Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 86
FÓLK Í FRÉTTUM
86 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RUSSELL Crowe
hefur lýst því yfir
að hann hyggist
eyða jólahátíðinni
með Nicole Kid-
man.
Áströlsku stór-
stjörnurnar hafa
lengi verið nánir
vinir og Crowe
ætlar að sækja
vinkonu sína heim
þar sem hún held-
ur jólin á heimili
sínu í Sydney, ásamt tveimur börn-
um hennar og fyrrverandi eig-
inmanns hennar, Toms Cruise.
„Ég hlakka mikið til að vera í ná-
vist hennar um jólin,“ viðurkennir
Crowe. „Hún er mjög náinn vinur
minn.“ Skylmingaþrællinn hefur
meira að segja við-
urkennt að hann kalli
Kidman „prinsess-
una“: „Ég kalla hana
prinsessuna, hún ber
sig svo ótrúlega vel
og er yndisleg mann-
eskja.“
Þrálátur orðrómur
hefur verið á kreiki
um ástarsamband
Crowe og Kidman
síðan hann samdi og
flutti opinberlega
lagið „Somebody Else’s Princess“
en þá var hún enn gift Cruise.
En Cruise er nú kominn með nýja
upp á arminn, spænsku þokka-
dísina Penelope Cruz, og munu þau
eyða jólunum saman á heimaslóð-
um hennar.
Stjörnurnar í jólaundirbúningi
Cruise verður með Cruz
en Kidman með Crowe
Sungið fyrir Prinsessuna?
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isSÍ I 564 0000 - .s ara io.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 13
Mögnuð mynd með stórleikurunum
Bruce Willis, Cate Blanchett og Billy Bob Thornton
1/2
Ungfrú Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Reese Witherspoon
fer á kostum sem
ljóska sem sannar
hvað í ljóskum býr
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Sýnd kl. 2, 5.15, 8 og 10.30.Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 10.
Missið ekki af nýjasta glæpaþriller Bruce Willis
Þau veittu henni
öruggt heimili...
en henni var ekki
ætlað að komast burt!
Æsispennandi sálfræðitryllir
með Leelee Sobieski (Joyride)
í aðalhlutverki.
Frumsýning Frumsýning
Sýnd kl. 8.
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni
Opið frá kl. 10 til 14
Verð aðeins 16.994 kr.
LEITIÐ OG ÞÉR MUNIÐ FINNA
TÍTAN leitarljósið fræga
er loksins komið.
Ljósið er fjarstýrt, með segulhaldara
og hægt að snúa því heilan hring,
upp og niður. Straumgjafi, hlaðanlegur
á 12v og 220v, með tveimur 12v
úttökum og góð taska fylgir með.
NÝ VARA!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
IL
1
62
86
12
/2
00
1
Aðeins í dag!
TVEIR ungir kennarar fengu þá
hugmynd fyrir tveimur árum að búa
til spil byggt á þáttunum Gettu bet-
ur, sem hafa verið á dagskrá Rásar 2
og Ríkissjónvarpsins í mörg ár. Hug-
myndin er nú orðin að veruleika og
var spyrlum í þáttunum frá upphafi
og fleirum hjá RÚV afhent eintak af
spilinu af því tilefni á dögunum.
„Þetta er í fyrsta skipti sem gert
er svona spil eftir þætti hjá þeim í
RÚV og það engum smáþætti; þetta
er langvinsælasti þátturinn sem þeir
eru með í sýningu,“ sagði Trausti
Hafsteinsson, annar þeirra sem
standa að útgáfu spilsins, í samtali
við Morgunblaðið, en félagi hans er
Gunnar Sturla Hervarsson.
Hvernig kom þetta til?
„Við erum bara tveir ungir menn
úti í bæ og okkur datt skyndilega í
hug að gera spil byggt á þessum
snilldarþáttum. Við höfðum báðir
fylgst með þáttunum og haft mjög
gaman af. Spurðum svo sjálfa okkur
að því einn daginn hvers vegna ekki
að gera svona spil og kýldum á það.“
Síðan eru liðin tvö ár.
„Við höfum gert þetta í mjög góðu
samstarfi við Sjónvarpið og þá aðila
sem hafa séð um þáttinn. Verkefnið
er eðlilega háð samstarfi við RÚV.“
Að grunni til er spilið eins og
þættirnir; byggt á sömu spurn-
ingagerðum – sem eru hraðaspurn-
ingar, þar sem keppt er við tímann,
bjölluspurningar; þar sem er keppni
um það hver er fyrstur að ná til bjöll-
unnar, og vísbendingaspurningar.“
Reglur eru eins og í þáttunum, en
sá sigrar sem fyrstur kemst á leið-
arenda; einn hring á spilaborðinu.
Illugi Jökulsson samdi 2.200 nýjar
spurningar fyrir spilið. „Þetta eru
ekki erfiðu spurningarnar, sem
mörgum finnst, sem eru í þáttunum
heldur nýjar sem samdar voru fyrir
almenning. Til að setja einhvern ald-
ursstimpil á spilið er gefið út að það
sé fyrir 14 ára og eldri en ég hef séð
mun yngri krakka spila og hafa
gaman af. Þarna er spurt um allt
milli himins og jarðar, þetta er ekki
létt, en allir eiga að geta verið með.“
Trausti segir bæði hægt að skipta
keppendum í lið, eins og tíðkast í
þáttunum, eða að einstaklingar
keppi hver og einn.
„Í rauninni kemur þátturinn heim
í stofu og við lítum á það sem kost
hve spilið er fjölbreytt. Þetta er ekki
bara ein spurningagerð og menn eru
alltaf með. Ekki þarf að bíða lengi
þótt einhver góður sé á móti þér.“
Nokkrir aukareitir eru á spilinu.
„Við aðdáendur þáttanna vitum að
þetta er ekki bara spurningaþáttur
heldur skemmtiþáttur og menn geta
lent í því í spilinu að þurfa að flytja
fyrirfram ákveðið skemmtiatriði og
eru þá dæmdir af mótspilurunum.
Viðkomandi getur þurft að dansa,
leika, segja brandara eða eitthvað
slíkt.
Þarna eru líka auglýsingar; upp-
lýsingar um vörur eða fyrirtæki úti í
bæ, sem getur komið sér vel að vita
þegar ákveðnar spurningar eru
bornar fram.“
Trausti segir lykilinn að spilinu að
það sé „fjölbreytt, spennandi og
skemmtilegt. Og það er alíslenskt“,
segir hann.
Logi Bergmann Eiðsson, spyrill í þáttunum Gettu betur á Rás 2 og í Sjón-varpinu, og Trausti Hafsteinsson, annar þeirra sem gefa út spilið.
Morgunblaðið/RAX
Hvers vegna
ekki Gettu
betur-spil?