Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu Skoda Octavia Station, nýskráður 09.05.2001. 2000 vél, sjálf- skiptur, ekinn 6.000 km, 16“ álfelgur, Ásett verð 1.780.000. Nánari uppl. hjá Bílþingi Heklu Opnunartímar: Mánud. - föstud. kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16. Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is Netfang: bilathing@hekla.is ÓLAFUR Axelsson hrl. er látinn, 55 ára að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 22. septem- ber 1946. Foreldrar hans voru Axel Guð- mundsson, fulltrúi á Skattstofu Reykjavík- ur, og Ruth Manders Guðmundsson húsmóð- ir. Ólafur lauk stúdents- prófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 1967 og út- skrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands árið 1973. Hann varð hér- aðsdómslögmaður árið 1975 og hæstaréttarlögmaður árið 1982. Ólafur var fulltrúi á lögfræðistofu Vilhjálms Árnasonar hrl. og Tómasar Árnasonar hrl. í Reykjavík frá 1973 og meðeigandi í stofunni frá 1978. Hann rak síðan lög- mannsstofu ásamt Vil- hjálmi Árnasyni, Hreini Loftssyni, Brynjólfi Kjartanssyni og Þórði S. Gunnarssyni undir firmaheitinu Lögmenn Höfðabakka 9. Ólafur sat í vara- stjórn Lögmannafélags Íslands 1977–80, var gjaldkeri í stjórn fé- lagsins 1980–82, sat í laganefnd félagsins 1983–90 og var formað- ur þess 1989–90. Þá sat Ólafur í stjórn Þórðar Sveinssonar hf. 1984–89, í stjórn Víf- ilfells hf. 1984–89 og í stjórn Björns Ólafssonar hf. 1983–89. Ólafur var kvæntur Þórunni Stef- ánsdóttur blaðamanni. Hann lætur eftir sig þrjár uppkomnar dætur. Andlát ÓLAFUR AXELSSON KARL Tryggvason, íslenskur læknir sem starfar í Svíþjóð, fær verðlaun Louis-Jeantet-stofnunar- innar í ár fyrir rannsóknir í lækn- isfræði. Karl og starfsfélagar hans hafa greint 20 gen og eggjahvítu- efni sem tengjast nokkrum arf- gengum sjúkdómum og fær verð- launin fyrir rannsóknir á nýrnasjúkdómum. Karl er prófessor í læknis- fræðilegri lífefnafræði við Karol- inska Institutet í Stokkhólmi, og stýrir þar rannsóknarstofu. Hann er jafnframt einn af fjórum stofn- endum líftæknifyrirtækisins Bio- Stratum Inc. í Bandaríkjunum. Rannsakar hreinsun blóðsins Karl hefur unnið leiðandi starf á því hvernig nýrun hreinsa blóðið og á þeim vefjafrumusíum sem blóðið fer í gegnum. „Þessi sía er mjög mikilvæg fyrir líkamann, ef hún skemmist getur fólk fengið mjög alvarlega sjúkdóma sem geta leitt til dauða,“ útskýrir Karl. „Nýrun skaðast af völdum margra alvarlega sjúkdóma, til dæmis syk- ursýki og krabbameins. Þá verkar blóðsían ekki eins og hún á að gera og eggjahvítuefni komast úr blóð- inu í þvagið. Það hefur lítið verið vitað um hvernig þessi sía í nýrunum er byggð upp og hvað gerist þegar hún skemmist. En okkar vinna hefur leitt til þess að nú vitum við hvernig sían er upp- byggð og getum út- skýrt hvað það er sem gerist í mörgum þessara nýrna- sjúkdóma. Það er mikilvægt af mörgum ástæðum að rann- saka þessar síur. Meðferðir við nýrna- sjúkdómum eru mjög kostnaðarsamar og nema tugum millj- arða dollara ár hvert í Evrópu og Bandaríkjunum.“ Karl segir að verðlaunaféð verði m.a. notað til að halda áfram rann- sóknum á síunum og að þróa gena- lækningameðferð við nýrna- sjúkdómum. „Ef um sjúkdóm er að ræða sem orsakast af stökkbreyt- ingu á einhverju geni í nýrunum, reynum við að setja inn nýtt gen og er þessi aðferð kölluð gena- meðferð.“ Mikill heiður að hljóta verðlaunin Karl hlaut síðasta haust heið- ursdoktorsnafnbót við læknadeild Háskóla Íslands fyrir störf sín innan lækn- isfræði, sameinda- líffræði og lífefna- fræði. Áður hefur honum verið veitt sams konar nafnbót við Háskólann í Pek- ing í Kína auk fjöl- margra annarra við- urkenninga fyrir vísindastörf sín. Louis-Jeantet- stofnunin hefur und- anfarin fimmtán ár veitt árlega vegleg verðlaun til yfirleitt þriggja vísindamanna á sviði læknavísinda í Evrópu. Hluta verðlaunafjárins er ætlað að borga fyrir rannsóknirnar sjálfar og hluti þeirra er persónu- leg verðlaun, að sögn Karls. Fjórir vísindamenn hafa hlotið Nóbels- verðlaun í kjölfar Louis-Jeantet- verðlaunanna. „Það er mikill heið- ur og mjög ánægjulegt að vera kominn í þennan góða félagsskap,“ segir Karl. „Þeir sem hafa hlotið þessi verðlaun undanfarin ár eru yfirleitt leiðandi vísindamenn í Evrópu á sínu sviði. Svo ég get ekki verið annað en ánægður.“ Verðlaunin verða veitt í Genf í apríl næstkomandi. Íslenskur læknir fær Louis-Jeantet-verðlaunin Karl Tryggvason læknir. JEPPI af gerðinni Toyota Hilux valt á kaf ofan í Tunguá fyrir botni Skut- ulsfjarðar snemma í gærmorgun. Bifreiðin hafði farið yfir vegrið brú- arinnar og komst ökumaðurinn af sjálfsdáðum út úr jeppanum og upp á veg, þaðan sem honum var ekið á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði til aðhlynningar af vegfaranda sem átti þar fyrstur leið um. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Ísafirði má kenna hvassviðri og krapi á veginum um hvernig fór við Tunguá og til marks um það lenti ökumaður bílsins, sem kom jeppa- manninum til aðstoðar, á vegriði brúarinnar þegar hann ætlaði að staðnæmast. Hvorugan manninn sakaði við það óhapp og komust þeir klakklaust á sjúkrahúsið. Miklir sviptivindar voru víða á Vestfjörðum og vestanverðu landinu í gær. Meiðsl ökumannsins reyndust minniháttar. Fékk hann að fara heim af sjúkrahúsinu síðdegis í gær og vildi ekki ræða við Morgunblaðið um óhappið þegar eftir því var leitað. Var á hann á leið til vinnu sinnar á Flateyri á fyrirtækisbíl þegar óhappið átti sér stað. Brúin er það nálægt sjó að yfirborð árinnar getur á þessum stað hækkað um allt að 2 metra á flóði en háflóð var um klukkustund eftir veltuna. Jeppinn var hífður upp úr ánni eft- ir hádegi í gær og er mikið skemmd- ur, að sögn lögreglunnar á Ísafirði. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Jeppinn á kafi í Tunguá við botn Skutulsfjarðar í gærmorgun. Jeppi valt ofan í Tunguá Hvassviðri gekk yfir Vestfirði í gærmorgun STJÓRN Læknafélags Íslands hef- ur í bréfi til Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra lýst yfir stuðn- ingi við Þengil Oddsson sem undir lok síðasta árs var sagt upp sem trúnaðarlækni Flugmálastjórnar. Telur félagið, eftir að hafa farið yf- irfarið ágreining trúnaðarlæknisins við Flugmálastjórn og samgöngu- ráðherra vegna útgáfu heilbrigðis- vottorðs fyrir flugstjóra hjá Flug- leiðum, að Þengill hafi ekki brotið gegn þeim reglum sem gilda um flugöryggi hér á landi. Hvetur stjórn Læknafélagsins ráðherra til að rannsaka til hlítar þá „óeðlilegu og ósæmilegu“ stjórn- sýslu að segja lækninum upp eftir að hann hafði sagt sig frá máli flug- stjórans. Brottreksturinn hafi vegið að starfsheiðri læknisins sem hafi sinnt starfi sínu af alúð og kost- gæfni og farið í einu og öllu eftir al- þjóðlegum vinnureglum, læknis- fræðilegum staðreyndum og eigin sannfæringu. Í bréfi stjórnarinnar til sam- gönguráðherra segir meðal annars: „Er það niðurstaða stjórnar Læknafélags Íslands, að Þengill Oddsson hafi ekki brotið gegn þeim ítarlegu reglum, sem uppfylla ber á vettvangi flugöryggismála. Sam- gönguráðherra hefur skipað nefnd, sem skoða skal störf og viðbrögð læknisins vegna þessa ágreinings- máls. Hafi nauðsyn borið til að stofna slíka rannsóknarnefnd, hefði átt að fela henni það verkefni að skoða meðferð þessa máls í heild, þ.m.t. stjórnsýslu samgönguráðu- neytisins í málinu og annarra þeirra, sem aðild eiga að ágrein- ingnum eða komið hafa að málinu með einhverjum hætti. Óháð skoðun á öllum málavöxtum hefði verið trú- verðugri skipan mála en sú, sem valin var.“ Flugfarþegar njóti vafans Stjórn Læknafélagsins segir enn- fremur að ummæli forystumanna atvinnuflugmanna í deilunni, um að flugmenn eigi að geta sagt frá veik- indum sínum án þess að eiga það á hættu að missa starfsréttindi sín, séu alvarleg og uggvekjandi. „Þeir hagsmunir, sem heilbrigð- iskröfur eiga að verja, eru öryggis- hagsmunir flugfarþega. Eru þær kröfur virtar af öllum þeim þjóðum, sem Íslendingar vilja eiga samleið með. Flugfarþegar eiga að njóta alls þess vafa, sem kann að leika á um, hvort heilsa flugmanna sé fullnægj- andi. Það er hagur bæði flugfarþega og starfsmanna, að strangar alþjóð- legar reglur og staðlar gildi á þess- um vettvangi. Engin skynsamleg rök eru fyrir því, að mögulegt sé að veita afslátt frá þeim reglum eftir séríslenskum leiðum eða með laga- tæknilegum aðferðum,“ segir að endingu í bréfi lækna til ráðherra sem undirritað er af formanni fé- lagsins, Sigurbirni Sveinssyni. Læknafélag Íslands styður fyrrv. trúnaðarlækni Flugmálastjórnar Braut ekki gegn regl- um um flugöryggi GUÐMUNDUR Halldórsson, skip- stjóri frá Bolungarvík og formaður Smábátafélagsins Eldingar á norðan- verðum Vestfjörðum, var kjörinn Vestfirðingur ársins 2001 í netkosn- ingu sem vestfirska fréttablaðið Bæj- arsins besta stóð fyrir í samvinnu við Gullauga á Ísafirði og töluþjónustuna Snerpu. Á netmiðli BB segir að Guð- mundur hafi hlotið afdráttarlausa kosningu og að hann hafi fengið at- kvæði jafnt frá konum sem körlum. „Ég er mjög hreykinn af þessari til- nefningu,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég lít svo á að með þessu sé verið að verðlauna trillukarla sem tóku til sinna ráða þegar byggð var að leggjast af á Vest- fjörðum; þegar búið var að selja kvót- ann í burtu; húsin voru orðin verðlaus og atvinna orðin engin. Þá lögðu trillukarlar út í hundruða milljóna kr. fjárfestingu og björguðu byggðinni. Ef trillur hefðu ekki komið á sínum tíma væri ekkert fólk á Vestfjörðum í dag.“ Guðmundur lítur m.ö.o. svo á að hann hafi verið valinn í ljósi þess að hann væri forystumaður trillukarla á Vestfjörðum. „Ég lít þannig á að ég verðskuldi þetta ekki einn heldur er ég samnefnari fyrir smábátaflotann á Vestfjörðum sem forystumaður í þeirra hópi.“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Guðmundur Halldórsson skipstjóri tekur við viðurkenningu úr hendi Arnar Torfasonar í Gullauga. Með þeim á mynd eru fulltrúar bb.is, þeir Sigurjón J. Sigurðsson og Hlynur Þór Magnússon. Án trillukarla væri eng- in byggð á Vestfjörðum Guðmundur Halldórsson Vestfirðingur ársins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.