingum. Auk þess fengu allir þátttakendur senda happaþrennu með dagbókinni og virtist það mæl- ast vel fyrir. Ennfremur virðist sem ástand í heimsmálum hafi aukið vægi fjölmiðla í hugum fólks og því hafi það verið jákvæðara gagnvart fjöl- miðlamælingum en ella. Morgunblaðið mest lesið hjá öllum aldurshópum Í fyrsta skipti var lestur Frétta- blaðsins kannaður og reyndust 56,6% landsmanna lesa blaðið eitt- hvað í vikunni. 62,7% lásu DV eitt- hvað í vikunni en 77% Morgunblaðið. Síðast var sambærileg könnun gerð í mars sem leið og þá lásu 80,3% Morgunblaðið eitthvað í viku hverri og 63,5% DV. Að meðaltali lásu 58,9% hvert tölublað Morgunblaðsins en voru 60,3% í mars, 38,3% lásu Fréttablað- ið hvern útgáfudag og 36,8% DV en voru 35,1% í mars. Í Reykjavík og á Reykjanesi lásu 84,3% svarenda Morgunblaðið eitt- hvað, 75,9% Fréttablaðið og 62,4% DV. Að meðaltali lásu 65,3% Morg- unblaðið hvern útgáfudag, 53,5% Fréttablaðið og 35,7% DV. Morgunblaðið er mest lesna dag- blað landsins hjá öllum aldurshópum þá daga sem blaðið kemur út og er mest lesið á laugardögum og á sunnudögum hjá 50–67 ára, en 75,4% aldurshópsins lesa blaðið á sunnu- dögum og 75,3% á laugardögum. 73,4% í sama aldursflokki lesa Morg- unblaðið á föstudögum. Lestur á DV og Fréttablaðinu er yfirleitt mjög svipaður. Mestur munur er hjá 68– 80 ára á þriðjudögum þegar 59,3% lesa Fréttablaðið en 27% DV. Mbl.is mest lesni vefurinn Íslendingar heimsækja Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, að meðaltali 2,8 sinnum á viku. Er þá miðað við alla svarendur í könnuninni en 21,8% fólks hafa ekki aðgang að Netinu. Aðrir vefir, sem spurt var um í könn- uninni, eru simaskra.is með 1,2 heimsóknir á viku, strik.is með 0,7 heimsóknir og ruv.is og textavarp.is, en tveir síðasttöldu vefirnir eru með 0,2 heimsóknir á viku. Aðsókn að mbl.is hefur aukist á síðastliðnu ári úr 2 heimsóknum á viku í 2,8 heim- sóknir en hinir vefirnir hafa að mestu leyti staðið í stað. Þetta er þó í fyrsta skipti sem simaskra.is tekur þátt í könnuninni en að þessu sinni voru Vísir.is og Leit.is ekki með. Mest horft á Sjónvarpið Varðandi sjónvarpsáhorf kom fram að 68% svarenda stilltu á Sjón- varpið að meðaltali virka daga en voru 60% í mars, 47% á Stöð 2 en voru 52% í mars, 37% á Skjá 1 en 32% í mars, 11% á Sýn en 10% í mars, og 6% á Popp Tíví en voru 4% í mars. Samsvarandi tölur um helgar voru að 68% horfðu á Sjónvarpið en 69% í mars, 48% (54%) áhorf hjá Stöð 2, 30% (27%) hjá Skjá 1, 13% (11%) hjá Sýn og 4% hjá Popp Tíví eða óbreytt áhorf frá því í mars. Uppsafnað áhorf fyrir vikuna var mest hjá Sjónvarpinu eða 93%, 74% horfðu á Stöð 2, 66% á Skjá 1, 29% á Sýn og 15% landsmanna horfðu á Popp Tíví. 77% lesa Morgunblaðið eitthvað í hverri viku    ! "        #"$% &!$ '($% &!$ ($% &!$ )) $% &!$ * $% &!$ +$!% &!$ $""$% &!$ (  $ # * $, ( - .(  ( $"" (  $ # * $, ( - .(  ( $"" /0123 02103 20143 56123 40173 /16   /143 44183 2/1532 512 3 05173/913 //173 07163 66173 /193 27 123 /9103 24183 69 183 0613 221/3 25 193 00163 29153 2415320 1032/ 143 (( (   "&$         91 814 814 814 81 81 81 819 81    !    ! # $ # 18 12 15   MORGUNBLAÐIÐ kemur best út úr gæðamati fjölmiðlakönnunar sem Gallup gerði fyrir samstarf Sambands íslenskra auglýs- ingastofa og helstu fjölmiðla landsins í síðustu viku október. Svarendur mátu miðlana út frá fimm ólíkum fullyrðingum og byggist einkunnin á kvarðanum 1 til 5 eingöngu á þeim sem tóku afstöðu fyrir hvern miðil. Morgunblaðið fékk einkunnina 4,1 af 5 við fullyrðingunni „er miðill að mínu skapi“. Skjár 1 fékk 4,0 í einkunn, mbl.is var í þriðja sæti með einkunnina 3,8. Síðan komu Lifandi vísindi, Stöð 2 og Sjónvarpið með einkunnina 3,7. DV, Rás 2 og Bylgjan fengu 3,5, en Fréttablaðið var í 10. sæti með 3,4. Morgunblaðið var líka hæst varðandi fullyrðinguna „er miðill sem gefur mér mikilvægar upp- lýsingar um vöru og þjónustu“ og fékk 4,1 í einkunn. DV kom næst með 3,8, Sjónvarpið fékk 3,7, mbl.is, Stöð 2, Rás 2 og Rás 1 3,5, Fréttablaðið og Hús og híbýli 3,4 og aðrir fjölmiðlar lægri einkunn. Við fullyrðingunni „það má treysta fréttaflutningi þess“ fékk Morgunblaðið einkunnina 4,3 eins og Rás 2 en Sjónvarpið og Rás 1 fengu 4,4, mbl.is 4,0, Stöð 2 3,9, Bylgjan 3,8, ruv.is 3,7, textavarp.- is og Fréttablaðið 3,6, DV 3,5 og Skjár 1, Fiskifréttir og strik.is 3,3. Morgunblaðið og Sjónvarpið fengu 4,0 í einkunn vegna fullyrð- ingarinnar „er miðill sem ég get lært af“ en Lifandi vísindi fékk 4,2, Rás 1 3,8, mbl.is 3,7, Rás 2 og Uppeldi 3,6, Stöð 2, Gestgjafinn og Hús og Híbýli 3,5, DV 3,4 og Fréttablaðið 3,3. Fullyrðingin „nota þegar ég slappa af“ gaf Morgunblaðinu og Stöð 2 3,6 í einkunn, Skjár einn fékk 3,8, Sjónvarpið 3,7, DV og Bylgjan 3,3, Rás 2, Séð og heyrt og Lif- andi vísindi 3,2, Rás 1, Létt 96,7 og Hús og Híbýli 3,1 og Frétta- blaðið, Útvarp Saga, Vikan, Nýtt líf og Mannlíf 3,0 í einkunn. Morg- unblaðið miðill að flestra skapi ! " #  $ 616 618 616 612 612 217 215 214 21/ 21/ 210 212 212 212 %& # ()* ( ,   ' ()* (  .' / % # 01  ' # $ 2* % 0 1       %     & 619 214 618 215 214 214 210 210 210 210 216 216 ,   ' %  .' %& # 3  # 2* ()* ( / %    01  ' ,/        SLÖKKVILIÐ Snæfellsbæjar var kallað út að húsi á Hellissandi síð- degis í gær en þar logaði í þvotta- körfu en talið er að eldurinn hafi kviknað eftir að hún féll á miðstöð í kjallara hússins. Að sögn Jóns Þórs Lúðvíksson- ar, slökkviliðsstjóra sem jafnframt er bakarameistari og formaður bæjarráðs Snæfellsbæjar, var slökkviliðið kallað út um klukkan fimm. Þegar að var komið var tals- verður reykur í kjallaranum og reykur hafði einnig borist á efri hæð hússins. Eldurinn teygði sig upp úr þvottakörfunni og upp með vegg í kjallaranum. Rafmagnsleiðslur brunnu í sundur en eftir er að meta tjón, bæði af völdum elds og reyks. Að sögn Jóns Þórs gekk slökkvi- starf vel og lokið var við að reyk- ræsta húsið um klukkustund eftir að slökkviliðið kom á vettvang. Þvottakarfa brann í kjallaranum Morgunblaðið/Alfons Húsið var reykræst að afloknu slökkvistarfi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.