Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 53 Verkalýðsfélagið Hlíf Allsherjaratkvæðagreiðsla Tillögur uppstillingarnefndar og stjórnar Verka- lýðsfélagsins Hlífar um stjórn, skoðunarmenn reikninga og stjórn sjúkrasjóðs félagsins fyrir árið 2002 liggja frammi á skrifstofu Hlífar frá og með þriðjudeginum 15. janúar 2002. Kosið er samkvæmt A-lið 22. gr. laga Hlífar í eftirtaldar stöður: 1. Formann, ritara og tvo meðstjórnendur til tveggja ára. 2. Tvo varamenn í stjórn til tveggja ára. 3. Tvo félagslega skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs. 4. Stjórn sjúkrasjóðs, formann, varaformann og ritara til eins árs og jafn marga til vara. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, fyrir kl. 16.00, föstudaginn 25. janúar 2002 og er þá framboðs- frestur útrunninn. Til þess að bera fram lista eða tillögu þarf skrif- leg meðmæli eða stuðning 1/10 hluta fullgildra félagsmanna, þó ekki fleiri en 100. Kjörstjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði Auglýst er eftir framboðum til prófkjörs í Hafnarfirði Ákveðið hefur verið að prófkjör um val fram- bjóðenda Sjálfstæðisflokksins við næstu bæjar- stjórnarkosningar fari fram 16. febrúar 2002. Hér með er auglýst eftir framboðum til próf- kjörs. Framboðið skal vera bundið við flokks- bundinn einstakling, enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu bæjarstjórnarkosningum. 10 flokks- bundnir sjálfstæðismenn, búsettir í Hafnarfirði, skulu standa að hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en hann má fæsta kjósa í prófkjörinu, það er að segja 6. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar, eftir að framboðsfresti lýkur. Framboðum ber að skila, ásamt mynd af við- komandi og stuttu æviágripi, til kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Strandgötu 29, mánudaginn 21. janúar 2002, kl. 18—22. Um prófkjörið vísast til reglna um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, sem hægt er að nálgast á heimsíðu flokksins á slóðinni www.xdhafnarfjordur.is . Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Hafnarfirði. TILBOÐ / ÚTBOÐ Forval Utanríkisráðuneytið, f.h. varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli, auglýsir hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna útboðs á eftirfar- andi rekstri innan varnarsvæðisins á Keflavík- urflugvelli: Hárgreiðslu- og snyrtistofa. Samningurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu fjórum sinnum, til eins árs í senn. Gjafa- og minjagripaverslun. Samningurinn er til tveggja ára með möguleika á framlengingu þrisvar sinnum, til eins árs í senn. Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra lögaðila. Forvalsgögn fást hjá Umsýslustofnun varnar- mála, Grensásvegi 9, Reykjavík, og á varnar- málaskrifstofu, ráðningardeild, Brekkustíg 39, Reykjanesbæ. Þau ber að fylla út af umsækj- endum og áskilur forvalsnefnd utanríkisráðu- neytisins sér rétt til að hafna forvalsgögnum sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið við upplýsingum frá þátttakendum eftir að for- valsfrestur rennur út. Umsóknum skal skilað til Umsýslustofnunar varnarmála, Grensásvegi 9, Reykjavík, eða varnarmálaskrifstofu, ráðningardeildar, Brekkustíg 39, Njarðvík, fyrir kl. 16.00, föstu- daginn 25. janúar nk. Utanríkisráðuneytið. TILKYNNINGAR Snjóflóðavarnir á Seyðisfirði — Bjólfssvæði Mat á umhverfisáhrifum Kynning á drögum tillögu að matsáætlun Drög tillögu matsáætlunar eru til kynningar á heimasíðunni www.honnun.is, einnig liggja frammi eintök til skoðunar á bæjarskrifstofu Seyðisfjarðar, Hafnargötu 44, Seyðisfirði. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri bréfleiðis til Hönnunar hf., Austurvegi 20, 730 Reyðarfjörður eða með tölvupósti til ari@honnun.is . Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30. janúar nk. Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á auglýstum tillögum að deiliskipulagi Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyting- um, eru hér með auglýstar afgreiðslur bæjar- ráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirtöldum deiliskipulagstillögum: Digranesvegur 51. Lóð Menntaskólans í Kópavogi. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar- ráð Kópavogs þann 25. október 2001 samþykkt tillögu að deiliskipulagi lóðar Menntaskólans í Kópavogi við Digranesveg. Í deiliskipulaginu felst að norðurálma skólans verður rifin og í hennar stað byggð tveggja hæða viðbygging. Bílastæðum á lóð er fjölgað. Tillagan var aug- lýst frá 31. ágúst til 28. september 2001 með athugasemdafresti til 12. október 2001. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipu- lagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýs- ing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan- greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipu- lagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 15. janúar 2002. Smiðjuvegur 3. Breyting á deiliskipulagi. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar- ráð Kópavogs þann 17. júlí 2001 samþykkt til- lögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 3 við Smiðjuveg. Í breytingunni felst að byggt er við núverandi húsnæði bæði til vesturs og norðurs. Bílastæðum á lóð er fjölgað og fyrir- komulag þeirra breytist. Tillagan var auglýst frá 2. maí til 30. maí 2001 með athugasemda- fresti til 13. júní 2001. Athugasemdir bárust. Tillagan var samþykkt óbreytt. Skipulagsstofn- un hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki at- hugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 15. janúar 2002. Rjúpnasalir 10, 12 og 14. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar- stjórn Kópavogs þann 30. október 2001 samþykkt tillögu að breyttu deiliskipulagi við Rjúpnasali 10, 12 og 14. Í breytingunni felst að hvert framangreindra húsa hækkar um tvær hæðir auk rishæðar og íbúðum fjölgar um 9 í hverju húsi. Jafnframt er bílastæðum fjölgað og fyrirkomulag þeirra breytist. Tillagan var auglýst frá 31. ágúst til 28. september 2001 með athugasemdafresti til 12. október 2001. Athugasemdir bárust. Tillagan var samþykkt óbreytt. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulags- ins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildis- töku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 15. janúar 2002. Vatnsendahvarf. Deiliskipulag. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar- stjórn Kópavogs þann 25. september 2001 samþykkt tillögu að deiliskipulagi athafna- svæðis við Vatnsendahvarf. Í tillögunni er gert ráð fyrir að hverfi fyrir verslun, þjónustu og iðnaðarstarfsemi rísi í norðanverðu Vatnsenda- hvarfi að stofni til á tveimur svæðum samtals um 16 ha. Áætlað byggingarmagn á svæðun- um er milli 60 og 70 þúsund fermetrar. Í tillög- unni kemur m.a. fram gatnakerfi, aðkoma, lóðir, byggingarreitir, byggingarmagn, hæð bygginga og skipulagsskilmálar. Tillagan var auglýst frá 20. júlí til 17. ágúst 2001 með at- hugasemdafresti til 3. september 2001. At- hugasemdir bárust. Á ofangreindum fundi bæj- arstjórnin voru jafnframt samþykktar eftirfar- andi leiðréttingar á tillögunni: miðlína Breið- holtsbrautar sett inn, göngustígar, lóðamörk og settjarnir aðlagaðar helgunarsvæði Breið- holtsbrautar. Byggingarreitur og austasta lóðin á svæði 2 og aðkoma að henni aðlöguð legu stofnræsis að ósk tæknideildar. Aukin kvöð um tré- og gróðurbelti og mörk skipulagssvæð- is færð vestur fyrir Vatnsendaveg. Greinargerð leiðrétt. Lóðir einkenndar með rauðri línu og bindandi byggingarlína skýrð með blárri línu. Afmörkun bílastæða á lóðum sýnd nánar. Jafn- fram hafa verið gerðar að ósk Skipulagsstofn- unar eftirfarandi breytingar: Húsagötur sýndar nánar. Ýtarlegri grein gerð fyrir ákvæðum um stoðveggi á lóðarmörkum og byggingarreitir kjallara og 1. hæðar aðgreindir. Greinargerð varðandi tilmæli leiðrétt og kaflinn um frávik, uppdrætti og kostnað færður á skýringarupp- drátt. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið máls- gögnin og gerði ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnar- tíðinda 15. janúar 2002. Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:30 og 16:00. Skipulagsstjóri Kópavogs. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Hafnfirðingar — Borgara- fundur — Norðurbakki Almennur borgarafundur um skipulagsmál Norðurbakka í Hafnarfirði, þriðjudagskvöldið 15. janúar kl. 20 í Álfafelli, Íþróttahúsinu við Strandgötu. Samfylkingin í Hafnarfirði. ÝMISLEGT Eftirlýstur vegna vörslusviptingar Lýst er eftir bifreiðinni TP-043, Grand Chero- kee, árg. 2001, svartur. Bifreiðin er samskonar og á ofangreindri mynd en tekið skal fram að myndin er ekki af eftirlýstu bifreiðinni. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um hvar bif- reiðin gæti verið niður komin eða í hverra höndum hún er, vinsamlegast hafi samband við Vörslusviptingaþjónustuna, Ármúla 15. s. 588 0540.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.