Morgunblaðið - 15.12.2001, Blaðsíða 1
288. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 15. DESEMBER 2001
ÍSRAELSKAR hersveitir réðust inn í fjóra pal-
estínska bæi á Vesturbakkanum í gærmorgun,
felldu þar sex Palestínumenn í skotbardögum, og
handtóku tugi grunaðra vígamanna í umfangs-
mestu hernaðaraðgerðum Ísraela í þá 15 mánuði
sem liðnir eru síðan átök blossuðu upp á ný fyrir
botni Miðjarðarhafs. Tveir aðrir Palestínumenn
féllu í átökum í bænum Nablus.
Í gærkvöldi skutu ísraelskar herþotur flug-
skeytum á aðalstöðvar Yassers Arafats, forseta
heimastjórnar Palestínumanna, í Gazaborg, þriðja
kvöldið í röð. Á Vesturbakkanum stóðu ísraelskir
skriðdrekar einungis um 200 metra frá skrif-
stofum Arafats í Ramallah, þar sem Arafat hefur
dvalið í hálfgildings stofufangelsi í tíu daga.
Bandarískur sendifulltrúi, Anthony Zinni, sem
undanfarnar þrjár vikur hefur reynt að koma á
friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs, fór til
Jórdaníu í gær, en talsmaður Hvíta hússins gaf í
skyn að hann myndi snúa heim innan skamms.
Ari Fleischer, fréttafulltrúi Bandaríkjastjórnar,
sagði að George W. Bush forseti hefði sagt Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, afdráttarlaust
að ekki mætti hrekja Arafat frá. Leiðtogar Evr-
ópuríkja hafa einnig hvatt Sharon til að hætta ekki
samskiptum við Arafat.
Hvað ef Arafat hverfur af vettvangi?
Utanríkisráðherra Ísraels, Shimon Peres, sem
tók þátt í að gera bráðabirgðasamkomulag við
Arafat, sagði í viðtali sem birt var í gær, að hann
hefði sagt Sharon að það væri skammsýni að
hunsa Arafat. „Ég spurði Sharon: Hvað gerist ef
Arafat hverfur?“ sagði Peres við dagblaðið Yediot
Ahronot. „Ef við hrekjum Arafat á brott lendum
við í útistöðum við arabaheiminn, og Egyptar og
Jórdanar slíta tengsl við okkur.“ Peres sagði enn-
fremur að sig hryllti við mörgum árásunum sem
Ísraelar hefðu gert á Palestínumenn, en kvaðst
reiðubúinn til að játa að hann hefði rangt fyrir sér
ef aðgerðirnar kæmu í veg fyrir frekari árásir pal-
estínskra vígamanna á Ísraela.
Palestínsku samtökin Hamas, er lýstu sig ábyrg
fyrir tilræðum er urðu tíu Ísraelum að bana á mið-
vikudaginn, hétu því í gær að halda áfram mann-
skæðum árásum á Ísrael, og sögðu að Arafat væri
nú kominn „ofan í skotgrafirnar“ við hlið hinna
róttæku. Leiðtogi Hezbollah-samtakanna í Líb-
anon, sem Íranar styðja, hvatti Palestínumenn til
að halda áfram sjálfsmorðsárásum gegn ísr-
aelskum borgurum. „Sjálfsmorðsaðgerðir eru það
vopn sem Guð hefur gefið [palestínsku] þjóðinni,
og enginn getur tekið það frá okkur,“ sagði Hass-
an Nasralla. „Þeir geta tekið frá okkur byssurnar,
skriðdrekana eða flugvélarnar, en þeir fá ekki
haggað þeim baráttuanda okkar sem þráir písl-
arvætti.“
Átta Palestínumenn felldir í umfangsmestu aðgerðum Ísraela í 15 mánuði
Peres segir það skamm-
sýni að hunsa Arafat
Jerúsalem, Gazaborg, Damaskus, Teheran, Washington. AP, AFP.
GÖMUL kona í Nice í Frakklandi
skoðar evrumynt undir stækkunar-
gleri í gær, eftir að hún hafði
keypt svokallað „byrjendasett“ af
myntinni á aðalpósthúsinu í borg-
inni. Evran tekur við sem sameig-
inlegur gjaldmiðill í tólf Evr-
ópuríkjum um áramótin, og verða
þá ríkisgjaldmiðlarnir aflagðir.
Settin voru fáanleg í þrem Evr-
ópulöndum í gær, Frakklandi, Ír-
landi og í Hollandi, þar sem þau
fengust gefins. Þetta var í fyrsta
sinn sem almenningi gafst kostur á
að handleika þessa umtöluðu pen-
inga, og sýndist sitt hverjum.
„Þetta er spennandi,“ sagði
Marc Russell-Jones, sem keypti sér
evrusett á pósthúsi í París. En það
voru ekki allir sammála. „Ef þú
hefðir spurt mig í gær hvort ég
myndi sakna smápeninganna okk-
ar hefði ég sagt nei,“ sagði Írinn
Mike Morrissey, þar sem hann vó
nokkrar evrur í annarri hendinni,
og írska skiptimynt í hinni. „En
núna, þegar ég er búinn að taka á
evrunni, myndi ég segja já.“
Í hinum myntbandalagsríkjunum
verður byrjað að dreifa byrj-
endasettum í dag og á morgun.
Þótt viðbrögðin væru misjöfn voru
menn greinilega forvitnir og
mynduðust sums staðar langar bið-
raðir fólks sem vildi kaupa evrur.
Önnur hlið myntarinnar er eins í
öllum myntbandalagslöndunum,
með verðgildi peningsins og korti
af Evrópu. Hin hliðin er mismun-
andi eftir því í hvaða landi pening-
urinn er sleginn. Þetta hefur valdið
nokkrum ruglingi, og í Frakklandi
spurði einn útvarpshlustandi: „Get
ég notað franskar evrur á Spáni?“
Reuters
Evran
grand-
skoðuð
KONA nokkur í Ósló, sem tal-
in er hafa hent almennum úr-
gangi í gám sem einungis var
ætlaður fyrir úrgangspappír,
var boðuð til yfirheyrslu til
lögreglunnar. Málið hefur nú
verið að velkjast í kerfinu í
rúmt ár, að því er Aftenposten
greinir frá.
Þetta hófst allt saman í
september í fyrra þegar poka
með almennum úrgangi var
hent í pappírsgáminn. Níu
mánuðum síðar, í júní sl., fékk
Linda Melby Wold, sem býr í
úthverfi Óslóar, bréf í pósti,
þar sem hún var boðuð á fund
lögreglunnar. Engar útskýr-
ingar voru gefnar á boðuninni.
Þegar Wold kom á stöðina
var henni sagt að bréf með
nafni hennar á hefði fundist í
umræddum ruslapoka. Hvorki
Wold né maður hennar mundu
eftir því að hafa hent þessum
poka níu mánuðum áður, og
höfðu heldur ekki hugmynd
um nýjar reglur sem var ætlað
að hvetja fólk til umhverfis-
vænnar umgengni. Þannig að
þau andmæltu ekki ákærunni.
Málinu var vísað til gerðar-
dóms, og nú í vikunni var
Wold kölluð fyrir, en frétti þá
að réttarhöldunum hefði verið
frestað fram yfir áramót.
Enginn hefur getað útskýrt
hvers vegna málið hefur dreg-
ist svona á langinn, og Wold
hefur sínar efasemdir um að
skattpeningunum sé þarna vel
varið. „Þetta varð heldur en
ekki dýr ruslapoki,“ sagði hún.
Dýr
myndi
tunnan öll
HAZRAT Ali, einn af yfirmönnum
afgönsku hermannanna sem þjarma
nú að liðsmönnum al-Qaeda í hellum
og jarðgöngum fjallahéraðsins Tora
Bora í austurhluta landsins, sagði í
gær að stutt væri í endalokin.
„Ég vona að okkur takist að koma
þeim á kné í nótt og ef ekki þá er al-
veg öruggt að um hádegið á morgun
verða þeir algerlega búnir að vera,“
sagði Ali. Bandarískar flugvélar
gerðu hörðustu árásirnar til þessa á
stöðvar al-Qaeda liðsins og var beitt
öllum sprengjuflugvélum sem
Bandaríkjamenn hafa á svæðinu.
Enn er óljóst hvar Sádi-Arabinn
Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda,
heldur sig. Fréttastofan AIP, sem
hefur bækistöð í Pakistan, sagði að
bin Laden hefði farið frá Tora Bora
fyrir tíu dögum, áður en árásirnar á
staðinn hófust en ekki væri vitað
hvert hann hefði haldið.
Bandaríski hershöfðinginn
Tommy Franks, sem stjórnar að-
gerðunum í Afganistan, sagði á
blaðamannafundi í gærkvöldi að mis-
vísandi upplýsingar bærust stöðugt
um verustað bin Ladens, hann væri
sagður vera einhvers staðar í Tora
Bora eða flúinn til Pakistan. „Við vit-
um það ekki,“ sagði Franks.
Forseti Bandaríkjanna, George
W. Bush, sagði að vangaveltur í
arabalöndum um að myndband sem
sýnir bin Laden hlakka yfir hryðju-
verkunum í september sé falsað
væru „forkastanlegar“ og þær væru
vesældarleg tilraun til að sýna
dæmalausu illmenni stuðning. Varn-
armálaráðuneytið bandaríska af-
henti í fyrradag sjónvarpsstöðvum
myndbandið sem fannst í borginni
Jalalabad en ekki er vitað hver tók
myndina.
Óljóst hvar bin Laden er
Tora Bora, Washington. AFP, AP.
Bandarískar/26
AFGANSKIR borgarar skoðuðu í
gær rústir híbýla múllans
Mohammeds Omars, fyrrverandi
æðsta leiðtoga talibanahreyfing-
arinnar, í útjaðri Kandahar. Omar
bjó í glæsilegri og rúmgóðri húsa-
samstæðu sem var umgirt múr-
steinsvegg, uns hann flýði loft-
árásir Bandaríkjamanna, sem
rústuðu flestum húsanna.
Reuters
Í húsi Omars
Glæsihöll/30