Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 04.01.2002, Qupperneq 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Útsalan hefst í dag kl. 10 K R IN G L U N N I Lord of the Rings: The Fellowship of theRings/ Hringadróttinssaga Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Peter Jackson. Aðalleikendur: Elijah Wood, Ian McKellen, Christopher Lee, Cate Blanchett Þessi fyrsti hluti kvikmyndalögunar Ný-Sjá- lendingsins Peters Jackson á Hringadróttins- sögu J.R.R. Tolkiens er hrein völundarsmíð. Aðrar ævintýra- og tæknibrellumyndir fölna í samanburði, um leið og hvergi er slegið af kröfunum við miðlun hins merka bókmennta- verks Tolkiens yfir í kvikmyndaform. Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Stjörnubíó, Borgarbíó, Akureyri. Moulin Rouge Bandarísk. 20001. Leikstjórn og handrit: Baz Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ewan McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð himnasending í skammdeginu. Stórfengleg afþreying sem er allt í senn: Söng- og dans- amynd, poppópera, gleðileikur, harmleikur, nefndu það. Baz Luhrman er einn athygl- isverðasti kvikmyndagerðarmaður samtím- ans sem sættir sig ekki við neinar málamiðl- anir og uppsker einsog hann sáir; fullt hús stiga. Regnboginn. Amélie Frönsk 2001. Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet. Aðalleikendur: Audrey Tautou, Mathieu Kassovitz, Yolande Moreau, Dominique Pin- on. Yndislega hjartahlý og falleg kvikmynd um það að þora að njóta lífsins. Stórkostleg- ur leikur, frábær kvikmyndataka og sterk leik- stjórn Jeunet gera myndina að góðri og öðru- vísi skemmtun en við flest erum vön. Háskólabíó. The Man Who Wasn’t There/ Maðurinn sem reykti of mikið Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Joel Coen. Aðal- leikendur: Billy Bob Thornton, Frances McDormand, James Gandolfini, Tony Shalo- ub. Billy Bob fer hamförum sem keðjureykj- andi undirtylla á rakarastofu sem hefnir sín á þeim sem hafa hann undir að öllu jöfnu. Sér ekki fyrir afleiðingarnar. Coenbræður í fágaðri og meinfyndinni, s/h filmnoir sveiflu með af- burða leikhópi. Stjörnubíó. The Others Spænsk/frönsk/bandarísk 2001. Leikstjórn og handrit: Alejandro Amenábar. Nicole Kid- man, Fionula Flanagan, Christopher Eccle- ston, Alakina Mann, Eric Sykes. Meistara- lega gerð hrollvekja sem þarf á engum milljóndalabrellum að halda, en styðst við einfalt, magnað handrit, styrkan leik, kvik- myndatöku og leikstjórn. Umgerðin afskekkt- ur herragarður, persónurnar dularfullar, efnið pottþétt, gamaldags draugasaga með nýju, snjöllu ívafi. Háskólabíó. Elling Noregur 2001. Leikstjóri: Peter Næss. Aðal- leikendur: Per Christan Ellefsen, Sven Nord- in, Pia Jacobsen. Norsk mynd um tvo létt geðfatlaða náunga sem fá íbúð saman og þurfa að læra að bjarga sér. Bráðfyndin og skemmtileg mynd með fullri virðingu fyrir að- alpersónunum.  Háskólabíó. Harry Potter og viskusteinn- inn/Harry Potter and the Sorcerer’s Stone Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Chris Columbus. Aðalleikendur: Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emma Watson, Robbie Coltrane, John Cleese. Aðlögun hinnar lifandi sögu J.K. Rowling um galdrastrákinn Harry Potter yfir í kvikmyndahandrit tekst hér vel. Útkoman er ekki hnökralaus en bráðskemmtileg ævin- týramynd engu að síður. Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri, Háskólabíó. Málarinn Íslensk. 2001. Leikstjórn og handrit: Erlend- ur Sveinsson. Vönduð og metnaðarfull heim- ildarmynd um líf og störf listmálarans Sveins Björnssonar, síðustu árin sem hann lifði. Prýdd fallegri og kraftmikilli kvikmyndatöku Sigurðar Sverris Pálssonar.  Háskólabíó. Mávahlátur Tilkomumikil kvikmynd Ágústs Guðmunds- sonar byggð á samnefndri skáldsögu Krist- ínar Marju Baldursdóttur. Þar skapar leik- stjórinn söguheim sem er lifandi og heillandi, og hefur náð sterkum tökum á kvikmynda- legum frásagnarmáta. Frammistaða Mar- grétar Vilhjálmsdóttur og Uglu Egilsdóttur er frábær.  Háskólabíó, Sambíóin. The Pledge/Skuldbindingin Leikstjóri: Sean Penn. Aðalleikendur: Jack Nicholson, Robin Wright Penn, Aaron Eck- hart. Nicholson hefur ekki verið betri í háa herrans tíð, í hlutverki löggu með þráhyggju. Áhorfandinn finnur að undir niðri er kengur í hegðun þessa góða manns, sem loks virðist búinn að finna tilgang og hamingju í heldur aumu lífi, en hættir öllu, heilsu og fjölskyldu, vegna skuldbindingar. Penn hlífir okkur við hinum ófrávíkjanlega, hamingjusamlega endi, hrindir okkur þess í stað útá eyðimörk geðveiki og rústaðra persóna. Athyglisverð, seiðmögnuð.  Sambíóin. Training Day/Reynsludagur Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Antoine Fuqua. Aðalleikendur: Denzel Washingtonm, Ethan Hawke. Fyrsti dagur nýliða í lögreglunni (Hawke), undir handleiðslu þaulreyndrar L.A. löggu (Washington), vafasamrar í meira lagi, kostar hann nánast starfið, æruna og lífið.  Sambíóin. Bandits/Rænt og ruplað Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Barry Levinson. Aðalleikendur: Bruce Willis, Billy Bob Thorn- ton, Cate Blanchett. Gamansöm spennu- mynd um farsæla bankaræningja, þar sem ástarmál koma jafnframt sterklega við sögu. Myndin nær á köflum miklum hæðum í gam- ansemi og fer Thornton þar á kostum.  Smárabíó. Good Advice Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steve Rash. Að- alleikendur: Charlie Sheen, Denise Richards, Jon Lovitz, Rosanna Arquette. Mikið mun betri mynd en hún hljómar. Gráglettin skop- mynd um uppaling í verðbréfaslastellingum sem hafður er að fífli, en hefnir sín. Lunkin söguflétta, lagleg tilsvör og ódauðlegt leik- araval.  Laugarásbíó. The Hole/Byrgið Bresk. 2001. Leikstjóri: Nick Hamm. Aðal- leikendur: Thora Birch, Desmond Harrington. Vel leikin, óhugnanleg og einkar óþægileg lýsing á atburðarás í lokuðu neðanjarðarbyrgi þar sem nokkur ungmenni berjast fyrir lífi sínu.  Sambíóin. Ljós heimsins Íslensk heimildarmynd. 2001. Höfundur: Ragnar Halldórsson. Fjallar um stjörnu í nýju hlutverki; frú Vigdísi Finnbogadóttir eftir Bessastaði. Forvitnileg en vantar skarpari fókus.  Regnboginn. Pétur og kötturinn Brandur Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam- insky. Handrit: Torbjörn Janson.Teiknimynd. Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunnur Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru við- kunnanlegir og uppátektarsamir.  Smárabíó, Laugarásbíó. Glass House/Í glerhúsi Bandarísk. 2001. Leikstjóri: David Sack- heim. Aðalleikendur: Leelee Sobieski, Stell- an Skarsgård, Diane Lane. Glerþunn flétta drepur niður væntingar um hrollvekjandi spennu í þokkalega leikinni mynd um skelfd systkini hjá vafasömum stjúpforeldrum Smárabíó, Stjörnubíó. Joe Dirt/Jói skítur Bandarísk. 2001. David Spade, Brittany Daniel, Dennis Miller, Kid Rock og Christ- opher Walken. Leikstjóri: Dennie Gordon. Joe Dirt var skilinn eftir hjá Miklagili af foreldrum sínum, og síðan hefur lífið verið ein þrauta- ganga. Grínmynd með David Spade sem er alls ekki nógu fyndin þótt Joe Dirt sé mjög góð týpa. Stjörnubíó. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Hrein völundarsmíð: Sjaldan eða aldrei hafa gagnrýnendur verið eins ein- róma jákvæðir í garð nokkurrar myndar og Hringadróttinssögu. „ÞAÐ er engin leið að hætta!“ sungu Stuðmenn hér um árið og það reynist oftar enn ekki rétt í Popplandi. Um tíu ára skeið hafa þjóðgarðsverðir hinnar svokölluðu ’68 kynslóðar, hljómsveitin Pops sem gerði garðinn frægan í árdaga íslensks bítls, komið saman árlega á nýárskvöldi á Hótel Sögu og leik- ið þar fyrir dansi. Þessi áramót voru engin undantekning. Pops, sem nú er skipuð þeim Tryggva Hübner, Óttari Felix Haukssyni, Ólafi Sigurðssyni, Pétri Kristjánssyni, Birgi Hrafnssyni og Jóni Ólafssyni, spilaði þar lög eftir Bítlana, Stones, Dylan, Kinks, Spencer Davis Group, Small Faces, Troggs o.fl. Viðtökur voru gríð- argóðar og var sveitin óspart hvatt til þess að leggja ekki upp laup- anna, en það hugðist hún gera á þessu áratugs afmæli. Hún mun því skemmta á Kringlukránni um þessa helgi; föstudag og laugardag. Allt að gerast hjá Óttari Af Óttari Felix er það annars að frétta að hann hefur nú haslað sér völl sem umboðsmaður; hefur m.a. komið að Mannakornum og gaf út prýðisgóða hljómleikaplötu með þeim fyrir jólin á eigin merki, Son- et, auk þess að hafa séð um tón- leikahrinu Hljóma á síðasta ári. „Já, þetta byrjaði allt með því að Hljómar höfðu samband við mig á vordögum þar sem þeir höfðu í hyggju að láta undan þrýstingi um að fara að spila aftur. Þeir báðu mig um að halda utan um þeirra mál. Ég hafði fínan tíma, var sjálfs míns herra þannig að ég sló til. Þetta hefur svo undið upp á sig.“ Óttar segir að þeir Pálmi og Magnús Mannakornsmenn hafi svo haft samband við sig, þar sem þeir hafi ætlað af stað á nýjan leik. Einnig hefur hann séð um að bóka KK og Magnús. „Ég stofnaði utan um þetta félag sem ég kalla Sonet en það er í höf- uðið á fyrsta bandinu sem ég stofn- aði ásamt Jonna Ólafs bassaleik- ara.“ Óttar segir að Mannakorn og Hljómar ætli að halda eitthvað áfram en bætir þó við hlæjandi. „En það er nú þannig að þegar menn eru komnir á þennan aldur verður maður bara að segja: „Ef Guð lofar og ef heilsan er í lagi!“ Óttar segir að hefð fyrir umboðs- mennsku hérlendis sé svo gott sem enginn. „Markaðurinn hér er lítill og menn hafa ekkert verið að setja sig inn í þessar lagalegu hliðar sem fylgja dægurtónlistinni. Bransinn hér hefur oft og tíðum einkennst af hálfgerðu frumskógarlögmáli; það er oft vaðið í hlutina án þess að kanna rétt sinn eða annarra til hlít- ar. Ég er einmitt að vinna í samn- ingsmálum fyrir Hljóma og Manna- korn um þessar mundir, hvar ætlunin er að reyna að færa ýmsa hluti til betri vegar.“ Spjallað við Óttar Hauksson, driffjöður Pops Unglingahljómsveitin Pops: (f.v.) Tryggvi Hübner, Óttar Felix Hauksson, Ólafur Sigurðsson, Pétur Kristjánsson, Birgir Hrafnsson og Jón Ólafsson. Meira Pops! arnart@mbl.is w w w .t e xt il. is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.