Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ EYJÓLFUR Sveinsson hefur selt eignarhlut sinn í Orca SA og þar með í Íslandsbanka. Kaupendur eru tveir fé- lagar hans úr Orca- hópnum svokallaða, Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, og Þor- steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Eignarhaldsfélag Orca- hópsins, FBA-Holding, er stærsti hluthafi í Ís- landsbanka með 15,6% hlutafjár, en alls á Orca- hópurinn svokallaði yfir 18% í Íslandsbanka í gegnum fleiri félög. Í gær var einnig tilkynnt að Eyjólf- ur hefði selt tæpar fimm milljónir að nafnverði í Haraldi Böðvarssyni hf. en Eyjólfur er þar varaformaður stjórn- ar. Viðskiptin fóru fram á genginu 4,25 og er markaðsverðmæti hlutar- ins því um 21 milljón króna. Ekki víst að af þessum viðskiptum verði Eyjólfur segir í samtali við Morg- unblaðið að hann og félög á hans veg- um eigi eftir sem áður 1,62% í Ís- landsbanka eða um 157 milljónir að nafnverði. Viðskiptin sem tilkynnt voru í gær lutu að sölu á eignarhlut Dalsmynnis, eignarhaldsfélags Eyj- ólfs um hlut hans og félaga í Orca. Um var að ræða um 410 milljónir að nafn- verði en gengi bréfanna er að sögn Eyjólfs á bilinu 4,7–4,8 að meðtöldum viðbótargreiðslum sem komi í áföng- um á næsta ári. Í tilkynningunni til Verðbréfaþings Íslands kemur hins vegar fram að viðskiptin hafi farið fram á genginu 4,3. Markaðsverð- mæti þess sem selt var getur því talist á bilinu 1.920–1.970 milljónir króna. Eyjólfur segist mjög ánægður með söluna. „Ég seldi þarna hluta af eign minni í bankanum og létti þannig á fjárfestingunni. Ég og félög á mínum vegum eigum eftir sem áður umtals- verðan hlut í bankanum, 1,62% sem er um 700 milljónir að markaðsvirði. Verðið var ásættanlegt en mér sýnist að með greiðslum sem skila sér á næsta ári verði það að öllum líkindum á milli 4,7 og 4,8. Þetta er um einum heilum yfir því sem það hefur verið undanfarið ár og því skynsamlegt að selja á þessum tímapunkti. Raunar eru viðskiptin með fyr- irvara því innan Orca er verið að taka afstöðu til tilboðs sem liggur hjá okkur annars staðar frá og ef því verður tekið verður í raun ekki af þessum viðskiptum,“ segir Eyjólfur, en kveðst aðspurður ekki vilja úttala sig nánar um þetta mál. Aðspurður segist hann munu sitja áfram í stjórn Íslandsbanka. „Ég sit að sjálfsögðu áfram og það ræðst þegar kemur að aðal- fundi hverjir verða í stjórn. Ég og félög á mínum vegum, beint og samkvæmt framvirkum samningum, erum enn einn af tíu stærstu hluthöfum í bankanum.“ Viðskiptin byggjast á samningi að- ilanna sem gerður var á gamlársdag og er að hluta til framvirkur, að því er fram kemur í tilkynningu til Verð- bréfaþings Íslands. Jón Ásgeir og Þorsteinn Már keyptu alla hluti Eyj- ólfs Sveinssonar og Fjárfestingar- félagsins Dalsmynnis ehf. í félögun- um Orca SA og Blæng ehf., en dótturfélög þessara félaga eiga hluti í Íslandsbanka hf. samtals að nafnvirði kr. 1.832.461.813, eða um 18,3% hluta- fjár í bankanum. „Eignarhaldið byggist að hluta til á framvirkum samningi og greind við- skipti eru einnig að hluta til gerð með framvirkum samningi,“ segir í til- kynningunni til Verðbréfaþings. Í nefndum viðskiptum var miðað gengið 4,3 á hlutum í Íslandsbanka hf. Miðað við að eignarhlutur Eyjólfs Sveinssonar hafi verið 4,12%, þ.e. um 412 milljónir að nafnverði þar sem heildarhlutafé bankans er 10 milljarð- ar, er markaðsverðmæti þess hluta- fjár sem skipti um hendur um 1.770 milljónir samkvæmt því gengi sem til- kynnt var til VÞÍ. „Með gerð samnings þessa verður óbeinn eignarhlutur Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar og Þorsteins Más Bald- vinssonar í Íslandsbanka-FBA hf. gegnum ofangreind félög, 6,87% hjá hvorum, en var fyrir þau 4,81%. Jón Ásgeir Jóhannesson og Eyjólf- ur Sveinsson eru stjórnarmenn í Ís- landsbanka hf.,“ segir einnig í til- kynningunni til VÞÍ. Jón Ásgeir Jóhannesson segir í samtali við Morgunblaðið að verð á bréfum Íslandsbanka sé nú hagstætt og hann líti svo á að hann hafi gert góð kaup. Hann segir óráðið hvort hann haldi þessum eignarhlut eða selji í framhaldinu. Jón Ásgeir segir útilok- að að farið verði fram á hluthafafund áður en að hefðbundnum aðalfundi kemur í vor. Þar sem Eyjólfur er áfram stór hluthafi í bankanum mun hann sitja í stjórn a.m.k. fram að næsta aðalfundi. Jón Ólafsson situr einnig í stjórn Ís- landsbanka. Varamaður í stjórn er m.a. Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar. Jón Ás- geir Jóhannesson og Þorsteinn Már eru báðir stjórnarmenn í Trygginga- miðstöðinni og á milli þessara tveggja félaga hafa tengslin styrkst undanfar- ið. Tryggingamiðstöðin jók hlut sinn í Íslandsbanka verulega í desember, úr 1,3% í 4,3% og Íslandsbanki á einnig 4–5% hlut í TM. Hlutur Eyjólfs í Íslandsbanka í gegnum félögin Dalsmynni, Orca og Blæng hefur nú verið seldur innan Orca-hópsins sem eftir sem áður á a.m.k. 18% í Íslandsbanka. Að Orca standa nú Jón Ásgeir, Jón Ólafsson og Þorsteinn Már. Orca-hópurinn svokallaði og Tryggingamiðstöðin eiga því samtals um 22,3% í Íslands- banka. Að auki á Jón Ólafsson 1,3% um félag sitt Jón Ólafsson og co. og Eyjólfur Sveinsson 1,62% um tengd félög. Kaup Orca-hópsins svokallaða á 26,5% hlut sparisjóðanna í Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins í ágúst árið 1999 vöktu mikla athygli, ekki síst þar sem ekki lá strax fyrir hverjir stóðu að Orca SA og einnig vegna þess að viðskiptin voru talin koma áformum um sölu á 51% hlut ríkisins í bank- anum í uppnám. Eftir nokkurra vikna leynd síðsum- ars árið 1999 kom í ljós að fjórir menn stóðu að Orca SA, þ.e. Eyjólfur Sveinsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Jón Ólafsson og Þorsteinn Már Bald- vinsson. Orca-hópurinn, undir nafni FBA-Holding, jók eignarhlut sinn í 27,99% í FBA þegar mest var undir lok árs 1999. Á vordögum ársins 2000 voru Íslandsbanki og FBA sameinað- ir og varð FBA-Holding eftir sem áð- ur stærsti hluthafi í sameinuðu félagi, með 14,64%. Eyjólfur Sveins- son út úr Orca Hlutur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Þorsteins Más Baldvinssonar í Íslandsbanka er nú 6,87% hvors fyrir sig Eyjólfur Sveinsson OLÍUFÉLAGIÐ hf. birti í gær lista yfir 10 stærstu hluthafa í fé- laginu. Talsverðar breytingar hafa orðið á listanum frá í desember enda hefur eignarhaldsfélagið Traustfang hf., sem var þá stærsti hluthafinn, verið leyst upp og 19,02% eignarhlut félagsins hefur verið skipt niður á eigendur þess, sem voru Vátryggingafélag Íslands, Olíufélagið, Samvinnulífeyrissjóður- inn og Mundill, dótturfélag Sam- skipa. Þá gætir breytinga af sept- emberviðskiptum Olíufélagsins við hluthafa í Samskipum en þeir síð- arnefndu hafa nú eignast eigin bréf Olíufélagsins, þ.á m. þau sem feng- ust úr Traustfangi. Samskipabréfin greidd Þannig tilkynnti Olíufélagið í gær um kaup eigin bréfa að nafnverði rúmar 55 milljónir króna sem svar- ar til 29% eignarhlutar félagsins í Traustfangi. Kaupverð var 10,8 krónur á hlut og fóru kaupin fram 28. desember. Eigin bréf Olíufé- lagsins námu eftir kaupin 62,2 millj- ónum króna að nafnverði en félagið seldi þau öll sama dag á sama verði, þ.e. 10,8. Þar með hefur félagið greitt hluthöfum í Samskipum öll þau Olíufélagsbréf sem voru hluti af greiðslu fyrir hlutabréf í Sam- skipum í september sl. Olíufélagið hf. á eftir þessi viðskipti engin eigin bréf. Vátryggingafélag Íslands er nú stærsti hluthafinn í Olíufélaginu með rúman fimmtungshlut, hefur bætt við sig u.þ.b. 7,3%. Fjárfest- ingarfélagið Straumur hefur einnig bætt sinn hlut, á nú 18,5% en átti um miðjan desember 18,1%. Hlutur Samvinnulífeyrissjóðsins er orðinn 14,4% en var 13,3% líkt og hlutur Váttryggingafélagsins um miðjan desember. Félag Ólafs Ólafssonar með 10,3% Kjalar ehf., sem er í eigu Ólafs Ólafssonar, forstjóra Samskipa og stjórnarmanns í Olíufélaginu og eins forsprakka skiptanna á hluta- bréfum í Samskipum, Olíufélaginu og fleiri félögum í september, fer nú með rúman 10,3% hlut í Olíufé- laginu. Hlutur Kjalars nam 6,9% samkvæmt hluthafalista um miðjan síðastliðinn mánuð. Sund, sem er eignarhaldsfélag í eigu fjölskyldu Óla Kr. Sigurðsson- ar sem jafnan var kenndur við Olís, hefur aukið hlut sinn í Olíufélaginu úr 5,2% í 6,3% með viðskiptum með Samskipabréf. Þá er hlutur J&K eignarhaldsfélags, í eigu Jóns Þórs Hjaltasonar og Kristínar Hjalta- dóttur, 1,8% af sömu ástæðu. Eignarhlutur Mundils, dóttur- félags Samskipa, er tilkominn vegna hlutar í Traustfangi.                                     !         " #  !     $        "      "   # $ %   &' (    )  * & '+,   -            % & ' ( ) * + , - %.       &.'/+ %,'/* %('/. %.&/' *&/) (+/- &*/% %,/& %)/+ %)/* .      % /&/*0 &1&*2 3/3*3    !   VÍS orðið stærsti hlut- hafinn í Olíufélaginu Breytingar á hluthafalista Olíufélagsins í kjölfar slita á Traustfangi VÖRUSKIPTIN við útlönd voru hagstæð um 1,9 milljarða í nóv- ember sl. en fyrstu ellefu mánuði ársins 2001 voru þau óhagstæð um 11,1 milljarð króna. Fluttar voru út vörur fyrir 178,6 milljarða króna en inn fyrir 189,6 milljarða króna fyrstu ellefu mánuði ársins. Halli á vöruskiptum hefur minnkað frá sama tímabili í fyrra en í nóvember í fyrra nam hann 3,8 milljörðum króna en fyrstu ellefu mánuði ársins 2000 voru vöruskipti óhagstæð um 39,7 milljarða króna. Sjávarafurðir voru 62% alls út- flutnings fyrstu ellefu mánuði árs- ins 2001 og var verðmæti þeirra 5% meira en á sama tíma árið áð- ur, að því er fram kemur í frétt Hagstofu Íslands. Verðmæti vöru- útflutnings var alls 12,9 milljarðar eða 8% meira en árið 2000. Verð- mæti vöruinnflutnings fyrstu ell- efu mánuði ársins var 15,7 millj- arðar eða 8% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Af ein- stökum vöruflokkum hefur orðið mestur samdráttur í innflutningi á flutningatækjum, aðallega fólks- bílum, að því er fram kemur í frétt Hagstofunnar. " #    %                          !"#$%    &   '    -)*.                    -)*.            !    "!#   !" # $%&'&"&  ( )   & '  $  $! % *+ (  * " &"&" "& &,  $ &-  *   &!  '  (           .&//$ 0&11$  &.$      &0$/ 0&1$  1$/ 0&/$0 &11$0    &.$ 1&/$. /&0/$ 0&0$1      !!     0.&0$ 1&/$0   &0$ "    &10$ 1&111$ /.$1 0&111$ 0&$     &$ &0$1 .&1$0 .&//$     ! ! # $ 20$/3 2$.3 2$.3 4.$/3  $   41$ 2    2.$13 4 41$      41$03 41$13 4/$ 20$.3     %&'()*+, - +.%,/ &     '  ! ()! -)*    .   ! ()   ! ()! Vöruskiptahalli fer minnkandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.