Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 56
DAGBÓK 56 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sten Odin kemur og fer í dag, Rollnes kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Snorri Sturluson kom í gær. Trinket og Flor- entina fóru í gær. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 leikfimi og vinnustofa, kl. 12.45 dans, kl. 13 bókband, kl. 14 bingó. Árskógar 4. Kl. 13– 16.30 opin smíðastofan. Allar upplýsingar í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–12 bók- band, kl. 9–16 handa- vinna, kl. 10–17 fótaað- gerð, kl. 13 spilað í sal og glerlist. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum verður lokað til 8 janúar. Ósk- um öllum gleðilegra jóla og farsæls kom- andi árs. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18–20. Kl. 9– 12 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- stofan opin, kl. 9 opin handavinnustofan. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin op- in, kl. 13. „Opið hús“, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Mán. 7. jan. kl. 11.15 og kl. 12.15 leikfimi. Mið. 9. jan. kl. 15 í Kirkjuhvoli, kynn- ingardagur á tóm- stundastarfinu á vetr- arönn, skráning í hópastarf, sem byrjar 14. janúar. Fimmt. 10. jan. félagsvist á Álfta- nesi kl. 19.30. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Dagskráin í Hraunseli hefst aftur mánudaginn 7. jan. Með pútti í Bæj- arútgerð kl. 10–11:30 og Félagsvist kl. 13:30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Glæsibæ. Kaffistofan opin alla virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Sunnudagur 6. janúar, dansleikur Ásgarði, Glæsibæ kl. 20, Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur 7. janúar, brids kl. 13. Dans- kennsla Sigvalda kl. 19 framhald og kl. 20.30 byrjendur. Þriðjudagur 8. janúar skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9.45. Línudanskennsla Sigvalda kl. 19.15. Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbein- ingar um þau mál á skrifstofu FEB mánu- daginn 14. janúar nk., panta þarf tíma. Silf- urlínan er opin á mánu- dögum og mið- vikudögum frá kl. 10–12 Skrifstofa félags- ins er flutt að Faxafeni 12 sama símanúmer og áður. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10–16 í síma 588-2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 myndlist og rósamálun á tré, kl. 9–13 hár- greiðsla, kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14. brids. Opið alla sunnudaga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Opið frá 9–16.30, m.a. spilasalur opinn eftir hádegi. Veitingar í veit- ingabúð. Myndlist- arsýning Bryndísar Björnsdóttur stendur yfir. Mánudaginn 7. janúar kl. 13.30–14.30 bankaþjónusta. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 13 bókband. Gullsmári, Gullsmára 13. Kynning á vetr- ardagskránni janúar til maí verður í Gullsmára föstudaginn 4. janúar kl. 14. Á sama tíma verður skráning á þau námskeið sem fyr- irhuguð verða. Fólk er hvatt til að koma og kynna sér hvað í boði er. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9– 12 baðþjónusta, kl. 9– 17 hárgreiðsla og fóta- aðgerðir, kl. 9 handa- vinna, bútasaumur, kl. 11 spurt og spjallað. Bingó kl. 14. Kaffiveit- ingar. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, leikfimi og postulín, kl. 12.30 postulín. Fótsnyrting og hársnyrting. Norðurbrún 1. Kl. 9–13 tréskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10 boccia. Vesturgata 7. Dagskrá hefst sem hér segir: Boccia 7. janúar kl. 10. Bútasaumur 8. janúar kl. 9.15. Myndlist 9. janúar kl. 9.15. Postulín 9. janúar kl. 9.15. Sund 9. janúar kl. 8.25. Kór- æfing 10. janúar kl. 13. Fimmtudaginn 10. jan- úar verður helgistund. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, dóm- kirkjuprestur, Kór fé- lagsstarfs aldraðra undir stjórn Sig- urbjargar Petru Hólm- grímsdóttur. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerðir, kl. 12.30 leirmótun, kl. 13.30 bingó. Bridsdeild FEBK, Gjá- bakka. Brids kl. 13.15 í dag. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fannborg 8 kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13 kl. 10 á laug- ardögum. Ungt fólk með ungana sína. Hitt húsið býður ungum foreldrum (um 16–25 ára) að mæta með börnin sín á laug- ard. kl. 15–17 á Geysi, kakóbar, Aðalstræti 2. (Gengið inn Vest- urgötumegin). Opið hús og kaffi á könnunni, djús, leikföng og dýnur fyrir börnin. Itc-deildin Fífa, Kópa- vogi heldur bókarkynn- ingarfund laugardaginn 5. janúar kl. 12.05– 14.05 í kaffistofu Lista- safns Kópavogs, Gerð- arsafni. Upplýsingar gefur Guðbjörg Frið- riksdóttir, s. 586-2565. Minningarkort Minningarkort, Félags eldri borgara, Selfossi, eru afgreidd á skrif- stofunni, Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stang- arhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysa- varnafelagid@lands- bjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561- 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553- 9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minning- arkort Kvenfélagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555-0104 og hjá Ernu s. 565-0152. Minningakort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552-4994 eða síma 553-6697, minning- arkortin fást líka í Há- teigskirkju við Háteigs- veg. Í dag er föstudagur 4. janúar, 4. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin. (Orðskv. 17, 22.) 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 mjallhvítt, 8 innt eftir, 9 sundrast, 10 rekkja, 11 böggla, 13 fyrir innan, 15 slæm skrift, 18 tími, 21 ungviði, 22 koma undan, 23 heiðursmerkið, 24 djöfullinn. LÓÐRÉTT: 2 framleiðsluvara, 3 lasta, 4 hiti, 5 refurinn, 6 saklaus, 7 skordýr, 12 hrós, 14 veiðarfæri, 15 skikkja, 16 frægðarverk, 17 fiskur, 18 spé, 19 grjótið, 20 ruddi. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ljúft, 4 mölva, 7 kerru, 8 grund, 9 tón, 11 ausa, 13 sauð, 14 skera, 15 fólk, 17 gröm, 20 far, 22 fróða, 23 játar, 24 sötra, 25 lausa. Lóðrétt: 1 lokka, 2 útrás, 3 taut, 4 magn, 5 lauga, 6 and- úð, 10 ópera, 12 ask, 13 sag, 15 fífls, 16 ljótt, 18 rytju, 19 myrða, 20 fata, 21 rjól. K r o s s g á t a Víkverji skrifar... VÍKVERJI eyddi dágóðri stundmeð tugum eða hundruðum annarra í biðröð fyrir framan Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins í Kringlunni á gamlársdag. Allir fengu afgreiðslu að lokum og starfs- fólk ÁTVR sýndi mikla lipurð, en Víkverja finnst nú samt að örtröðin í vínbúðum um alla borg á gamlárs- dag beri íslenzkri áfengispólitík fremur dapurlegt vitni. Víkverji varð ekki var við neina örtröð í öðr- um verzlunum, ekki einu sinni í flug- eldasölunni. Ríkisbúðin annar bara greinilega ekki svona toppi í eftir- spurn. Ef léttvín fengist í matvöru- verzlunum, eins og víðast hvar í hin- um siðmenntaða heimi, væri þetta vandamál leyst; fólk kippti einfald- lega með sér rauðvínsflösku með matnum og freyðivínsflösku til að skála um áramótin um leið og það keypti kalkúninn. x x x HITT er svo annað mál að rík-isvínbúðirnar fara skánandi. Víkverji er t.d. ánægður með þær breytingar, sem gerðar hafa verið á búðinni í Kringlunni, sem nú heitir Vínbúð og er öll mun vistlegri en áð- ur, auk þess sem léttvíni er gert hærra undir höfði í hillunum. Það er í takt við breyttar neyzluvenjur landans. Þá er breytingin á af- greiðslutíma verzlunarinnar til bóta, þótt Víkverji skilji ekki af hverju vínbúðir í verzlanamiðstöðv- um geta ekki haft opið jafnlengi og aðrar búðir í þessum sömu verzl- anamiðstöðvum. x x x Á VEFRITINU Múrnum, semungir róttæklingar halda úti, er athyglisverður pistill um jóla- sveininn, sem Víkverji stenzt ekki mátið að vitna í: „Staðreyndin er sú að trú á jóla- sveininn er kjánaleg og engu barni er greiði gerður með því að logið sé að því. Sjálfsagt er að leyfa börnum að trúa á heim sem er fullur af kynj- um og ævintýrum. Raunar er engin hætta á öðru en að þau geri það því að börn skilja hluti eigin skilningi, hvort sem fullorðnir ljúga að þeim eða ekki. Það er ekki heldur neitt at- hugavert við að fullorðnir velti fyrir sér undrum tilverunnar. En ef menn halda að þeir séu að gera líf barna sinna ævintýralegt með jólasveins- lyginni eru þeir að misskilja margt. Þegar allt kemur til alls er jóla- sveinninn fyrst og fremst borgara- leg stofnun sem hefur þann tilgang að tryggja misréttið í samfélaginu. Trú á yfirnáttúrulegar feitabollur sem komi með gjafir getur sætt hina fátæku við hlutskipti sitt. Með því að ljúga að börnum sínum staðfesta fullorðnir vald sitt yfir þeim. Og með hverri sykurvellukvik- myndinni á fætur annarri um mik- ilvægi þess að trúa á jólasveininn sendir kvikmyndaauðvaldið frá sér mikilvæg skilaboð: Þekking er hættuleg. Fáfræði er góð. Það er gott að trúa á hið góða fyrir handan í stað þess að taka eftir hinu illa í þessum heimi.“ x x x FLEST er nú orðið að kúgunar-tæki auðvaldsins, segir Vík- verji nú bara. Vesalings jólasveinn- inn ekki undanskilinn. Óli lokbrá og tannálfurinn eru sennilega hættu- legir útsendarar kapítalismans líka. Hvar ætli Karíus og Baktus, sem eru einkar raunveruleg ógn í huga margra barna, flokkist hjá þeim Múrverjum? Kvörtun undan dagskrá ÉG ER búinn að lesa tvisv- ar að fólk er að kvarta und- an lélegu sjónvarpsefni á RÚV. Eitt skil ég samt ekki. Á Íslandi eru fleiri stöðvar en bara RÚV, með- al annars Stöð 2 sem var með góða dagskrá um jólin. Í staðinn fyrir að kvarta ætti fólk bara að horfa á eitthvað annað en RÚV með börnunum sínum. Einnig er til stöð sem heitir Skjár Einn. Einn hissa. Tapað/fundið Gullarmband týndist GULLARMBAND tapað- ist hinn 16. des. sl. Þetta er þrílitt gullarmband ( gult- rautt-hvítt), eintómir hringir . Eigandi var þenn- an dag í IKEA, við Holts- búð í Garðabæ, bensínstöð við Garðatorg og Ársali 5 í Kópavogi. Armbandið hef- ur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eiganda. Finn- andi vinsamlega hringi í síma 554 5701 Sigurbjörg, 561 4707 og/eða 569 1209 Berglind. Gleraugnaveski týndist SÍÐLA hausts tapaðist gleraugnaveski úr bláu rú- skinni sem opnast með fjaðuropnun í endann. Í því var sérsniðin sólgleraugna- klemma og 2 pússituskur. Ef einhver hefur fundið þetta og heldur því enn til haga, vinsamlega hringið í síma 565 6154 eða 525 4216. Brúnt kortaveski týndist LÍTIÐ brúnt kortaveski með kortum og skilríkjum tapaðist á gamlárskvöld/ nótt líklega á Eiðistorgi eða Rauða ljóninu. Skilvís finn- andi vinsamlega hafi sam- band í síma 567 5877 eða 698 5877. Dýrahald Köttur í óskilum í Árbæjarhverfi HANN er hvítur með svörtum skellum, mjög fal- legur gæfur og góður. Fannst í Melbæ 2 dögum fyrir jól. Hægt er að fá upplýsingar um hann í síma: 567 2633 og 822 1823. Kötturinn Hösky er týndur! HÖSKY er af tegundinni Birman, ljós að lit með dökka grímu, hvíta sokka og er með blá augu. Hann er með bláa hálsól og merktur. Hösky fór af heimili sínu fyrir 10 dögum síðan hann er búsettur und- ir Úlfarsfelli. Þeir sem geta gefið uppl. um Hösky eru vinsamlegast beðnir að hafa samb. í s. 566 8694 og 694 3193/94. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is ÁGÆTI Velvakandi. Hér kemur lítil sönn saga úr daglega lífinu, núna milli hátíðanna. Bréfaritari átti erindi í Nóatúnsverslunina við Nóatún. Þar er merkt bílastæði fyrir fatlaða við dyr verslunarinnar. Þegar ég kom út úr búðinni var ungur og frísklegur mað- ur að snara sér inn í bíl sem lagt hafði verið í stæðið fyrir fatlaða. Ég benti honum á að hann hefði lagt í stæði fyrir fatl- aða. Hann horfði á mig skilningssljóum augum og svaraði engu, en þá gat sá sem þetta skrifar ekki stillt sig um að bæta við: „Hún er svo sem ekki betri þessi andlega fötlun.“ Þá stóð ekki á viðbrögð- unum: „Haltu kjafti, eða ég siga hundinum á þig.“ Þá sá ég að hann var með hund í aftursætinu og ekki neinn kjölturakka. Hann lét þó ekki af því verða, en ók á brott og þeytti flaut- una ógurlega. Í rauninni ætti þessi ungi maður hvorki að hafa ökuleyfi né leyfi til að halda hund. Hann hefur greinilega hvorki þroska til að aka bíl né eiga hund. Erlendis er víða tekið mjög hart á því ef heil- brigðir leggja í stæði fatlaðra. Ýmist eru bíl- arnir fjarlægðir eða sekt- um beitt, nema hvort tveggja sé. Hér á landi virðist enginn framfylgja þessu. Lögreglan lætur eins og henni komi þetta ekki við. Það er vægast sagt lít- ilmannlegt þegar full- frískt fólk misnotar þessi bílastæði. Túnabúi. Lítil sönn saga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.