Morgunblaðið - 27.11.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Jóladúkar - Jólagardinur
Comeniusarvika í Evrópu
Comenius hefur
skapað sér sess
Comeniusarvikaverður haldin umalla Evrópu dag-
anna 26.–30. nóvember, en
um er að ræða verkefni
sem „tengir saman evr-
ópska skóla á jákvæðan
hátt“ eins og stendur í
fréttatilkynningu frá Al-
þjóðaskrifstofu háskóla-
stigsins, sem er umsjónar-
aðili verkefnisins hér á
landi. Verkefnisstjóri er
Katrín Einarsdóttir.
– Hvað er Comeniusar-
vika og hver var Com-
enius?
„Comeniusarvika er
haldin um alla Evrópu
dagana 26.–30.nóvember.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Comeniusarvika er haldin
og er markmiðið að vekja
athygli á evrópskum samstarfs-
verkefnum leik-, grunn- og fram-
haldsskóla styrktum af Comen-
iusi. Amos Comenius (1592–1670)
var tékkneskur guðfræðingur,
heimspekingur og uppeldisfröm-
uður sem var sannfærður um að
með menntun gæti maðurinn nýtt
hæfileika sína til fulls og var talið
við hæfi að nefna þennan þátt
Sókratesar eftir honum. Sókrates
er samstarfsáætlun ESB um
menntamál en Ísland hefur tekið
fullan þátt í Comeniusi frá 1995 og
nú eru 30 Evrópulönd þátttakend-
ur, þ.e. ESB-aðildarríkin fimm-
tán, EES-löndin þrjú og við bæt-
ast tólf nýir þátttakendur,
aðallega frá Eystrasaltsríkjunum
og Austur-Evrópu. Við má bæta,
að Sókratesaráætlunin skiptist í
átta þætti sem spanna öll stig
menntunar, þ. á m. Erasmusar-
þáttinn fyrir háskólastigið sem
margir kannast við.“
– Landsskrifstofa Sókratesar
… fyrir hvað stendur hún?
„Landsskrifstofa Sókratesar
heyrir undir Alþjóðaskrifstofu há-
skólastigsins og annast fram-
kvæmd Sókratesaráætlunarinnar
á Íslandi. Landsskrifstofan hefur
umsjón með úthlutun Sókratesar-
styrkja á Íslandi.“
– Hver eru markmið Comenius-
ar?
„Markmið Comeniusar er að
koma á Evrópuvitund í menntun
og stuðla að gæðastarfi í skólum.
Það sem við köllum „Evrópuvit-
und“ er mikilvægt hugtak Evr-
ópuþjóða. Markmiðunum er hægt
að ná með því að styðja við fjöl-
þjóðlegt samstarf skóla víðs vegar
í Evrópu. Áhersla er lögð á að
auka möguleika til endurmennt-
unar og starfsþjálfunar kennara
og efla tungumálanám á öllum
skólastigum. Kennarar og nem-
endur og aðrir sem tengjast
menntun fá tækifæri til að ferðast
og kynnast skólastarfi í öðrum
löndum.“
– Hvað er helst gert til að ná
fram umræddum markmiðum?
„Það er haldin mikil sýning í
Brussel þar sem nemendur og
kennarar frá öllum þátttökulönd-
unum koma saman. Þrír nemend-
ur og einn kennari frá
Garðaskóla eru í
Brussel til að sýna
framlag þeirra. Hér á
landi verður sýning á
afurðum Comeniusar-
verkefna í Þjóðarbókhlöðunni og
einnig verða haldnir tveir
fræðslufundir í Þjóðarbókhlöðu á
miðvikudag og fimmtudag e.h., sá
fyrri fyrir leik- og grunnskóla og
sá seinni fyrir framhaldsskóla,
þar mun fara fram kynning á
Comeniusi almennt og einnig
munu þátttakendur skýra frá sín-
um verkefnum. Þátttökuskólarnir
eru einnig hvattir til að vekja at-
hygli á verkefnum sínum. Nokkrir
þátttökuskólar munu taka þátt í
sameiginlegri blöðrusleppingu
sem verður haldin á sama tíma í
öllum þátttökulöndunum klukkan
12 í dag.“
– Hvernig er hagað þátttöku ís-
lenskra skóla og einstaklinga?
„Við erum að styrkja um 50
skóla árlega til samstarfs-, tungu-
mála- og skólaþróunarverkefna
og um 250 kennarar fá styrki til að
sækja verkefnafundi eða endur-
menntun erlendis. Þá er hægt að
sækja um að fá evrópska aðstoð-
arkennara til tungumálakennslu
hérlendis. Einnig eru veittir
styrkir til námsgagna- og nám-
skeiðagerðar. Þátttaka íslenskra
skóla hefur farið mjög vaxandi ár
frá ári. Styrkjum hefur fjölgað og
styrkupphæðir hækkað. Land-
fræðileg dreifing styrkja hefur
einnig verið góð. Litlir og/eða af-
skekktir skólar eru hvattir til að
vera með. Velgengni Comeniusar
má m.a. sjá á því að skólar, sem
hafa einhvern tíma tekið þátt í
starfinu, vilja halda því áfram.
Comenius hefur skapað sér sess í
íslensku skólasamfélagi.“
Hér skulu að lokum nefnd tvö
dæmi um Comeniusarverkefni.
„Building Bridges“ nefnist verk-
efni Garðaskóla og skóla í Þýska-
landi, Frakklandi og á Spáni.
Þema verkefnisins var spurningin
um hvað fólk eigi sameiginlegt.
Hvað gerir manninn mannlegan?
Hvernig er hægt að byggja brýr
milli mismunandi
menningarsamfélaga.
Haldin var ljóða- og
teiknisamkeppni innan
skólanna og síðan var
gefin út bók með úrvali
ljóða og myndskreytinga sem
nemendur höfðu gert.
„European Cultural Cities
2000“ er annað verkefni. Nemend-
ur á aldrinum 17–19 ára í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð hafa
útbúið heimasíðu um Reykjavík
sem menningarborg. Sex skólar
frá menningarborgum ársins taka
þátt í verkefninu. Afraksturinn er
að finna á www.mh.is.
Katrín Einarsdóttir
Katrín Einarsdóttir fæddist í
París 8. maí 1967. Hún hefur
franskt stúdentspróf frá árinu
1986 og BA í ensku/spænsku frá
Háskóla Íslands 1989. MSc. í Evr-
ópustjórnun frá Handels-
hoyskolen BI í Noregi 1994, leið-
sögumannsréttindi 1988. Hún
starfaði sem deildarstjóri hjá
Kynnisferðum sf. 1990–92, að-
stoðarfyrirlesari samhliða námi í
Noregi, verkefnisstjóri á Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsins
síðan 1995. Maki Katrínar er
Gunnar Erlingsson matsveinn og
tónlistarmaður og eiga þau tvær
dætur, Elsu Sól og Unu Guðnýju.
… koma á Evr-
ópuvitund í
menntun
Nei, takk, góði, mér hugnast betur að bera beinin á biðlista í okkar góða heilbrigðiskerfi.
LÍFSHÆTTULEG slys á börnum
vegna lausra knattspyrnumarka eru
tíð hér á landi segir Herdís L. Stor-
gaard, framkvæmdastjóri Árvekni,
verkefnastjórnar um slysavarnir
barna og unglinga. Herdís segir að
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að
fá eigendur knattspyrnumarka til að
festa mörkin niður virðist árangur-
inn takmarkaður og slysin af þess-
um völdum séu orðin fleiri í ár en
áður.
„Það var núna síðast fyrir rúmri
viku að ellefu ára strákur fótbrotn-
aði á svæði íþróttafélags þegar
mark féll á hann. Brotið rauf vaxt-
arlínu beinsins sem getur haft alvar-
legar afleiðingar og meðal annars
truflað vöxt drengsins,“ segir Her-
dís.
„Vítavert kæruleysi“
Á síðustu 15 árum hafa 43 börn a
aldrinum 0 til 14 ára orðið fyrir lífs-
hættulegum slysum vegna lausra
marka og hafa algengustu áverkarn-
ir að sögn Herdísar verið á líffærum
í kviðarholi, brot á höfuðkúpu eða
blæðingar inn á heila. Á sama tíma-
bili var tilkynnt um á annað hundrað
börn sem urðu fyrir minniháttar
áverkum svo sem handleggs- og fót-
brotum. Herdís segir sláandi að það
séu íþróttafélögin sem standi verst
að frágangi markanna. „Það kemur
manni í opna skjöldu að knatt-
spyrnufélögin sjálf standa verst að
þessum öryggismálum og ekki hægt
að segja annað en félögin sýni með
þessu vítavert kæruleysi.“ Herdís
segir ástandið mun betra hjá sveit-
arfélögunum sem beri ábyrgð á
mörkum á skólalóðum og sparkvöll-
um.
„Þeir sem eiga mörkin verða að
skynja þá ábyrgð sem þeir bera á
því að setja mörkin út án þess að
festa þau niður. Markafestingar eru
orðnar mjög handhægar, bæði er
hægt að fá varanlegar festingar sem
einkum eru notaðar á malbiksvöllum
og svo færanlegar festingar sem eru
hentugar á grasvelli,“ segir Herdís.
Spurð hvort það sé kostnaður vegna
festinganna sem vaxi fótboltavallar-
eigendum í augum svarar hún neit-
andi og segir kostnaðinn lágan.
„Þetta ætti ekki að vera óyfirstíg-
anlegt vandamál hjá neinum, þetta
er nauðsynlegur öryggisbúnaður og
þegar mark er keypt ætti þetta auð-
vitað að vera hluti af búnaðinum –
maður kaupir ekki bíl án hjóla.“
Herdís segir að sér berist stöðugt
upplýsingar um laus mörk frá for-
eldrum og tilkynningar um slys af
völdum lausra marka frá sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðvum um land
allt. Hún segir stöðuna í öryggis-
málum á knattspyrnuvöllum svipaða
hvert sem litið sé og verulegra úr-
bóta sé þörf.
Laus knattspyrnumörk hafa valdið fjölda slysa
Eigendurnir sagðir standa
illa að öryggismálum