Morgunblaðið - 27.11.2001, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 23
Neytendasíðunni hefur borist eftirfar-
andi fyrirspurn: „Í fyrrahaust fór ég með
bækur á skiptibókamarkað í bókaversl-
un og fékk inneignarnótu í versluninni
í staðinn. Sonur minn keypti fáeina
hluti fyrir nótuna þegar í stað en eftir
stóðu tæpar þrjú þúsund krónur sem ég
fékk nýja inneignarnótu fyrir. Síðar
þegar ég ætlaði að taka út vörur fyrir
umrædda inneign var mér tjáð að nót-
an væri útrunnin og hefði aðeins gilt í
ár. Ég gat ekki fengið peninga fyrir bæk-
urnar sem ég kom með í upphafi heldur
var mér gert að taka inneignarnótu.
Fyrirtækið hefur ekki skipt um eigendur
og þessir peningar, inneignin mín, hafa
rúllað í veltu fyrirtækisins og ávaxtast á
umræddu tímabili. Þegar ég kem til
þess að taka út vörur fyrir verðmæti
sem ég hef reitt af hendi er mér einfald-
lega tjáð að búið sé að fella nótuna úr
gildi. Þetta er ekkert annað en eigna-
upptaka að mínu mati. Hvaða reglur
gilda um viðskipti með inneignarnót-
ur?
Í lögum um fyrningu skulda er al-
menna reglan sú að krafa um inneign
fyrnist á fjórum árum, segir á heima-
síðu Samtaka verslunar og þjónustu,
SVÞ. Eðlilegt er talið að hægt sé að
semja um styttri frest sem hins vegar
má ekki vera skemmri en eitt ár.
Samkvæmt upplýsingum frá Neyt-
endasamtökunum skal greinilega tek-
ið fram á inneignarnótunni hversu
lengi hún gildi og í verklagsreglum
um skilarétt, gjafabréf og inneignar-
nótur sem viðskiptaráðuneytið gaf út
á síðasta ári kemur fram að seljanda
sem ákveðið hafi að veita skilarétt á
ógallaðri vöru skuli „á starfsstöð
sinni, svo og við sölu og afhendingu á
vöru, gefa skriflega og á aðgengilegan
hátt upplýsingar um þann skilarétt.“
Í 5. grein sömu reglna segir enn-
fremur að gildistími inneignarnótu
gagnvart seljanda og þeim sem hann
kann að framselja verslunarrekstur
sinn til sé fjögur ár, nema annað sé
tekið fram á inneignarnótunni, en þó
aldrei skemmri en eitt ár.
Reglur án lagastoðar
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, áréttar að
fyrrgreindar reglur séu einvörðungu
til leiðbeiningar fyrir verslanir og eigi
sér enga stoð í lögum, verslunareig-
endur geti því ákveðið sjálfir hversu
lengi inneign teljist gild. „Þeir sem
vilja fara að verklagsreglum við-
skiptaráðuneytisins geta fengið
merki til þess að setja upp í versl-
uninni svo að kaupendur viti hvar þeir
standa. En hér er enginn lagalegur
réttur sem heimilar kaupanda að
skila ógallaðri vöru og eftir jól skap-
ast oft gríðarleg vandamál hvað varð-
ar vöruskil,“ segir hann.
Sumar verslanir selja vörur á
stuttu tímabili fyrir jólin og hvetur
Jóhannes fólk til þess að kynna sér
rækilega hvaða reglur eru settar um
skil hjá hverri verslun fyrir sig og
hvaða svigrúm það hefur til skila til
þess að forðast hugsanleg leiðindi.
Sambærilegt eignaupptöku
„Þar sem verslunareigendur geta
sjálfir sett þær leikreglur sem þeir
kjósa og vilja stundum takmarka gild-
istíma inneignarnótu verulega mikið
má í sumum tilvikum líkja þeirri að-
gerð við eignaupptöku. Mjög misjafnt
er hversu vel neytendum gengur að fá
vöru skipt, í sumum verslunum er það
auðsótt mál, í öðrum fjandanum erf-
iðara og því spyr maður sig hvort um-
ræddar búðir vilji yfirhöfuð fá kúnn-
ann aftur,“ segir Jóhannes.
Eftir hver jól berst Neytendasam-
tökunum „gríðarlegur fjöldi fyrir-
spurna þar sem um er að ræða miklar
hömlur á viðskiptum eða enginn skila-
réttur,“ segir Jóhannes ennfremur og
brýnir fyrir öllum jólagjafakaupend-
um að spyrja rækilega út í gildandi
reglur áður en kaupin eru gerð. „Ef
viðkomandi líkar ekki svarið er alltaf
hægt að snúa sér eitthvað annað og til
verslunar sem veitir meiri rétt. Neyt-
endur veita kaupmönnum aðhald með
því að ganga eftir því að þeir fylgi
settum verklagsreglum.“
Gildistími inneignar háð-
ur geðþótta kaupmanns
Morgunblaðið/Þorkell
Fólk er hvatt til þess að kynna sér reglur um skilarétt vel áður en það
kaupir jólagjafirnar, en reglurnar eru talsvert breytilegar milli verslana.
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
Takmarkaðmagn!!!
Spring Air Never Turn, nýja
heilsudýan sem farið hefur sigurför
um Bandaríkin á þessu ári á
ótrúlegu jólatilboði í Betra Bak.
®
Vertu viss um að næst þegar
þú kaupir heilsudýnu sé hún
Spring Air Never Turn frá
Betra Bak
Jólatilboð á Spring Air Never Turn
Söludeildin er
opin alla virka
daga frá
kl. 8:00 - 17:00
nema á
föstudögum
þá er lokað
kl 16:00.