Morgunblaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 51
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2002 51
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
KYNNINGARFUNDUR um Alfa-
námskeið í Vídalínskirkju verður
haldið miðvikudaginn 16. janúar
kl. 20.00 í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli við Kirkjulund. Allir í
Garðaprestakalli sem áhuga hafa
eru hvattir til að mæta, en nám-
skeiðið sjálft hefst í vikunni þar á
eftir.
Alfanámskeiðin fjalla um ýmis
af grundvallaratriðum kristinnar
trúar og byggjast á efni sem upp-
runnið er í kristnum söfnuði í
London. Þar er fjallað um efnið
með fyrirlestrum og samræðum,
en sameiginlegt borðhald og
helgihald skipa þar einnig veg-
legan sess. Námskeiðin hafa alls
staðar vakið ánægju og eftirtekt.
Námskeiðið sjálft stendur yfir í
10 vikur. Ekki er krafist neinnar
heimavinnu, en hver af hinum 10
samverum hefst með borðhaldi
kl. 19, en samverunni lýkur ekki
síðar en kl. 22.
Vegna undirbúnings er nauð-
synlegt að skráningu á nám-
skeiðið ljúki ekki síðar en 21. jan-
úar.
Ertu forvitinn? Langar þig að
vita meira?
Komið á kynningarkvöldið og
takið vinina og makann með, því
Alfa er einnig vinarfundur.
Alfanámskeið í
KFUM og KFUK
ALFANÁMSKEIÐ I og II hefjast
þriðjudaginn 15. janúar kl. 18:45
í húsi KFUM og KFUK við Holta-
veg. Þau eru á vegum Biblíuskól-
ans við Holtaveg sem er í eigu
KFUM og KFUK, Kristniboðs-
sambandsins og Kristilegrar
skólahreyfingar.
Alfa-námskeiðið hefur farið
sigurför um heiminn. Það er
haldið í 128 löndum og yfir þrjár
milljónir manna hafa sótt það á
síðustu sjö árum. Námskeið er
haldið á æ fleiri stöðum á Íslandi,
en það var fyrst kennt í
Biblíuskólanum við Holtaveg.
Fjallað er um lykilatriði
kristinnar trúar. Góður tími er
fyrir umræður og reynt er að
svara spurningum þátttakenda.
Áhersla er lögð á að skapa gott
samfélag meðal annars með sam-
eiginlegum málsverði í upphafi
hverrar samveru. Á miðju nám-
skeiði verður svo kölluð Alfa-
helgi, sólarhringsdvöl í sum-
arbúðum KFUM og KFUK í Öl-
veri, þar sem hluti af nám-
skeiðinu fer fram. Hægt er að
kynna sér námskeiðið fyrsta
kvöldið án skuldbindinga. Það
mun verða haldið á þriðjudags-
kvöldum kl. 18:45–21:45, 15. jan-
úar til 19. mars.
Á sama tíma og Alfanámskeiðið
er kennt er einnig boðið upp á
Alfanámskeið II sem er einkum
hugsað fyrir þá sem hafa lokið
Alfa-námskeiði I. Efni þess er Fil-
ippíbréfið. Þetta námskeið er
jafnlangt og Alfa-námskeið I.
Væntanlegir þátttakendur skrái
sig á skrifstofu Biblíuskólans í
síma 588 8899. Kennarar verða
Ragnar Gunnarsson kristniboði
og Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri KFUM og KFUK í
Reykjavík.
Alfanámskeið í
Vídalínskirkju
Morgunblaðið/Þorkell
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa kl.
10-14 í neðri safnaðarsal. Skemmtiganga
um Laugardalinn eða upplestur kl. 10:30.
Umsjón Þóranna Þórarinsdóttir. Bæna- og
fyrirbænastund kl. 12 í kirkjunni. Umsjón
Guðrún K. Þórsdóttir. Léttur hádegisverður
að stundinni lokinni. Samvera foreldra
ungra barna kl. 14-16 í neðri safnaðarsal.
12 spora starf kl. 19:00 í kirkjunni.
Bústaðakirkja: TTT-starf (starf fyrir 10-12
ára) kl. 17.00.
Grensáskirkja: Kyrrðarstund í hádegi kl.
12:10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris-
ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili eftir stundina.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10:30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja: Ævintýraklúbburinn kl.
17:00. Fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir
börn úr 1.-3. bekk í umsjón Guðrúnar
Helgu, Sigrúnar, Völu og Jóhönnu. Öll börn
velkomin og alltaf hægt að bætast í hóp-
inn. Unglingaklúbburinn MeMe kl. 19:30.
Kröftugt starf fyrir unglinga í umsjón Gunn-
fríðar og Jóhönnu.
Laugarneskirkja: Morgunbænir hefjast nú
að nýju kl. 6:45-7:05 og standa alla virka
daga fram til vors. TTT-fundur kl. 16:00 fyr-
ir krakka í 5.-7. bekk. Fullorðinsfræðsla kl.
20:00 Yfirskrift námskeiðsins er „Líf og
dauði, sorg og gleði.“ Í kvöld fræðir sr.
Bjarni Karlsson um sorg og sorgarvið-
brögð. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Gengið inn um merktar dyr á austurgafli
kirkjunnar. Þriðjudagur með Þorvaldi kl.
21:00. Lofgjörðarstund, þar sem Þorvald-
ur Halldórsson leiðir sönginn og sóknar-
prestur flytur Guðs orð og bæn. Fyrirbæna-
þjónusta kl. 21:30 í umsjá bænahóps
kirkjunnar undir stjórn Margrétar Scheving
og hennar samstarfsfólks. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Neskirkja: „Litli kórinn“ kór eldri borgara
kl. 16:30. Stjórnandi Inga J. Backman. Ný-
ir félagar velkomnir. Foreldramorgunn mið-
vikudag kl. 10-12. Kaffi og spjall. Umsjón
Elínborg Lárusdóttir.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgunn kl.
10-12. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16 og fyrir 10-
12 ára kl. 17:30.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag þriðjudag kl. 12 í kapellu safn-
aðarins á 2. hæð í safnaðarheimili kirkj-
unnar, Laufásvegi 13. Allir velkomnir til
þátttöku.
Árbæjarkirkja: Foreldramorgnar kl. 10-12.
Hittum, kynnumst, fræðumst. TTT-klúbbur-
inn í Ártúnsskóla kl. 14.20-15.20. Barna-
kóraæfing kl. 17-18.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl.18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests í viðtalstímum
hans. „Bach í Breiðholtskirkju“ kl. 20:30.
kl. 20:30. Þetta eru 20. tónleikarnir í tón-
leikaröðinni. Þýski organistinn Jörg E.
Sondermann leikur orgelverk eftir J.S.
Bach. Aðgangseyrir rennur til Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Digraneskirkja: Kirkjustarf aldraðra. Leik-
fimi ÍAK kl. 11:15. Léttur hádegisverður,
helgistund. Starf fyrir 10-12 ára börn á
vegum KFU&K og Digraneskirkju kl. 16:30-
18:15. Félagsfundur í Safnaðarfélagi
Digraneskirkju kl. 20:30 í safnaðarsal. Fé-
lagsvist, helgistund. Fjölmennum og tök-
um með okkur gesti.
Fella- og Hólakirkja: Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 12:00. Þorvaldur Halldórsson
verður með lofgjörð og sér um tónlistina.
Bænaefnum má koma til djákna í s. 557n
3280 og í sama síma er hægt að panta
keyrslu til og frá kirkju. Léttur hádegisverð-
ur í safnaðarheimilinu eftir stundina og
húsið opið áfram til kl. 15:00. Starf fyrir
11-12 ára drengi kl. 17.00.
Grafarvogskirkja: „Opið hús“ fyrir eldri
borgara kl. 13:30. Helgistund, handa-
vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf
eitthvað gott með kaffinu. TTT (10-12 ára)
í Engjaskóla kl. 18:30-19:30. Kirkjukrakk-
ar í Engjaskóla fyrir börn 7 - 9 ára, kl.
17:30-18:30. Æskulýðsfélag í Grafarvogs-
kirkju, eldri deild, kl. 20:00-22:00.
Hjallakirkja: Bæna- og kyrrðarstund kl.18
á neðri hæð kirkjunnar.
Kópavogskirkja: Foreldramorgunn í dag, í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10-12.
Seljakirkja: Mömmumorgunn. Opið hús
milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 13.30-16 í Kirkjuhvoli. Spilað og spjall-
að. Helgistund í kirkjunni kl. 16. Fjölbreytt
kristilegt starf fyrir 9-12 ára stúlkur í Kirkju-
hvoli kl. 17.30 í umsjón KFUK.
Bessastaðasókn. TTT-kristilegt æskulýðs-
starf fyrir 10-12 ára í Álftanesskóla, stofu
104, kl. 17.30. Rúta ekur börnunum heim.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-
18.30 fyrir 7-9 ára. Kl. 20-22 æskulýðs-
félag yngri félaga.
Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8-9 ára
börn í dag kl 17:00. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund með Taizé-söngvum í dag kl. 18:00.
Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12
ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi,
Vonarhöfn frá kl. 17-18.30.
Landakirkja í Vestmannaeyjum
Fíladelfía. Kl. 16:00. Kirkjuprakkarar.
Samvera 7-9 ára krakka með Hjördísi
Kristinsdóttur, sem er nýr leiðtogi í kirkju-
starfinu.
Kl. 17:30. TTT - starfið fyrir 10-12 ára
krakka. Hjördís Kristinsdóttir.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu - tólf ára starf alla
þriðjudaga kl. 17- 18. Helgistund í kirkj-
unni sömu daga kl. 18.15- 19.
Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl.
13.40.
Hvammstangakirkja. Æskulýðsfundur í
Hrakhólum í kvöld kl. 20.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Alfanámskeið í Vídalínskirkju.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía:
Samvera eldri borgara kl. 15:00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel-
komnir.
Safnaðarstarf
Elsku amma Sumar-
rós, ég sakna þín svo
sárt og vildi að þú hefð-
ir aldrei farið, að
minnsta kosti ekki
strax. En þú varst orðin 97 ára og
áttir frekar erfitt með að ganga og
þess vegna trúi ég því að þú sért á
miklu betri stað núna og ég held að
þessi bæn lýsi því nákvæmlega
hvernig þér líður núna.
Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gefðu mér,
að ganga í dag, svo líki þér.
(Höf. ók.)
Svo trúi ég því líka að þú gangir
um á ljósbleiku skýi og haldir í hend-
urnar á Steinbergi afa og Ríkarði og
sért mjög ánægð og eigir í engum
vandræðum með að ganga og alveg
án verkja.
Þakka þér alveg rosalega vel fyrir
allar þær frábæru stundir sem við
áttum saman: kanarnir, góði ómót-
stæðilegi maturinn, lautaferðirnar
hvort sem þær voru í Vaglaskóg,
Kjarnaskóg eða bara út í garðinn
þinn fallega. Ég mun aldrei gleyma
þér og minningin um þig mun lifa
með mér alla mína ævi.
Takk fyrir allt.
Sigurlín Rós langömmubarn.
Ef ég ætlaði að skrifa allar ljúfu
minningar mínar um Sumarrós ent-
ist Morgunblaðið ekki til þess.
Ef ég tek bara þetta sérstaka
nafn, þar er svo margt sem kemur í
hugann sem lýsir manneskjunni. Á
sinn heillandi hátt var hún eins og út-
sprungin rós, full tilhlökkunar yfir
nýjum degi, bjartsýn, kát og hlý.
Orðin „grænir fingur“ öðluðust
nýja merkingu eftir að fylgjast með
Sumarrós innan um plöntur, en það
var ekki bara að allar plöntur virtust
una návist hennar, það gilti líka um
allt hennar fólk. Alveg eins og hún
skildi sérkenni og sérþarfir hverrar
plöntu og passaði að öllu væri sinnt
SUMARRÓS
SNORRADÓTTIR
✝ SumarrósSnorradóttir
fæddist á Steðja í
Þelamörk í Hörgár-
dal 10. maí 1905.
Hún andaðist á Ak-
ureyri 6. janúar síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Ak-
ureyrarkirkju 14.
janúar.
skv. kúnstarinnar
reglum, þannig var hún
líka við okkur og hafði
sérstakt lag á að láta
hverju og einu finnast
við svo ljómandi ágæt
og meira að segja
svoldið spes.
Sumarrós var sann-
kölluð sumarmann-
eskja og gerði ýmislegt
til að lengja það á allan
mögulegan máta. Varla
var snjórinn farinn að
vori að ekki væri freist-
andi að drekka kaffið
úti eða grilla. Það sama
gillti á haustin, laufin fallin og hin al-
menna íslenska grillhetja ekki sýni-
leg lengur nema einstaka laugardag,
það var nokkuð víst að ef litið var í
Hríseyjargötuna þá var Didda við
grillið, Sumarrós í sósum og salati
o.fl. nammi – og kveikt á hitalamp-
anum úti.
Þetta í raun sýnir að hún gerði
alltaf það besta úr öllu ásamt því að
gera hvern dag eftirminnilegan, ekki
bara með grillveislu heldur óteljandi
bíltúrum, lautarferðum, berjamó eða
skoða eitthvað nýtt, einhverja breyt-
ingu, einhvers staðar.
Sumarrós fylgdist vel með öllu og
var klárari í kollinum og minnugri en
við öll samanlagt. Vissi meira um at-
burði sögunnar, staði, fólk og tíma en
við var að búast af nokkurri mann-
eskju og hafði skoðanir á öllu. Ef hún
hafði lítið álit á málefni þá dugði
venjulega eitt gott hnuss, svo kom
,,ja“ á undan stuttri setningu og
meiru þurfti ekki að eyða í það. Svo
var hennar ógleymanlegi húmor og
smitandi hlátur þegar hún svo oft
kom auga á skondnu hliðarnar á til-
verunni. Þá hló hún svo innilega að
tárin flæddu og fyrir bragðið varði
hláturinn enn lengur hjá öllum við-
stöddum.
Elsku Sumarrós, þakka þér allar
stundirnar, minningarnar, kennsl-
una og fyrir að hafa gefið okkur
ómælanlegan styrk og kærleik öll
þessi ár. Hversu miklu miklu ríkari
erum við ekki fyrir bragðið.
Ég veit að þegar þú ert tilbúin og
vaknar hinum megin með Steinberg
og Ríkarð þér við hlið þá heldur þú
áfram að senda okkur öllum kærleik
og hlýju.
Svo hittumst við öll einhverntím-
an, grillum og höfum gaman.
Guð geymi þig allar stundir.
Takk fyrir að vera þú.
Ásta.
Við viljum með þess-
um orðum minnast
Jökuls Más Bjarkason-
ar sem átti stutta dvöl í
þessum heimi og votta foreldrum
hans og fjölskyldum þeirra dýpstu
samúð okkar.
Þín undursamleg alvalds Drottins gjöf,
þess eins sem skapar líf allt, lönd og höf.
Á hausti þegar heims fór stríð um hjarn,
þið hlutuð fegurst hnossið, lítið barn.
JÖKULL MÁR
BJARKASON
✝ Jökull MárBjarkason fædd-
ist á Landspítalanum
við Hringbraut 17.
september 2001.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Aust-
urlands 3. janúar síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Egils-
staðakirkju 12. jan-
úar.
Með alúð vilduð annast ykkar
son,
í ungum brjóstum eygðuð
ávallt von.
Umvafinn var ungur sveinn
með ást,
en óumflúið, líf og heilsa
brást.
Í heimi þessum hafði stutta
dvöl,
því herrann vildi forða þér
frá kvöl.
Í efsta ríki englavængi færð,
þú anginn litli syngur þar
og hlærð.
Í minningunni móður og föður blítt,
þitt milda hjal og brosið ljúft og hlýtt.
Ó, drottinn Guð, við drenginn kveðjum klökk,
en dýrð þú honum veitir, hafðu þökk.
Gunnlaugur, Rúnar, Ægir
og fjölskyldur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
KIRKJUSTARF