Morgunblaðið - 27.11.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞAÐ fór betur en á horfðist í gær þegar
jeppabifreið fór út af flughálum veginum við
Básabrekkur, milli Ísafjarðar og Súðavíkur,
og valt niður bratta skriðu og endaði ónýt
niðri í fjöru. Við stýrið sat Sigríður Inga Sig-
urjónsdóttir héraðsdýralæknir, ásamt Schaef-
fer-tíkinni sinni Söru, en hvoruga sakaði. Sig-
ríður var á leið heim úr læknisvitjun þegar
hún mætti bíl á veginum og hemlaði með
þeim afleiðingum að bíllinn rann út af veg-
inum. Hann endastakkst og fór tvær veltur en
Sigríður var í bílbelti og slapp ómeidd. „Mér
leið skelfilega þegar ég var komin út á veg-
brúnina og gerði mér ljóst að ég færi niður,“
sagði hún. „Tíminn stoppaði og ég hélt að
þetta yrði mitt síðasta enda fékk maður hálf-
gert áfall við þetta. Ég bjóst ekki við að
standa upp frá þessu en ég fann að ég sat föst
í bílbeltinu og það veitti mikla öryggistilfinn-
ingu. Ég hafði ekki áhyggjur af því að slas-
ast, fremur að ég myndi deyja. En maður er
heppinn.“
Þegar bíllinn hafði staðnæmst í fjörunni
steig Sigríður alheil út úr flakinu og aðgætti
líðan Söru. Skömmu síðar kom ökumaður hins
bílsins niður skriðuna og bjóst við þarna hefði
orðið alvarlegt slys.
Sigríður fékk aðhlynningu á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísafirði en fékk einungis kúlu
á höfuðið. Hún segist aldrei hafa lent í óhappi
sem þessu, en segist oft hafa búist við hinu
versta á Hrafnseyrarheiði. „Ég er fegin að
óhappið skyldi eiga sér stað hér frekar en
þar, því þar er hærra niður af veginum og fá-
ir á ferli.“
Þrátt fyrir að bíllinn hafi oltið niður bratta
skriðuna var ferð hans fremur hæg að sögn
Sigríðar og fóru leikar svo að hann stað-
næmdist á hjólunum. „Við komum niður
standandi – eins og kettirnir,“ sagði hún.
Dýralæknirinn á Ísafirði slapp ómeiddur eftir veltu niður 50 metra skriðu
„Hélt að þetta
yrði mitt síðasta“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir héraðsdýralæknir ásamt Schaeffer-tíkinni sinni, Söru, á Ísafirði í
gær. Þeim var nokkuð brugðið, en eins og Sigríður Inga sagði: „Við komum niður standandi – eins
og kettirnir,“ sem sést á innfelldu myndinni þar sem jeppinn er í fjöruborðinu.
HUGMYNDIR eru uppi um
það innan heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis að leggja
niður stöður héraðslækna en
þær eru átta í landinu. Í flestum
tilvikum sitja heilsugæslulækn-
ar í þessum stöðum í hlutastarfi
nema í Reykjavík og á Akureyri
þar sem þær hafa verið heilar
stöður.
Með ýmsum breytingum í
heilbrigðisþjónustunni hafa
verkefni héraðslækna smám
saman verið að breytast. Meðal
verkefna þeirra hafa verið sótt-
varnir og ýmis mál er snerta
heilsugæslu í skólum og málefni
fatlaðra svo dæmi séu tekin.
Skipun héraðslækna rennur
út um mitt næsta ár og sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu er
ekki gert ráð fyrir meiri fjár-
veitingu til þeirra en sem því
nemur.
Eins og fyrr segir gegna
heilsugæslulæknar yfirleitt
embætti héraðslækna og með
breytingum í heilsugæslunni
hafa lækningaforstjórar og yf-
irlæknar heilsugæslu tekið yfir
ýmis verkefni þeirra, t.d. er
snúa að sóttvörnum. Til að unnt
verði að leggja niður stöður hér-
aðslækna þarf að staðfesta slík-
ar breytingar með lagabreyt-
ingum sem snerta m.a.
heilbrigðismál, málefni fatlaðra
og skólamál.
Í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu er nú unnið að
tillögugerð um hvernig skipa
má þessum málum til framtíðar.
Stefnt að
því að
leggja niður
stöður hér-
aðslækna
PRENTSMIÐJURNAR Steindórs-
prent-Gutenberg og Grafík verða
sameinaðar undir nafni Gutenberg
um næstu áramót. Þær eru í eigu
prentsmiðjunnar Odda. Grafík varð
áður til við sameiningu prentsmiðj-
unnar Eddu og Prentsmiðju G. Ben.
Að sögn Þorgeirs Baldurssonar,
forstjóra Odda, var þessi ákvörðun
tilkynnt á starfsmannafundi fyrir-
tækjanna í gær.
Á fundum sem haldnir voru með
starfsfólki beggja prentsmiðjanna í
gær kom fram að starfsemi hins nýja
fyrirtækis verður rekin í núverandi
húsnæði Steindórsprents-Guten-
berg í Síðumúla og er stefnt að því að
flutningum og endurskipulagningu
starfseminnar verði lokið á fyrsta
fjórðungi næsta árs.
Gert er ráð fyrir að 15–20 manns
missi vinnuna og verður allt kapp
lagt á að aðstoða hlutaðeigandi við
útvegun nýrrar atvinnu, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu. Að
endurskipulagningu lokinni er gert
ráð fyrir að rúmlega áttatíu manns
muni starfa hjá prentsmiðjunni.
15–20
manns
missa
vinnuna
Gutenberg og
Grafík sameinuð
TILLÖGUR vinnuhóps um niður-
skurð útgjalda fyrir fjárlög næsta
árs koma við útgjöld allra ráðuneyta
og hugsanlega verður gildistöku laga
um fæðingarorlof frestað að ein-
hverju leyti, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Einnig hefur
komið til tals að fresta að hluta til
eða öllu leyti gerð hugbúnaðar fyrir
ríkisbókhald og Landsskrá fast-
eigna, svo og framkvæmdum á sviði
vegamála.
Fjárlögin verða skorin niður um
3–4 milljarða við lokaafgreiðslu
þeirra og mun niðurskurðurinn ná til
allra ráðuneyta, að sögn Davíðs
Oddssonar í ljósvakamiðlum í gær.
Markmiðið er að fjárlög verði af-
greidd með hálfs fjórða milljarðs
króna tekjuafgangi, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra segir að tillögur vinnuhópsins
verði ræddar á næstu dögum en ekk-
ert sé enn frágengið og þingmenn
hafi ólíkar hugmyndir um hvar skera
skuli niður. Segir hann enn stefnt að
því að halda forsendum fjárlaga, þ.e.
að skila tekjuafgangi af ríkissjóði.
Önnur umræða um fjárlagafrum-
varpið fer fram á Alþingi í dag.
Lögin um
fæðingarorlof
Gildistöku
ákvæða hugs-
anlega frestað
Tillögur um niðurskurð/10
UNGLINGSPILTAR úr Hagaskóla
veittust að tveimur fullorðnum karl-
mönnum við Háskólabíó um hádeg-
isbil í gær og skemmdu bifreið
þeirra. Einn piltanna sló til annars
mannsins og samkvæmt upplýsing-
um lögreglunnar í Reykjavík sló
maðurinn hann til baka. Laust fyrir
klukkan hálfeitt hringdi annar
mannanna og óskaði eftir aðstoð lög-
reglu vegna unglinga sem létu snjó-
bolta og grjóti rigna yfir þá. Tókst
þeim að forða sér inn í Háskólabíó en
mennirnir munu starfa sem hljóð-
færaleikarar í Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Mennirnir fóru síðan áleiðis að
Hagaskóla í þeim tilgangi að ræða
við starfsmenn skólans og voru á leið
sinni þangað grýttir snjóboltum. Á
meðan mennirnir töluðu við ganga-
vörð skólans sló einn pilturinn til
annars mannsins, sem mun hafa
slegið piltinn til baka.
Er mennirnir héldu til baka að
Háskólabíói veittust unglingarnir
aftur að þeim. Þeir gátu forðað sér
inn í kvikmyndahúsið en unglingarn-
ir eltu þá þangað og skemmdu hrein-
lætisáhöld og fleira innandyra. Hús-
vörður og aðstoðarmaður hans komu
þeim út úr húsinu og lokuðu dyrun-
um. Unglingarnir fóru þá að bifreið
mannanna, brutu í henni rúðu, rifu af
bretti og rúðuþurrkur, brutu öll ljós
og helltu olíu inn í bifreiðina. Bifreið-
in var síðar dregin í burtu, óökufær.
Er lögreglan kom á staðinn varð
hún einnig fyrir barðinu á ungling-
unum er köstuðu í lögreglumennina
snjóboltum. Lögreglan handsamaði
einn unglinginn og reyndi þá félagi
hans að „frelsa“ hann úr höndum
lögreglunnar án árangurs. Skóla-
stjóri Hagaskóla var kallaður til
ásamt fleiri aðilum til að reyna að
stilla til friðar.
Málið verður líklega sent
barnaverndaryfirvöldum
Lögreglan hafði í gærkvöldi ekki
enn rætt við unglingana sem áttu
hlut að máli en samkvæmt upplýs-
ingum hennar verður málið að öllum
líkindum sent barnaverndaryfirvöld-
um til rannsóknar.
Einar Magnússon, skólastjóri
Hagaskóla, segir að málið sé alfarið í
höndum lögreglu enn sem komið er
þar sem átökin áttu sér stað utan
skólalóðar. „Mitt hlutverk var fyrst
og fremst að fá unglingana af lóð Há-
skólabíós og yfir á lóð skólans, sem
getur gengið hægt þegar um múg-
æsing er að ræða.“
Einar segir að elstu nemendur
skólans hafi fullt ferðafrelsi á skóla-
tíma. Hann bendir á að það verði að
vera meginlínan að utan skólalóðar
séu nemendur ekki á ábyrgð skólans.
„Hins vegar komum við oft að mál-
um sem gerast utan lóðarmarka og
tökum á þeim eftir því sem við get-
um.“ Einar býst við að barnavernd-
arnefnd taki málið í sínar hendur og
hugsanlega verður haft samband við
skólayfirvöld í framhaldinu.
„Þegar fyrsti snjórinn fellur
hleypur oft galsi í mannskapinn en
fram að þessu hefur allt farið vel
fram,“ segir Einar. „Yfirleitt er það
fámennur hópur sem setur svona
mál í gang, en hinir eru fljótir að
hlaupa til þegar eitthvað fer að ger-
ast.“
Veittust að vegfar-
endum og frömdu
skemmdarverk