Morgunblaðið - 27.11.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 27.11.2001, Qupperneq 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 27 RICARDO Maduro lýsti í gær yfir sigri sínum í forsetakosningunum, sem fram fóru í Mið-Ameríkuríkinu Hondúras á sunnudag. Gríðarlegur fögnuður braust út á meðal fylgis- manna Þjóðarflokksins en miklar vonir eru bundnar við að Maduro geti unnið á ofbeldis- og glæpaöldu, sem riðið hefur yfir landið á undan- förnum árum. Þegar 40% atkvæðanna höfðu ver- ið talin hafði Maduro náð níu pró- sentustiga forskoti á Rafael Pineda, frambjóðanda Frjálslynda flokksins, sem heldur um stjórnartaumana í Hondúras. Hafði Maduro þá fengið 53% atkvæða gegn 44% Pineda. Sá síðarnefndi viðurkenndi ósigur sinn snemma í gærmorgun og sagði „Guð og þjóðina,“ hafa opinberað vilja sinn. Aðdáandi Giulianis Fréttaskýrendur sögðu að sú harka, sem Maduro boðaði í viðskipt- um við glæpahópa og ofbeldismenn, hefði tryggt honum sigurinn. Mad- uro hét því að tekin yrði upp stefna svipuð þeirri og Rudolph Giuliani, fráfarandi borgarstjóri New York, hefur fylgt og kveður á um að ekki beri að sýna afbrotamönnum um- burðarlyndi af nokkru tagi. Syni Maduro var rænt fyrir þremur árum og hann síðan myrtur. Hefur ofbeld- ið nú bæst við örbirgðina, sem þjak- ar landsmenn en um 80% íbúanna lifa við fátæktarmörk. Maduro hefur heitið því að ráðast af fremsta megni gegn fátæktinni og ofbeldinu. Hann vísaði enda til þessa í ávarpi, sem hann flutti þegar sig- urinn lá fyrir: „Við skulum byrja á því að tryggja að allir fari að lögum og virði þau sem aldrei fyrr í sögu þessa lands,“ sagði Maduro, sem tekur við forsetaembættinu 27. jan- úar af Carlos Flore. Maduro er 55 ára gamall og um- svifamikill kaupsýslumaður. Hann var bankastjóri seðlabanka Hond- úras á árunum 1990–1994 en pólitísk reynsla hans er lítil sem engin. AP Ricardo Maduro fagnar sigri í forsetakosningunum. Maduro lýsir yfir sigri Tegucigalpa. AP. Forsetakosningar í Hondúras bana í árásunum frá því á föstudag þegar uppreisnarmennirnir rufu fjögurra mánaða vopnahlé. Árásunum var haldið áfram í gær og þrír hermenn biðu bana þegar bíl þeirra var ekið á rörsprengju sem maóistarnir settu á veg í héraðinu Pyuthan. Einnig var kveikt í lög- reglustöð í héraðinu. STJÓRNVÖLD í Nepal lýstu í gær yfir neyðarástandi í landinu vegna árása maóista sem hafa kostað meira en 280 manns lífið frá því á föstudag. Um 200 maóistar, 30 lögreglu- og hermenn og tveir óbreyttir borgarar biðu bana á sunnudag þegar maóist- arnir réðust á opinberar skrifstofur og her- og lögreglustöðvar í Solukh- umbu-héraði, um 280 km norðaustan við Kathmandu. Að sögn embættis- manna eyðilögðust nokkrar opinber- ar byggingar og þrjú íbúðarhús í árásunum. Uppreisnarmennirnir rændu banka, gengu berserksgang í dómhúsi og létu fanga í einu fangelsa héraðsins lausa. Áður höfðu 50 manns, flestir þeirra her- og lögreglumenn, beðið Yfir 2.000 manns hafa fallið í upp- reisn maóistanna frá 1996. Markmið þeirra er að steypa konungi landsins og stofna alþýðulýðveldi. Stjórn Shers Bahadurs Deuba for- sætisráðherra hélt tveggja klukku- stunda neyðarfund í gær og óskaði eftir því að konungurinn lýsti yfir neyðarástandi. Konungurinn sam- þykkti beiðnina og þar með fékk stjórnin heimild til að beita öllum herafla landsins gegn uppreisnar- mönnunum en hún hefur verið treg til að grípa til slíkra aðgerða þar sem hún óttast að þær leiði til borgara- styrjaldar. Stjórnin hefur einnig beðið Indverja að auka öryggisvið- búnaðinn við landamærin til að koma í veg fyrir að uppreisnarmennirnir geti flúið til Indlands. Vonast var til að stjórnin næði samkomulagi við maóistana þegar þeir lýstu yfir vopnahléi í júlí. Frið- arviðræðurnar fóru hins vegar út um þúfur vegna kröfu uppreisnarmann- anna um að stofnað yrði lýðveldi. Frekari friðarviðræður áttu að hefjast á næstu vikum en ólíklegt þótti að þær bæru árangur. Maóist- arnir krefjast þess að sérstöku stjórnlagaþingi verði komið á fót til að semja nýja stjórnarskrá en stjórnin hefur hafnað því. Leiðtogi maóistanna sagði eftir að vopnahléið var rofið að þeir hefðu neyðst til að hefja uppreisnina að nýju vegna „ögrana fasista“. Stjórnvöld í Nepal lýsa yfir neyðarástandi í landinu vegna mannskæðrar uppreisnar Yfir 280 manns falla í árásum maóista Kathmandu. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.