Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 41 ✝ Fanney Sig-tryggsdóttir fæddist á Stóru- Reykjum í Reykja- hverfi í S.-Þing 23. janúar 1911. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 19. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sig- tryggur Hallgríms- son, f. 29. maí 1883, d. 27. sept. 1979, og Ásta Lovísa Jónas- dóttir, f. 19. des. 1873, d. 17. febr. 1965. Systkin Fanneyjar voru Laufey, f. 1905, d. 1933, Garðar, f. 1909, d. 1996, og Óskar, f. 1914, d. 1998. Fanney giftist 2. júlí 1967 Páli H. Jónssyni, kennara og rithöf- undi, f. 5. apr. 1908, d. 10. júlí 1990. Börn hans og fyrri konu hans, Rannveigar Kristjánsdóttur frá Fremstafelli, f. 1. ág. 1908, d. 31. mars 1966, eru Sigríður, f. 21. febr. 1930, gift Þórhalli Her- mannssyni, f. 12. nóv. 1927, þau eiga sex börn; Aðalbjörg, f. 21. febr. 1935, gift Kristmundi Ingv- ari Eðvarðssyni, f. 3. okt. 1935, d. 1974, þau áttu þrjú börn, skildu, síðari maður Aðalbjargar er Þór- steinn Glúmsson, f. 3. janúar 1933, þau eiga þrjú börn; Dísa, f. 10. mars 1937, gift Árna Að- alsteinssyni, f. 7. nóv. 1935, þau eiga tvö börn, skildu, sambýlismaður hennar er Björn Óla- son, f. 24. sept. 1954; Heimir, f. 28. apríl 1944, kvæntur Guð- björgu Sigmunds- dóttur, f. 17. júlí 1945, þau eiga þrjú börn; Páll Þorlákur, f. 27. okt. 1949, kvæntur Jóhönnu Magnúsdóttur, f. 6. júní 1952, þau eiga þrjú börn. Fanney og Páll bjuggu fyrst á Laugum en frá 1975 á Húsavík. Fanney stundaði nám við Al- þýðuskólann á Laugum 1929–30, og Húsmæðraskólann á Laugum 1936–37. Sótti handavinnunám- skeið á Siglufirði 1931 og 1942– 43, stundaði nám í Reykjavík og lauk handavinnukennaraprófi 1957. Kennari við Húsmæðraskól- ann á Staðarfelli 1944–46, Hús- mæðraskólann á Laugum 1946– 75, skólastjóri í forföllum 1961–62 og 1966–67. Útför Fanneyjar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þeim fækkar hratt um þessar mundir sem settu svip sinn á heims- mynd lítils drengs norður á Laug- um um miðbik síðustu aldar. Jón föðurbróðir í Fremstafelli kvaddi fyrir nokkrum vikum, Erlendur mágur hans Konráðsson skömmu síðar, Ingólfur í Vallholti – „Ing- ólfur fóstbróðir“ eins og faðir minn kallaði hann jafnan – rétt fyrir jólin og nú, föstudaginn 4. janúar, fylgj- um við systkinin frá Hvítafelli, börn Rannveigar Kristjánsdóttur og Páls H. Jónssonar, stjúpu okkar, Fann- eyju Sigtryggsdóttur, til moldar. Allt er þetta í miklu og góðu sam- ræmi við lögmál lífs og dauða, en allt snertir það samt viðkvæmar taugar, kallar fram minningar sem eins og gengur eru bæði ljúfar og sárar en verða til þess að skerpa línur í myndinni sem þeir sem eftir lifa hafa í huga sér. Fanney var hluti af minni heims- mynd alveg frá því ég mundi fyrst eftir mér. Hún kom handavinnu- kennari að Húsmæðraskólanum á Laugum tveim vetrum eftir að ég fæddist en hafði áður kennt að Staðarfelli í Dölum vestur. Móðir hennar, Ásta, og amma mín, Rósa, töldu til frændsemi og kölluðu hvor aðra jafnan frænku. Fanney varð fjölskylduvinur og rétti oft hjálp- arhönd þegar þurfti að sníða og sauma á stækkandi fjölskyldu. Ein fyrsta minning mín tengist því að Fanney átti eitt af undrum veraldar. Heima í Hvítafelli taldist til verstu afglapa ef maður steypti niður úr títuprjónadósinni. Í heim- sóknum hjá Fanneyju varð það meginskemmtun. Því hún átti svo stórfenglegan járnbút að títuprjón- arnir eltu hann, rétt eins og rott- urnar í ævintýrinu eltu flautuleik- arann. Tímum saman gat ég leikið mér að þessu undri og ráðgáta seg- ulstálsins varð mér efni til mikilla vangaveltna. Þótti mér mikið til um Fanneyju að hún skyldi eiga þvílíkt náttúruundur. Það er ekki á mínu færi að segja margt um kennslu Fanneyjar, hvorki á Staðarfelli né Laugum. Hitt veit ég að fjöldi jólakorta frá nemendum hennar segir sína sögu sem og heimsóknir námsmeyja sem voru að fagna skólaafmælum. Henni var treyst fyrir umsjón með fé- lagslífi nemenda langtímum saman og hún kunni ýmislegt að segja frá þeirri reynslu þótt ekki verði rakið hér. Árin liðu. Fanney kenndi á Laug- um en við fluttumst til Reykjavíkur. Vináttan hélst og þegar faðir okkar varð ekkjumaður ákváðu þau Fann- ey að stofna til hjúskapar. Ég veit að það var ekki skyndiákvörðun en samt var hún ekki auðveld. Fanney hafði búið ein alla ævi. Hún hafði varið miklum tíma til að styðja for- eldra sína og bræður. Bræðrabörn- in áttu ást hennar og alúð. Manns- efnið átti fimm börn og barnabörnunum fjölgaði stöðugt. Þar að auki vissi hún mætavel að Páll gekk ekki heill til skógar. Löngu seinna sagði hún mér frá hugsunum sínum og áhyggjum. „En ég sagði sem svo að ef guð gæfi okkur pabba þínum fimm hamingju- ár saman þá væri það þess virði! Mér fannst seinna að þetta hefði verið samningur við æðri máttar- völd og það voru skelfilegir dagar þegar fyrstu fimm árunum var að ljúka!“ En ár Fanneyjar og Páls urðu ekki aðeins fimm heldur 23 og á þeim árum sýndi Fanney að gáfur hennar og mannskilningur dugðu henni til þess að axla hlutverk sem var gerólíkt öllu því sem hún hafði áður reynt. Faðir minn kvæntist móður minni tvítugur að aldri og þurfti konungsleyfi til. Fyrir konu sem búið hefur einhleyp heilan manns- aldur hlýtur það að stofna heimili með manni sem lifað hefur fjöl- skyldulífi frá ungum aldri ævinlega að jafnast á við að hefja nýtt líf. Þegar við bætist að makinn á fimm uppkomin börn og fjölda barna- barna og búið er við margvíslegum árekstrum þá verður verkefnið býsna flókið. Og það var lærdóms- ríkt að fylgjast með hvernig Fann- ey tókst á við þetta verkefni, hvern- ig hún lærði smám saman tökin á því að vera staðgengill ömmu, verða hluti af fjölskyldu sem hún þekkti að vísu fyrir, en þá í allt öðru sam- hengi. Hún var bæði gáfuð og skap- mikil kona og hún stóð eins og skáldið á rétti sínum þótt hún krypi fyrir nýjum aðstæðum. Af skiljanlegum ástæðum varð Fanneyju og Páli ekki barna auðið. En á því heimili sem þau reistu saman fæddust samt þjóðkunn börn. Þar fór Berjabítur fyrstur en síðan komu þau Agnarögn og Lambadrengur. Og þegar sjón hús- bóndans tók að hraka fór hann að velta fyrir sér heimi myrkursins og Blindálfar skriðu út úr nálægum hólum. Saman bjuggu þau hjónin til nytjalist og skrautmuni sem prýða hýbýli ættingja og vina. Á heimili þeirra var sköpun heimsins haldið áfram eins og þau töldu hverjum manni skylt. Að ferðalokum flyt ég stjúpu minni þakkir fyrir þau ár sem hún varði til að veita föður mínum nýja lífsgleði og hlúa að sköpunargáfu hans, og þá kveðju flyt ég fyrir hönd allra systkinanna frá Hvíta- felli, maka þeirra og afkomenda. Blessaðar séu allar góðar minning- ar um Fanneyju Sigtryggsdóttur. Heimir Pálsson. Þegar þú komst í heiminn gréstu en þínir nánustu voru glaðir. Lifðu þannig, að þegar þú ferð gráti þínir nánustu en þú sjálfur verðir glaður. (Sören Kierkegaard.) Ég held að ömmu Fanneyju hafi tekist þetta, að minnsta kosti grét ég þegar ég frétti að hún væri farin og ég hef mikla trú á því að hún sé glöð þar sem hún er. Miðað við ævi langömmu hef ég ekki lifað mjög lengi en þessi tæp 18 ár sem ég hef þó lifað get ég ekki annað en verið þakklát fyrir að hafa alist upp með hana sem lang- ömmu. Alltaf var svo hlýtt og nota- legt að koma til hennar og hún var höfðingi heim að sækja og hafði líka alltaf nægan tíma fyrir okkur börn- in og ég mun aldrei gleyma því hve gott það var að sitja í fangi hennar á meðan hún las upp úr einhverri barnabók fyrir mig. Í nokkur ár eft- ir að afi Páll dó hélt amma Fanney upp á jólin hjá okkur á Baughólnum og er það alveg ótrúlegt hversu ró- leg hún var alltaf á aðfangadags- kvöldum hjá okkur. Það gat verið mikið líf og fjör í okkur systkinun- um eins og oft verður þar sem við fimm erum saman komin og er það alls ekki allra að umbera. Hún tók öllum látunum í okkur með sínu jafnaðargeði og ég finn það best nú að það vantar alltaf þessa kyrrð og ró sem fylgdi henni þegar hún var hjá okkur. Ömmu Fanneyjar verður saknað en ég þakka fyrir það að hafa fengið að kynnast henni og ég vona svo sannarlega að hún hafi það gott á þeim góða stað sem hún nú er á og sendi henni mínar bestu kveðjur þangað. Fyrir hönd fjölskyldu minnar, Þórdís Edda Jóhannesdóttir. Tuttugasta öldin sýndi börnum sínum í meira en tvo heimana, því- líkar breytingar sem hún bauð upp á er vart hægt að hugsa sér að muni verða í annan tíma. Þeir sem muna þá öld nær alla eru óðum að hverfa burt af sjónarsviðinu. Ein af þeim er Fanney Sigtryggsdóttir frá Stóru-Reykjum í Suður-Þingeyjar- sýslu, hún fæddist 23. janúar 1911 en lést 19. desember 2001. Það er langur vegur frá því að vera alinn upp í torfbæ í sveit, fram til þess „upplýsta“ samfélags sem við nú þekkjum. – En fortíðin er ávallt í farteskinu. Fram yfir miðja öldina notaði Fanney flestar sínar frístundir til að létta undir með for- eldrum sínum við bústörfin, sem voru unnin að þeirrar tíðar hætti, það var gripin hrífa eða kvísl, það var sest upp á rakstrarvél þar sem hryssan Stjarna var spennt fyrir, eða mjaltafatan gripin til að tutla mjólkina úr Rauðku gömlu. – Úr safni minninganna er ekki auðvelt að kalla fram mynd af Fanneyju þar sem hún ekki hafði eitthvað fyr- ir stafni. Á sínum yngri árum var Fanney heilsuveil og kynntist af eigin raun lífinu á Kristneshæli (sem þá hét svo). Þar mætti margt ungt fólk óblíðum örlögum sínum og minning- arnar þaðan voru þess eðlis að þær voru yfirleitt ekki ræddar, fyrr en nú á síðustu árum að þær fóru að brjótast upp á yfirborðið. Þessir tímar voru henni tímar þroska og náms og höfðu áhrif á lífsviðhorf hennar og starfsval. Starfsárum sínum nær öllum varði hún til að kenna verðandi hús- mæðrum fatasaum og hannyrðir við Húsmæðraskólann á Laugum í Reykjadal. Þar voru allir í heima- vist. Kennarar höfðu þau forréttindi fram yfir nemendur að hafa sér- herbergi á vistinni, en aðbúnaður var annars sá sami. Það voru því mjög takmarkaðir möguleikar til að lifa sínu eigin lífi utan vinnutíma, 3 til 4 gestir í einu var hámark, því fleiri komust ekki inn í litla vistlega herbergið hennar. Að sjálfsögðu var allur umgangur utan þess tíma sem taldist „skikkanlegur“ í skólanum illa séður og ekki til fyrirmyndar. Fanney átti ekki börn sjálf – en enga konu þekki ég sem átt hefur annan eins hóp barna. Okkur systk- inabörnum sínum og síðar fjölskyld- um okkar var hún Frænka með stórum staf, og það var alltaf greinilegt að hún bar velferð hvers og eins fyrir brjósti líkt og um hennar eigin börn væri að ræða. 2. júlí 1967 giftist Fanney Páli H. Jónsyni frá Laugum og þá stækkaði barnahópur hennar til mikilla muna, því þar eignaðist hún 5 börn og vænan hóp barnabarna. Frá þeim kafla í lífi hennar greinir að nokkru í hugljúfri sögu um fuglinn Berjabít og Afa og Ömmu í Holtinu, sem Páll skrifaði á þeirra góðu ár- um í Holtinu; þar segir svo: „Mikil lukkunnar börn eru Amma og Afi. Gluggarnir þeirra vita beint út að Holtinu. Það er ekki nema steinsnar í næstu tré. Líti þau út um glugga er Holtið heimurinn. Þar sjá þau vorið koma. Þar horfa þau á sumarið. Þar gefur þeim haustið á að líta. Þar birtist þeim veturinn. Þar heyra þau óðinn til hamingj- unnar, æfðan á morgnana, fluttan á kvöldin. Það eru lukkunnar börn sem hafa slíka veröld við gluggann sinn.“ Er störfum Fanneyjar lauk á Laugum fluttu þau til Húsavíkur, heilsu Páls tók að hraka og annaðist Fanney hann af þeirri natni og kostgæfni sem henni einni var lagið. Fyrst bjuggu þau við Hjarðarhól, en 19. desember árið 1985 fluttu þau í Litla-Hvamm þar sem þau eyddu síðustu árunum sem þau áttu saman, þar til Páll lést 10. júlí 1990. Það fór vel á því að þau fluttu í litla húsið sitt þennan dag, því 19. desember var alltaf sérstakur dag- ur í lífi Fanneyjar – það var afmæl- isdagur móður hennar og þann dag var alltaf haldið uppá. – „Í gamla daga“ þegar hún kom heim til for- eldra sinna í jólafrí bar það oftast upp á hinn 19. og þá var veisla – kakó og kökur. Þá voru systkina- börnin í nágrenninu viss um að jólin væru alveg að koma þegar Fanney var komin í „frí“. – Börnin báru ekkert skynbragð á það, að nú beið hennar mikil vinna við undirbúning jólanna, það var þrifið og pússað, breitt út laufabrauð og bakað, en aldrei var amast hið minnsta við krakkaöngunum sem voru að snigl- ast í kring og vildu sjá sem allra mest af þessari uppáhalds Frænku sinni. Enn er kominn 19. desember og nú á nýrri öld. Fanney hafði verið lasin undanfarna daga og dvalið á sjúkrahúsinu á Húsavík. Meiri tækni á Akureyri gerði það að verk- um að hún var send snögga ferð til rannsóknar þangað. – Ég var svo lánsöm að fá fréttir af þessari ferð og beið hennar þar. Bein í baki eins og henni var lag- ið og brosandi kom hún til móts við mig, ásamt fylgdarkonu sinni. – Við gengum saman inn ganginn og ræddum skammdegismyrkrið, sem væri nú ekki svo dimmt, því jóla- ljósin lýstu upp hvert sem litið væri. Er við vorum rétt sestar á bið- stofunni greip Fanney andann á lofti – ég spurði hvort hún fyndi einhversstaðar til; – „Nei, það held ég ekki,“ sagði hún rólega, það voru hennar síðustu orð – hún var farin. – Hún kvaddi þetta líf með sama æðruleysinu og sömu reisninni og hún hafði lifað því. Það var eins og segir í niðurlagi bókarinnar um Berjabít: „Í lok kaflans tóku tónarnir að streyma burtu í allar áttir, út í geiminn, þaðan sem þeir komu. Ljósin á trjánum slokknuðu. Allt var dauðahljótt og myrkur í Holt- inu. Hálfur jólamáni skein á milli skýja í suðaustrinu, og ein skær stjarna blikaði við hlið hans.“ Blessuð sé minning Fanneyjar frænku. Ásta Garðarsdóttir. FANNEY SIGTRYGGSDÓTTIR ✝ Hrafn Ragnars-son fæddist á Staðarhóli á Akur- eyri 15. maí 1944. Hann lést í Lands- spítalanum við Hringbraut 21. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Lilja Oddsdóttir, f. 15. október 1903, d.10. apríl 1991, og Ragnar Brynjólfsson, f. 17. júlí 1904, d. 24. júní 1964. Hrafn var næstyngstur tíu systkina, þau eru: Hrafnhildur, f. 1924, látin, Hjör- dís, f. 1929, Valur, f. 1930, Örn, f. 1932, látinn, Brynja, f. 1934, látin, Oddur, f. 1937, látinn, Ragn- ar, f. 1939, Dóra, f. 1941, látin, og Ingi- björg, f. 1947. Hrafn fluttist með fjöl- skyldu sinni 1945 til Reykjavíkur. Hann veiktist barn að aldri og var á sjúkrahús- um og stofnunum langdvölum. Síðast- liðin 15 ár bjó Hrafn í Hátúni 12. Útför Hrafns fer fram frá Fossvogs- kapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Systkinin. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Þorbjörg. HRAFN RAGNARSSON                   ! " #$!!%      
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.