Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 16
LÖGREGLUMENN úr Keflavík fengu það óvenjulega verkefni að tæla sel frá Reykjanesbrautinni til sjávar. Þeim tókst það með hjálp vegfarenda. Fólk sem átti leið um Reykja- nesbraut í gærdag tók eftir því rétt fyrir klukkan eitt að selur var skammt neðan við veginn í Hvassahrauni. Tveir lögreglu- menn fóru á staðinn enda gat hætta stafað af dýrinu ef það færi upp á veginn. Voru þeir látnir hafa skotvopn meðferðis en þurftu ekki að beita því. Hörður Óskarsson lögreglu- maður segir að byrjað hafi verið á því að stjaka við selnum með kúst- skafti. Hafi hann brugðist illa við, verið grimmur og gert ítrekaðar tilraunir til að bíta björgunar- menn sína. Eftir að ýmsar til- raunir höfðu verið gerðar til að reka selinn til sjávar datt ein- Óvenjuleg lögregluaðgerð Óæskilegur vegfarandi tældur til sjávar Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Selurinn dreginn til síns heima með slefbandi. hverjum í hug að egna fyrir hann með rauðu slefbandi sem selurinn beit sig fastan í. Hélt hann fast og var svo sterkur að hægt var að draga hann í áföngum langleiðina niður í sjó. Er þetta 50–100 metra vegalengd. Hörður segir að þetta sé fullorð- inn landselur, greinilega eitthvað veikur. Ígerð hafi sést í kringum augu hans. Hörður segist ekki vita hvort þetta sé varanleg aðgerð en björgunarfólkið skildi við selinn þar sem hann synti um í víkinni. Hörður Óskarsson reynir að tjónka við skapilla selinn með kústskaft að vopni, Kristján Geirsson heldur sig í hæfilegri fjarlægð. Hvassahraun SUÐURNES 16 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK fyrir frábærar ferðir PÖNTUNARSÍMI: 56 20 400 Fararstjóranámskeið Ingólfur í Heimsmetabók Guinness? Góðir viðskiptavinir HEIMSKLÚBBSINS-PRÍMA hafa stungið upp á, að nafn Ingólfs Guð- brandssonar verði skráð í Heimsmetabók Guinness sem víðförlasta fararstjóra/leiðsögu- manns, sem uppi hefur verið. Hann hefur auk þess verið skipuleggjandi og forstjóri ferðanna, sem getið hafa sér einstaks orðspors fyrir gæði og öryggi, auk þess að hafa vakið aðdáun fyr- ir þekkingu hans, frásagnargáfu og einstaka heimssýn. Ingólfur hefur verið fararstjóri í eftirtöldum löndum: EVRÓPA: Skotland, England, Wales, Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Þýskaland, Holland, Belgía, Frakkland, Mónakó, Sviss, Lichtenstein, Austurríki, Tékkland, Slóvakía, Ungverjaland, Króatía, Slóvenia, Grikkland, Ítalía frá norðri til suðurs með Sikiley, Spánn, Mallorca, Portúgal. ASÍA: Tyrkland, Líbanon, Sýrland, Ísrael, Bahrein, Íran, Indland, Nepal, Sri Lanka, Burma (Myanmar), Malasía - vestur og austur - Borneo, Indónesía (Java og Bali), Singapore, Thailand, Vietnam, Hong Kong, Kína, Filippseyjar, Taiwan, Japan. AFRÍKA: Egyptaland, Marrokkó, Kenya, Tansanía, Zimbabwe, Botswana, Suður Afríka í norðri, austri og suðri. ÁSTRALÍA: Perth, Victoria, New South Wales, Queensland, NÝJA SJÁLAND, Kyrrahafseyjar, Fiji, Tahiti, Hawaii, Páskaey. AMERÍKA - Norður: Kanada frá austri til vesturstrandar, Bandaríkin: Austurríkin, Miðríkin, Florida, Kalifornia. Eyjar Karíbahafs, Mexico. AMERÍKA - Suður: Venezuela, Peru, Chile, Argentina, Uruguy, Brasilía. HEIMSKLÚBBURINN gengst fyrir einstöku fararstjóranámskeiði með Ingólfi Guðbrandssyni sem aðalleiðbein- anda í því, hvernig fararstjórn íslenskra hópa erlendis verði best leyst af hendi. Námskeiðið verður í senn fræði- legt, en jafnframt praktískt, þar sem fjallað verður um markmið ferðalaga og hvernig þeim verði best náð, og gerð e-k handbók um flest, sem lýtur að vandasömu starfi fararstjóra við ýmsar aðstæður. Í máli og myndum verður ferðast um nokkur helstu ferðalönd heims og brugðið á þau ljósi frá sjónarhóli náttúrufræði, landafræði, þjóðfræði, sögu og menningar í fortíð og nútíð, ásamt úttekt á helstu kennileitum og merkisstöðum hvers lands. Fjallað verður um 3-4 Evrópulönd, en einnig fjarlægar álfur. Námskeiðið er haldið í Safnaðarsal Háteigskirkju, sem er miðsvæðis fyrir Reykjavík og nágrenni, og fer fram kvöldin 5., 12., 19. og 26. febrúar kl. 20-22, og síðdeg- is á laugardögum 9. og 16. mars kl. 13-17. Þátttakendur þurfa að hafa góða almenna menntun og færni í a.m.k. einu erlendu tungumáli, bæði töluðu og rit- uðu. Þátttakendur velja sér kjörsvið, eitt eða tvö þjóðlönd, verða lifandi þátttakendur í viðfangsefnum nám- skeiðisins og skila inn nokkrum stuttum úrlausnum, auk ritgerðar um kjörsvið sitt í lokin. Þeir sem ljúka verk- efnum námskeiðsins fá vottorð, viðurkenningarskjal, sem hefur alþjóðlegt gildi í sambandi við starfsumsókn. Markmið með námskeiðinu er að kunna í senn betur listina að ferðast sjálfur, og geta miðlað öðrum af þekkingu og færni. ENN ER HÆGT AÐ BÆTA VIÐ 10 ÞÁTTTAKENDUM. Gögn varðandi námsskeiðið eru innifalin í námskeiðs- gjaldinu, sem er kr. 39.000.- og greiðist fyrirfram. Sum stéttarfélög endurgreiða helming kostnaðar. ATH. Enn er hægt að bæta við nokkrum áheyrnarþátttakendum, sem einnig geta haft mikið gagn að þeim fróð- leik um ferðalög, sem á borð verður borinn, og eflt leikni sína í listinni að ferðast. GJALD kr. 15.000.- Ingólfur Guðbrandsson ÍSLANDSOLÍA hefur fengið lóð í Helguvík til að byggja olíubirgðastöð. Fyrirtækið hyggur á innflutning á gasolíu og sölu til stórnotenda. Unnið hefur verið að stofnun nýs olíufélags í tæp tvö ár. Fyrirtækið ætlaði að leigja tankapláss hjá Tanka- búi Helguvíkur ehf. sem fékk lóð í Helguvík á síðasta ári og hugðist byggja tanka og leigja olíufélögum og hverjum sem væri. Byrjað var á ein- hverjum framkvæmdum á lóðinni en þær stöðvaðar vegna þess að ekki tókst að tryggja verkefnið með næg- um viðskiptum eða fjármögnun. Nú hefur Íslandsolía fengið aðra lóð í suðurhluta Helguvíkur og hyggst byggja þar sína eigin tanka. Lóðin er 13 þúsund fermetrar að stærð, sam- kvæmt upplýsingum Péturs Jóhanns- sonar, hafnarstjóra hjá Hafnasamlagi Suðurnesja, og er úthlutað með venjulegum skilyrðum um að fram- kvæmdir skuli hefjast innan þriggja mánaða. Jón Gunnar Aðils, forsvarsmaður Íslandsolíu ehf., segir að lítið hafi gerst í málum félagsins frá því á miðju síðasta ári, framkvæmdir hafi tafist vegna þess að áform Tankabús Helguvíkur hafi ekki gengið eftir. Íslandsolía hyggur á innflutning og sölu gasolíu til stórnotenda. Jón Gunnar segir ekki tímabært að skýra frekar frá áformum fyrirtækisins eða hverjir standa að því. Fram kom á sínum tíma að innlendir aðilar stæðu að undirbúningi stofnunar félagsins með hugsanlegri þátttöku erlendra. Íslandsolía byggir eigin olíubirgða- stöð Helguvík Ölvaðir í hraðakstri og utan vegar LÖGREGLAN í Keflavík hafði um helgina afskipti af nokkrum öku- mönnum vegna hraðaksturs og ölv- unar á Reykjanesbrautinni, í einu tilviki vegna manns sem er grun- aður um ölvun við akstur á 123 kíló- metra hraða. Sá sem lögreglan stóð að akstri á mestum hraða um helgina var á 145 km hraða á Reykjanesbraut við Vogastapa síðdegis á laugardag. Hámarkaðshraði er 90 kílómetrar. Aðfaranótt sunnudags stöðvaði lögreglan mann á Reykjanesbraut á Strandarheiði á 123 kílómetra hraða. Ökumaðurinn er auk þess grunaður um ölvun. Sólarhring fyrr var tilkynnt um útafakstur bíls á svipuðum slóðum. Kom í ljós að bifreið hafði verið ek- ið útaf veginum og stóð hún níu metra sunnan við Reykjanesbraut- ina. Bifreiðinni hafði reyndar verið ekið um 150 metra utan vegarins. Ökumaðurinn var með áverka á höfði og hálsi og var hann grunaður um ölvun við akstur, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Við útafakst- urinn hafði grjót farið inn á Reykjanesbrautina og ökumenn tveggja bifreiða sem á eftir komu ekið á það. Hjólbarðar sprungu og talið er að undirvagn annarrar bif- reiðarinnar hafi laskast. Reykjanesbraut ÖKUMAÐUR vöruflutningabíls slapp með skrámur þegar bíll hans valt ásamt stórum tengivagni í mal- arnámum í Stapafelli í gærmorgun. Maðurinn var að sturta hlassi af tengivagninum í einhverjum halla í námunum þegar vagninn fór á hlið- ina og dró dráttarbílinn með. Öku- maðurinn komst ekki út af sjálfsdáð- um og var hjálparlið slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja kallað til auk lögreglu. Þurfti að losa fram- rúðu bílsins úr til að ná manninum út úr húsi bílsins. Stapafell Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Festist þegar malar- flutningabíll valt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.