Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 41
menn, þ.m.t. flugumferðarstjóra, grundvallarrétti sínum.“ „Framkvæmd tillagnanna í skýrslunni frá 1997 og fortakslaus afturköllun hótana um sviptingu verkfallsréttar og krafna um af- nám samningsréttar væri jákvæð- ur vitnisburður um getu okkar til þess að starfa saman.“ Í nýlegu viðtali við blaðið Wall Street Journal varar Davíð Odds- son Bandaríkjamenn við því að nota hryðjuverkin 11. september sem afsökun til að draga úr mann- réttindum borgaranna. Nokkrum dögum síðar hótar hann íslenskum flugumferðarstjórum, án þess að blikna, varanlegu afnámi réttinda þeirra með tilvísun til hinna sömu hryðjuverka. „Við verðum að halda áfram að breyta rétt en ekki láta stefnu okkar á hverjum tíma ráð- ast af pólitískri hagkvæmni og til- finningasjónarmiðum,“ sagði Davíð einnig í fyrrgreindu viðtali. Man einhver eftir sögunni um bjálkann og flísina? Í kjölfar hótana ráðherra aflýstu flugumferðarstjórar boðuðum verkföllum í nóvember og milduðu kröfur sínar verulega í von um að ríkisvaldið fengist til að hreyfa sig við samningaborðið. Hvorki hefur gengið né rekið og því var ákveðið að boða ótímabundið yfirvinnu- bann frá og með 14. janúar 2002. Rýkur þá ekki fjármálaráðuneytið til og biður Félagsdóm að úr- skurða að það standist ekki lög að flugumferðarstjórar hætti að vinna yfirvinnu! Niðurstaðan liggur ekki fyrir þegar þetta er skrifað en hvað sem líður fimleikaæfingum fulltrúa ríkisvaldsins í réttarsölum þá er kjarni málsins einfaldlega sá að ríkisstjórnin getur ekki lengur komið sér hjá því að hrinda í fram- kvæmd tillögum svokallaðrar rétt- arstöðunefndar frá árinu 1997 þar sem hlut áttu að máli fulltrúar samgönguráðuneytis, utanríkis- ráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Flugmálastjórnar og Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra. Allir nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálitið án fyrirvara. Nefndin lagði til úrbætur, m.a. var lögð áhersla á að draga úr yfirvinnu flugumferðarstjóra án þess að það raskaði afkomu þeirra, fjölga flug- umferðarstjórum, að semja við þá til lengri tíma um kaup og kjör og taka mið af sérstöðu þeirra, og kröfum sem til þeirra eru gerðar, við ákvörðun launakjara. Eflaust er forsætisráðherra þeg- ar byrjaður að safna spreki í næsta áramótaávarp. Í ljósi fyrri reynslu verður þó að teljast ólík- legt að þar greini hann þjóðinni frá því að ríkisstjórn Íslands hafi á árinu 2002 tvívegis setið á saka- mannabekk í nefnd Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar um félaga- frelsi, fyrst fyrir að brjóta á sjómönnum, síðan fyrir að brjóta á flugumferðarstjórum. Slík upphefð að utan ratar sjaldnast í áramóta- ávörp ráðamanna þessa lands. Í áramótaboðskap sínum vitnaði Davíð í hvatningarorð Hannesar Hafsteins, fyrsta ráðherra Íslend- inga. Flugumferðarstjórar taka undir með Davíð og gera orð Hannesar að sínum á nýju ári og segja: Þótt þjaki böl með þungum hramm þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt fram. F. h. stjórnar Félags íslenskra flugumferðarstjóra, Loftur Jóhannsson. Höfundur er formaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 41 siminn.is á Símaskrá Skráningarfresturvegna breytinga rennur út 31. janúar 2002 Haf›u samband vi› skrifstofu Síma- skrár e›a skrá›u flig á einfaldan og flægilegan hátt á fiínum sí›um á siminn.is flínarsí›ur Skrifstofa Símaskrár, Sí›umúla 15, sími 550 7050 Vertu áberandi í ár! – Skráning á net- og vefföngum – Skráning í lit – Skráning feitletru› N O N N I O G M A N N I • 5 0 5 9 /s ia .is flínarsí›ur skrá›u flig á fiínum sí›u m einfalt og flægilegt FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • www.kia.is KIASportage KIA ÍSLAND H ið O P IN B E R A ! Fögnum vetri á einstökum jeppa! KIA ~ kominn til að vera! KIA Sportage er verulega rúmgóður, alvöru jeppi með háu og lágu drifi og LSD læsingu á afturdrifi. Hann er byggður á öflugri grind og 2000 cc, 4 cyl. vélin, gefur 128 hestöfl. Þetta er bíllinn sem kemur þér á fjöll án þess að kollkeyra fjárhaginn! KIA Sportage fæst í tveimur útgáfum, Classic og Wagon, dísil eða bensín, beinskiptur eða sjálfskiptur – Þitt er valið. Fjallabakurinn . . . Sjón er sögu ríkari og reynsluakstur KIA Sportage óviðjafnanlegur. Komdu og mátaðu nýjan jeppa við þig og fjölskylduna. Verð frá 2.150.000 kr. Sérblað alla sunnudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.