Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKI tónstarmaður-
inn Marc Almond heldur
tónleika í Íslensku óper-
unni 31. janúar næst-
komandi.
Almond er einhver
virtasti tónlistarmaður
Breta og á að baki ríf-
lega tveggja áratuga
langan feril, lengst af
sem einsöngvari en fyrst
sem annar helmingur
nýrómantíska tölvudú-
ettsins Soft Cell.
Almond mun leika í
óperunni studdur lítilli
hljómsveit og áformar að
bjóða íslenskum tónlist-
argestum upp á þver-
skurð af löngum og við-
burðaríkum ferli sínum.
Má því búast við því að
lög á borð við Soft Cell-
lögin „Tainted Love“,
sem er eitt af allra vin-
sælustu lögum 9. áratug-
arins, „Bedsitter“, „Say
Hello Wave Goodbye“ ómi í Íslensku
óperunni og hver veit nema hann taki
stærsta smell sólóferils síns, gamla
Gene Pitney-slagarann „Something’s
Gotten Hold Of My Heart“, sem Al-
mond kom á topp breska vinsælda-
listans árið 1988 og önnur þekkt lög á
borð við „Stories of Johnny“, Jacques
Brel-lagið „Jacky“ og „The Days of
Pearly Spencer“.
Á ferli sínum hefur Almond gefið
út vel á þriðja tug platna. Áhrifa hans
gætir víða eins og t.a.m. í tónlist
Pulp, Pet Shop Boys og The Divine
Comedy. Sjálfur hefur hann löngum
verið talinn undir djúpstæðum áhrif-
um frá kabaretttónlist, Scott Walker
og Jacques Brel enda hefur hann
aldrei farið leynt með aðdáun sína á
þeim listamönnum.
Almond hefur unnið með fjölmörg-
um kunnum listamönnum eins og
Gene Pitney, The The og Nick Cave.
Svo skemmtilega vill til að hægri
hönd hans á nýjustu plötu hans,
Strange Things, sem kom út í fyrra,
er enginn annar en íslenski tónlist-
armaðurinn Jóhann Jóhannsson, sá
er komið hefur við sögu hljómsveita á
borð við Daisy Hill Puppy Farm,
Ham, Lhooq og dip og unnið með
sólólistamönnum eins og Páli Óskari
og Emiliönu Torrini og samið tónlist
fyrir kvikmyndir og leikrit. Jóhann
samdi meirihluta laganna á Strange
Things í félagi við Almond en á plöt-
unni koma einnig við sögu Sigtrygg-
ur Baldursson og Pétur Hallgríms-
son, sem gjarnan hafa unnið með
Jóhanni, og Samúel Samúelsson
Jagúarmaður og útsetjari með
meiru.
Almond hefur allnokkrum sinnum
komið til Íslands, þ. á m. til að vinna
að Strange Things í hittifyrra. Hann
hefur stefnt að tónleikahaldi hér um
nokkurt skeið og fer vel á því nú að
hægri höndin, Jóhann, komi fram
með Almond á heimavelli.
Tónleikar Marc Almond fara sem
fyrr segir fram í Íslensku óperunni
31. janúar. Upplýsingar um miðaverð
og sölustaði liggja fyrir síðar en að-
standendur tónleikanna eru Út-
gáfufjelagið Austur-Þýskaland og
Menn með sleggju.
Marc Almond syngur
í Íslensku óperunni
Marc Almond hefur sankað að sér allmörgum
fylgismönnum hér á landi í gegnum árin.
skarpi@mbl.is
Kærkomin heimsókn síðar í janúarmánuði
FYRIR nokkrum árum var Íslenska
óperan full af skellihlæjandi gest-
um kvöld eftir kvöld, svo vikum og
mánuðum skipti. Aðhlátursefnið
var Hellisbúinn, einleikur eða
kannski réttara sagt uppistand,
leikarans og athafnamannsins
Bjarna Hauks Þórssonar þar sem
hann gerði stólpagrín að sam-
skiptum kynjanna en þó einkum og
sér í lagi karlmennskuímyndinni
sem hefur mátt muna sinn fífil feg-
urri. Á endanum reyndist sýningin
einhver sú mest sótta í sögu ís-
lenska leikhússins og Bjarni Hauk-
ur stimplaði sig rækilega inn sem
grínleikari að skapi fólksins.
Nú er hann snúinn aftur til Ís-
lensku óperunnar með annan lauf-
léttan einleik þar sem hann veður
úr einu hlutverkinu í annað. Verkið
kallast Leikur á borði og var frum-
sýnt með viðhöfn á næstsíðasta
degi nýliðins árs. Höfundur Leiks á
borði er Becky Mode og fjallar það
um nýútskrifaðan leikara að vestan
sem á í hinu mesta basli með að
koma sér á framfæri og vinnur því
fyrir sér sem þjónn á vinsælasta
veitingastað borgarinnar, stað þar
sem allt aðalþotuliðið sýnir sig, sér
aðra og tekur bita og bita þess á
milli. Auðvitað eru margir þessara
erfiðu matargesta landsmönnum
að góðu kunnir en Gísli Rúnar
Jónsson þýddi verkið og staðfærði
það. Leikstjóri er Þór Tulinius.
Gamanleikurinn Leikur á borði frumsýndur í Íslensku óperunni
Bjarni
Haukur
leikur einn
á borði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjarni Haukur fékk innilegar hamingjuóskir að lokinni frumsýningu
frá sinni heittelskuðu, Sif Gunnarsdóttur Gröndal, og þýðandanum
Gísla Rúnari Jónssyni.
Stórvinir Bjarna Hauks, fyrrverandi umsjónarmenn
Hausverks um helgar, Valli Sport og Siggi Hlö,
mættu vitanlega til að styðja sinn mann.
Þær voru margar kjarnakonurnar á frumsýning-
unni: Erna Indriðadóttir, Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isÍ I - .s ara i .is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 13
Sýnd kl. 2, 4 og 6.Sýnd kl. 8 og 10.20.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 11.30.
Sýnd í LÚXUS kl. 2, 6 og 10.
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
DVMbl
Ævintýrið lifnar við
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Yndisleg rómantísk gamanmynd í anda
Sleepless in Seattle. John Cusack (Americas
Sweetheart´s) og Kate Beckinsale (Pearl
Harbor) hafa aldrei verið betri.
´
1/2
Ungfrú Skandinavía
Íris Björk
Ljóskur
landsins
sameinist!
Powersynin
g
kl. 11.30. .
Örlög með kímnigáfu...
Getur einu sinni á ævinni
gerst tvisvar?
FRUMSÝNING
Vesturgötu 2, sími 551 8900
í kvöld