Morgunblaðið - 27.11.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 9
Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473
Jólagjöfin hennar
Fjölbreytt úrval
af undirfötum
og náttfatnaði
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending
Sparifatnaður, peysur o.fl.
Tilboð: 15% afsláttur
LOKSINS, LOKSINS
STIMPLAR
MEÐ MYNDUM AF
ÍSLENSKU
JÓLASVEINUNUM
TEIKNUÐUM AF
BRIAN PILKINGTON
ÓÐINSGATA 7 562-8448
Jóladressin á frábæru tilboði
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Stærðir 36-52
VETRAR-
VÖRUR
Opið virka daga frá kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-14
Sendum lista út á land
Sími 567 3718
Kápa 15.180
Peysa 7.010
Trefill 3.400
Húfa 1.880
Buxur 5.680
Stígvél 13.280
Laugavegi 56, s. 552 2201 www.teeno.net
Flottar
stelpur
um jólin
TEENO
– sérverslun – Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Hlýlegar húfur, hattar, treflar,
klútar og sjöl
Einnig glæsilegar sparislæður
Afmælistilboð
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið
mán.-fös. frá kl. 10-18
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Handskorin Rococco húsgögn, sófasett,
ruggustólar, kommóður, kistur,
stakir stólar, borð og skatthol.
Ótrúlegt úrval af öðruvísi gjafavöru.
Ekta pelsar á frábæru verði.
Opið virka daga kl. 11–18, laugard. kl. 11–16.
Nýjar vörur
Jólafötin
á ömmuna, mömmuna og dótturina
Stórar stærðir - litlar stærðir
Persónuleg þjónusta
SAMTÖK verslunar og þjónustu
hafa sent Samkeppnisstofnun beiðni
um að skera úr um hvort opinber
verðákvörðun á landbúnaðarafurð-
um standist samkeppnislög. Telja
samtökin opinbera verðstýringu
mjólkurvara vera tímaskekkju.
Kom þetta fram á vef samtakanna í
gær.
„Ástæðan er nýlegt samkomulag
landbúnaðarráðherra og Bænda-
samtakanna um framlengingu á
starfsemi verðlagsnefndar til 30.
júní 2004 og ákvörðun nefndarinnar
um hækkun á mjólkurvörum frá
næstu áramótum,“ segir í frétt
SVÞ. Samtökin telja að sá opinberi
samráðsvettvangur sem verðlags-
nefndin sé stangist á við samkeppn-
islög og að það sé því lögbrot að
halda starfsemi hennar áfram. Þá
segir m.a. í erindi samtakanna til
Samkeppnisstofnunar:
„Að mati SVÞ – Samtaka versl-
unar og þjónustu – er opinber verð-
stýring mjólkurvara á heildsölustigi
algjör tímaskekkja, með tilliti til
samkeppnislaga, almennra við-
skiptahátta og hagsmuna neytenda.
Verslunarfyrirtæki sem hafa lagt
áherslu á að laða til sín viðskipti
með því að selja mjólkurvörur á
lægra verði en keppinautar telja ár-
angur þessara markaðsaðgerða fyr-
ir sinn rekstur ótvíræðan.“
SVÞ telja að málið snúist um
hvort vegi þyngra, nýgerður við-
auki við búvörusamninginn eða
samkeppnislög. Ekki séu nein rök
sjáanleg fyrir því að ákvarðanir um
verð mjólkurvara í heildsölu séu í
höndum opinberrar nefndar meðan
lög kveða á um að almennt verðlag
skuli vera frjálst.
Telja verðstýr-
ingu mjólkurvara
tímaskekkju
ALLS voru 33.700 lánþegar í skuld
við Lánasjóð íslenskra námsmanna
um seinustu áramót. Lánþegum sem
skulduðu 10 milljónir kr. eða meira
fjölgaði á seinasta ári úr 72 í 96 og
hæsta skuldastaða hjá einum lánþega
við sjóðinn nam 16,9 milljónum kr.
Þessar upplýsingar koma fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um end-
urskoðun ríkisreiknings 2000.
Útlán Lánasjóðsins í heild námu
53,6 milljörðum króna um seinustu
áramót og höfðu þá hækkað um 5% á
milli ára. Meðallán lánþega var um 1,6
milljónir króma.
Í fyrra voru 354 milljónir króna
lagðar í afskriftasjóð hjá LÍN eða
sem nemur 11% af veittum námslán-
um ársins. Raunafskriftir námslána
voru rúmar 125 milljónir kr. í fyrra.
96 lánþegar
skulda 10
milljónir eða
meira
33.700 í skuld við LÍN
um síðustu áramót
KOSIÐ var um nýtt stjórnsýsluheiti í
stað sveitarfélagsins Eyrarsveitar í
Grundarfirði síðastliðinn laugardag.
Valið stóð á milli Grundarfjarðarbæj-
ar, sem fékk 133 atkvæði eða 51,95%
og Sveitarfélagsins Grundarfjarðar
sem fékk 119 atkvæði eða 46,48%.
Á kjörskrá voru 565 og greiddu at-
kvæði 256 eða 45,3%. Auðir seðlar og
ógildir voru 4 eða 1,56%.
Samkvæmt ákvörðun sveitar-
stjórnar er niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar bindandi fyrir sveitar-
stjórn. Á grundvelli niðurstöðu
kosninganna verður samþykktum
sveitarfélagsins jafnframt breytt á þá
leið að sveitarstjórn breytist í bæjar-
stjórn, byggðaráð í bæjarráð og sveit-
arstjóri verður bæjarstjóri.
Grundarfjarð-
arbær í stað
Eyrarsveitar
♦ ♦ ♦
FRÉTTIR
mbl.is