Morgunblaðið - 27.11.2001, Síða 14

Morgunblaðið - 27.11.2001, Síða 14
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Jólasveinarnir tóku forskot á sæluna og brugðu sér í bæinn en ekki er von á góðgæti í skóinn frá fyrsta jólasveininum, Stekkjarstaur, fyrr en eftir rúmar tvær vikur. Lítill kyndilberi í jólaskapi gengur niður ljósum skrýddan Laugaveginn á laugardag. MIKIL stemmning var í mið- bænum á laugardag þegar jólaljósin á Laugaveginum voru tendruð. Fyrir mörgum markar ljósafjöldinn upphaf jólaund- irbúningsins og voru því háir sem lágir, ungir og gamlir samankomnir á Hlemmtorgi þar sem kveikja skyldi á jóla- ljósunum. Eftirvænting skein úr augum ungviðisins síðustu andartökin áður en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ýtti á kveiki- hnappinn og eflaust voru þeir nokkrir sem krosslögðu fingurna og vonuðu að hvergi væri skammhlaup eða sprungin pera. Allar áhyggj- ur reyndust til óþurftar þar sem glaðlogaði á hverri ein- ustu jólastjörnu niður allan Laugaveginn. Yngstu börn- unum var þó ekki alveg létt fyrst í stað og höfðu þau nán- ar gætur á svolítið skugga- legum hjúum sem hreiðruðu um sig á Hlemmi. Voru þar á ferð hjónakornin Grýla og Leppalúði sem höfðu ákveð- ið að bregða sér bæjarleið ofan úr fjöllum til að dást að ljósadýrðinni í mann- heimum. Þau hjónin gerðu þó engan usla þrátt fyrir ófrýnilegt yfirbragð enda hafa þau sjálfsagt viljað haga sér vel þar sem synir þeirra jólasveinarnir voru einnig með í för nokkrum dögum fyrir áætlaðan komu- tíma. Laugavegurinn kominn í jólabúninginn Miðbærinn Morgunblaðið/Sverrir Það var hátíðarblær yfir Rimaskóla á föstudag þegar hann var vígður og flaggað í tilefni dagsins. HÚSNÆÐI Rimaskóla var vígt við hátíðlega athöfn á föstudag en lokið var við síð- asta áfanga skólabyggingar- innar í haust. Með þessum síðasta áfanga er heildarflat- armál skólans orðið 7.500 fer- metrar. Það var Sigrún Magnús- dóttir, formaður fræðsluráðs, sem tók bygginguna formlega í notkun en að því loknu var kynning og sýning á skólahús- næðinu. Arkitektar eru Egill Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson en byggingin er á tveimur hæðum. Fyrsti áfangi skólans, þ.e. tvær kennslu- álmur, var tekinn í notkun haustin 1994 og 1995. Stjórnunarálma var tilbúin árið 1997, mötuneyti, hátíða- salur og tónlistarstofa árið 1998 og íþróttasalur árið 1999. Um 800 nemendur eru í Rimaskóla og er hann sá fjöl- mennasti í Reykjavík ásamt Árbæjarskóla. Rimaskóli fullgerður Grafarvogur HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FORVAL fyrir alútboð vegna bíla- stæðahúss undir botni Tjarnarinnar verður væntanlega auglýst í næstu viku að sögn borgarverkfræðings. Ekki eru taldar lagalegar heimildir fyrir því að borgin semji beint við verktakafyrirtækið Ístak sem unnið hefur tillögur að slíkri bílageymslu. Skipulags- og bygginganefnd og samgöngunefnd Reykjavíkur hafa nú fjallað um tillögur um að byggja bílastæðageymslu undir botni Tjarnarinnar og fallist á þær. Hingað til hefur bílageymsla und- ir botni Tjarnarinnar verið talin of kostnaðarsöm framkvæmd en ný- lega vann Ístak á eigin vegum til- lögur um byggingu slíks húss og er kostnaður við framkvæmdina ekki talinn hærri en í öðrum lausnum fyrir bílastæðahús í Kvosinni. Í bréfi Stefáns Hermannssonar borg- arverkfræðings til borgarráðs fyrr í mánuðinum kemur fram að kostur slíks mannvirkis sé að það hafi mjög lítil áhrif á ásýnd miðborginnar þeg- ar búið sé að reisa það enda sé það algerlega neðan við botn Tjarnar- innar. Lagaheimildir skorti Ístak hefur boðist til að byggja húsið og annaðhvort selja borginni það eða leigja en athugun Inn- kaupastofnunar Reykjavíkurborgar leiddi í ljós að lagalegar heimildir skortir til að semja beint við Ístak. Að sögn Stefáns hefur nú verið ákveðið að efna til lokaðs alútboðs um framkvæmdina. „Þar setjum við fram ákveðnar gæðakröfur en bind- um ekki útfærsluna neitt sérstak- lega mikið og breytum ekki deili- skipulaginu fyrr en niðurstaða útboðsins liggur fyrir. Það fyrsta sem við gerum er að vera með for- val og þá gefa sig vonandi einhverjir fram sem telja sig hæfa í þetta verkefni og við veljum einhverja örfáa eða þá hæfustu.“ Hann segir nokkuð gefið að Ístak sé álitlegur þátttakandi í alboðinu en fleiri gætu komið til greina. For- valið verði vonandi auglýst í næstu viku en útboðið sjálft gæti síðan orðið í janúar, febrúar. Ákveðið hefur verið að efna til lokaðs alútboðs í byrjun næsta árs vegna bílastæðahúss undir botni Tjarnarinnar Forval væntanlega auglýst í næstu viku Miðborg NÝ álma við hjúkrunarheim- ilið Sunnuhlíð í Kópavogi var formlega vígð á laugardag. Sá hluti nýbyggingarinnar sem tekinn var í notkun er um 850 m² með 20 hjúkrunarrýmum sem öll eru einstaklingsher- bergi auk nauðsynlegra stoð- rýma. Framkvæmdir við stækkun Sunnuhlíðar hófust í nóvem- ber á síðasta ári og hafa þær gengið samkvæmt áætlun, bæði hvað varðar tíma og kostnað. Áætlaður byggingar- kostnaður við nýbygginguna í heild er 265 til 270 milljónir króna. Frá því Sunnuhlíð tók til starfa hefur íbúum fjölgað mjög og öldruðum fjölgað tvö- falt. Samkvæmt upplýsingum frá Sunnuhlíð bíða nú um 30 umsóknir um vistrými á hjúkr- unarheimilinu afgreiðslu og er opnun nýju álmunnar því mik- ilvægur áfangi fyrir aldraða, sjúka Kópavogsbúa. Efnt var til opnunarhátíðar í Sunnuhlíð á laugardag þar sem Jón Kristjánsson, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, og Bragi Mikaelsson, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar, fluttu ávarp. Séra Ægir Sigur- geirsson, sóknarprestur í Kársnessókn, blessaði heimil- ið. Ýmsir listamenn, sem jafn- framt starfa við heilbrigðis- þjónustu, sýndu listaverk auk þess sem Guðrún Lóa Jóns- dóttir sópransöngkona söng við undirleik Guðlaugar Þórs- dóttur en þær starfa báðar í Sunnuhlíð þar sem Guðrún Lóa er sjúkraliði og Guðlaug læknir. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum á neðri hæð hússins verði lokið í mars á næsta ári, en þar verða sjö hjúkrunar- rými til viðbótar auk sjúkra- þjálfunar og aðstöðu fyrir starfsfólk. Stækkun Sunnuhlíðar Morgunblaðið/Jim Smart Það var glatt á hjalla þegar ný hjúkrunarálma Sunnuhlíð- ar var formlega tekin í notkun á laugardag. Kópavogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.