Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 29 Hverfisgötu 105 Reykjavík • sími 551 6688 www.storarstelpur.ehf.is STÓRAR STELPUR Tískuvöruverslun Ú TS A LA Ú TS A LAVÍNARTÓNLEIKAR Sinfón-íuhljómsveitar Íslands eru jafn ár- vissir og koma farfuglanna, en þegar nýtt ár er gengið í garð er það víst að ekki líður á löngu áður en hljómsveitin stillir strengi sína að hætti Vínarmeistaranna. Stjórnandi er Peter Guth og með honum í för eru söngkonan Gabr- iele Fontana og tveir dansarar frá Vínaróperunni. Tónleikarnir verða í Laugardalshöll í kvöld kl. 19.30 og á morgun kl. 17.00. Peter Guth og Sinfóníuhljóm- sveit Íslands hafa hefðina í heiðri og leika safn verka eftir valsa- kónginn Johann Strauss yngri ásamt tónlist brautryðjenda Vín- arvalsins, Joseph Lanner og Jó- hann Strauss eldra, og tónlist óperettumeistarana Franz Lehár og Oscar Strauss lifnar einnig við og kemur sennilega fáum á óvart að rekast á þessi nöfn á efnis- skránni. GuiseppeVerdi er hins- vegar sjaldséðari gestur á sam- komum af þessu tagi, en afar velkominn, að sögn Sinfón- íumanna, enda er hundruðustu ár- tíðar hans á síðasta ári enn minnst víða um heim. Syngur jafnt Wagner sem Vínartónlist Sópransöngkonan Gabriele Fontana á að baki glæstan feril sem söngkona og er þekkt fyrir fjölhæfni sína í söngnum, þar sem hún syngur jafnt í óperum Wag- ners sem óperettum Vínarmeist- aranna og óperum Mozarts og Richards Strauss. „Ég er það sem kallað er lýrískur-dramatískur sópran og syng hlutverk í óperum Richards Strauss, Wagners, Moz- arts, segir Gabrielle Fontana. Aðspurð um það hvort ekki sé langur vegur milli Wagners og Straussfeðganna í Vínarborg, seg- ir hún það rétt, en að það sé dásamlegt að takast á við Vín- armúsíkina inn á milli alvörugefn- ari tónskáldanna. „Vínartónlistin er svo elskuleg og ljúf, og færir bæði hlustandanum og söngv- aranum mikla gleði, en þó er alls ekki auðvelt að syngja hana. Fólk heldur gjarnan að vegna þess að óperettutónlist sé létt áheyrnar, þá sé hún líka létt í flutningi. Þvert á móti, þá krefst hún mikils af söngvaranum. Hann þarf að sýna mikil blæbrigði í röddinni, geta sungið létt, vera heillandi og fynd- inn, og allt þarf að vera sungið mjög skýrt og afar nákvæmlega eigi flutningurinn að heppnast og vera góður; þessu áttar fólk sig ekki alltaf á.“ Langþráður draumur að syngja á Íslandi Þetta er fyrsta heimsókn Gabr- iele Fontana til Íslands. Hún segir þó að hún hafi lengi átt sér þann draum að koma hingað til að syngja. „Ég lærði að syngja í Aka- demíunni í Vínarborg, og einn besti kennari minn þar var Erik Werba, sem Íslendingar þekkja, því hann heimsótti ykkur oft og vann mikið með íslenskum söngv- urum. Hann vildi endilega að ég kæmi með honum til Íslands að syngja ljóð. Við ætluðum alltaf að gera þetta, en ekkert varð úr því. En hann talaði mikið og fallega um Ísland og það hefur verið lang- þráður draumur að komast hing- að. En síðan þetta var hef ég kynnst mörgum Íslendingum sem hafa sungið með mér í óp- eruhúsum víða í Evrópu, og það hefur líka aukið löngun mína til að koma hingað.“ Valsinn varasami Vínartónlistin er byggð á grunni þeirra dansa sem vinsælastir voru í Vín á nítjándu öld, valsins, gal- oppsins, polkans og kvadriljunnar en til að gera sér grein fyrir vin- sældum valsins þegar í lok átjándu aldar er nóg að vitna í tölublað þýska tímaritsins Journal des Lux- us und der Moden frá því í mars 1792: „Valsar og ekkert annað en valsar eru nú í svo mikilli tísku hér í Berlín að á dansleikjum er ekki litið við öðru; maður þarf bara að kunna að dansa vals til að vera á grænni grein.“ Uppgangur valsins mætti þó mótstöðu úr ýmsum átt- um. Dansinn þótti varasamur jafnt af læknisfræðilegum sem siðferð- islegum sökum. Hraðinn sem menn hringsnerust á um dansgólfið þótti beinlínis hættulegur heilsu fólks og hin nána snerting dansaranna var af sumum litin mjög alvar- legum augum. Árið 1797 birti Sal- omo nokkur Jakob Wolf pésa sem hann nefndi „Sönnun þess að vals- inn er ein af meginástæðum veik- leika sálar og líkama kynslóðar okkar.“ Framrás þessa lífseiga dans varð þó ekki stöðvuð og í Vín var aldrei nokkur spurning um hvaða dans nyti mestrar hylli á nítjándu öld. Frægir dansarar Dansarar á Vínartónleikunum eru Roswitha Over og Christian Musil. Roswitha er Vínarbúi og hefur verið sólódansari í ball- ettflokki Vínaróperunnar frá 1988. Christian Musil er einnig Austurríkismaður og kominn af mikilli listamannaætt. Hann hefur dansað víða um heim, en heimasvið hans er Vínaróperan þar sem hann hefur verið sólódansari frá 1991. „Veitir ekkert af húmor og gleði“ Morgunblaðið/Golli Stjórnandinn Peter Guth og söngkonan Gabriele Fontana. KALDALÓNSTÓNLEIKUM, sem vera áttu í Salnum í kvöld, er frestað vegna veikinda. Tónleikarnir verða haldnir fimmtudaginn 10. janúar kl. 20. Kaldalónstón- leikum frestað DAVÍÐ Ólafsson bassasöngvari verður annar í röð íslenskra söngv- ara sem Íslenska óperan ræður í fast starf. Davíð hefur verið fast- ráðinn við Óp- eruna í Lübeck í Þýskalandi síð- ustu tvö ár, en kemur til starfa á Ís- landi í haust. Davíð segir að íslenskir óperusöngvarar séu orðnir mjög fjöl- menn stétt sem hafi hingað til ekki átt atvinnumöguleika á Íslandi, og því sé þetta stórkostlegt tækifæri fyrir sig. „Ég er ungur bassi, og úti er ég yf- irleitt settur í hlutverk eldri manna, sem ég er bara ekki orðinn nógu gam- all í. Þess vegna ákvað ég að koma heim og syngja í þeim sýningum sem Óperan verður með hér, en nota tím- ann milli sýninga til að heimsækja kennara erlendis og syngja hlutverk sem mér bjóðast úti og henta mér. Ís- lenska óperan vill gefa söngvurum sínum tækifæri til að gera þetta, því sú reynsla er dýrmæt bæði fyrir söngvarann og Íslensku óperuna. Ég hlakka mjög til að koma heim og mér finnst það frábært framtak hjá ís- lenska ríkinu að vilja þakka fyrir sig, með því að styrkja Óperuna til þess að geta gefið íslenskum söngvurum kost á vinnu hér heima.“ Davíð hefur þegar verið ráðinn til að syngja á sumaróperuhátíðinni í Merzig í Þýskalandi; – þar syngur hann í sumar hlutverk Don Basilios í Rakaranum í Sevilla eftir Rossini, en fyrsta hlutverk hans hér heima verð- ur hlutverk Doktors Bartolos úr sömu óperu. „Ég verð búinn að læra bæði bassahlutverk óperunnar í árs- lok, og það var einmitt draumurinn að geta sungið gamanbassahlutverk eins og hjá Rossini.“ Davíð segist enn hafa trygga atvinnumöguleika í Þýskalandi, og honum hefur verið boðið að syngja fyrir nokkur stór óp- eruhús þar í landi. En Ísland verður hans heimavöllur frá haustdögum og tími til kominn að Þjóðverjar fái loks að bíða meðan Íslendingar njóta sinna eigin söngvara. Davíð Ólafsson syngur ásamt kró- atíska tenoórsöngvaranum Tomislav Mužek á nýárstónleikum Íslensku óperunnar á morgun kl. 16.00, en pí- anóleikari með þeim verður Ólafur Vignir Albertsson. Óperan ræður Davíð Davíð Ólafsson bassasöngvari ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.