Morgunblaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 51
DAGBÓK VELOUR - GALLAR
NÝ SENDING
Sendum í póstkröfuNóatúni 17, sími 562 4217Gullbrá,
Misstu ekki af vandaðri
jólamyndatöku!
Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar
myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækkaðar
og fullunnar. Innifaldar í myndatökunni eru
12 stækkanir 13x18 cm, 2 stækkanir 20x25 cm og
ein stækkun 30x40 cm í ramma.
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Frábærar rispuviðgerðir á bílalakki.
Málum rispurnar, ekki bílinn.
Sparar tíma og peninga.
Bíllinn tilbúinn samdægurs.
Hjólkó, Smiðjuvegi 26,
sími 557 7200.
Látið laga bílinn
fyrir veturinn
Vart notuð, síð og víð kven-bísamloðkápa, með blárefskraga
frá Eggerti feldskera, til sölu á hálfu matsverði.
Einnig gamalt, handmálað breskt kaffi- og mokkastell
frá Royal Crown Derby.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Mbl. merkt: ABC eða sendi á box@mbl.is
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Höfum mikið úrval af hárgreiðslstofum sem eru lausar strax
og það fyrir aðalvertíðina núna fyrir jól. Vel staðsettar.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
2. Lítil og falleg blómaverslun til sölu á góðum stað, miðsvæðis.
3. Einn stærsti pöntunarlisti heims. Vel þekktur hér á landi og hægt
að hafa í heimahúsi. Hentar vel fyrir heimavinnandi fólk eða
með annari starfsemi. Sýnishorn á staðnum.
4. Vínbar í miðborginni til sölu. Góð velta sem fer vaxandi.
5. Veitingastaður til sölu. Selur mest innlendum sem erlendum
ferðamönnum er koma þangað allt árið um kring. Matur og vínbar.
Einnig mikið í margvíslegum veislum, s.s. jólahlaðborði, þorrablót-
um og erfidrykkjum. Gott eldhús fylgir og aðstaða til veisluþjón-
ustu.
6. Verktakafyrirtæki til sölu í hellulögnum, röralögnum o.þ.h. Vinna
mikið fyrir bæjarfélög og stofnanir. Tæki fylgja. Næg atvinna.
7. Sjúkraþjálfarar! Til sölu er 15 ára sjúkraþjálfunarstofa, vel þekkt
og hefur gott orð á sér. Öll tæki til staðar og mikil vinna.
8. Söluturn. Þekktur söluturn á mjög góðum stað til sölu fyrir mjög
lítið fyrir þann sem fyrstur tekur við sér.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
● ●
● ●
● !"#$
# ● #% &&
● ' (# ) ' &*+*,
LJÓÐABROT
SOFÐU, UNGA ÁSTIN MÍN
Sofðu, unga ástin mín,
úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun bezt að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
Jóhann Sigurjónsson.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 a6 5. Bd3 Bc5 6.
Rb3 Be7 7. Dg4 Rf6 8. Dxg7
Hg8 9. Dh6 Rc6 10. Rc3
Hxg2 11. Dh3 Hg8 12. Bd2
d5 13. exd5 exd5 14. Df1
Be6 15. O-O-O Dc7 16. Re2
O-O-O 17. Red4 Rxd4 18.
Rxd4 Bc5 19. Rxe6 fxe6 20.
f3 Kb8 21. Dh3 e5
22. Hhe1 Hde8
23. Dh4 Db6 24.
Dh6 e4 25. fxe4
dxe4 26. Bf4+
Ka7 27. Bc4 Hg2
28. He2 Hxe2 29.
Bxe2 e3 30. c3
He6 31. Dg5 h6
32. Df5 Re4 33.
Hd3 Rd2 34. Hd7
He4
Staðan kom
upp í Evrópu-
keppni landsliða
sem lauk fyrir
skömmu í Leon á
Spáni. Christo-
pher Lutz (2643) hafði hvítt
gegn Vadim Milov (2602).
35. Hxb7+! Kxb7 Ekki gekk
upp að leika 35. – Dxb7
vegna 36. Dxc5 Ka8 37.
Bxe3 og hvítur vinnur. Í
framhaldinu verður svartur
mát eða tapar drottning-
unni. 36. Dd7+ Ka8 37.
Dc8+ Ka7 38. Bb8+! Glæsi-
legur lokahnykkur sem
þvingaði svartan til uppgjaf-
ar þar sem hann yrði mát
eftir 38. – Dxb8 39. Dxa6#.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. apríl sl. í Hjalla-
kirkju af sr. Írisi Kristjáns-
dóttur Sæunn Pálsdóttir og
Magnús Einarsson. Með á
mynd er dóttir þeirra Sóley
Sara Magnúsdóttir.
Ljósmynd/Héðinn Ólafsson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 28. júlí sl. í Akureyr-
arkirkju af Yngva R. Yngva-
syni, forstöðumanni Hvíta-
sunnukirkjunnar á Akur-
eyri, Anna Valdís Guð-
mundsdóttir og Ágúst
Böðvarsson.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. júlí sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matth-
íassyni Anney Bæringsdótt-
ir og Gunnar Júlíusson.
Heimili þeirra er í Banda-
ríkjunum.
Ljósmynd/Jóh. Valg.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 5. maí sl. í Hafnar-
kirkju af sr. Sigurði Kr. Sig-
urðssyni Kristín Óladóttir
og Ingólfur Guðni Einars-
son.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert skjótráður og stund-
um helst um of en oftast
tekst þér að koma ár þinni
vel fyrir borð.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hafðu gætur á fjármálunum
og vertu óhræddur við að
horfast í augu við hlutina eins
og þeir eru. Stundum verða
hlutir bara að bíða betri tíma.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það þýðir ekkert annað en
sækja málin af festu og láta
hvergi deigan síga þótt eitt-
hvað blási í móti. Aðrir bjóða
svo sem ekkert betur en þú.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu ekki slá þig út af lag-
inu, þótt einhverjum finnist
þú vera að þefa uppi óþægi-
lega hluti. Sannleikurinn er
sagna bestur á heildina litið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Dragðu nú ekki lengur að
taka upp hollustu í þína til-
veru. Heilbrigð sál í hraust-
um líkama þurfa bæði áræði
og tíma sem þú verður að
hafa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu það eftir þér að leika
þér svolítið. Það lífgar bara
upp á tilveruna og aðrir sjá
þig sem það ljósgeislans barn
sem þú í rauninni ert.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vertu ekki feiminn við að við-
urkenna þátt annarra í vel-
gengni þinni. Þótt þú sért að-
almaðurinn er svo margt sem
spilar inn í og hefur áhrif á
gang mála.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Komdu vinum þínum á óvart
með einhverjum hætti. Það
þarf ekki að kosta svo miklu
til, aðalmálið er að koma já-
kvæðum skilaboðum um vin-
áttu á framfæri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki vanmeta aðra þótt þér
þyki kannski ekki mikið til
þeirra koma. Vertu viðbúinn
því að verja málstað þinn
gagnvart furðulegustu rök-
um.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Láttu ekki samstarfsmann
þinn egna þig til reiði. Sýndu
bara þolinmæði og þá mun
málflutningur hans falla um
sjálfan sig og þú standa beinn
eftir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Skelltu ekki skollaeyrum við
aðvörunum annarra þótt þér
finnist þú sigla lygnan sjó.
Skjótt skipast veður í lofti og
gott að vera við öllu búinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vertu stoltur af starfi þínu
þótt einhverjum finnist ekki
mikið til þess koma. Treystu
innsæi þínu og því að hollur
er heimafenginn baggi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Finndu þér einhverja til-
breytingu í dag. Þetta þurfa
ekki að vera nein ósköp; ný
leið til og frá vinnu getur til
dæmis gefið deginum lit.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ljósmynd/Sigríður Bachmann
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. ágúst sl. í Hjalla-
kirkju af sr. Guðmundi Karli
Brynjarssyni Belinda
Chenery og Ægir Már Þór-
isson. Heimili þeirra er í
Furugrund 22, Kópavogi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
SAGNHAFI í fjórum spöð-
um þarf að gera upp við sig
hvort hann veðjar á hag-
stæða legu í tígli eða
hjarta:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K53
♥ 764
♦ 8532
♣Á94
Suður
♠ Á8742
♥ ÁK83
♦ ÁK4
♣6
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: Laufdrottning.
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Þrír tapslagir blasa við,
einn á hvorn rauða litinn og
einn á tromp ef það liggur
þægilega. En það eru ekki
þar með tíu slagir í húsi
þótt spaðinn brotni 3-2. Úr-
slitaslagurinn er á gráu
svæði milli varnar og sókn-
ar. Ef annar hvor rauði lit-
urinn brotnar 3-3 má fá tí-
unda slaginn þar, en það er
þó betra að veðja á hjartað.
Hvers vegna?
Norður
♠ K53
♥ 764
♦ 8532
♣Á94
Vestur Austur
♠ G106 ♠ D9
♥ D1092 ♥ G5
♦ 106 ♦ DG97
♣DG105 ♣K8732
Suður
♠ Á8742
♥ ÁK83
♦ ÁK4
♣6
Hugsanlega er hægt að
trompa fjórða hjartað í
borði ef sami mótherji er
með tvö spil í báðum hálit-
um. En til að varast tromp-
uppfærslu er rétt að gefa
strax slag á hjarta frekar
en að spila ÁK og þriðja
hjartanu. Sagnhafi fær
næsta slag, tekur ÁK í
trompi og fer svo í hjartað.
Í þessari legu er hægt að
stinga hjarta í borði án þess
að vörnin fái rönd við reist.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson.